Morgunblaðið - 13.11.1982, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
• Roberto Mancini var keyptur á 42 milljónir ísl. króna en hann
verður 18 ára 27. nóv. nk. Hann er dýrasti knattspyrnumaóur
Ítalíu. Hér að neöan má sjá 10 dýrustu leikmenn á Ítalíu.
Frá Til ísl.kr.
Roberto Mancini . . FC Bologna UC Sampdoria . 42.000.000
Zbtgniew Boniek . . Widzew Lodz ... Juventus FC ... 24.000.000
Pietro Vierchowood Fiorentina AS Roma 21.000.000
Ramon Diaz . River Plate SSC Napoli.... 21.000.000
Massimo Mauro . . Catanzaro Udinese 21.000.000
. Catanzaro AC Torino 21.000.000
Daniel Passarella . River Plate Fiorentina 16.500.000
Pietro Fanna . juventus FC Verona 16.500.000
Michel Platini ... . AS Saint Etíenne juventus FC ... 16.500.000
TVevor Francis ... . Mancheater City. US Sampdoria . 15.000.000
v #**..■.
■ j np
• Stuðningsmannafélag Lokeren
kaus í vikunni Arnór Guöjohnsen
leíkmann síðasta keppnistíma-
bíls hjá félaginu. Var Arnóri hald-
ið hóf og honum færð stór og
mikil mappa full af myndum og
biaðaórklippum frá síðasta tíma-
bHi.
• Per Rontved landsliösfyrirliði
Dana f knattspyrnu hefur fengið
tilboð um aö fara til Bandaríkj-
anna og leika þar innanhúss-
knattspyrnu. Hann segist hafa
mikinn áhuga á slíku en Rontved
er nú á síðasta snúning sem
knattspyrnumaður sökum aldurs.
• Paolo Rossi varð þjóðhetja á Ítalíu eftir HM-keppnina á Spáni síö-
astliðið sumar. Og það þótti við hæfi að hann fengi áheyrn hjá Jóhann-
esi páfa. Hér má sjá hvar Jóhannes Páll tekur á móti knattspyrnu-
stjörnunni. Það fór vel á með þeim og páfi sagðist hafa leikiö mikið
knattspyrnu þegar hann var lítill drengur heima í Póllandi. Og jafnan
haft gaman af.
• Thorbjörn Nilsson fyrrum
miðherji IFK Gautaborg sem
skoraði í hverjum leik liðsins í
UEFA-keppninni í knattspyrnu á
síðasta ári leikur nú meö Kaiser-
lautern í V-Þýskalandi. Nilsson
var um daginn kjörinn besti
knattspyrnumaður Svíþjóðar fyrir
síðasta keppnistímabil. Honum
hefur ekki gengið sem best hjá
Kaiserlautern.
Tíundi hver
íslendingur kom á
Laugardalsvöllinn
Á morgun, sunnudag, verður birt önnur greinin um fræg knatt-
spyrnufélög í Morgunblaðinu. Sú fyrsta í greinaflokknum var síðasta
sunnudag og þá var sagt frá enska liöinu Tottenham. Á morgun veröur
sagt frá Benfica frá Portúgal. Árið 1968 kom lið Benfica til Islands og
lék hér í Evrópukeppninni í knattspyrnu gegn Val. Er það svo merki-
legt? Já, að vissu leyti. Því þá var sett aösóknarmet í laugardal. Tíundi
hver íslendingur kom á völlinn. Ætlaö var að um 19 þús. manns hafi
verið á Laugardalsvellinum og horft á leíkinn. í bókinni Valur vængjum
þöndum, sem kom út í sambandi við 70 ára afmæli félagsins, er þannig
greint frá þessum merka leik:
Fregnin flaug um landiö, þegar kunngert var um dráttinn í fyrstu
umferö keppninnar. Benficall Áhugi allra var vakinn. Þetta liö var skipaö
eintómum snillingum í knattspyrnulistinni og bar nafn Eusebio aö sjálf-
sögöu hvaö hæst. Aldrei, hvorki fyrr né síöar hefur annar eins áhugi
skapast hér á landi fyrir einum knattspyrnuleik. Dagblööin skrifuöu spalta
upp og niöur um Benfica og Val. Hvar sem komið var ræddu menn um
komu Benfica. Hér heima störfuöu móttökunefnd, áróöursnefnd og fjár-
öflunarnefnd aö því aö undirbúa komu meistaranna. Löngu fyrir leikinn
var fariö aö selja miöa og þaö var í rauninni barist um miöana í þaö
skiptiö. Allt hjálpaöist aö. Jafnvel veöriö, sem getur brugöiö til beggja
vona í septembermánuöi, reyndist Valsmönnum einstaklega hliöhollt.
Koma Benficamanna til landsins var gerö aö meiriháttar fréttamáli. Jafn-
vel æfing Benfica á Valsvellinum dró aö sér þúsundir manna. Viö hótelið
var oftast svarmur af aðdáendum sem reyndu að nálgast goöin sín.
í þetta sinn reyndist leikvangurinn í Laugardal alltof lítill. Áhorfenda-
stæöi og stúka voru meira en full. Hvarvetna gat aö líta áhorfendur og
jafnvel markataflan var notuö til hins ítrasta af ungum áhugamönnum,
sem vildu fá gott útsýni yfir völlinn. Hin opinbera tala yfir áhorfendur aö
leiknum var 18.243, en þaö er nær lagi aö þeir hafi veriö yfir 19 þúsund,
— eöa tíundu hver Islendingur. Er þaö einstæö tala og sýnir best hversu
mikla athygli þessi leikur vakti.
Stemmningin á leiknum var líka eins og best verður á kosið. Valsmenn
voru hvattir til dáöa af áhorfendum í blíöviðrinu og þeir létu ekki á sér
standa aö svara þessum hvatningum. Þeir böröust sem best þeir kunnu,
— og hafi lið einhverju sinni gert betur en þaö gat, þá var þaö einmitt í
þessum leik.
Ef tala á um eina eöa tvær „stjörnur" Valsliösins umfram aöra leik-
menn, þá dettur víst flestum í hug Siguröur Dagsson í markinu, — og Páll
Ragnarsson.Þessir tveir voru á varöbergi öðrum fremur gagnvart hinum
baneitraöa markaskorara Eusebio. Páli tókst aö „skyggja“ þessa hetju
Portúgalanna svo vel aö hann átti ekki margra kosta völ í leiknum. Tækist
hinum aö skjóta, þá var Siguröur Dagsson þar fyrir.
„Ég haföi nóg aö gera í þessum leik gegn Benfica," segir Siguröur
Dagsson. „En mér tókst aö halda markinu hreinu þessar níutíu mínútur
og þaö haföi víst engum dottiö í hug aö viö mundum gera. Leikurinn allur
og aödragandi hans var annars hreinasta ævintýri.
Þaö er annars margs aö minnast frá þessum leik, en eitt er þó alltaf
Ijóslifandi fyrir augunum á mér. Snillingurinn mikli, Eusebio kastaöi sér
fram af miklum krafti og tókst aö skalla á markiö. Ég fleygöi mér
umsvifalaust út í horniö eftir boltanum og tókst aö góma hann.
Seinni leikurinn í Portúgal var miklu erfiöari fyrir mig og okkur alla, 8:1
fyrir Benfica. Samt held ég aö ég geti fullyrt aö ég hafi ekki staðið mig
síöur í þeim leik,“ sagöi Siguröur Dagsson aö lokum. Hann keppti annars
í 8 leikjum meö Val í Evrópubikarkeppni og var oft sá maðurinn sem mest
var í sviðsljósinu.
Hermann Gunnarsson, fyrirliöi Vals í þessum stóra leik sagði:
„Þessi leikur viö Benfica hlýtur náttúrulega aö vera hápunkturinn í
leikjum mínum með Val. Ég var eiginlega hræröur er ég tók í höndina á
Coluna fyrirliða Benfica meö svo marga áhorfendur í Laugardalnum. Þaö
þarf svo sem ekki aö fara mörgum orðum um þennan leik, hann er
mörgum í fersku minni enn þann dag í dag.
Súperstjarnan
SHILTON
• Hann er talinn vera besti markvörður í Englandi og er búinn að vera þaö
um nokkurn tíma. Margir eru á því að hann sé einn af bestu markvörðum heims-
ins. En hvað um það, Peter Shilton er bæði litríkur og mikið umtalaður maður.
'• Hann er oft og iöulega í fréttunum fyrir hliðarspor sín. Hann var eitt sinn meö
giftri konu í bifreið sinni árla morguns er eigínmaður konunnar kom að þeim. Shilton
setti sportbíl sinn á fulla ferð og ætlaði sér að sleppa en ekki tókst honum betur til en svo að
hann ók beint á Ijósastaur. Hann var tekinn í yfirheyrslu og í Ijós kom aö hann var undir áhrifum áfeng-
is. Hann gerir mikið af því að slappa af frá knattspyrnunni með því að leika fjárhættuspil. Hann hefur líka
efni á því, því hann er auðugur maður. Hann velur vini sína og bíla jafnt sem klæðnað af kostgæfni. í íþróttablaði
Morgunblaðsíns á þriöjudag segjum við frá þessum litríka knattspyrnumanni sem á svo marga aðdáendur.
IS vann stóran sigur
IS VANN yfirburðasigur,
105—58, á slökum Grindvíking-
um í 1. deild karla á fimmtu-
dagskvöldið.
Fyrri hálfleikur var alger ein-
stefna á körfu Grindvíkinga og
var staöan í hálfleik 55—28 fyrir
ÍS.
I seinni hálfleik var sama upp á
teningnum og lokatölur uröu því
eins og áður segir 105—58.
Stigahæstir hjá ÍS voru Pat
Bock 20, Gísli Gíslason 20, Guö-
mundur Jóhannesson 19, Árni
Guðmundsson 18, Tryggvi Þor-
steinsson 11 og Árni Sigurlaugs-
son 9 stig.
Hjá UMFG skoraði Mike Sailes
34 stig og jafnframt yfirburða-
maöur í sínu liði, einnig var Ingv-
ar Jóhannesson, meö 12 stig,
seigur.
KR SIGRAÐI ÍS 69—48 í 1. deild
kvenna á fimmtudagskvöldiö.
KR-stelpurnar höföu góöa for-
ystu í hálfleik, 38—17, og leyföi
„Stu" Johnson, þjálfari KR, því
öllum stúlkunum að spreyta sig í
seinni hálfleik. Viö þaö jafnaöist
leikurinn og lokatölur uröu
69—48.
Stigahæstar hjá KR voru Linda
26, Erna 18 og Emilía 10 stig.
Stigahæstar hjá ÍS voru Vigdís
23 og Þórdís 6.