Morgunblaðið - 17.11.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
77
berum ábyrgð á því að vissu marki
við hvað þau skemmta sér. Mig
langar ekkert til að banna bíóferð-
ir eða aðra skemmtun, sem þykir
eðlileg í nútímanum, til handa
börnum, en mig langar til að geta
treyst því að vandað sé til vals
þess efnis sem þau sjá, á sama
hátt og flest kvikmyndahús reyna
yfirleitt að sýna einhverjar sæmi-
lega bitastæðar myndir handa
fullorðnum öðru hverju. — (Nei,
nei, ég hef ekki gleymt t.d. Leik-
brúðulandi, fjöruferðum, söfnum,
heimsóknum og uppátækjum
heimafyrir til skemmtunar. En
mín börn vilja auðvitað líka fara í
bíó eins og aðrir krakkar, og það
er hart að segja, jafnvel helgi eftir
helgi: því miður, ég sé bara ekkert
almennilegt í blaðinu — og enda
svo með að leyfa ferð á einhverja
ruslmyndina.) Hvað ég kalla góðar
myndir handa börnum? Það er
hreint ekki svo þröngt svið:
Spennandi myndir, sæmilega
ofbeldissnauðar, ævintýramyndir,
myndir um krakka sem komast í
hann krappan, teiknimyndir og
grínmyndir (þá á ég ekki við elli-
hrum eintök af þriðjaflokks
myndum, sem voru sýndar þegar
ég var lítil, fyrir tuttugu og fimm
árum).
Það eru framleiddar myndir á
Norðurlöndunum fyrir börn, bara
svo minnt sé á það sem nærtækast
er. Sama gildir t.d. um Tékkóslóv-
akíu og ýmis önnur Evrópulönd.
Eða hefur enginn áhuga? Er allt í
lagi að halda áfram þessu virð-
ingarleysi við börnin og skilja svo
ekki neitt í neinu, þegar áhrifa
þessa rusls fer að gæta, t.d. í
ofbeldi, húmorlausum fíflalátum
og fleiru? Þá stendur venjulega
ekki á því að við fulorðnir rífum
okkur niður í rass og örvæntum
um æskuna. Mér er það ljóst, að
við getum aldrei búið til einhverja
jólakortaengla úr börnum, og vor-
um það heldur ekki sjálf, en við
gætum reynt að sýna þeim svolítið
meiri virðingu og gert vissar kröf-
ur fyrir þeirra hönd, og hugsað
þær sem lið í uppeldi þessara ein-
staklinga, í stað þess að láta
fleygja í þau einhverju og ein-
hverju, sem á má græða, og vera
þeirri stund fegnust þegar þau
hafa sig á brott á sunnudagsbíóið
sitt svo við getum átt rólega
stund.
Reynum að hugsa svolítið um
þetta og jafnvel gera eitthvað."
Þau færa okkur „Gull í mund“: Stefán Jón Hafstein, Hildur Eiríksdóttir og
Sigríður Arnadóttir.
Og fæturnir
urðu tólf
Þóra Jóhannsdóttir, Sauðárkróki,
skrifar:
„Velvakandi minn góður!
Af því að þú hefur svo oft upp-
lýst mig þegar ég hef verið að leita
að vísum eða kvæðum, sem mig
hefur vantað meira og minna í, þá
geng ég auðvitað á það lagið.
Nú sendi ég þér brot úr kvæði
sem ég kann aðeins örlítið úr, en
langar til að ná því öllu. Þú sérð
nú nokkurn veginn hvað kvæðið er
gamalt, en ég man ekki, hvort ég
las það í Mogganum eða Speglin-
um í gamla daga. Og gaman væri
að vita um höfundinn, ef hann
skyldi finnast.
Með kveðju og fyrirfram þakk-
læti.“
Um ríkisstjórn sem mynduð var
undir forsæti Ólafs Thors 21.
október 1944:
Útvarpið hefur fitjað
upp á mörgum nýjungum
Jóhanna Axelsdóttir, Brekku-
götu, Vogum, skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Mig langar til að koma á
verði að gefa fólki kost á að fá
skiptimiða. Ég álít að þeir séu
ómissandi í okkar stóru borg. Ég
vona að borgarstjóra og borgar-
stjórn takist með einhverjum
hætti að bæta fjárhag SVR án
þess að hætta við skiptimiðana.
Sama er hver á í hlut og á hvaða
aldri hann er, hvort það eru aldr-
aðir, skólabörn í úthverfum eða
vinnandi fólk sem stundar atvinnu
sína í fjarlægum borgarhverfum;
allir þessir væru verr settir en áð-
ur, ef skiptimiðanna nyti ekki við.
Það eru ekki allar fjölskyldur svo
vel stæðar að eiga bíl. Það væri
nær að auka þjónustu SVR um
alla borgina og reyna að fá fólk til
að nota þá meira en einkabílana
minna. Við það mundi t.d. sparast
bensín og þar með peningar. Ann-
ars er ég ákaflega ánægð með SVR
og held að fólk geri sér almennt
ljóst hvað við værum illa sett án
þeirra.
framfæri þakklæti til Stefáns
Jóns Hafstein fyrir þátt hans á
morgnana, „Gull í mund“. Stef-
án er skemmtilegur og lifandi
útvarpsmaður og alltaf höfum
við þörf fyrir tilbreytingu og
nýjungar. Samstarfsfólk hans er
einnig til sóma.
Útvarpið hefur fitjað upp á
mörgum nýjungum í vetrar-
dagskránni; það sýnir að það vill
gera vel við hlustendur sína. Ég
hef þá m.a. í huga þætti fyrir
aldraða, fræðsluþætti um eitt og
annað, til að mynda um hjóna-
skilnaði og alkóhólisma o.fl.
Einnig eru skemmtilegir og fjöl-
breyttir þættirnir eftir hádegið.
Þökk fyrir birtinguna."
Sex ráöherra
stjórnin
Hún stendur á föstum fótum
og fæturnir uröu tólf.
Pétur er kominn meö kassann
og kringlótta nokkra i
og flestir flokkarnir eru
svo fúsir aö eyða því.
Finnur er ft'nasti herrann;
hann fer meö áfengismál;
hann er viöfelldinn maöur aö vanda,
þessi vestfirska gæöasál.
Hann er séni í sildinni og grútnum.
um sild snýst allt hans skraf.
En í dómsmálin komu þeir karli,
því hann kann ekki i lögum staf.
(Og i lokin:)
Vor stjórn stendur föstum fótum
þó fái hún áföll þung.
Því hyllum vér fögnuöi fullir
vorn frægasta tólffótung.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann átti ekki annars úrkosta en að fara.
Rétt væri: ... ekki annars úrkosti... (Ath.: Það voru hans
úrkostir; hann átti ekki úrkosti neins annars.)
Einnig væri rétt: Hann átti ekki annað úrkosta.
PRÓFKJÖR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
28.-29. 11. 1982
SKRIFSTOFA STUÐNINGSMANNA
PÉTURS SIGURÐSSONAR
SKIPHOLTI 31, GÖTUHÆÐ
(Vestan viö Tónabió)
VERÐUR OPIN KL. 12 - 23 ALLA DAGA.
SÍMAR: 25217 OG 25292
w<yjuw - I
Polaroid
augnabliksmyndirnar
eru hrókur alls fagnaðar
Polaroid660 myndavélin tryggir fallegri,
litríkari og skarpari augnabliksmyndir
■ Rafeindastýri leifurljós gefur rétta blöndu af
dagsbirtu og „Polaroid"-ljósi hverju sinni,
úti sem inni.
■ 660 vélin hefur sjálfvirka fjarlægðarstillingu
frá 60 cm til óendanlegrar, 640 vélin er með
fix focus og 650 vélin með fix focus og nærlinsu.
■ Óþarft að kaupa flash og batteri
því batteri ersampakkað filmunni.
■ Notar nýju Polaroid 600 ASA
litmyndafilmuna, þá hröðustu í heimi!
helmingi Ijósnæmari en aðrar sambærilegar filmur!
■ Algjörlega sjálfvirk.
■ Á augabragði framkallast glæsilegar Polaroid
litmyndir sem eru varanleg minning líðandi stundar.
■ Polaroid 660 augnabliksmyndavélin
er metsölu augnabliksmyndavélin í heiminum í ár!
Tökum gamlar vélar upp í nýjar Polaroid vélar.
Kynntu þér kjörin!
Polaroid filmur og vélar fást í helstu verslunum um land allt.
Polaroid
Einkaumboð: Ljósmyndaþjónustan m., Reykjavík.
fHftrgissiIiIfifrtfe
Áskríftarsinwm er 83033