Morgunblaðið - 13.11.1982, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti:
Kynning á skólastarfinu
—
STARFSEMI Fjölbrautaskólans í
Breiðhnlti verður kynnt í dag, laug-
ardaginn 13. nóvember, kl. 14—17.
Fólki er gefinn kostur á að fylgjast
með nemendum í kennslustundum
auk þess sem kór skólans og nem-
endur á tónlistarbraut koma fram og
skemmta gestum. Loks verða veittar
upplýsingar um starfsemi dagskóla
og kvöldskóla.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
hóf starfsemi sína 4. október 1975
Forsíða kynningarbæklings, sem gerður hefur verið um Fjölbrautaskólann í
Breiðholti.
RöfmaLTi
FJOLBRAUTASKOLINN
BREIÐHOLTI
með 221 nemanda. Aðsókn að skól-
anum hefur síðan aukist jafnt og
þétt og í dag er hann fjölmennasti
framhaldsskóli landsins. í skólan-
um er bæði dagskóli, en nemendur
hans eru í árslok 1982 1254, og
kvöldskóli eða öldungadeild og eru
nemendur hans 522. Rétt til inn-
göngu í kvöldskóla hafa þeir sem
eru tvítugir að aldri eða eldri. All-
ur skólinn starfar á grundvelli
anna- og áfangakerfis en það gerir
nemendum mögulegt að ráða
námshraða sinum.
Námssvið Fjölbrautaskólans
eru sjö og námsbrautir sviðanna
þrjátíu. Sum námssviðin veita
(einhver) réttindi eftir eins eða
tveggja vetra nám en stúdents-
prófi sem nemendur ljúka að jafn-
aði á 3V4 —4 árum má ljúka á öll-
um námssviðum skólans.
Námssviðin eru: almennt bók-
námssvið, heilbrigðissvið, hús-
stjórnarsvið, listasvið, tæknisvið,
uppeldissvið og viðskiptasvið.
í tilefni kynningarinnar í dag
hefur verið gerður sérstakur
bæklingur, þar sem saga skólans
er rakin, nokkur grein gerð fyrir
námssviðunum og félagslífinu
lýst.
INNLENT,
Vistfólkið að Asi, Hveragerði, við vinnu sína.
Sölusýning vistfólks
að Asi, Hveragerði
llveragerdi, 9. nóvember.
DVALARHEIMILIÐ As í Hveragerði
verður með sölusýningu, basar,
sunnudaginn 14. nóvember næstkom-
andi klukkan 14 að Bröttuhlið 20
(Magnahúsinu). Þar verða til sýnis og
sölu munir unnir af vistfólkinu á Ási.
Þessar sölusýningar eru orðnar
árviss viðburður og gera þar margir
góð kaup, þar eð verði er stillt í hóf.
Bíða margir eftir að kaupa þar hlý
og góð föt til vetrarins, því að þarna
er á boðstólum úrval af lopapeys-
um, húfum, treflum, sokkum, vettl-
ingum og fallegum sjölum. Þá er
um margs konar útsaumsvörur að
velja, svo sem jóladúka, vegg-
myndir, púða o.fl. Einnig eru prjón-
aðar brúður og bangsar.
Kennarar í Ási eru þær Unnur
Benediktsdóttir og Ólöf Haralds-
dóttir. Að þeirra sögn vinnur vist-
fólkið mjög mikið, en þær sjá svo
um allar uppsetningar og lokafrá-
gang. Á síðasta ári seldi vistfólkið
framleiðslu sína fyrir 40 til 50 þús-
und krónur. Daglega er salan opin
að Bröttuhlíð 20 milli klukkan 13.30
og 17 fimm daga vikunnar. Allir eru
velkomnir að koma þangað og
verzla, heimamenn og þeir, sem
leggja leið sína um Hveragerði.
— Sigrún.
Bazar Húsmæörafélagsins
HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykjavík-
ur heldur árlegan bazar sinn að
Hallveigarstöðum á sunnudag og
hefst hann klukkan 14. í fréttatil-
kynningu, sem borizt hefur segir,
að meðal muna á bazarnum megi
nefna ullarfatnað, prjónuð leik-
föng, svuntur og ýmiss konar jóla-
handavinnu að ógleymdum lukku-
pokum. Húsmæðrafélag Reykja-
víkur styrkir ýmis góð málefni og
mun svo einnig verða að þessu
sinni.
s
Ólympíunefnd íslands stillti happdrættisbifreiðum sinum upp á Lækjartorgi í gær til þess að minna á að nú fer
hver að verða síðastur til að gera skil á miðum sínum til þess að eiga möguleika á að hljóta eina af þessum 12
bifreiðum, sem í boði eru. Dregið verður í happdrættinu á mánudag. Morgunblaðið/Emilia
NEMENDAFÉLAG Flensborgar-
skólans býður Hafnfirðingum í
matsal skólans klukkan 15 í dag, i
tilefni þess, að lokið er við innrétt-
ingu nýs mötuneytis fyrir nemcnd-
urna. Á boðstólum verða kaffi og
pönnukökur.
Nemendafélagið sótti til bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar um fjár-
veitingu til að koma upp mötun-
eyti fyrir nemendur og að sögn
Jóns Páls Baldvinssonar, for-
manns nemendafélagsins, veittu
bæjaryfirvöld 50 þúsund krónur
Mjólkurdagar 1982
verða um helgina
NÚ UM helgina verða „Mjólkurdagar
1982“ haldnir í húsi Osta- og smjörsöl-
unnar sf., Bitruhálsi 2. Þetta verður
fjölbreytt sýning á mjólkurréttum og
mjólkurvörum. Slíkir dagar hafa verið
haldnir hér á landi nær árlega í 10 ár,
eða allt frá því að fyrsta Mjóikurdags-
nefndin var stofnuð. Sú nefnd er skip-
uð fulltrúum ba-nda og mjólkuriðnað-
arins. Tilgangur mjólkurdaganna er
fyrst og fremst sá að vekja athygli á
mjólk og mjólkurvörum, og þá kannski
sérstaklega nýjungum. Húsið verður
opið frá kl. 13.00—20.00 á laugardag
og sunnudag.
Leiðrétting
í FRÉTT í Morgunblaðinu síðastlið-
inn þriðjudag, þar sem skýrt var
frá setningu kirkjuþings og talin
upp nöfn þeirra látinna, sem biskup
landsins minntist í upphafi þings-
ins, misritaðist nafn Helga Rafns
Traustasonar, fyrrverandi kaupfé-
lagsstjóra. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á þessu.
Á kynningunni nú verða sýnd
fjögur veisluborð: hlaðborð, kvöld-
verðarborð, síðdegiskaffiborð og
„partý-borð“. Á þessum borðum
verða fjölbreyttir veisluréttir úr
mjólkurafurðum. Uppskriftir af
þessum réttum eru í bæklingi sem
gefinn hefur verið út í tengslum við
„Mjólkurdaga 1982“. Bæklingurinn
er skrifaður af húsmæðrakennurum
sem starfa hjá Mjólkursamsölunni
og Osta- og smjörsölunni, en þær
hafa ennfremur gert alla þá rétti
sem í honum eru kynntir og sýndir á
veisluborðunum. Þá verða aðrir tveir
hæklingar kynntir þessa daga; annar
bæklingurinn er með ýmsum réttum
úr skyri, en hinn er með uppskrift-
um þar sem notaður er skafís.
Margt fleira verður á sýningunni.
Mjólkurdagsnefnd hefur nýlega látið
gera tvær kvikmyndir um mjólk og
mjólkuriðnað og verða þær frum-
sýndar. Það er Framsýn hf. sem tók
þessar myndir og í þeim er brugðið
upp helstu þáttum mjólkurfram-
leiðslunnar og síðan vinnslunni í
mjólkurbúunum.
Þá verða ýmsar nýjungar kynntar.
Á markaði hér á landi eru nú yfir
200 mismunandi mjólkurvörur, en
þrátt fyrir það eykst fjölbreytnin sí-
fellt. Kynntir verða tveir nýir ostar
frá mjólkursamlaginu í Búðardal,
„Yrja“ og „Brie“. Einnig rjómaostar
með nýjum bragðefnum. Þarna
verða á boðstólnum nýjar ístegundir
og margar tegundir af ídýfum. Það
verður gerð könnun á því á sýning-
unni hvaða ídýfa gestum finnst best.
Þá fá þeir sem vilja tækifæri til að
bragða á mörgum tegundum osta.
Mjólkurvörumarkaður verður
starfræktur af miklum krafti. Þar
verða seldir kynningarpakkar með
úrvali af mjólkurafurðum. Þeir eru á
sérstöku tækifærisverði. Auk þess
verður í gangi heilmikil hlutavelta,
með margvíslegum vinningum, allt
frá „mysupinnum" upp í stærðar
osta.
til framkvæmdanna með því skil-
yrði, að nemendur legðu sitt af
mörkum líka. Nemendafélagið
annaðist svo smíðavinnu, sem nú
er lokið, og verður mötuneytið vígt
í dag með boðinu til bæjarbúa.
Framkvæmdin fólst í stækkun
matsalar og gamall kyndiklefi var
innréttaður sem eldhús og af-
greiðsla.
Tannbursta-
sala til styrkt-
ar öldruðum
Tannburstasala er ein af helstu
tekjuöflunarleiðum Lionsklúbbs-
ins Fjölnis í Reykjavík á þessu ári
og verður lokaátak Fjölnismanna í
tannburstasölunni nú um helgina.
Ágóði fer allur til stuðnings öldr-
uðum og til ýmissa líknarmála,
segir í frétt frá Fjölni.
Sá stuðningur sem Fjölnismenn
standa fyrir með þessum hætti er
yfirleitt veittur til ýmislegra að-
stöðubóta, í búnaði og tækjum,
segir ennfremur í fréttinni.
Þessar konur eru húsmæórakennarar sem starfa hjá Mjólkursamsölunni og
Osta- og smjörsölunni. Þær eru þarna með sýnishorn af nýjum ostategundum
og skyrtertu. Frá vinstri: Dómhildur Sigfúsdóttir, Sigríður Hróðmarsdóttir og
Benedikta Voge.
Ragnar Lár sýnir
í Gallerí
Lækjartorgi
RAGNAR Lár opnar sýningu í
Gallerí Lækjartorgi í dag og eru á
sýningunni 35 myndir, unnar í
olíu, vatnsliti og túss. Ragnar Lár
hélt sína fyrstu sýningu í Ás-
mundarsal 1956, en hann er nú
búsettur á Akureyri og starfar
eingöngu við myndverk og mynd-
skreytingar. Á meðfylgjandi mynd
er Ragnar Lár við eitt verkanna á
sýningunni í Gallerí Lækjartorgi.
Flensborgarskóli Hafnarfirði:
Nemendur vígja nýtt mötuneyti
— bjóða bæjarbúum í kaffi og pönnukökur