Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
51
%
100
90
80
60
50
40
30
20
10
Hlutfallsleg skipting fjármögnunar ríkis
til rannsókna og þróunarstarfsemi
nokkurra landa 1979
Japan USA Frakkl. Island
Þaö eru ýmsar spurningar sem
vakna við slíka athugun. Ætli þaö
sé tilviljun að ýmsar atvinnu-
greinar hér á landi séu svo van-
þróaðar sem raun ber vitni, sem
kemur best fram í minnkandi
markaðshlutdeild þeirra, eða eðli-
leg afleiðing fjárskorts til rann-
sóknar- og þróunarstarfsemi?
Ætli þaö sé tilviljun að fundist
hafa svo oft gallar og skemmdir i
fiskafuröum okkar erlendis, eða
eðlileg afleiðing fjárskorts til rann-
sóknar-, þróunar- og skipulags-
starfsemi?
Ætli það sé „eðlileg íslensk
þróun" að í okkar aðalatvinnuvegi
t.d. saltfiskvinnslu ríki nánast
sömu vinnubrögðin og fyrir 200
árum eða meir, nema komnar eru
hausinga- og flatningsvélar? Á
sama tíma setja Japanir saman
heilu bílana algerlega í vélum,
með áðurnefndum árangri.
Islendingar sem og aðrar þjóðir
eiga í vaxandi samkeppni hver við
aðra, þar sem verð og gæði var-
anna skipta hvað mestu máli. Þess
vegna ættu menn að beita í auknu
mæli vinnuaðferðum þeirra þjóða
sem hefur tekist þetta hvað best,
ásamt árangri í baráttu við verð-
bólgu, atvinnuleysi og framleiðni
og skapa þannig auknar forsendur
fyrir auknum kaupmætti launa-
fólks til lengri tíma litið.
Þaö er viöurkennd staðreynd aö Bandaríkjamenn framleiöa
kælitæki í hæsta gæöaflokki.
Með vandláta kaupendur í huga bjóðum viö pví núna
ameríska PHILCO kæliskápa í mörgum stæröum og litum.
Hér fara saman fallegt útlit og haganlegar innréttingar ásamt
vandaðri hönnun sem tryggir mikla endingu.
PHILCO kæliskáparnir eru pví gæddir öllum peim kostum sem
prýöa fyrsta flokks kæliskápa.
Sjón er sögu ríkari — komiö í verzlanir okkar og kynnist af
eigin raun amerísku PHILCO kæliskápunum.
PHILCO FYRIR VANDLATA
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655