Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 Þegar þingmennirnir komu í heimsókn í Stýrimannaskólann fengu þeir að gjöf boli skólans. Sigurgeir Ijósmyndari bað þá að skella sér í bolina hvað þeir gerðu umyrðalaust. Talið frá vinstri: Guðmundur Karlsson, Jón Helgason, Eggert Haukdal, Magnús H. Magnússon, Þórarinn Sigurjónsson, Steinþór Gestsson og Garðar Sigurðsson. Þíngmenn Sunnlendinga heimsækja Eyjamenn \ t-stmannacvjum. 17. nóvcmbcr. í SÍÐUSTU viku heimsótti okkur frítt lið þingmanna, en bæjarstjórn Vestmanna- eyja bauð öllum þingmönn- um Suðurlandskjördæmis hingað til sameiginlegs fundar bæjarstjórnar og þingmanna kjördæmisins um helstu hagsmunamál byggðarlagsins sem snúa að fjárveitingavaldinu. Á þessum fundi var m.a. rætt um fjárframlög til byggingar Hamarsskólans nýja, en þar er ríkissjóður langt á eftir með fjárveitingar. Þá voru frekari framkvæmdir á hafnarsvæðinu til umræðu, en mikið er ógert þar, m.a. vegna skipalyftunnar og athafnasvæðisins norðan hafnar. Fjölmörg önnur mál bar á góma á þessum fundi bæj- arfulltrúanna og þingmanna. Þingmennirnir skoðuðu ýms- ar bæjarstofnanir og skóla og ræddu við forstöðumenn þeirra, þeir heimsóttu fiskvinnslufyr- irtæki og skoðuð skipalyftuna og athafnasvæði hennar. , b Með þessari heimsókn þing- manna kjördæmisins til Eyja er farið inn á nýja braut í sam- skiptum bæjaryfirvalda og þingmanna, en áður hafa sam- skipti þessara aðila oftast verið í Reykjavík og þá um sama leyti og þing kemur saman á haustin. Að sögn Arnars Sigur- mundssonar, formanns bæjar- ráðs, var þessi heimsókn þing- manna kjördæmisins til Eyja hin ánægjulegasta í alla staði og samdóma álit allra að vel hafi til tekist. Væri vonandi að þessi nýbreytni muni auka sam- starf bæjaryfirvalda og þing- manna Suðurlands í framtíð- inni. Eins og áður segir voru allir þingmenn Suðurlands í ferð þessari til Eyja. Guðmundur Karlsson, Eggert Haukdal og Steinþór Gestsson frá Sjálf- stæðisflokki, Þórarinn Sigur- jónsson og Jón Helgason frá Framsóknarflokki, Garðar Sig- urðsson frá Alþýðubandalagi og Magnús H. Magnússon frá Al- þýðuflokki. — hkj. Guðmundur Karlsson gefur Sigurgeir Ólafssyni furseU bsjarstjórnar kryddsíld að smakka í Vinnslustöðinni. Þórarinn Sigurjónsson og Jón Helgason fylgjast sjtenntir með. Ólafur Elíasson bæjarstjóri, Eggert Haukdal og Garðar Sigurðsson fylgjast með snyrtingu síldarflaka. Morpinbltóió/ Sijfurgeir. Málin rædd í kaffiboði í afgreiðslu Herjólfs. Auk þingmanna sitja við borðið nokkrir frammámenn í Eyjum. Annað bindi rita Benedikts Gröndal ÚT ER komið hjá Skuggsjá annað bindi rita Benedikts Gröndals, sem forlagið hóf útgáfu á sl. ár. Gils Guð- mundsson annast þessa Gröndals- útgáfu. í þessu öðru bindi er Grön- dalsminning, gerð um skáldið eftir Huldu skáldkonu, auk ritgerða og bréfa Gröndals og skýringa og at- hugasemda Gils Guðmundssonar. „Ritgerðir Gröndals og blaða- greinar eru valdar á þann veg, að þær gefi sem gleggsta hugmynd um bókmenntir og stjórnmál, og einnig eru hér alþýðlegar fræðigreinar," segir á kápusíðu. „Allar eru þær skemmtilegar, hver á sinn Grön- dalska hátt, og lýsa höfundi vel.“ Síðar segir m.a.: „Benedikt Gröndal var ólatur bréfritari og skrifaðist á við ýmsa íslendinga og nokkra erlenda menn, einkum á Kaupmannahfcfnarárum sínum. Meðal þeirra er hann stóð í bréfa- skriftum við, voru Eiríkur Magn- ússon og kona hans, Sigríður Ein- arsdóttir frá Brekkubæ, vinkona Gröndals, Jón Árnason þjóðsagna- safnari, einn besti vinur hans, Jón Sigurðsson forseti, Konráð Gísla- son og Sigurður Kristjánsson út- gefandi hans og vinur." í fyrsta bindi safnsins eru kvæði, sögur og leikrit Gröndals, og rit- gerð um hann eftir Gils Guð- mundsson. í þriðja og síðasta bindi þessa safns verða sjálfsævisagan Dægradvöl og Reykjavík um alda- mótin 1900. Náms- og rannsóknastyrkir Fulbright-stofnunin hefur tilkynnt möguleika á náms- og rannsókna- styrkjum. llm er að ræða styrki frá „The Rockefeller Koundation" til rannsókna i allt að tvö ár. Umsækj- endur þurfa að hafa iokið formlegu námi og starfað að alþjóðamálum í nokkur ár. Fyrirhugaðar rannsóknir séu á sviði menntamála, stjórnvísinda, hagfræði, blaðamennsku, viðskipta, lögfræði, þjóðfélagsfræði eða raun- vísinda með alþjóðasamskipti í huga. Þá er einnig um að ræða „Frank Boas-styrk“ til framhalds- náms í alþjóöalögum við Harvard- háskóla árið 1983—84. Upplýsingar um styrki þessa er að fá á skrifstofu Fulbright-stofnunarinnar að Nes- haga 16 eftir hádegi daglega. Sævargaröar — Seltjarnarnesi Endaraðhús á tveim haeðum. Fullfrágengið með bílskúr. Ræktuð lóö. Mikið útsýni. Stórar suðursvalir. A neðri hæð eru 4 svefnherb., stórt hol og baöherb. Á efri hæð er stofa, borðstofa, w.c. og eldhús með búri og þvottahúsi innaf. Húsið er laust strax. Vesturbær — sérhæð 4ra herb. á 1. hæð í þríbýli með stórum bílskúr. Glæsileg íbúð á einum besta stað í vesturbænum. Laus strax. Til greina kemur að taka 2ja—3ja herb. íbúð upp í. Hafnarfjörður — Norðurbær Glæsileg 137 fm 5—6 herb. endaíbúð á 1. hæö við Laufvang. Bein sala. Kópavogur — austurbær 125 fm 4ra—5 herb. íbúð í lyftuhúsi. Tvennar svalir. Þvottahús innaf eldhúsi. Mikið útsýni. Hafnarfjörður Ca. 70 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð við Vesturbraut með sér inn- gangi. Útborgun 550 þús. Ránargata 2ja herb. íbúð á 1. hæð með bílskúr. Verð 800 þús. Bein sala. Einar Sigurösson hrl., Laugavegi 66, SllTll 16767, heimasími 77182. SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GM J0H Þ0ROARS0N HDL Til sölu og sýnis auk annarra eigna: Úrvalsíbúð viö Engihjalla í háhýsi 3ja herb. um 80 fm, þvottahús á hæöinni, mjög góð samelgn fullgerö. Lyfta Stórkostlegt útsýni. Á ótrúlega góöu veröi Timburhús skammt utan við borgina, eln hæö 175 fm. Að mestu nýtt. 200 fm lóö. Verö aðeins 1,3 millj. Eignaekipti möguleg. Góð hæð á Seltjarnarnesi með bílskúr 5 herb. 3. hæö í þribýlishúsi. Um 130 fm. Sér hitaveita. Sér þvottahús. Rúmgóöar sólsvalir. Frábaerl útaýni. Stór bilskúr næstum fullgeröur. Verð aðeins 1,5 millj. Skipti möguleg á góöri 3ja herb. íbúö. Þurfum að útvega Einbýlishús, sérhæöir, íbúöir með bílskúr og byggingarlóöir í borginni og nágrenni. Á skrá eru fjölmargir fjársterkir kaupendur. Til sðlu í Vogunum 4ra herb. hæö í þríbýlíshúsi meö stór- um og góðum bílskúr, (verk- stæði). AIMENNA FASTEIGWASAIAW LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.