Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 11 „Það vakti óneita- nlega furðu og óánægju, þegar menntamálaráð- herra kaus að hafa í raun frumkvæði að því að slíta því sérstæða sambandi, sem verið hefur um rekstur fræðsluskrifstofu í Reykjavík, er hann gekk í berhögg við vilja meirihluta fræðsluráðs. Það er auðvitað for- senda þess að slíkt sam- starf geti haldist, að gagnkvæmt traust sé á milli borgaryfirvalda og menn tamálar áðu ney tis- ins eins og verið hefur fram til þessa.“ fræðsluráðs Reykjavíkur við ráðn- ingu fræðslustjóra, verður að líta svo á að hann vilji með því sýna, svo ekki verði um villst, að fræðslustjórinn í Reykjavík sé embættismaður ríkisins og að úr sögunni sé sá skilningur, sem áður ríkti um stöðu embættisins. Samkvæmt lögum um grunn- skóla eru fræðslustjórar fulltrúar ráðuneytisins úti í fræðsluum- dæmum og starfsmenn þess, með völd og áhrif deildarstjóra sbr. t.d. auglýsingu nr. 256 frá 1974, þar sem tekið er fram að þeir heyri beint undir ráðuneytisstjóra en ekki neina sérstaka deild í ráðu- neytinu. Samkvæmt þessari aug- lýsingu e,r því ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins næsti yfirmaður fræðslustjóra og af því leiðir, að sveitarstjórnir geta ekki og eiga ekki að segja þeim fyrir verkum eða fela þeim verkefni, sem lögum samkvæmt eða eðli málsins samkvæmt eru málefni sveitarfélags. Með því væru sveit- arstjórnirnar að afhenda ríkis- valdinu til meðferðar málaflokk sem kjósendur hafa i sveitar- stjórnarkosningum kjörið fulltrúa sína til að fara með. Þessi rök lágu að baki þeirri ákvörðun meirihluta borgarráðs að flytja svohljóðandi tillögu, þeg- ar ljóst var að menntamálaráð- herra hafði við ráðningu nýs fræðslustjóra virt vilja meirihluta fræðsluráðs Reykjavíkur að vett- ugi: „Borgarráð samþykkir að fela borgarstjóra að óska eftir viðræð- um við menntamálaráðuneytið um stöðu fræðsluskrifstofunnar í Reykjavík og rekstur hennar, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 182/1976 um störf fræðslustjóra, þar sem gert er ráð fyrir að embætti þeirra og fræðsluskrifstofur séu sjálf- stæðir rekstraraðilar, óháðir sveitarsjóðum, sbr. 6 gr. og 10. gr. nefndrar reglúgerðar." í greinargerð með tillögunni er tekið fram, að markmið þeirra viðræðna, sem óskað er eftir, sé að ákvæði tilvitnaðrar reglugerðar, sem aðrar fræðsluskrifstofur en sú í Reykjavík hafa starfað eftir, nái hér eftir til Reykjavíkur. Fræðsluskrifstofan muni að sjálfsögðu starfa áfram með fram- lagi ríkissjóðs og mótframlagi Markús Örn Antonsson borgarinnar eins og lög gera ráð fyrir og sjá um kennslueftirlit, sérkennslu, sálfræðiþjónustu, safnamiðstöð og annað er lögum samkvæmt er talið verkefni fræðslustjóra, þar með talinn úr- skurður f.n. menntamálaráðu- neytisins í þeim málum, er það fel- ur honum úrskurðarvald sam- kvæmt reglugerð. Sveitarstjórn er ætlað að hafa með höndum rekstur grunnskóla, iðnskóla og fjölbrautaskóla, en fá hlutdeild ríkissjóðs greidda eftir á í uppgjöri. Af þessu leiðir, að sveitarstjórn er hinn raunverulegi rekstraraðili varðandi rekstur þessara stofnana en í grunnskóla- lögum er ætíð getið um skólanefnd sem fulltrúa sveitarfélaga, er hef- ur með málefni skólanna að gera. I Reykjavík fer fræðsluráð með verkefni skólanefndar, eins og áð- ur er rakið. Um skólanefndir grunnskóla og verkefni þeirra gildir nú erindisbréf nr. 185/1976. Þar segir svo í 51. gr.: „Hlutaðeigandi sveitarfélög annast fjármál, reikningshald og greiðslur vegna grunnskóla, en geta falið skólanefnd, skólastjóra eða sérstökum reikningshaldara að hafa á hendi reikningshald í umboði sínu með samþykki fræðslustjóra." Af þessu sýnist mega ráða, sbr. 84. gr. grunnskólalaga, að sveitar- stjórnin sjálf fari með fjármál grunnskólans, en skólanefnd skuli vera milliliður, þegar fjallað er um innri málefni skólans, kennslufræðileg atriði. Til enn frekari áréttingar þeim rökum, sem flutt hafa verið fyrir tillögu um viðræður við mennta- málaráðuneytið, skal hér vísað í bókun, sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins stóðu að, þeg- ar málið var til afgreiðslu á fundi borgarstjórnar hinn 7. október sl. Þar segir: „Menntamálaráðherra hefur sett nýjan fræðslustjóra í Reykja- vík'til eins árs gegn vilja fræðslu- ráðs Reykjavíkur. Réttkjörinn meirihluti fræðsluráðs gerði tii- lögu til ráðuneytisins á grundvelli 13. gr. grunnskólalaga, þar sem segir m.a.: „Við skipun í starf fræðslu- stjóra er skylt að taka tillit til kennslufræðilegrar menntunar umsækjenda, stjórnunarreynslu innan skólakerfisins og þekkingar þeirra á skólamálum, og skulu þeir umsækjendur að öðru jöfnu ganga fyrir, sem hafa rétt til að vera skipaður skólastjóri við grunnskóla og hafa gegnt starfi kennara eða skólastjóra i a.m.k. þrjú ár.“ Ekkert svar Það vakti óneitanlega furðu og óánægju, þegar menntamálaráð- herra kaus að hafa í raun frum- kvæði að því að slíta því sérstæða sambandi, sem verið hefur um rekstur fræðsluskrifstofu í Reykjavík, er hann gekk í berhögg við vilja meirihluta fræðsluráðs. Það er auðvitað forsenda þess að slíkt samstarf geti haldist, að gagnkvæmt traust sé á milli borg- aryfirvalda og menntamálaráðu- neytisins eins og verið hefur fram til þessa. Borgaryfirvöld hafa aldrei falið fræðslustjóra sem ríkisembætt- ismanni málefni borgarinnar. Þegar ráðherra hefur svo rækilega undirstrikað við ráðningu nýs fræðslustjóra, að um ríkisembætt- ismann sé að ræða, hljóta borgar- yfirvöld að óska viðræðna við menntamálaráðuneytið um þau breyttu viðhorf, er við það skap- ast, að af ríkisins hálfu er litið á stöðu fræðslustjóra samkvæmt ströngustu túlkun grunnskólalaga en ekki eins og hún hafði mótast í meðförum borgarinnar í sam- vinnu við ríkið." Borgarstjóri ritaði mennta- málaráðuneytinu bréf með ósk um viðræður um leið og afstaða borg- arstjórnar lá fyrir. Síðan er liðinn einn mánuður og enn hefur ekki borist svar frá ráðuneytinu. Fyrsta flokks innihurðir í öllum karma- breiddum. Egill Egilsson Ný skáldsaga: Pabba- drengir ÚT ER komin ný skáldsaga eftir Egil Egilsson. Nefnist hún Pabbadrengir og er þriðja skáldsaga höfundar. Bókin er kynnt þannig á bókarkápu, að sagan sé nútimasaga um nútíma- fólk — hjón sem eignist börn. „Hafi happa- og glappaað- ferðin einhvern tíma verið nothæf undir slíkum kringum- stæðum, þá er hún það að minnsta kosti ekki lengur. Nú verður að skipuleggja allt frá rótum. — Þennan dag skal barnið koma undir — í þessari viku skal það fæðast o.s.frv. En hvernig gengur mann- legri náttúru að beygja sig undir slíka skipulagningu. Kynni það ekki að vera ofurlít- ið broslegt og kannski dálitið stressandi. Svo virðist að minnsta kosti vera í þessari grátlega sönnu og sérstæðu bók“ — eins og segir í bókar- kynningunni. Pabbadrengir er 148 bls. og unnin í Borgarprenti. Útgef- andi er Almenna bókafélagið. Spónlagðar með völdum náttúrulegum spæni. Pantið strax, afhending fyrir jól. Sérstaklega hagstæðir greiðsluskilmálar. Timburverzlunin Völundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.