Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 Gústav þjálfar og leikur með Einherja GÚSTAV Baldvinsson var í gær ráðinn þjálfari hjá 2. deildarliöi Einherja frá Vopnafirði frá 1. febrúar næstkomandi. Mun Gústav einnig leika meö liöinu. en hann lék sem kunnugt er meö isfiröingum síöastliöiö sumar og áður lék hann meö Vestmanney- ingum. Ekki þarf aö efa aö Gústav styrkir Vopnafjaröarliðiö mikið, enda mjög sterkur leikmaöur og var hann einn af máttarstólpum isfiröinga í 1. deildinni I sumar. Að sama skapi er missir ÍBÍ mik- ill. — SH Leikur markvarð- anna á Akureyri KA sigraði Þór, Vestmannaeyj- um, 26:20 (12:9), í 2. deildinni í handbolta á miðvikudagskvöldiö í íþróttaskemmunni á Akureyri. Var sigurinn mjög öruggur er upp var staðið en leikurinn var jafn framan af. Var hann mjög skemmtilegur og örugglega besti leikurinn í Skemmunni í vetur. Liöin böröust mjög vel og harka var nokkur í leiknum. KA var yfir, 1—2 mörk framan af, en síöan jókst forysta þeirra jafnt og þétt í síðari hálfleiknum. Leikurinn einkenndist af frábærri markvörslu og sórstaklega var Magnús Gauti í marki KA góöur. Hann varöi hvorki meira né minna en 16 skot í fyrri hálfleiknum, flest þeirra úr dauöafæri og Sigmar Þröstur hjá Þór varöi 10 skot ilfyrri hálfleiknum. Gauti varöi alls 25 skot í leiknum og var hann besti maöur KA í leiknum. Annars var liöið jafnt og áttu allir mjög góöan leik. Bestur hjá Þór var Ingólfur Ingólfsson, mjög skemmtilegur leikmaöur. Mörkin skiptust þannig. KA: Kristján Óskarsson 6, Þorleifur Ananíasson 6 (4 víti), Flemming Bevensee 5 (1v), Gumundur Guö- mundsson 4, Kjell Mauritsen 3 og Friöjón Jónsson 2. Þór: Lars Geör- an 6 (2v), Ingólfur Ingólfsson 4, Böövar Bergþórsson 3, Gestur Matthíasson 3, Herbert Þorleifs- son 2, Siguröur Friöriksson 1 og Sigurbjörn Óskarsson 1. BG/— SH. Varmalandshlaupió • Þeir Bjarni Guömundsson (t.v.) og Siguröur Sveinsson (t.h.) komu til landsins (gærdag og munu leika meö íslenska landsliöinu í kvöld gegn V-Þjóöverjum. Þeir hafa báöir staöiö sig vel ( vetur meö liöi sínu Nettelsted. í fyrrakvöld sigraöi Nettelsted lið Göppingen meö 24 mörkum gegn 15. Þá skoraöi Bjarni níu mörk og mörg þeirra eftir góöa sendingar frá Siguröi. Þá átti Siguröur fimm þrumuskot í stöngina, en inn vildi boltinn ekki hjá Siguröi í þeim leik. En vonandi veröur hann búinn aö stilla „kanónuna" fyrir leikínn í kvöld. Hann er þekktur fyrir s(n þrumuskot og vonandi verða þau mörg í kvöld. Landsleikjatörnin fyrir B-keppnina hefst í kvöld Varmalandshiaup UMSB var haldið nýlega aö Varmalandi í Stafholtstungum. 50 keppendur mættu til leiks í hlaupinu sem er víöavangshlaup, aöallega Vest- ur-Húnvetningar og Borgfirö- ingar. í karlaflokki sigraöi Högni Óskarsson, KR, og kona hans, Ingunn Benediktsdóttir, KR, sigr- aói í kvennaflokki. í sveinaflokki 15—16 ára sigraöi Víðavangshlaup Kópavogs Víðavangshlaup Kópavogs veröur haldiö á laugardaginn og hefst á Kópavogsvellinum kl. 14.00. Keppt verður í karla- og kvennaflokkí og hlaupa karlarnir 7 km en konurnar hlaupa 3 kíló- metra. Gunnlaugur Skúlason, USVH, í piltaflokki 13—14 ára sigraöi Bjarki Haraldsson, USVH, annar varð Davíö Jónsson, ES, og þriöji Björgvin Þorsteinsson, USVH. í telpnaflokki sigraöi Hrönn Sigurö- ardóttir, USVH. Af strákum 11 —12 ára varö Höröur Guö- björnsson, USVH, fljótastur, annar varö Eiríkur Blöndal, fsl., og þriöji Baldur Heimisson, USVH. í stelpnaflokki 11 —12 ára sigraöi Margrét Brynjólfsdóttir, UMFS. í hnokkaflokki 10 ára og yngri varö hlutskarpastur Birgir Örn Birgis, UMFSK, annar varö Grétar Karls- son, ísl., og þriöji Björn H. Einars- son, ísl., og í hnátuflokki sigraöi Hugrún Jónsdóttir, UMFSK, Sóley Halla Eggertsdóttir, USVH, varö önnur og Inga Hanna Guömunds- dóttir, USVH, þriöja. — HBj. — 20 landsleikir eru framundan hjá liöinu áður en B-keppnin í Hollandi hefst í febrúar í KVÖLD veróur fyrsti landsleikur keppnistímabilsins í handknattleik á heimavelli. íslenska landsliöiö ræóst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því leikió veróur gegn fyrrum heimsmeisturum í íþróttinni, V-Þjóðverjum. Þjóöverjar leika tvo leiki hér á landi, þann fyrri í kvöld kl. 20.00 og þann síöari á sunnudagskvöldiö kl. 20.00. Þessir leikir eru rétt aöeins byrjunin á löngu og ströngu landsleikjaprógrami og æfing- um fyrir B-keppnina sem fram fer í Hollandi, 24. febrúar til 7. mars. Mjög fróölegt veróur aó fylgjast meö undirbúningi landsliösins fyrir B-keppnina svo og frammistööu í þeim leikjum sem framundan eru. Þaö er alveg Ijóst aö íslenskum handknattleik hefur ekki fleygt fram eins og í sumum löndum Evrópu, heldur staöió í staö og sennilega veröum vió aó taka á honum stóra okkar ef viö eigum aó geta haldið okkur í sama flokki og vió erum í núna. í síöustu B-keppni tapaói íslenska landsliðið fjórum leikjum sínum af sjö og þar af þremur mjög illa gegn þjóöum eins og Frökkum og fsraelsmönnum. Þá er þaö líka athyglisvert, aö af síóustu tíu landsleikjum hér á heimavelli hafa aö- eins tveir unnist en átta hafa tapast og flestir þeirra meö miklum mun. En það var gegn mjög sterkum mótherjum þannig aö tölulega lítur þetta máski verr út. En hvað um þaö. Betur má ef duga skal. I NÆSTU viku fara fram tveir leikir gegn Frökkum hér á landi og síðan veröur haldiö til A-Þýskalandi um miðjan desember og leiknir þar fimm leikir í móti sem þar fer fram. 28. og 29. desember veröa svo tveir leikir gegn Dönum hér heima. Áfram veröur haldiö eftir áramót meö ferö til Noröurlandanna þar sem leiknir veröa sex landsleikir. Og loks tveir leikir í Júgóslavíu 17.—20. febrúar. Af þessu má sjá aö stjórn HSÍ leggur mikla vinnu og peninga í þaö verkefni aö undir- búa landsliöshópinn sem best undir hiö stóra verkefni sem fram- undan er. Jafnframt leggja leik- menn á sig mikiö erfiöi viö allan þennan undirbúning þannig aö mikiö er í húfi aö vel takist til. Sigrar, hvar og hvenær: Þaö ríður mikiö á aö mark- miðssetning í öllum undirbúningi sé rétt og hnitmiðuö. Fyrir réttu ári vann íslenska landsliöiö sinn stærsta sigur frá upphafi á dönsku landsliöi í handknattleik á Akra- nesi, 32—21. Sætur sigur og stór fyrir okkur. Eöa hvaö? Hvaö voru Danirnir aö hugsa. Var styrkleiki þeirra ekki meiri. Þeir voru á ieiöinni í lokakeppni HM í V-Þýskalandi. Hvaö kom uppúr kafinu. Þar sýndu þeir sitt rétta andlit, léku frábæriega og unnu mikiö afrek meö því aö leik til úrslita um þriöja sætiö í keppninni gegn Pólverjum. Síöasti landsleikur islenska landsliösins fyrir B-keppnina áriö 1981 var hér heima gegn A-Þjóö- verjum og viö sigruöum þessa sterku handknattleiksþjóö 18—15. Vissulega stórt og mikið afrek sem viö vorum og getum veriö stoltir af. En viö megum ekki gleyma þeirri staöreynd aö heimaleikjasigrar gefa okkur ekki rétta mynd af getu landsliös okkar. Raunveruleg staða kemur ekki í Ijós fyrr en í stórmótum erlendis. Verum minn- ugir þess hvernig okkur gekk í heimsmeistarakeppninni í Dan- mörku og i síðustu B-keppni. En okkur hefur sem betur fer líka gengiö vel í keppni á útivelli eins og í B-keppninni á Spáni áriö 1979. • Þaó mun mikið mæöa á landsliöshópnum ( handknattleik ( vetur. Tuttugu landsleikir eru framundan og síóan B-keppnin. Þá hefur verió æft mjög mikið, allt aö því tvisvar á dag, og félögin ( 1. deild hafa aldrei leíkið oftar. Landsliöshópurinn ( handknattleik, fremri röö frá vinstri: Jóhannes Stefánsson KR, Magnús Teitsson Stjörnunni, Hans Guömundsson FH, Guðmundur Guómundsson Víking, Páil Ólafsson Þrótti. Efri röð frá vinstri: Einar Þorvaröarson Val, Kristján Arason FH, Kristján Sigmundsson Víkíng, Brynjar Kvaran Stjörnunni, Alfreö Gíslason KR, Þorbergur Aðalsteinsson Víking, Siguróur Gunnarsson Víking, Þorgils Óttar Matthiesen FH, Steindór Gunnarsson Val og Hilmar Björnsson, landsliösþjálfari. Á myndina vantar þá Bjarna Guömundsson og Sigurð Sveinsson sem leika báöir meö Nettelsted i V-Þýskalandi. Ljósm. Kmilía Bjorg Bjornsdóllir. j B-keppninni í Hollandi fáum viö erfiöa mótherja, en sé rétt á spilum haldiö er engin ástæöa til aö ætla annaö en aö íslenska landsliöiö standi sig vel. Liöiö kemur til meö aö fá marga landsleiki og mikinn undirbúning og vonandi skilar hann sér eins og til er ætlast. — ÞR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.