Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 13 Félag frjálshyggjumanna í MR gefur út Frímann í Menntaskólanum í Reykjavík er starfandi félag frjálshyggjumanna. Félagið gaf nýlega út rit sem helgaö er frjálshyggjunni og var því dreift um skólann nemendum að kostnaö- arlausu, en fjölmörg fyrirtæki styrktu útgáfuna, ýmist með auglýs- ingum ellegar styrktarlínum. Rit þetta ber nafnið Frímann eins og félagið. Það er 36 blaðsíður og sá ísafoldarprentsmiðja um setningu, prentun og bókband. í tímaritinu er að finna greinar eftir ritnefndar- menn, en þeir eru: Halldór Halldórs- son, Jóhannes Gísli Jónsson, Jón Daníelsson, Jón Sch. Thorsteinsson og Logi Gunnarsson. í Frímanni er að finna grein Jóns Daníelssonar um mennta- kerfið og rök þau er hníga að því að það væri betur komið í höndum einkaaðila fremur en ríkisvaldsins og einnig grein Jóns Sch. Thor- steinssonar, sem reifar helstu orsakir heimskreppunnar og ber saman kenningar John Kenneth Galbraith og Milton Friedman. Logi Gunnarsson fjallar um frels- ishugtak frjálshyggjumanna og Halldór Halldórsson skrifar um eignarréttinn þar sem kynntar eru hugmyndir John Locke sem og sjónarmið Robert Nozick. í ritinu er einnig grein eftir Jóhannes Gísla Jónsson sem ber heitið Úr ljóðmælum Tómasar Guðmunds- sonar og er þar að finna sýnishorn ljóða skáldsins svo og athuga- semdir greinarhöfundar. í forystugrein ritnefndar er komist svo að orði um hugsunina sem liggur að baki ritinu: „Til- gangur þess (Frímanns) er að kynna viðhorf frjálshyggjumanna og efla skilning á eðli frjálshyggj- unnar, sem óneitanlega má telja brýnt um þessar mundir. Þar kemur tvennt til: í fyrsta lagi virðist frjálshyggjan brjóta nokk- uð í bág við almenn viðhorf hér- lendis, og þess vegna gætir nokk- urra fordóma í hennar garð. Þessu verður að breyta, og það verður aðeins gert með því að safna og miðla upplýsingum um frjáls- hyggjuna. I öðru lagi ganga gerðir og viðhorf langflestra íslenskra stjórnmálamanna algjörlega í berhögg við hugmyndir frjáls- hyggjumanna." Tímarit frjálshyggjumanna í MR er framlag þeirra til baráttu fyrir bættum stjórnmálaumræð- um hér á landi, en þeir telja hana einkennast af virðingarleysi fyrir stjórnmálalegri hugmyndafræði og rangtúlkunum ýmiskonar, ekki síst þeirra sem á Alþingi sitja. Guðmundur Ingólfsson við píanóið í Naustinu. Nafnakall — fyrsta sólóplata Guðmundar Ingólfssonar „ÞA er loksins komin ut hljómplata sem Guðmundur Ingólfsson er skrifaður fyrir, og mátti það ekki seinna vera, svo lengi hefur hann yljað okkur íslenskum með Ijúfum spuna og sterkri sveiflu." Svo segir á baki umslags plötunn- ar „Nafnakalls" sem Guðmundur Ingólfsson djass-píanisti og fleiri senda frá sér þessa dagana. Á plöt- unni eru tíu lög, flest eftir Guð- mund. Á plötuumslagi er Guðmundur kynntur svo: „Guðmundur Ing- ólfsson fæddist árið 1939. Sex ára hóf hann píanónám hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni og fimmtán ára hélt hann til Kaupmannahafnar í framhaldsnám hjá Axél Arnfjörð. Þegar hann hélt heim ári seinna var hann ákveðinn í að gerast djassleikari og þeirri köllun hefur hann verið trúr alla tíð, þótt oft hafi hann þurft að leika flest ann- að til að eiga fyrir salti í grautinn. Guðmundur byrjaði að leika fyrir dansi 12 ára á dansæfingum og eftir að hann kom heim frá Höfn var hann atvinnuhljóðfæraleikari. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita og leikið með öðrum, m.a. hljómsveitum Gunnars Qrmslev og Jóns Páls. 1962 lék hann um tíma í Ósló, m.a. með Dexter Gordon,' og á árunum 1974—77 bjó hann í Noregi og lék þar í dansrokk- og djasssveitum og djammaði m.a. með Pearcy Heath og Buddy Rich. Eftir að Guðmundur sneri heim frá Noregi stóð hann fyrir mikilli djassvakn- ingu í Reykjavík og lék að stað- aldri djass með félögum sínum í Stúdentakjallaranum, Á næstu grösum og í Djúpinu." Með Guðmundi Ingólfssyni eru á plötunni Guðmundur Stein- grímsson trommuleikari, Pálmi Gunnarsson bassaleikari og Björn Thoroddsen gítarleikari. Guðmundur mun á næstunni fara í ferðalag til Luxemborgar, ásamt þeim Pálma Gunnarssyni, Guðmundi Steingrímssyni og Við- ari Alfreðssyni trompetleikara. Þeir munu leika í Cock-pit Inn hjá Valgeiri Sigurðssyni og hugsan- lega í Radio Luxemburg. AÆfJTÆr Gfffl 59000 PÓSIG/RÓ SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR Notíð tækífæríð! að fá nýslátrað Folaldakjöt YNNENt AK GAR VERÐI! Buff File Mörbráð Beinlausir fuglar Mínútusteik Innra læri Vöðvar í 1 /1 steik Kryddlegið buff Gúllas Framhryggir T.bone Hakk Baconbauti Karbonaði Hamborgarar — Nýbakað hamborgarabrauð fylgir Reykt folaldakjöt Saltað folaldakjöt Ostakynning frá kl. 2 - 7 e.h. Osta og smjörsalan kynnir Dalayrju jSLn.: Hnetur & Koniak, Ananas og Appelsínu Jarlinn 5. kg. Nýtt Nautahakk w »Danskt| aa« Luxuskaffi í .00 pr. kg. Hangikjöt 76*90 / V pr-kg- .00 pr. kg. 2kg. Gul epli 39.50 AÐEINS Heil læri niðursöguð og vakumpökkuð. (nýja verðið 99.50) Opið til hádegis á morgun í Austurstræti en til kl. I . í Starmýri AUSTURSTRÆT117 STARMYRI 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.