Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 SMOTTURA Byggió irm yóar eigió ÖRYGGIS HÖLF og þaóheima istofu Hver þekkir ekki vandamál viö geymslu pappíra og muna heima????? Nú er komin ódýr og örugg lausn t.d. fyrir: ★Verðbréf, afsöl og samninga ★ Bankabækurnar ★ Peninga, innlenda og erlenda ★ Frímerkja- og myntsöfn ★ Heimilisbókhaldið ★ Skartgripi ★ Ættar- og verðlaunagripi ★ Skattapappíra ★ Meðul og annað sem getur verið hættulegt börnum ★ Leyndarmálin fT Eldtraust og þjófheld. ★ 4 mismunandi stæröir og gerðir Mjallhvít og dvergarn- ir í hreyfimyndabók BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf. hefur gefið út hið gamalkunna ævin- týri um Mjallhvit og dvergana sjö I nýjum búningi. Er hér um að ræða hreyfi- og lyftimyndabók, og í senn leikfang og bók. Er bókin einkum ætl- uð yngstu lesendunum. Andrés Indriðason þýddi bókina, en myndskreytingar eru eftir þrjá teiknara, Jonathan og Lynn Shook og Patriciu Halley. Bókin er filmu- sett í Prentstofu G. Genediktsson- ar, en prentuð og bundin í Cali í Colombíu í Suður-Ameríku. Bókaútgáfan Örn og örlygur hf. hefur áður gefið út nokkrar bækur í sama flokki og má þar nefna hreyfi- myndabækurnar um Paddington og Draugaspaug. Bílar og flug- vélar og ... BÓKAÚTGÁFAN Örn og Ör- lygur hf. hefur nú endurút- gefið bókina „Bílar, flugvélar og öll heimsins furðulegustu farartæki“, eftir Richard Scarry. I bókinni kynnir Richard Scarry hin margvíslegustu far- artæki og Ienda söguhetjurnar í skemmtilegum ævintýrum á ferð- um sínum í farartækjunum. Fá lesendur og skoðendur að kynn- ast þróun samgöngutækjanna og hihu fjölbreytta úrvali þeirra um leið og farið er yfir texta bókar- innar. Má þarna sjá mörg furðu- leg farartæki sem öll koma þó að góðum notum. Bókina þýddi Loftur Guð- mundsson. Meginmál bókarinnar er sett í Prentsmiðjunoi Eddu hf., en bókin er prentuð og bundin hjá Gyldendal í Kaupmannahöfn. Urvalaf trévöru Sérstaklega vel með farinn vínrauður Peugot 604, árgerð 1978 til sölu. Ekinn aöeins 55 þús. kílómetra. Skipti á ódýrari bíl koma til greina. Bíllinn er meö V-6 vél, aflstýri og aflbremsum auk annars fransks lúxusútbúnaöar. Upplýsingar í símum 31771 á vinnutíma, en annars 74454. tll tæklfæris og jólagjafa Afar hagstætt verö. Lítiö inn um helgina sjón er sögu ríkari. Opið til kl. 4 laugardag og 2—5 sunnudag. Ritsafn Þor- gils gjallanda SKUGGSJÁ hefur gefið út fyrsta bindi af Ritsafni Þor- gils gjallanda. Er þetta upp- haf þriggja binda útgáfu. Þorgils gjallandi, sem er skáldheiti Jóns Stefánsson- ar. 8. Hann er fæddur 2. júní árið 1851 að Skútústöðum í Mývatns- sveit. Hann var bóndasonur og ætt hans stóð djúpum rótum í sveit- inni. .Hann missti móður sína níu ára gamall, en faðir hans drukkn- aði í Mývatni árið 1868. Jón Stef- ánsson var næstu árin vinnumað- ur á ýmsum bæjum í sveitinni, en dvaldi þó sumarlangt í Húna- vatnssýslu sem vinnumaður og auk þess hluta vetrar við nám hjá prestinum að Skinnastað í öxar- 'firði. Að þessu frátöldu dvaldi hann allan aldur sinn í Mý- vatnssveit og þar dó hann árið 1915. „Rit Þorgils gjallanda hafa ekki verið fáanleg í áratugi í heildar- útgáfu og vill forlagið bæta þar úr með þessari þriggja binda útgáfu, sem Jóhanna Hauksdóttir og Þórður Helgason hafa annast," segir m.a. í frétt frá útgefanda. „Þórður ritar langa ritgerð um Þorgils gjallanda og menningar- byltingu Þingeyinga, rekur þar rithöfundarferil skáldsins, stílein- kenni og þá dóma, sem ritverk hans hlutu’ hjá samtímamönnum. Auk þess hefur þetta fyrsta bindi að geyma dýrasögur, greinar og erindi." Þetta fyrsta bindi Ritsafns Þorgils gjallanda er 268 bls., sett og prentað í Prisma og bundið í Bókfelli hf. Lárus Blöndai gerði hlífðarkápu bókarinnar. Tvær nýjar ostategundir: „Dala Brie“ og „Dala yrja“ VÆNTANLEGAR eru á markaðinn á næstunni tvær nýjar ostategundir frá Mjólkursamlaginu í Búðardal, sem ekki hafa áður verið á markaði hérlendis, segir í fréttatilkynningu frá Mjólkursamsölunni. Nú er að fara á markað ostur, sem er mjúkur mygluostur, hvítur og blár, minnir helst á sambland af Camembert og Gráðosti. Sam- bærilegar erlendar tegundir eru hinn danski Castello og sá franski Brasse Bleu. Hefur ostur þessi ís- lenska nafnið „Dala yrja“. í byrjun desembermánaðar fer á markaðinn ostur er ber nafnið „Sala Brie“. Er það einnig mjúkur ostur, ættaður upphaflega frá Frakklandi og þekktur undir Brie-nafninu víða um heim. Ostategundir þessar má nota sem forrétt, ábætisrétt og rétt síð- kvöldsins. Eru þær gómsætar með brauði, kexi eða bragðmiklum borðvínum. Þess má geta að yfirleitt er all- ur ostur bestur sé hann borinn fram við stofuhita, þ.e.a.s. tekinn úr kæliskáp 1—3 tímum fyrir neyslu, segir ennfremur í frétta- tilkynningunni. Hörpuútgáfan endur- útgefur tvær bækur HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi hefur sent frá sér bækurnar „Leikir og létt gaman“ og „Draumaráðningar — Spila- spá“. Séra Sveinn Víkingur tók saman efni í leikjabókina, en auk leikja er að finna í bókinni gamanmál fyrir fólk á öllum aldri. í bókinni eru töfrabrögð, huglestur, gátur, hópleikir, taflleikir, talnaleikir og ýmiss konar ráðgátur. Bókin kemur nú út í 2. útgáfu og er 136 blað- síður. Hin bókin, „Draumaráðn- ingar og spilaspá", er einnig endurútgefin. í henni er að finna svör við áleitnum spurn- ingum um drauma, en einnig er kennt að spá í spil. Bókin er 79 blaðsíður. Báðar bækurnar eru off- setprentaðar í Prentverki Akraness hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.