Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 3 Fiskverð hækkar um 7,72% 1. des. — kostnaður útgerð- arinnar hefur hækkað um 12 til 13% VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins ákvað á fundi sínum síðastlidinn miðvikudag, að almennt fiskverð skuli hækka um 7,72% þann fyrsta desember, frá því verði, sem gildir Þingsályktunartillaga Eiðs Guðnasonar: Ríkisstjórn- inni falið að mótmæla hval- veiðibanni EIÐIJR Guðnason alþingismaður hefur lagt fram þingsályktunartil- lögu um að Alþingi feli rikisstjórn- inni að mótmæla nú þegar sam- þykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um algjört bann við hvalveiðum frá og með árinu 1986. í greinargerð með tillögunni segir flutningsmaður, að fjöl- margar þjóðir hafi þegar komið mótmælum við banninu á fram- færi við Alþjóðahvalveiðiráðið, og mótmæli Islendingar ekki ákvörð- uninni fyrir 1. febrúar verði svo litið á sem þeir samþykki bannið. Mótmæli íslendingar hins vegar fyrirhuguðu hvalveiðibanni séu þeir óbundnir af samþykkt ráðs- ins. Jafnframt segir í greinargerð- inni að hlutur hvalafurða í út- flutningstekjum íslendinga sé meiri á þessu ári en oftast áður, og talið sé að verðmæti afurða, sem fluttar verði út eftir hvalvertíðina sl. sumar, sé um 10 milljónir Bandaríkjadala. Þá segir í greinargerðinni að við hvalveiðar og vinnslu á vegum Hvals hf. starfi hvert sumar um 230 manns. Þar af séu 100 í Hvalstöðinni í Hvalfirði, um 60 á hvalveiðiskipunum og um 70 manns við vinnslu í frystihúsi Hvals hf. í Hafnarfirði. Væru þá ótaldir þeir sem annars staðar starfa við hrefnuveiðar og vinnslu og frágang hrefnukjöts, en sl. sumar stunduðu 8—10 bátar hrefnuveiðar. Innanlands- flugið geng- ur erfiðlega lnnanlandsflug Flugleiða gekk illa i gær, vegna ísingar og ókyrrðar í lofti. Aðeins var hægt að fijúga tvisvar til Egilsstaða og einu sinni til Sauðárkróks. Reynt var aö fljúga til Akureyrar, en flugvélin varð að snúa við yfir fiugvellinum. Það var því ófært til Akureyrar, Húsavíkur, Isa- fjarðar, Þingeyrar, Hafnar og Vest- mannaeyja í gær. Þetta er þriðji dag- urinn í röð sem ekki hefur verið hægt að fijúga til ísafjarðar og Þing- eyrar. LITGREINING MEÐ CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AO VANDAORI LITPRENTUN til nóvemberloka. Verð þetta gildir til 31. desember. Verðið var ákveðið í samræmi við 3. málsgrein 1. grein- ar bráðabirgðalaga nr. 79 frá 21. ágúst. Samkvæmt áðurnefndum bráða- birgðalögum og svokölluðum Ólafslögum er fiskverðið því skor- ið niður um um það bil 10% eins og almennar launahækkanir í landinu. Morgunblaðið hafði vegna þessa samband við Kristján Ragnars- son, formann LÍÚ. Kristján sagði, að samkomulag allra aðila hefði verið það, að þetta fiskverð gilti ekki nema til áramóta vegna þess hve allt væri óljóst um framvindu mála útgerðarinnar og með hlið- sjón af þvi að niðurgreiðslur á olíu falla niður um áramót. „Það er ljóst að kostnaður útgerðarinnar frá því í september hefur hækkað að mati Þjóðhagsstofnunar um 12 til 13%, þar með talin áhrif vegna verðbreytingar á olíu, launahækk- ana og annarra kostnaðarhækk- ana. Staða útgerðarinnar miðað við heilt ár versnar því til muna dag frá degi og því var ákveðið að þetta verð gilti ekki nema til ára- móta,“ sagði Kristján. Siö „smá"atriði sem stundum víð mgleymast vaf á nýrri þvottavél IÞvottavél sem á að nægja venju- legu heimili, þarf að taka a.m.k. 5 kfló af þurrum þvotti, því það ér ótrúlega fljótt að koma í hvert kíló af handklæðum, rúmfötum og bux- um. Það er líka nauðsynlegt að hafa sérstakt þvottakerfi fyrir lítið magn af taui, s.s. þegar þarf að þvo við- kvæman þvott. # 2Það er ekki nóg að hægt sé að troða 5 kílóum af þvotti inní vélina. Þvottavélin þarf að hafa mjög stóran þvottabelg og þvo í miklu vatni, til þess að þvotturinn verði skínandi hreinn. Stærstu heimilis- vélar hafa 45 lítra þvottabelg. 3Vinduhraði er mjög mikilvægur. Sumar vélar vinda aðeins með 400-500 snúninga hraða á mínútu, aðfar með allt að 800 snúninga hraða. Góð þeytivinda þýðir ekki aðeins að þvotturinn sé fljótur að þorna á snúrunni (sum efni er reynd- ar hægt að strauja beint úr vélinni), heldur sparar hún mikla orku ef notaður er þurrkari. 4Qrkusparnaður er mikilvægur. Auk verulegs sparnaðar af góðri þeytivindu, minnkar raforkunotkun- in við þvottinn um ca. 45% ef þvottavélin tekur inn á sig bæði heitt og kalt vatn. 5Verðið hefur sitt að segja. Það má aldrei gleymast að það er verðmætið sem skiptir öllu. Auð- vitað er lítil þvottavél sem þvær lítinn þvott í litlum þvottabelg, tekur aðeins inn á sig kalt vatn og þeyti- vindur illa, ódýrari en stór vél sem er afkastamikil, þvær og vindur vel og sparar orku. A móti kemur að sú litla er miklu dýrari og óhentugri í rekstri og viðhaldsfrekari. 6Þjónustan er atriði sem enginn má gleyma. Sennilega þurfa eng- in heimilistæki að þola jafn mikið álag og þvottavélar og auðvitað bregðast þær helst þegar mest reynir á þær. Þær bestu geta líka brugðist. Þess vegna er traust og fljótvirk viðhaldsþjónusta og vel birgur vara- hlutalager algjör forsenda þegar ný þvottavél er valin. 7Philco er samt aðalatriðið. Ef þú sérð Philco merkið framan á þvottavélinni geturðu hætt að hugsa um hin „smáatriðin“ sem reyndar eru ekki svo lítil þegar allt kemur til alls. Framleiðendur Philco og hafa þjónustudeild Heimilistækja séð fyrir þeim öllum: 5 kíló af þurrþvotti, 45 lítra belgur, 800 snúningar á mínútu, heitt og kalt vatn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta. Við eruni sveigjanlegir í samningum! yertu orusgur velduPnilco heimilistæki hf. HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655 MYNDAMOTHF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.