Morgunblaðið - 17.11.1982, Side 24
72
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
raomii’
3PÁ
DYRAGLENS
HRÚTURINN
21. MARZ—19-APRlL
Keyndu að fást vid verkefni sem
lítil eda engin áhætta er fólgin í.
I*ú getur fáum treyst og þú skalt
alls ekki gera neina samninga.
Þú þarft líklega að breyta áætl-
unum kvöldsins.
NAUTIÐ
20. APRlL-20. MAl
l»ú
Fremur leiðinlegur dagur
ert ekki í góðu formi. Reyndu
að gera skyldustörfin eins vel
og þú getur og þá mun allt fara
vel.
k
TVÍBURARNIR
21. MAl—20. JÚNl
Það er ekki mikið um að vera í
dag. l»að kemur sér illa fyrir tví-
bura því þeim hættir til að
flækja sér í alls kyns vitleysu ef
þeir hafa ekki nóg að gera.
'm KRABBINN
21.JÚNI-22. JtJLl
Alls kyns smáatriði fara í taug
arnar á þér í dag. Annars er
aðal vandamálið að þú hefur
ekki nóg að gera. Gættu vel að
heilsunni og farðu varlega
meðferð véla og tækja.
^[«riUÓNIÐ
ð«i|j23. JÚLl-22. ÁGÚST
Iní færð nýjar hugmyndir í dag.
Notfærðu þér listræna hæfileika
þína. Vertu þolinmóður þó að
fyrsta tilraun takist ekki. Heira-
ilislifið er ekki alveg eins og það
á að vera.
MÆRIN
23. ÁGÚST-22. SEPT.
Ekki framkvæma neitt í fljót-
færni i dag. Gefóu fólkinu i
krincum þig tækifæri til aó sýna
hvaó í þvi býr. I>etta er rólegur
dagur. Þú kemur líklega ekki
þvi í verk sem þú ætlaðir.
Wk\ VOGIN
23.SEPT.-22.OKT.
I»ú ert leiður yfir því að geta
ekki haldið áfram með eins
mikilli velgengni og undanfarið.
I»ú lendir í deilum við fjölskyld-
una. Hugsaðu meira um útlitið.
DREKINN
23. OKT.-21.NÓV.
I»að er lítið að gerast um þessar
mundir. Þú kannt ekki vel við
þetta aðgerðarleysi og ert held-
ur dapur. l»ú hefur best af því
að hlusta á ráð frá maka þínum
eða foreldrum.
BOGMAÐURINN
"'clí 22. NÓV.-21. DES.
Þú átt að hafa stjórn á skapi
þínu í dag. Þú hefur fremur lítið
að gera og það gerir þig svolítið
óþolinmóðan. Ef þú ætlar að
ferðast með almenningsfarar-
tækjum skaltu ætla þér nógan
tíma.
STEINGEITIN
22. DES.-19. JAN.
I*ér gengur illa að fá aðra til að
láta að þinni stjórn í dag. Þetta
fer í taugarnar á þér en þú bætir
ekki úr skák með því að láta
vonbrigðin í Ijós.
Sftl VATNSBERINN
20.JAN.-1S.FEB.
I»ér hættir til að vera utan við
þig í dag. Farðu því vel yfir öll
verkefni sem þú skilar af þér til
að komast hjá klaufalegum vit-
leysum. Vertu þolinmóður við
þína nánustu.
3 FISKARNIR
19. FEB.-20. MARZ
Það er leiðinda andrúmsloft á
vinnustað þínum í dag. I»ú hefur
tilfinningunni að þú ráðir
engu um þín eigin örlög. Vertu
viðbúin hinu óvænta.
rtG ÆTLA /\D eiÐJA
! LÆKMINN um
Svefmtöflur.
LJOSKA
yX KATA, P>ú EI?T SIII
ALLTAFSVO PULAR-
full um allt
ur Ec3 VElT...Oö ÉG
ERAD HU6SA UM A£>
FERDINAND
SMAFOLK
I HAVE ITALL FI6URED
OUT, MARCIE...
THE UIAV I 5EE IT,
THERE 5EEM TO BE
MORE QUE5TI0N5 THAH
THERE ARE AN5UIER5
50 TRV TO BE THE
ONE UIHO A5KS
THE QUESTION5!
Eg hef komi.st að niðurstöðu,
Magga ...
Mér virðast vera fleiri spurn-
ingar en svör.
Þannig að?
Maður ætti ávallt að vera
spyrillinn!
BRIDGE
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þátturinn í gær var eins
konar forsmekkur af því sem
koma skal. Á næstu dögum
mun varnarspilið nefnilega
skipa öndvegi hér í þættinum.
Hugmyndin er að fara dálítið
rækilega í saumana á varn-
arspilinu og reglum þess, og
byrja alveg frá grunni. Reynd-
ari spilarar eru beðnir að sýna
þolinmæði í nokkra daga, því
róðurinn mun þyngjast fyrr en
varir.
í gær drógum við fram
nokkur atriði sem greina að
vörn og sókn. En eitt atriði var
ekki minnst á, en það er ein-
mitt það atriði sem öðru frem-
ur skilur vörnina frá úrspili
sagnhafa. Það er sú staðreynd
að vörnin er tveggja manna
samspil, á meðan sagnhafi rær
einn á báti. En það er fyrst og
fremst í samspilinu sem
þyngsli varnarinnar liggja.
Vörn verður ekki spiluð af
nokkru viti nema varnarspil-
ararnir vinni saman. Því betri
sem samvinnan er, því betri
verður vörnin — og öfugt.
Frumskilyrði góðrar sam-
vinnu varnarspilara er auðvit-
að að gott samband sé á milli
þeirra. Þeir verða að geta „tal-
að saman" í vörninni: skipst á
upplýsingum og tillögum. Að-
eins á þeim grunni geta þeir
samhæft aðgerðir sínar. Ef
sambandslaust er á milli varn-
arspilara vinnur hvor varn-
arspilarinn um sig sjálfstætt að
því að hnekkja spilinu. Og af-
leiðingin af slíkri einstakl-
ingshyggju er oftast sú að þeir
vinna í raun hvor gegn öðrum,
en sagnhafi hefur eignast tvo
raungóða félaga.
Samtal varnarspilaranna
fer fram í gegnum ákveðnar
varnarreglur. Menn fylgja út-
spilsreglum í þeim tilgangi að
gefa félaga upplýsingar um
háspilastyrk eða litarlengd.
Eins setja menn smáspilin í
eftir ákveðnum reglum til að
segja félaga eitt og annað
varðandi eigin spil. Útspils-
reglur eru nauðaeinfaldar í
notkun og valda engum vand-
ræðum. En öðru máli gegnir
um köll og lengdarmarkanir,
en það er einmitt misnotkun
þeirra sem er ástæðan fyrir
flestum villum varnarinnar.
Það verður verkefni okkar
þegar fram í sækir að reyna að
grafast fyrir um orsakir þess-
arar misnotkunar, og þar með
að stíga fyrsta skrefið í þá átt
að ráða bót á meinsemdinni.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Plovdiv í Búlgaríu í ágúst
kom þessi staða upp í viður-
eign alþjóðlegu meistaranna
Inkiov, Búlgaríu, sem hafði
hvítt og átti leik, gegn Osnos,
Sovétríkjunum.
34. Hxf7! og Osnos gafst upp,
því að eftir 34. — Kxf7, 35.
Re5+ tapar hann drottning-
unni.