Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 8
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
Janúar-september:
Söluaukning Innflutn-
ingsdeildar SÍS 58,7%
Afkoma flugfélag-
anna mjög misjöfn
AFKOMA flugfélaga er mjög
misjöfn um þessar mundir.
Samkvæmt fréttabréfi frá
IATA, Alþjóðasamtökum flug-
félaga, í október eru þrjú fiug-
félög, sem nýlega birtu árs-
reikninga sína með þokkalega
afkomu.
Flugfélögin eru Air India,
brasilíska flugfélagið Varig og
Singapore Airlines. Hins vegar
eru mörg flugfélög rekin með
gríðarlegu tapi.
Meðal þeirra eru Japan Air-
lines, sem tapaði 15,4 milljónum
dollara á fyrri hluta ársins, Air
New Zealand, sem tapaði 65,4
milljónum dollara á rekstri síð-
asta árs. Þá tapaði Eastern um
55,8 milljónum dollara fyrstu
átta mánuði ársins.
HEILDARSALA Innflutningsdeildar
Sambands íslenzkra samvinnufélaga
var fyrstu níu mánuði ársins samtals
upp á 527,8 milljónir króna og hafði
aukizt um 58,7% milli ára. Lagersala
var upp á liðlega 337 milljónir króna
og bein sala upp á tæplega 191 millj-
ón króna.
Aukningin er mjög mismunandi
milli deilda, en mest varð hún þó
hjá kexverksmiðjunni Holti, eða
150,7%. Verðmæti sölunnar fyrstu
níu mánuðina var liölega 4,4 millj-
ónir króna, þar af allt saman í lag-
ersölu.
Búsáhaldadeild var með um
90,2% aukningu milli ára, en heild-
arsala deildarinnar í ár er liðlega
39.7 milljónir króna, þar af liðlega
30.8 milljónir króna í lagersölu og
tæplega 8,89 milljónir króna í
beinni sölu.
Hjá byggingarvörudeild er
aukningin milli ára um 86,9%, en
heildarsala deildarinnar í ár er um
118,9 milljónir króna, þar af um 1,7
milljónir króna í lagersölu og lið-
lega 117,2 milljónir í beinni sölu.
Vefnaðarvörudeild er með um
71,9% aukningu milli ára, en heild-
arsala deildarinnar í ár er tæplega
26,4 milljónir króna, þar af er
tæplega 22,8 milljónir króna í lag-
Söluaukning
á Holtakexi
var rúm 150%
ersölu og 3,6 milljónir króna í
beinni sölu.
Sala í starfsmannaafgreiðslu
hefur aukizt ym 66,7% milli ára,
en hún var samtals tæplega 11,5
milljónir fyrstu níu mánuðina í ár,
þar af allt í lagersölu.
Aukningin í byggingarvörudeild,
smásölu, var um 56,4% milli ára,
en heildarsalan í ár er um 55,9
milljónir króna, þar af allt í lag-
ersölu.
í birgðastöð varð um 54,7%
aukning milli ára, en heildarsala
deildarinnar í ár er upp á tæplega
157,3 milljónir króna, þar af um
149,8 milljónir króna sem lager-
sala og um 7,5 milljónir króna í
beinni sölu.
Sala fóðurvörudeildar jókst um
31,7% milli ára, en heildarsala
deildarinnar í ár er liðlega 111,2
milljónir króna, þar af 57,7 millj-
ónir króna í lagersölu og 53,5 millj-
ónir króna í beinni sölu.
Loks má geta þess, að deild sem
kallast „Innkaup í Reykjavík" hef-
ur aukið sölu sína um 10% milli
ára, en heildarsalan í ár er upp á
liðlega 2,46 milljónir króna, þar af
allt í lagersölu.
Pappírsframleiðsla I Svíþjóð:
Vonir um framleiðslu-
aukningu hafa brugðizt
FRAMLEIÐSLA á pappír í
Svíþjóð stóð nokkurn veginn
í stað á 2. ársfjórðungi í ár,
miðað við sama tímabil í
fyrra, þannig að vonir
sænskra framleiðenda um
allt að 10% aukningu hafa al-
gerlega brugðizt.
Ný bátadísilvél
frá BMW á markað
A DÖGUNUM kom á mark-
aðinn ný dísilbátavél frá
BMW, en vélin er 6 strokka,
3,95 lítra, með forþjöppu og
kæli. Vélin skilar 165 DIN
hestöfium og er 381 kg. Með
drifhæl og öllum búnaði er
hún hins vegar um 460 kg.
Samkvæmt upplýsingum frá
fyrirtækinu Vélar & tækni hf.,
sem hefur umboð fyrir vélarnar,
er hér um að ræða léttustu dís-
ilvél á hestafl, sem komið hefur
á markaðinn til þessa.
Þá kom fram, að mál vélarinn-
ar eru 1,22 metrar á lengd,
breiddin er 0,70 metrar og hæðin
er 0,76 metrar. „BMW Marine"
byrjaði framleiðslu bátavélar
árið 1977 og hefur síðan jafnt og
þétt aukið markaðshlutdeild
sína, að sögn forráðamanna Véla
& tækni. Framleiddar eru benz-
ínvélar í báta í stærðum 120
hestöfl, 165 hestöfl og 190 hest-
öfl, en það eru í raun sömu vél-
arnar og eru í .BMW-bílunum,
með nokkrum breytingum þó.
Dísilvélar eru framleiddar í
stærðunum 6, 10, 30, 45, 136 og
nú 165 hestöfl.
Nú eru yfir 30 BMW dísilvélar
í notkun í íslenzkum bátum.
Á fyrri helmingi þessa árs
hefur orðið um 14% samdrátt-
ur í framleiðslu, sé miðað við
sama tímabil í fyrra, en heild-
arframleiðslan á fyrri helmingi
þessa árs er í námunda við
1.489.000 tonn.
Sænskir framleiðendur gera
sér hins vegar vonir um að
gengisfelling sænsku krónunn-
ar í októbermánuði sl. muni
laga samkeppnisstöðu þeirra
það mikið, að heildarfram-
leiðslan verði svipuð þegar upp
er staðið í árslok, eins og hún
var á síðasta ári.
Heildarsala
Innflutningsdeildar
ISO.tMMI
140.000
1.10.1X10
120.000
110.OOO
f 00.000
oo.ooo
80.000
70.000
Mi.ooo
50.000
40.000
.MI.tKMI
2l».tMKI
Itl.tKKI
Dcild 1982 l.agcrsaia þús. Bcirt sala þús. Samtals þús. Auk % 1981-82
410 foðurvörudeild 57.708 5.3.541 111.249 31.7
420 Búsáhaidadcild 30.834 8.865 .39.699 90.2
4.10 Vcfnaöarvörudeild 22.774 3.611 26.385 71.9
440 Byggingarvörudeild i .69.3 117.230 118.923, 86.9
450 Byggingav. smásala 55.904 0 55.904 56.4
460 Innkaupí Rvík 2.464 0 2.464 10.0
470 Birgðastöð 149.788 7.5(K) 157.288 .54.7
480 Kexverksmiðjan 4.4:39 0 4.4.39 150.7
490 Starfsmannaafgr. i 1.478 0 11.478 6(i.7
Samt: .3.37.082 190.747 527.829 58.7
10 ára afmæli fríverzlunarsamnings EFTA og EBE:
Hefur leitt af sér verulega
aukningu viðskipta og fram-
leiðslu í Vestur-Evrópu
— segir m.a. í yfirlýsingu ráðherrafundar EFTA
„VEGNA 10 ára afmælis Fríverslun-
arsamninganna við Efnahagsbanda-
lagsríkin, leggja ríkisstjórnir EFTA-
landanna áherslu á mikilvægi þess-
ara samninga í nútíð og framtíð.
Samningar þessir hafa örvað löndin
til átaks og hafa reynst áhrifamiklir,
jafnvel á timum efnahagslegra erfið-
leika og vaxandi tilhneigingar til
viðskiptahafta. Samningarnir eru
skýrt dæmi um árangursríkt fríversl-
unarsamstarf. Hin lipra framkvæmd
þessara samninga hefur mjög stuðlað
að góðri og hnökralausri sambúð
milli EFTA-landanna og Efnahags-
bandalags Evrópu og stuðlað að frí-
verslun sem tekur til þjóða, sem hafa
innan sinna vébanda 300 milljónir
þegna. Þannig hafa samningarnir
leitt af sér verulega aukningu við-
skipta og framleiðslu í Vestur-Evrópu
á grundvelli traustra viðskiptasam-
banda,“ segir m.a. í yfirlýsingu ráð-
herrafundar EFTA á dögunum.
Þá segir ennfremur:
Fríverslun Evrópu tekur til 17
þjóðlanda og 42% af heimsversl-
uninni og myndar þannig náinn,
eðlilegan en sérstakan tengilið
milli hinna tveggja samtaka, sem
eru mikilvægustu viðskiptavinir
hvorra annarra.
Ríkisstjórnir EFTA-landanna
vilja nota tækifærið á þessu 10 ára
afmæli til að lýsa yfir ánægju
sinni með þann sameiginlega ár-
angur, sem náðst hefur í fram-
kvæmd þeirra markmiða, sem til