Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
63
„Ég á heima hjá
Guði og með Guði“
C„_
Samtal við
pönkdrottninguna
Nínu Hagen
Texti: Karl Blöndal
Myndir: Indriði
Benediktsson
Það hefur verið hljótt um Nínu
Hagen síðastliðin misseri eða allt
þar til hún gaf út plötuna Nun-
sexmonkrock. Markaði sú plata
tímamót á ferli hennar. Þar syng-
ur hún ekki einvörðungu á móð-
urmáli sínu eins og á tveimur
fyrstu plötum sínum, heldur
blandar saman þýsku, ensku og
rússnesku. Er þetta líka fyrsta
sinni sem trúarlegra áhrifa gætir
í tónlist hennar, og á umslagi plöt-
unnar birtist Nína í gervi Maríu
Guðsmóður með dóttur sína
Cosmu Shivu í fanginu.
Svo var það í Múnchen fyrir
nokkrum mánuðum að hún söng
aftur á sviði eftir þetta hlé sitt.
Kom hún þá fram ásamt fyrrver-
andi rekkjunaut sínum, Hermanni
Brood, og hljómsveit hans, Wild
Romance.
Síðan var ferðinni haldið til
Berlínar þar sem hún kom fram
fimm kvöld í röð, 13.—17. október,
á utangarðshátíð kvikmyndagerð-
armannsins Frank Ripploh, þess
er leikstýrði myndinni Dýra-
garðsbörnin.
Hátíð þessi samanstóð af ýmis-
legu sprelli. Þarna létu ljós sín
skína allt frá slöngutemjurum og
hnífakösturum til leðurklæddra
vaxtarræktarmanna sem sveifl-
uðu sér í rólum og dönsuðu tján-
ingadans.
Fengu flest þessara atriða
dræmar undirtektir og voru nokk-
ur þeirra nánast bauluð niður af
sviðinu. Það var ekki fyrr en
kynnir hátíðarinnar sté fram á
sviðið og sagði að síðust myndi
troða upp Nína Hagen ásamt
nýrri hljómsveit sinni, The No
Problem Orchestra, frá Frankfurt,
að samkomugestir tóku við sér. Og
þegar Nína gekk fram, böðuð
skjannabjörtum ljósgeislum og
hóf að þenja raddbönd sín, braust
út hamslaus fögnuður og dynjandi
lófatak.
Fyrsta lagið á dagskrá var óðui
til Berlínar sem hún kyrjaði al
krafti. í kjölfar hans sigldu ýmii
gullkorn af plötum hennar, serr
öll gáfu henni ríkuleg tækifæri ti
að sýna ótrúlegt raddsvið sitt
Lagi Mick Jaggers, Satisfaction
gerði hún vegleg skil, en hápunkt-
ur tónleikanna var án efa lgið „1
Dit It My Way“, sem Frank Sin-
atra gerði eitt sinn garðinn fræg-
an með. Að endingu söng hún, með
Cosmu Shivu í fanginu, nýja laga-
smíð sína, Whare Liebe, sem hún
tileinkar þýsku þjóðinni, bæði
austan tjaids og vestan.
Að loknum hljómleikunum rölt-
um ég og ljósmyndari minn bak-
sviðs til að ná tali af listakonunni.
Það reyndist ekki auðvelt að hafa
uppi á Nínu, en við vorum svo
heppnir að rekast á umboðskonu
hennar, Rúmenann Júlíu, sem tók
okkur opnum örmum og bað okkur
hringja daginn eftir á Hótel Cont-
inental. Skyldi þá ákveðið hvar og
hvenær stefnumót okkar við Nínu
færi fram.
En hún lét ekki hremma sig svo
auðveldlega og áður en við fengum
„Núna er ég mcð Jesú, en það vita
það fáir.“
að ræða við hana létum við ginna
okkur um bæinn þveran og endi-
langan og urðum að gera okkur að
góðu að bíða eftir henni á ýmsum
vafasamari stöðum Berlínarborg-
ar.
Einn þeirra ber nafnið Time
Café. Þar bar fundum okkar loks-
ins saman við söngkonuna, einn
veðurblíðan sunnudagseftirmið-
dag, þremur dögum eftir að allt
írafárið hófst. Sat hún þar að
snæðingi ásamt Cosmu Shivu,
Júlíu og öðru hirðfólki sínu sem
uppistóð af skrautbúnum ræfla-
rokkurum og gæludýrum þeirra,
hvítum rottum, sem héldu sig
bæði innan klæða þeirra og skriðu
þeim um háls, höfuð og herðar.
Það var augljóst að málsverður
þessi skyldi ekki fara forgörðum í
víðfemum söndum sögunnar, því
að athöfnin var bæði kvikmynduð
og hljóðnumin. Svo að ég og ljós-
myndari minn tókum vænsta
kostinn, fengum okkur sæti, bár-
um fram óskir okkar við gengil-
beinuna og biðum átekta eftir að
tökum lyki. Sem var ekki fyrr en á
þriðja kaffibolla.
„Atriðið, sem áðan var verið að
taka, er úr kvikmynd sem á að
fjalla um húðflúr. Við tökum tali
fólk, sem látið hefur flúra húð
sína, og spyrjumst fyrir um hví
þetta fólk hefur látið greypa í sig
hinar ýmsu kynjamyndir eða
áletranir.
Þegar ég var í Amsterdam, á
þeim árum sem ég vann með Her-
manni Brood og The Wild Rom-
ance og við gerðum m.a. myndina
Cha Cha, þá kynntist ég þeim er
ég hélt vera stærstu ást mína,
Ferdinand."
Hún dregur hálsmálið á bolnum
sem hún er í niður fyrir vinstri öxl
svo að skín í beran upphandlegg-
inn þar sem nafn Ferdinands er
letrað skýrum stöfum.
„Hann lét flúra mitt nae á sig
og ég hans á mig og sam .. lögðum
við drög að dóttur minni, Cosmu
Shiva," segir hún og áminnir um
leið dóttur sína um að fara frið-
lega með eyrnalokk sinn sem hún
er að bisa við að slíta í sundur.
Maður fer þó ekki varhluta af
þeirri væntumþykju sem býr í
röddinni.
„Þegar ég kynntist Ferdinand
var hann heróínfíkill og var djúpt
sokkinn í fúafen þeirrar for-
myrkvunar, sem neyslu þessa
skaðræðislyfs fylgir. En svo fór
hann á aflyfjunar- og afvötnun-
armiðstöð í Englandi og eftir að
hann hreinsaðist eignuðumst við
Cosmu. Þannig að, eins og þú sérð,
þá er þér með ást, og fyrir mér er
ást Guð, nánast ekkert ómögulegt.
Þú getur hjálpað eiturlyfjasjúkl-
ingum að komast yfir fíkn sína og
alkóhólistar verða hamingjusam-
„('osraa er heimili mitL
ir, finna í ást og Guði þá hamingju
sem ekki verður fundin í áfengi."
Þú hefur um skeið dvalið í
Bandaríkjunum. Hvað dregur þig
nú úr hreiðrinu og til hljómleika-
halds í Berlín?
„Berlín er fyrsti áfangastaður-
inn í fyrirhugaðri hljómleikaferð
um heiminn. Eg valdi Berlín af því
að hér dvaldi ég fyrst eftir að ég
kom frá Austur-Þýskalandi og
mér leist vel á að byrja með nýtt
prógramm og með nýrri hljóm-
sveit á heimavelli. Og eftir viðtök-
um að dæma var það óvitlaust.
Síðan munum við, þ.e. ég,
Cosma Shiva og The No Problem
Orchestra, sem er skipuð upprenn-
andi hæfileikapiltum, halda til
Bandaríkjanná, þaðan til Kanada
og spilum að síðustu í Japan."
— Það var fyrir nokkrum árum
á sveimi uppi á Íslandi sá orðróm-
ur að þú ætlaðir að syngja þar við
undirleik íslenskrar hljómsveitar,
þar eð þá hafði Nína Hagen Band
nýverið leyst upp?
„Það var gaman að heyra. Nei,
þetta hef ég aldrei heyrt áður. En
þar sem fólkið vill að við spilum,
þar munum við spila. Svo að ef þú
vilt að við sjiilum á íslandi, þá
spilum við á Islandi. En þú verður
að tala við Júlíu. Júlía er umboðs-
maður minn og hún skipuleggur
þessa heimsreisu, sem við erum að
leggja upp í núna. Hún er leik-
stjóri og hún sér um myndböndin
sem við gerum, stjórnar plötugerð
og sér um að fyrirtækið gangi.
Hún er sú besta.“
— Hefur þú í hyggju að vera
áfram í Bandaríkjunum?
„Ég er á plánetunni Jörð. Ég vil
ekki festa mig niður á einn punkt.
Ég vil skipta um umhverfi og and-
rúmsloft, fara á milli staða og
halda tónleika með hljómsveit-
inni.“
— Finnur þú aldrei til rótleys-
istilfinningar, þeirrar tilfinningar
að eiga hvergi heima?
„Ég á heima hjá Guði, og með
Guði. Ég er alltaf heima hjá mér.
Cosma er heimili mitt. Ég á heima
í Berlín, Amsterdam og í New
York. Ég bý í fjöllunum, hafinu,
trjánum og á sólinni. „Home is
where my heart is,“ og það er hjá
Guði, Guði og aftur Guði.“
- HjáGuði?
„Það gerðist fyrir tveimur ár-
um. Ég var komin þrjá mánuði á
leið og sat í leigubíl. Þá urðum ég
og leigubílstjórinn fyrir vitrun
sem birtist okkur í mynd fljúgandi
disks. Hann var gulur og bleikur
og varð síðan gagnsær. Og úr hon-
um barst rödd: „Nína, komdu í
rúmið.“ Núna er ég með Jesú, en
það vita það fáir,“ segir hún og
glottir til mín.
— Eitthvað að lokum?
„Ég hata viðtöl."
Urvalið er frá
Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbaröasölum um land allt Bridgestone
diagonal (ekki radial) vetrarhjólbaröar.
25 ára reynsla Bridgestone á íslandi sannar öryggi og endingu.
Gerió samanburó á veröi og gæóum.