Morgunblaðið - 13.11.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
15
Nýtt jólakort frá
Asgrímssafni
JÓLAKORT Asgrímssafns 1982 er
komið út. Það er prcntað eftir
vatnslitamyndinni Hver í Námafjalli
í Mývatnssveit. Myndin, sem var
máluð 1951, er nú til sýnis á haust-
sýningu safnsins.
Kortið er í sömu stærð og fyrri
listaverkakort safnsins (16x22 sm)
og er með íslenskum, dönskum og
enskum texta á bakhlið. Grafik hf.
offsetprentaði. Listaverkakortið
er til sölu í Ásgrímssafni, Berg-
staðastræti 74, á opnunartíma
þess, sunnudögum, þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 13.30—16.00
og í Rammagerðinni, Hafnar-
stræti 19.
Basar- og kaffisala
Kvenfélags Kristskirkju
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi: „Á morgun, sunnudag-
inn 14. nóvember, mun Kvenfélag
Kristskirkju (Paramentfélagið)
halda bazar og kaffisölu í Landa-
kotsskólanum. Hefst það kl. 14.30.
Þetta er orðinn árlegur viðburð-
ur í starfsemi félagsins.
Þar verða á boðstólum ýmsir
góðir munir sem hægt er að nota
til jólagjafa og verða þeir seldir á
mjög hagstæðu verði. Einnig
verða seldir lukkupokar og potta-
blóm, og svo geta menn gætt sér á
kaffi og gómsætum kökum.
Vildi ég því hvetja alla til þess
að koma og styrkja málefni kven-
félagsins, og ég bið þess að algóður
Guð megi styrkja starfsemi þess.
Séra Ágúst K. Eyjólfsson,
sóknarprestur."
í alþjóðaviðskiptum. Sjávarútveg-
urinn hefir margoft varað við
margvíslegri óarðbærri fjárfest-
ingu á undanförnum árum og
hvatt til aðhalds í þeim efnum, en
þær aðvaranir hafa því miður ekki
fengið hljómgrunn, fyrr en e.t.v.
nú. Sú stefna, sem ráðið hefir í
þessum efnum, hlýtur að vera
velflestum, sem í sjávarútvegi
starfa, verulegt áhyggjuefni.
Yfirráð íslendinga yfir fiski-
miðunum umhverfis landið eiga,
ef rétt er á haldið, að geta leitt til
hagkvæmari nýtingar og lægri til-
kostnaðar við veiðarnar en áður.
Margt bendir því miður til þess, að
stækkun flotans og óhjákvæmi-
legar veiðitakmarkanir hafi haft
gagnstæð áhrif og tilkostnaður
fari fremur vaxandi en hitt. Þetta
er mjög óæskileg þróun, sem sjáv-
arútvegurinn verður að hamla á
móti, þar sem hún hlýtur beint og
óbeint að bitna á rekstursafkomu
fyrirtækjanna.
Athyglisvert er, að á síðasta ári
jókst fjárfesting atvinnuveganna
um 6%, og varð aukningin einna
mest ! fiskiskipaflotanum, og svo
mun vætnanlega einnig verða á
þessu ári, þrátt fyrir ítrekuð and-
mæli samtaka sjávarútvegsins
gegn frekari fjárfestingu í nýjum
fiskiskipum. Leggja verður
áherzlu á, að í framtíðinni verði
stefnt að sem beztri samræmingu
milli sóknargetu fiskiskipastólsins
og afrakstursgetu fiskistofnanna.
Það þýðir óhjákvæmilega, að
næstu árin verður að takmarka
verulega nýsmíði fiskiskipa og
stefna að hóflegri endurnýjun,
þannig að um sinn dragist heild-
arafköst hans nokkuð saman frá
því sem nú er. Lánafyrirgreiðsla
Fiskveiðasjóðs og annarra sjóða
þarf að miðast við þá tryggingu,
sem skynsamleg fiskiveiðistefna
og þar með stöðugri og jafnari af-
rakstur fiskiskipastofnanna hefir
í för með sér, en ekki hugsanlega
verkefnaþörf íslenzks skipasmíða-
iðnaðar.
Á hinn bóginn er full þörf á að
gera ýmsar endurbætur til auk-
innar framleiðni og betri rekstr-
armöguleika hjá fiskvinnslunni,
en að undanförnu hefir fiskvinnsl-
an verið í algjöru lánsfjársvelti.
Eins og ávallt áður, þegar þjóð-
in hefir staðið frammi fyrir mikl-
um efnahagslegum vanda, verða
atvinnuvegunum settir harðir
kostir, þegar að því kemur að
leysa þennan vanda. Slíkt er engin
nýlunda. Það er því mikilvægt, að
þær ráðstafanir, sem gerðar
verða, miði að því að treysta af-
komu fyrirtækjanna til lengri
tíma og atvinnugrundvöll þeirra
sem í sjávarútvegi starfa. Sjávar-
útvegurinn er og mun verða um
langa framtíð höfuðstoð íslenzks
efnahagslífs. Þessa stoð verður að
treysta svo, að þjóðin geti byggt á
henni áframhaldandi batnandi
lífskjör.
Mikil aukning á íslands-
ferðum Bandaríkjamanna
Kandaríkjamanna hingað til lands í
framhaldi af kynningarherferð Ferða-
málaráðs og fleiri aðila á íslandi í
Bandaríkjunum. Að sögn Heimis
Hannessonar, formanns Kerðamála-
ráðs, varð til dæmis 13% aukning á
ferðum Randaríkjamanna hingað til
lands á þessu ári fram til 1. september,
miðað við árið áður. Þessa aukningu
sagði Heimir vera því athyglisverðari,
þegar þess væri gætt að á sama tíma
jukust ferðir Bandaríkjamanna til ann-
arra Evrópulanda aðeins um 4%:
Þessa þróun sagði Heimir mega
merkja á nánast öllum sviðum er
snertu ferðamannastraum Banda-
ríkjamanna til íslands og fyrir-
spurnir Bandaríkjamanna um ís-
land. Fram til 1. september sl. miðað
við sama tíma í fyrra varð til dæmis
50% aukning á ferðum í svonefndum
„pakkaferðum“ þar sem fólk kaupir í
einu lagi ferðir, hótel, fæði og skoð-
unarferðir. Þá varð 90% aukning á
bréfum þar sem óskað var upplýs-
inga um ísland og íslandsferðir, og
um 30 til 40% aukning varð á öðrum
fyrirspurnum.
„Við teljum þessa aukningu í
beinu framhaldi af kynningarher-
ferð okkar vestanhafs," sagði Heim-
ir, „og ég tel að rétt sé að halda
áfram á sömu braut. Þróunin hefur
verið mjög jákvæð, og þess er einnig
að geta að enn eru ekki komin fram
áhrif Skandinavíusýningarinnar og
ferð forseta íslands til Bandaríkj-
anna.
DÖMU
GARÐURINN
_____opnar í Aóalsöæti 9
Erla Ólafs hefur opnað nýja kvenfataverslun í
Aðalstræti 9. Erla er reyndar eiginkona herra
Garðars í Herragarðinum, þannig að það kom
aðeins eitt nafn til greina á nýju búðina:
__________ Dömuaarðurinn. _______________
Dömugarðurinn er fullur af fötum og skóm fyrir dömur
á öllum aldri. Fötum sem ekki eru valin af handahófi, heldur fengin
hjá virtustu og frægustu fataframleiðendum heims.
Meðal beirra eru:
Cl,
ristian
Di
íor
Cristian Dior Paris, óumdeilanleoa eitt þekktasta merkið í
tískuheiminum. Við verðum með Dior kvenskó í mjög góðu úrvali.
Jaeqer, klassískar vörur sem aldrei verða gamlar.
Jaeger er sérstaklega þekkt fyrir úrvals ullarvörur og frábæra
hönnun.
_______damel hechter_„
DanielHechter bekktur tískukóngur í París sem gjarnan fer
ótroðnarslóðir.
í Dömugarðinum verður áherslan sem sagt á vönduðum fatnaði,
framleiddum úr úrvals efnum eftir fyrirsögn færustu fatahönnuða.
Erla hefur fengið til liðs við sig sem verslunarstjóra
Svölu Haukdal og saman eru þær ákveðnar í að veita
viðskiptavinum sínum
bestu biónustu í bænum.
Aðalstræti 9-Sími 16600