Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.11.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 10 kr. eintakiö. Svar óskast, félagi Fyrir hálfum mánuði hófst þing Alþýðuflokksins. Eftir það slitnaði upp úr við- ræðum toppkrata við ríkis- stjórnina. Fyrir viku hófst þing Framsóknarflokksins. Eftir það tala framsóknar- menn um að þing megi rjúfa hvenær sem er eftir 1. des- ember. I dag verður flokks- ráðsfundur Alþýðubandalags- ins settur. Er ekki að efa að þar verði margt merkilegt rætt og reifað. Undanfarnar vikur hafa al- þýðubandalagsmenn sagst vera helstu talsmenn þess, að sem fyrst beri að efna til al- þingiskosninga. Er ekki að efa að félagi Svavar Gestsson, flokksformaður, verði krafinn svara um afstöðuna til þing- rofs nú eftir hryggbrot krata og flótta Framsóknar frá stjórnarsamstarfinu. Félagi Ólafur R. Grímsson, formaður þingflokks Alþýðubandalags- ins, hefur leitast við að skapa sér betri stöðu í flokknum en Svavar síðan kommúnistar guldu afhroð í sveitarstjórnar- kosningunum í vor. Fyrst ger- ði Ólafur þetta með grein í Þjóðviljanum skömmu eftir kosningarnar, en í henni var ráðist á Svavar Gestsson og ráðherra Alþýðubandalagsins. Viku fyrir flokksráðsfundinn birti Ólafur svo aftur grein í Þjóðviljanum til að sanna að allt hafi verið rétt sem hann sagði í maí og endurtók árás- irnar á ráðherrana og þá eink- um Gunnar Thoroddsen. Er Svavar Gestsson sammála Ólafi R. Grímssyni? Þetta eru hinar pólitísku stórspurningar sem Svavar verður að svara, og svo kemur kaupránið, Helguvík, álmálið og öll hin „baráttumálin". Um þessi mál verður tekist á á flokksráðsfundinum og einnig hitt, hvort menn fallist á þá línu Þjóðviljans, að ekki verði stofnuð friðarhreyfing á ís- landi. Er eðlilegt að menn hafi flokkspólitíska skoðun á þess- um málum. En störf ráðherra felast ekki aðeins í mótun stjórnmálastefnu, þeir bera einnig embættislega ábyrgð á framkvæmd mála hver á sínu sviði. Um annað ráðuneyta Svavars Gestssonar, heilbrigð- is- og tryggingaráðuneytið, rennur stærstur hluti af skattfé almennings. Halldór Biöndal, alþingis- maður, vakti máls á því í grein hér í blaðinu sl. laugardag, að Svavar Gestsson, félagsmála- ráðherra, hefði greint Alþingi rangt frá þegar hann svaraði fyrirspurn Halidórs meðal annars um greiðslur félags- málaráðuneytisins til lögfræð- Svavar inga vegna ríkisábyrgðar á launum við gjaldþrot. I svari sínu nefndi Svavar nokkra lögmenn sem fengið hafa slíka þóknun greidda hjá ráðuneyti hans en nefndi ekki nafn að- stoðarmanns síns til skamms tíma, Arnmundar Backmans, þótt greiðslubeiðnir félags- málaráðuneytisins til ríkisfé- hirðis séu vegna þóknunar til aðstoðarmannsins en ekki tveggja lögfræðinga á skrif- stofu hans, sem ráðherra nafngreindi. Síðan Halldór Blöndal birti þessar upplýs- ingar í grein sinni hefur eng- inn sagt orð, sem kannski er skiljanlegt, ekki einu sinni ráðherrann, sem stendur þó næst að svara. Hann verður að svara og greina frá því, hvers vegna hann skýrði Alþingi ekki rétt frá öllum málavöxt- um. Kveðja til austfirskra velunnara Fyrir nokkrum vikum var því fagnað hér á þessum stað, að íslensku skipafélögin Eimskip og Hafskip hafa tekið höndum saman um að reka farþegaskip, en íslensk skipa- félög hafa ekki verið með slík- an farkost síðan haustið 1973, þegar Gullfoss fór síðustu áætlunarferðina. I leiðaranum stóð: „Síðan (1973) hefur þess ekki verið kostur að ferðast á milli ísiands og annarra landa með farþegaskipi í áætlunar- siglingum." Eins og við mátti búast hafa ýmsir velunnarar Morgunblaðsins á Austfjörð- um vakið máls á því að þessi setning sé ekki rétt, færeyska ferjan Smyrill hafi verið í áætlunarferðum milli Seyðis- fjarðar og annarra landa. Fyrir Morgunblaðinu vakti auðvitað ekki að stofna til vandræða með þessari ófull- burða setningu, enda þarf mikið hugarflug til að sjá hvaða tilgangi það þjónaði. En lesi menn setninguna með víð- sýni og velvilja í samhengi við annað í leiðaranum, er ljóst að þar er verið að fagna því að íslensk skipafélög ætla að nýju að hefja rekstur farþegaskips — að vísu í tilraunaskyni. Það er stefna Morgunblaðsins að hvetja til samkeppni og blaðið fagnar því að sjálfsögðu að hún eykst á þessu sviði. Smyr- ill er góð samgöngubót og lyftistöng fyrir landsbyggðina. Það er einnig í anda blaðsins. Þóra Friðriksdóttir og Lilja Guðrún ÞorraMsdóttir í hlutverkum sinum i DagleUkinni löngu. Þóra leikur húsmóður- ina á heimilinu og eituristann Mary Tyrone, en Lilja Guðrún leikur vinnustúlkuna Cathleen. Þjóðleikhúsið: Dagleiðin langa inn í nótt — frumsýning á sunnudagskvöld Næstkomandi sunnudagskvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið hið fraega verk Eugene O’Neill Dagleiðin langa inn i nótt (Long Day’s Journ- ey Into Night). Leikritið var áður sýnt í Þjóðleikhúsinu, en það var árið 1959 og hét þá Húmar hægt að kvöldi. Leikhúsið hefur nú látið gera nýja þýðingu á verkinu og fékk til þess Thor Vilhjálmsson rit- böfund. Þá hefur Þjóðleikhúsið fengið til liðs við sig kunnan bandarískan leikstjóra, Kent Paul að nafni, sem undanfarin ár hefur vakið athygli vestra fyrir sviðsetn- ingar sinar á verkum O’Neill. Að- stoðarleikstjóri er Árni Ibsen. Til að gera leikmynd, búninga og ann- ast lýsingu er mættur til leiks Queniin Thomas, breskur leik- myndahönnuður sem m.a. hefur starfað með Trevor Nunn og Royal Shakespeare ('ompany, en hefur sl. ár starfað í Bandaríkjunum og er nú sestur þar að. Þeir Kent Paul og Quentin Thomas hafa mikið starf- að saman að verkefnum á síðustu misserum. í hlutverkum í Dagleiðinni löngu eru Rúrik Haraldsson (James Tyrone), Þóra Friðriks- dóttir (Mary Tyrone), Arnar Jónsson (James Tyrone jr.), Júlí- us Hjörleifsson (Edmund Tyr- one), en hann fer nú með sitt. fyrsta stóra hlutverk á leiksviði, og Lilja Guðrún Þorvaidsdóttir (Cathleen). Sagði Árni Ibsen, aðstoðarleik- stjóri og blaðafulltrúi Þjóðleikh- ússins, að leikritið hefði vakið gífurlega hrifningu fyrst þegar það var sviðsett, en það var á Dramaten í Stokkhólmi árið 1956. „Þetta var þremur árum eftir andlát O’Neill og varð til þess að nýr áhugi vaknaði á höf- undinum og öllum hans verkum og má raunar segja að þar með hafi staða hans verið tryggð og er nú svo komið að þetta verk og önnur leikrit hans eru mikið leik- in um víða veröld. Farið er að líta á O’Neill sem klassískan höfund sem öll metnaðarfull leikhús verða að takast á við. Dagleiðin langa er áberandi sjálfsævisögulegt verk og er fjöl- skyldan í verkinu mótuð eftir fjölskyldu ieikskáldsins, en þó er ekki svo að þekking á lífi O’Neill sé nauðsynleg til þess að njóta leiksins, þvert á móti, þá tekst skáldinu með meistaralegri sam- þjöppun að gefa heilsteypta og trúverðuga mynd af fjölskyldu á ákveðnum tíma, í ákveðnu landi og með ákveðna sögu á bak við sig. Og sá áhugi sem er á verkinu um allan heim stafar einmitt af því að þessi fjölskyldumynd endurspeglar og varpar ljósi á állar fjölskyldur, hvort sem það er hin margumtalaða kjarnafjöl- skylda eða fjölskylda sú sem ein þjóð er eða þá mannkyns- fjölskyldan. Þegar verkið kom fyrst fram var fátt vitað um fjöl- skyldu leikskáldsins og áhorf- endur tóku verkinu sem hverju öðru fjölskyldudrama, en síðan líf höfundarins varð jafn þekkt og raun ber vitni hafa menn í auknum mæli horft á verkið sem heimild og listgildi þá legið milli hluta." Árni sagði að þetta leikrit væri af mörgum talið eitt merki- . legasta leikhúsverk sem komið hefur frá Bandaríkjunum á þess- ari öld. Þá taldi Árni að þýðing Thors Vilhjálmssonar hafi tekist mjög vel, en Thor hefur áður þýtt nokkur leikrit, bæði fyrir Þjóð- leikhúsið og Leikfélag Reykja- víkur. En um hvað fjallar leikritið? „Verkið lýsir einum haustdegi í lífi Tyrone-fjölskyldunnar, sem er af írsku bergi brotin, og við kynnumst gleði þeirra og sorg- um, draumum þeirra og von- brigðum. O’Neill siglir hjá hefð- bundnum söguþræði, en skapar þess í stað heilsteyptar og lifandi persónur og þróar þær með ferð þeirra gegnum einn dag. Titillinn vísar þannig til eðlis verksins, en jafnframt vísar hann til manns- ævinnar, leitar höfundarins að sjálfsþekkingu — og, síðast en ekki síst, vísar hann til Banda- ríkjanna og heimsins alls. Því verkið er samið í síðari heims- styrjöldinni, í því mikla svart- nætti sem ól af sér gereyð- ingarmöguleikann, en það gerist árið 1912 á einhverju mesta bjartsýnisskeiði sem Bandaríkin hafa upplifað. Er O’NeilI samdi verkið hafði hann verið að reyna að setja saman flokk níu langra leikrita um sögu bandarískrar fjölskyldu allt frá sautjándu öld til samtímans, en ýtti þessu mikla verki til hliðar til þess að skrifa Dagleiðina löngu inn í nótt. Yfirlýstur tilgangur hans með níu leikrita flokknum krist- allast hinsvegar í Dagleiðinni löngu.“ Þá vildi Árni vekja sérstaka athygli á því að sýningar á verkinu munu hefjast klukkan hálf átta, en ekki átta eins og venjulega. Þótt leikritið sé nokk- uð stytt, tekur það þó rúma þrjá tíma í flutningi. Frá vinstri: Árni Ibsen, aðstoðarleikstjóri, Quentin Thomas, en hann gerði leikmynd og búninga ásamt því að annast lýsingu, og leikstjórinn Kent Paul.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.