Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
Líkfundurinn í Argentínu:
Evrópuþingid lýsir
vanþóknun sinni
Sirasb«»urg, 18. nóvember. AF.
í ÁLYKTUN Evrópuþingsins sem birtist í dag segir, aó það sé mikið áfall að
frétta um líkfundinn í Argentinu. Það skoraði á stjórnvöld í hinum tiu
löndum Efnahagsbandalagsins að senda stjórn Argentínu harðorð mótmæli.
Evrópuþingið skoraði einnig í
ályktun sinni á Javier Perez de
Cuellar, aðalritara Sameinuðu
þjóðanna, að hefja alþjóðlega
rannsókn á þeim atburðum er
leiddu til dauða þessara manna.
Þess var farið á leit við utanrík-
isráðherra Efnahagsbandalags-
þjóðanna að þeir sendu stjórn-
völdum í Argentínu mótmæli, þar
sem þess væri krafist að þarlend
stjórnvöld byndu þegar í stað enda
á „óþolandi brot“ á almennum
mannréttindum og að þau leggi
fram nákvæmar upplýsingar um
þúsundir manna sem hafa horfið
frá því herinn tók völd í landinu í
byltingunni 1976.
Einnig var vikið að nýlegum
fregnum þess eðlis að 84 börn á
aldrinum tveggja mánaða til sex
ára hafi horfið sporlaust.
Víndlingabrennur á
sjötta reyklausa
degi Bandaríkjanna
New York, 18. nóvember. Al*.
KEYKLAUS dagur var í Bandaríkj-
unum í gær og var fyrirfram reiknað
með þátttöku 16—18 milljón manna.
l>etta er sjötta árið í röð sem
krabbameinsvarnafélag Bandaríkj-
Ufsaveiðum
við Noreg
að Ijúka
Briissel, 18. nóvember. AF.
Efnahagsbandalag Evrópu til-
kynnti í dag, að það hefði ákveðið,
að ufsaveiðum við Noreg skuli lok-
ið 21. nóvember nk. Þetta skiptir
fyrst og fremst máli fyrir danskan
sjávarútveg, þar sem frá löndum
Efnahagsbandalagsins eru það
nær eingöngu dönsk fiskiskip, sem
veiða ufsa á þessum slóðum. Af-
ormað hafði verið að veiða aðeins
54.000 tonn af ufsa á þessum slóð-
um, en veiðin nú er þegar orðin
59.000 tonn.
anna gengst fyrir reyklausum degi
og eru haldnar stórfelldar sígarettu-
brennur í tilefni dagsins. „Við erum
að reyna að fá fólk til að hætta í einn
dag, en vonandi er það bara byrjun-
in hjá sem flestum," sagði Rita Bail-
ey, talsmaður bandaríska krabba-
meinsvarnafélagsins.
Talið er að einn af hverjum
þremur fullorðnum Bandaríkja-
mönnum reyki meira og minna.
Auk þess reykja að því að talið er
1,5 milljón ungmenna undir 18 ára
aldri. Hins vegar er talið að 34
milljónir Bandaríkjamanna hafi
hætt að reykja síðustu árin. Land-
læknir Bandaríkjanna, C. Everett
Coop, sagði um reyklausa daginn:
„Sólahringurinn sker úr um
hversu háðir reykingamenn eru
tóbak-nu. Þeir sem ekki halda út
einn sólarhring án tóbaks hafa
misst öll tök á ávana sem gæti
hæglega stytt líf þeirra verulega."
Reyklausi dagurinn hefur borið
talsverðan árangur, til dæmis
hætti meira en ein milljón Banda-
ríkjamanna að reykja eftir reyk-
lausa daginn 1980.
Nýr borgarstjóri í Lundúnum
l»ndon, nóvember. AF.
Fyrir skömmu var skipaður nýr borgarstjóri í Lundúnum. Hinn nýi
borgarstjóri heitir Sir Anthony Loliffe og á meðfylgjandi mynd veifar
hann hinu hefðbundna höfuðfati Lundúnaborgarstjóra til vegfarenda er
honum var ekið um stræti borgarinnar.
Kornakrar í New York?
/Etla mætti í fyrstu að Ijósmyndarar hefðu verið að leika sér á meðfylgjandi mynd. Enda kornakrar fremur
ólíklegir til að vera i miðborg New York. Þessi mynd er þó ófölsuð með öllu, listakonan Anges Denes, sem
brosir við lesendum fremst á myndinni, fékk þá hugmynd að slá upp kornakri á auðu svæði í borginni og fékk
til þess tilskilin leyfi hjá borgaryfirvöldum. Landbúnaðarráð Norður-Dakota gaf fræ til fyrirtækisins og
framkvæmdi frú Denes hugmynd sína umsvifalaust með aðstoð 60 vina og vandamanna. Ekki verður akurinn
þó langlífur, því fljótlega stendur til að reisa þarna miklar skrifstofubyggingar.
Flugfélög heimsins
enn í miklum kröggum
VANALEGA er þriðji ársfjórðungurinn, þ.e. mánuðirnir júlí, ágúst og sept-
ember, besti tíminn fyrir flugfélög, enda er mest um ferðalög þá. Nú eru
bandarísk flugfélög hvert af öðru að tilkynna um afkomuna fyrir þriðja
ársfjórðunginn og eru þau ekki alis kostar ánægð með árangurinn. Hann er
að vísu skárri en afkoma sl. tveggja ársfjórðunga, en það er lítil huggun þvi
þá voru flest flugfélög rekin með methalla.
Allt útlit er fyrir að afkoma
þeirra yfir sumarmánuðina í ár
verði svipuð og í fyrra, en þá
græddu félögin samtals um 50
milljónir dollara og þá hafði verk-
fall flugumferðarstjóra mikil
áhrif en ekki nú. Þessi niðurstaða
er sérstök vonbrigði af ýmsum
ástæðum. í fyrsta lagi eru flest
| stóru flugfélögin mjög aðfram-
I komin eftir að hafa tapað samtals
hátt að tveimur milljörðum doll-
ara síðastliðin þrjú ár. Eru þau
búin að skera niður og spara allt
sem hægt er að spara og auk þess
eru mörg þeirra búin að ganga
mjög nærri eignum sínum og ým-
ist veðsetja þær eða selja. I öðru
lagi þá lofaði vorið mjög góðu þar
sem samkeppni virtist fara
minnkandi og auk þess virtist far-
þegafjöldi vera að aukast. Flugfé-
lögin bjuggu sig því undir sumarið
með það í huga og fjölguðu ferðum
og buðu fleiri sæti. í þriðja lagi þá
virtist heldur rýmkast um í sam-
keppninni síðasta vor þegar eitt af
stóru flugfélögunum, Braniff, varð
gjaldþrota og varð að hætta
starfsemi.
En það var greinilega ekki nóg
og nú er talið að hinir hörðu vetr-
armánuðir framundan geti orðið
fleiri flugfélögum að bana. Eink-
um er talið að Air Florida og Pan
American séu hætt komin fjár-
hagslega. Fyrir Air Florida er það
kaldhæðni örlaganna, þvi þegar
halla fór undan fæti fyrir stóru
flugfélögunum 1979, fór fyrst að
ganga verulega vel hjá Air Florida
sem þá var ekki mjög stórt flugfé-
lag. En einmitt vegna tiltölulegrar
smæðar félagsins og lítils fasta-
kostnaðar gat það undirboðið
stærri flugfélög og samt hagnast.
Það hefur hins vegar leitt til þess
að félagið hefur vaxið ört og safn-
að miklum skuldum og nú er svo
komið að óvist er um framtíð þess.
Pan Am á hinn bóginn var stórt
og stöndugt flugfélag þegar hin
óhefta samkeppni hófst. Félagið
átti gífurlegar eignir s.s. Pan
Am-skýjaklúfinn á Manhattan og
Inter Continental-hótelhringinn.
Félagið hefur nú selt flestar þess-
ar eignir og fjármagnað með því
tap síðustu ára. Auk þess hefur
þúsundum starfsmanna félagsins
verið sagt upp störfum og þeir sem
eftir eru hafa samþykkt verulega
launalækkun. Ástæðan fyrir því,
að Pan Am hefur farið verr útúr
hinni auknu samkeppni en önnur
stór flugfélög er m.a. sú að óvenju
stór hluti rekstrar Pan Am er á
alþjóðaflugleiðum (70%) þar sem
samkeppnin hefur verið hörðust.
T.d. gekk samkeppnin við Freddy
Laker mjög nærri Pan Am, en þó
enn nær Laker sem fór á hausinn.
í fyrra var ráðinn nýr forstjóri til
Pan Am, C. Edward Acker, en
hann var áður forstjóri Air Flor-
ida. Hann sagði í viðtali við tíma-
ritið Fortune í desember sl., að
framtíð Pan Am myndi að öllum
líkindum ráðast sumarið 1982. Ef
fyrirtækið færi illa útúr því sumri
sagðist hann mundu minnka það
niður í þriðjung þáverandi stærð-
ar sinnar.
En þótt útlitið sé ekki beint
bjart þessa stundina eru þó nokkr-
ir ljósir punktar við sjóndeild-
arhringinn. • Hin miskunnarlausu
undirboð hafa minnkað verulega
upp á síðkastið. Einnig hefur
eldsneyti fyrir flugvélar lækkað í
verði á þessu ári og með lækkandi
vöxtum að undanförnu hefur fjár-
magnskostnaður flugfélaganna
farið minnkandi. En betur má ef
duga skal og veturinn framundan
gæti reynst einhverjum um megn.
SLB
Vændiskonur mótmæla
Lundúnum, 18. nóvember. AF.
FIMMTÁN grímuklæddar konur settust í dag að í kirkju nokkurri í
Lundúnum til að mótmæla aðgerðum lögreglunnar gagnvart vændiskon-
um.
Konurnar, sem sögðust vonast
eftir að hitta að máli yfirmenn
stjórnarinnar í hverfi þessu,
ætla að hirast í svefnpokum í
nótt í Kirkju hins heilaga kross í
hverfi í Norður-Lundúnum, sem
þekkt er fyrir gróskumikið næt-
urlif og þykir fremur vafasamt.
Konurnar segjast hafa verið
handteknar af lögreglunni þegar
þær voru ekki að störfum, þær
hafi verið þvingaðar til að játa á
sig sakir sem þær séu saklausar
af og einnig hafi verið komið aft-
an að fjölskyldum þeirra og þær
hræddar.
„Ég hef verið dæmd þrettán
sinnum, en lögreglan hefur aldr-
ei staðið mig að viðskiptum,"
sagði ein kvennanna, sem er ní-
tján ára að aldri. „Við krefjumst
þess einungis að vera meðhöndl-
aðar sem mannlegar verur."
Sóknarpresturinn, séra Trevor
Richardson, sagði gömul for-
dæmi fyrir því, að kirkjur væru
notaðar fyrir samkundur og
mótmæli. „Ég gleðst yfir því að
íbúum þessarar sóknar finnist
þeir geta notað kirkjuna til
hluta sem þessara," sagði hann.
Talsmaður Scotland Yard
sagði að mál kvennanna myndi
verða tekið til rannsóknar ef
þær bæru fram formlega kvört-
un, en hann bætti við: „Það hefði
verið mun sanngjarnara, ef þær
hefðu komið beint með þessar
kvartanir til okkar, en ekki grip-
ið til svona róttækra aðgerða."