Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 1
60 SÍÐUR 259. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Forsetar beggja þingdeilda úr röðum jafnaðarmanna Madrid, 18. nóvember. AI*. FYRSTA þjóðþing Spánar, sem að meiri hluta er skipað jafnaðarmönnum, kom saman í dag til þess að kjósa þingforseta jafnt fyrir neðri sem efri deild þingsins, en formlega mun Juan Carlos konungur setja þingið 25. nóvember nk. Forseta beggja þingdeildanna, sem kjörnir voru í dag, voru úr röðum jafnaðarmanna. Formaður grænlenzku landsstjórnarinnar heimsækir páfa Hér sést hvar Jóhannes Páll II páfi tekur í hönd Jonathan Motzfelds, formanns landsstjórnarinnar á Grænlandi, í Vatikaninu í dag. símamynd/AP. Ákafir bardagar á milli írans og íraks Mikil sókn írana í átt til Bagdad kann að vera framundan Mandali, írak, 18. nóvember. AP. HER ÍRANS hóf í nótt öfluga sókn inn í írak og var henni beint gegn borginni Mandali um 100 km fyrir norðaustan Bagdad, höfuðborg fr- aks. Beittu íranir bæði skriðdrekum og fótgönguliði. Eftir ákafa bardaga, sem stóðu alla nóttina og fram á dag, tókst her fraka að stöðva fram- sókn írana. Þessir miklu bardagar nú eru taldir eindregin sönnun þess, að styrjöldin milli þessara landa fari mjög harðnandi. í tilkynningu herstjórnar íraka í dag var viðurkennt, að her írans hefði tekizt um stund að komast inn í borgina Mandali, en síðan hefði tekizt að hrinda árás írana og hrekja þá á brott. Var því hald- ið fram, að þessi sókn írana væri ekki frábrugðin fyrri hernaðarað- Rafmagnsskömmt- un í Rúmeníu 1 vetur Bruðli með raforku kennt um Húkarest, 18. nóvember. AP. RÚMENUM var tilkynnt í dag, að þeir mættu eiga von á rafmagns- skömmtun í vetur. Var frá þessu skýrt í dagblöðum, sem öll eru undir eftirliti stjórnvalda. Er þetta gert til þess að ekki komi til alvarlegs raf- magnsskorts í landinu síðar í vetur. f fyrravetur var rafmagn einnig skammtað í verulegum mæli í land- inu. Rafmagnsskömmtun var aflétt sl. vor, en nú þegar vetur gengur í hönd, er gert ráð fyrir vaxandi rafmagnsnotkun að riýju, sem erf- itt verður að fullnægja. í forsíðu- grein í „Scinteia", málgagni stjórnarinnar eru bornar fram ásakanir á stórfyrirtæki í iðnaði, einkum járn- og stálframleiðend- ur um bruðl með raforku og að fyrirtaeki í þessum iðngreinum noti tvisvar til þrisvar sinnum meiri raforku en þörf sé á. Þrátt fyrir það að vel hafi tekizt að skipuleggja kolaframleiðsluna í landinu, þá hafi hún samt alls ekki náð því magni, sem áformað var að framleiða. Nú er þriðjungur þeirrar orku, sem Rúmenar nota, fenginn úr kolum. Þurru sumri og hausti er einnig kennt um vatnsskort, sem haft hafi í för með sér minnkandi raf- magnsframleiðslu í þeim orkuver- um, sem knúin eru með vatnsafli. gerðum þeirra, þótt hún væri öfl- ugri en sókn þeirra hefði oftast verið áður. íranir hefðu misst 33 menn í hernaðaraðgerðunum und- anfarinn sólarhring, sem hefðu ekki aðeins átt sér stað við borg- ina Mandali, heldur víða annars staðar á landamærum ríkjanna í austri og suðri. Margt þykir þó benda til þess að meiri háttar sókn íranshers til Bagdad kunni að vera framundan. Hér Irana er þó varla svo vel bú- inn tækjum, svo sem herflutn- ingabifreiðum og flugvélum, sem þarf til þess að geta rutt sér braut til Bagdad. Her þeirra var í dag kominn 10 km vestur fyrir Mand- ali, og hafði komið sér þar upp herbækistöð. I tilkynningu herstjórnar írana í dag sagði, að ein herþota íraka hefði verið skotin niður og hefðu þá verið skotnar niður 22 herþotur íraka, frá því að sóknaraðgerðir íranshers hófust 1. nóvember sl. Gregorio Peces Barba var kos- inn forseti neðri deildarinnar, þar sem sæti eiga 350 þingmenn. Jafn- aðarmenn eiga þar 202 þingmenn eða hreinan meiri hluta, en helzti stjórnarandstöðuflokkurinn verð- ur hægri flokkurinn „Popular All- iance" undir forystu Manuel Fraga og hefur sá flokkur 106 þingsæti í þessari þingdeild. Barba, sem er 44 ára gamall, var kjörinn forseti neðri deildarinnar með 338 atkvæðum af 346, sem greidd voru, en 8 atkvæðaseðlar voru auðir og 4 þingmenn fjarver- andi atkvæðagreiðsluna. Jose Federico de Carvajal var kjörinn forseti efri deildar þjóð- þingsins en í þeirri deild eiga sæti 208 þingmenn. De Carvajal er 52 ára að aldri. Hann fékk 158 at- kvæði af 217, sem greidd voru, en 59 atkvæðisseðlar voru auðir. Felipe Gonzalez leiðtogi jafnað- armanna mun fá heitið „Presi- dente de Gobierno" eða forsætis- ráðherra, þegar hann tekur við völdum, sem verður í desember nk. Þetta er í annað sinn, sem nýtt þjóðþing Spánar kemur saman, síðan ný stjórnarskrá gekk í gildi í landinu 1978. Símamynd/AP. Sonur Sovétleiðtogans á Spáni Igor Yurievich Andropov, t.h., sonur hins nýja leiðtoga sovéska kommúnista- flokksins, Yuri Andropovs, sést hér þar sem hann kemur á Öryggismála- ráðstefnu Evrópu í Madrid á miðvikudagsmorgun í fylgd með varautanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, Anatoly G. Kobalev. Sannað að sumir fæðast með krabbameinsgen New York, 18. nóvember. AP. VÍSINDAMENN við bandarísku krabbameinsstofnunina hafa fundið fyrstu sönnun þess, að sumt fólk fæðist með krabbameinsgen, eða erfða- stofn, sem gera það móttækilegra fyrir krabbameini. Á síðastliðnu ári hafa krabba- meinsgen verið einangruð frá krabbameinsæxlum í blöðru, lungum, og fleiri hlutum líkam- ans. Þeir sem að þeim rannsókn- um stóðu gerðu ráð fyrir að krabbameinsgen væru einungis í vefjum sýktum af krabbameini, en ekki í heilbrigðum vefjum. Hins vegar hafa vísindamenn sem hafa haft til meðferðar sjúkling með krabbamein í blöðru komist að því, að hugs- anlegt sé að krabbameinsgen séu til staðar hvarvetna í líkama sjúklingsins, jafnt í heilbrigðum vefjum sem í æxlunum í blöðr- unni. George Khoury, yfirmaður rannsóknastofu í sameinda- veirufræðum krabbameinsstofn- unarinnar, sagði að rannsóknir á fimmtán manns sem ekki voru með krabbamein í blöðru hefðu leitt í ljós, að enginn þeirra var með blöðrukrabbagen. „Það vek- ur til umhugsunar — en sannar ekki — að krabbameinsgen finn- ist ekki í heilbrigðu fólki," sagði Khoury í viðtali í gær. Rannsókn þessari var stjórnað af Ravi Dhar, Ruth Muschel, Richard Koller og Khoury frá krabbameinsstofnuninni og Paul Lebowitz sem er starfandi við Yale-háskólann. Ekki hafa enn birst niðurstöður rannsóknar þessarar í vísindatímaritum og þeir sem að henni standa benda á, að rétt sé að líta á niðurstöður hennar sem aðeins upphaf frek- ari rannsókna. Næsa stig í rannsóknum þess- um mun verða að rannsaka ætt- ingja sjúklingsins með blöðrukr- abbameinið til að kanna hvort þar megi einnig finna blöðrukr- abbagen. Ef svo reyndist vera myndi það staðfesta að krabb- ameinsgenin séu í raun ættgeng. Þjóðþing Spánar kom saman í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.