Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 Opið prófkjör Alþýðuflokksins 27. og 28. þ.m. Ágúst Einarsson útgerðarmaður Baráttumaður ábyrgöar og skynsemi í at- vinnumálum. Ágúst á erindi á Alþingi. Styðjum Ágúst í prófkjörinu. Sími 18977 Stuðningsmenn. Vinsælu ensku ullarúlpurnar (Duffel Coat) dömu-, herra- og barnastærðir komnar aftur. Verð frá kr. 495—850. GEíSiP H AF ERLENDUM VETTVANGI eftir BJÖRN BJARNASON Löngum helur verið um það rætt, að líf Sovétborgara væri næsta ömurlegt. í bókum sínum og ritgerðum hefur Alexander Solsj- enitsyn til dæmis dregið upp hörmulegar myndir af daglegu lífi í Sovétríkjunum, þar sem saman fer drykkjuskapur, skortur á lífs- þægindum og sultur. Vestrænir blaðamenn hafa í senn staðfest þessa lýsingu og bent á það, að svartamarkaðsbrask, mútur og hvers kyns fyrirgreiðsla á bak við tjöldin ráði þvi í raun, hvort Jíf manna sé bærilegt eða ekki. Ný- lega birtist í Bandaríkjunum skýrsla á vegum óháðrar einka- stofnunar, Population Reference Bureau, þar sem er að finna ýmsar tölulegar upplýsingar um lifslíkur og lifnaðarhætti i Sovétríkjunum. Höfundur skýrslunnar er Murray Feshbach, prófessor við George- town-háskóla í Washington. Hefur Feshbach lagt sig fram um mann- fjöldarannsóknir í Sovétríkjunum. I þessari grein, sem hér birtist, eru til fróðleiks birtar íslenskar sam- anburðartölur. Dauðsföll og drykkju- skapur í Sovétríkjunum Undanfarin ár hefur dánar- tíðni aukist um 50% í Sovét- ríkjunum. Er talið ólíklegt, að þessari þróun verði snúið til betri vegar á næstunni með auk- inni heilsugæslu þar sem nær öllum fjármunum rikisins er nú varið til landbúnaðar, orkumála og hersins. Á þeim 65 árum sem liðin eru frá byltingunni, varð á árabilinu frá 1917 til 1964, þegar Leonid Brezhnev tók við af Nikita Krútsjeff, mikil lækkun á dán- artíðni eða úr 29,1 af 1000 íbúum 1917 niður í 6,9 1964. Síðan hefur dánartíðnin vaxið um 50% og var samkvæmt opinberum heim- ildum 10,3 af 1000 1980. Þá var hún 6,7 hér á landi. Hina miklu aukningu í Sovétríkjunum er ekki unnt að skýra með því, að aldraðir myndi stærri hluta af þjóðarheildinni en áður. Athygli vekur hve „ótímabær- um“ dauðsföllum karla hefur fjölgað, einkum á aldrinum 20 til 40 ára. Telur Feshbach, að ofdrykkja ráði mestu um tíð dauðsföll meðal karla á þessum aldri í vesturhluta Sovétríkj- anna og Eystrasaltslöndunum. Opinberar sovéskar tölur hafa ekki verið birtar um ungbarna- dauða síðan 1974 — þá var hann 27,9 af 1000 á aldrinum 0 til 1 árs. Miðað við tiltækar upplýs- ingar telur Feshbach, að 1979 hafi tíðni ungbarnadauða verið 39 til 40 af 1000, sem er rúmlega þrisvar sinnum hærra hlutfall en í Bandaríkjunum, þar sem það var 12,9 af 1000 á árinu 1979. Hér á landi var þetta hlutfall að meðaltali 8 á árabilinu 1976 til 1980. Af þessum sökum eru lífslíkur Sovétborgara minni en áður. í fyrstu sovésku skýrslunum um lengd meðalævi, sem birtust að lokinni siðari heimsstyrjöldinni, var talið, að sá sem fæddist 1954 ætti 61 ár ólifað væri hann karl en 67 ár væri um konu að ræða. Á árabilinu 1941 til 1950 var meðalævi nýfæddra sveina á Is- landi 66,1 ár og meyja 70,3 ár. Samkvæmt síðustu opinberum tölum í Sovétríkjunum, sem eru frá 1972, geta drengir fæddir það ár vænst þess að verða 64 ára (71,6 ár á íslandi 1971—75) og stúlkur 74 ára (77,5 ár á íslandi 1971-75). Að mati vestrænna fræði- manna sem skoðað hafa nýjustu sovésku gögnin er hins vegar svo komið, að á árinu 1980 hafi með- alævi nýfæddra sveina styst og sé 61,9 ár (73,5 á Islandi 1976—80) og meðalævi nýfæddra sovéskra meyja hafi einnig styst og sé 73,5 ár (79,5 ár á Islandi 1976-80). Feshbach bendir á það, að í upphafi áttunda áratugarins hafi nýfædd sveinbörn í Sovét- ríkjunum getað vænst að lifa 10 árum skemur en nýfædd mey- börn, nú sé þessi munur orðinn 11,6 ár. „I engu öðru þróuðu landi er þetta árabil jafn mikið," segir í skýrslunni. Hér á landi er það sex ár og í Bandaríkjunum tæp átta en þar er meðalævi karla sem fæddust 1978 69,5 ár en kvenna 77,2 ár. Inflúensufaraldrar sem leiða til lungnabólgu eru tiðustu banamein sovéskra ungbarna, en samkvæmt sovéskum heimildum hrifsar lungnabólgan flest börn úr J>essum heimi. Heilbrigði nýbura hefur almennt hrakað í Sovétríkjunum og er talið að ofdrykkja kvenna og mengun ráði þar mestu. Feshbach segir, að lítil aðgæsla á meðgöngutíma og tíðar fóstureyðingar hafi leitt til þess, að börn fæðast nú oftar fyrir tímann en áður, og eru 20% meiri líkur á því að þau börn andist á fyrsta ári en fullburða börn. Sovéskt ungbarnafæði er i senn fábreytt og lítilfjörlegt. Fyrir þá sök þjást reifabörn oft af meltingartruflunum, maga- kvillum og beinkröm. Útivinn- andi mæður eiga svo engra ann- arra kosta völ en setja veikburða börn sín á yfirfullar dagvistir, þar sem starfsfólk er alltof fátt til að veita þeim nauðsynlega umönnun. I skýrslunni segir, að of- drykkja sé nú þjóðarsýki í Sovét- ríkjunum og til hennar megi vafalaust rekja fjölgun dauðs- falla meðal sovéskra verka- manna auk þess sem áfengis- neysla vaxi hjá konum og ungl- ingum. Feshbach segir, að um 65% af neyslu Sovétmanna séu sterkir drykkir — vodka og heimabruggið Samogon. Hlutur sterkra drykkja í áfengisneyslu Bandaríkjamanna er 45% en hér á landi er hlutur sterkra drykkja um 70%. Feshbach segir, að þéttbýl- isbúar í Sovétríkjunum verji næstum jafn miklum hluta af vikulegu neyslufé sínu í áfengi og Bandaríkjamenn í mat. í sov- éskum gögnum má sjá að „eitrun eða meiðsli fyrir slysni" séu þriðja algengasta dánarorsökin hjá sovéskum körlum — að minnsta kosti helming slíkra dauðsfalla má rekja til ölvunar. Dauði af völdum hjartabilunar er nú mun algengari en áður í Sovétríkjunum og má að veru- legu leyti rekja það til vín- drykkju. Þótt fjöldi manna í heilbrigð- isstéttum og heilbrigðisstofnana ykist hlutfallslega meira á átt- unda áratugnum í Sovétríkjun- um en ibúafjöldinn og nú gegni tvöfalt fleiri menn störfum að heilbrigðismálum þar en í Bandaríkjunum, er það skoðun Feshbachs, að Sovétmenn hafi lagt meiri áherslu á útþenslu en gæði. Hann telur því, að sovéska heilbrigðiskerfið hafi ekki afl til þess að takast á við kvillana sem hrjá íbúana og gerast æ þung- bærari. Hann segir að sovéskar heilsu- gæslustöðvar séu aðeins opnar nokkrar stundir á degi hverjum og þangað sæki mun fleiri en unnt sé að sinna. Biðraðir eru langar, sjúkdómsgreiningar ónákvæmar og tengslin milli læknis og sjúklings með öllu ófullnægjandi. Þá segir Fesh- bach, að skortur sé á sjúkra- tækjum og hjúkrunargögnum. í dreifbýlinu sé jafnvel ekki unnt að fá jafn algengt lyf og aspirín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.