Morgunblaðið - 19.11.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
Kenndur við fötlun
sína — vill vítur
MORGUNBLAÐINU barst í gær
bréf, sem þeir bræður Gísli og Arn-
þór Helgasynir hafa sent Omari
Valdimarssyni, formanni Blaða-
mannafélags Islands. Bréfið er svo-
hljóðandi:
Árin dá-
samlegu
— eftir þýzka skáldið
Reiner Kunze í þýðingu
Björns Bjarnasonar
ALMENNA bókafélagið hefur sent
frá sér bókina Arin dásamlegu (Die
wunderbaren Jahre) eftir austur-
þýska skáldið og rithöfundinn Rein-
er Kunze.
Kunze þykir afar viðfelldinn og
hógvær höfundur — að minnsta
kosti vestan járntjalds. í hinni ís-
lensku kynningu bókarinnar er
hann sagður hafa hlotið margs
konar bókmenntalega viðurkenn-
ingu bæði í heimalandi sínu og
utan þess og verk hans séu nú gef-
in út á um 20 þjóðtungum. Þá seg-
ir í kynningunni:
„Árin dásamlegu komu fyrst út
1976. Þau fjalla um líf æskufólks í
þáverandi heimalandi höfundar.
Bókin er saman sett úr mörgum
örstuttum smásögum — eins kon-
ar myndum — látlaus bók og
hógvær. „Bók mín er ekki pólitískt
plagg," hefur Kunze sagt um þetta
verk. „Hún er ekki hugsuð sem
árás á einn eða neinn. Eg er ekki
óvinur Alþýðulýðveldisins. Ég er
óvinur lyginnar.“
Enginn vafi er á því að þessar
sögur eru byggðar á reynslu dótt-
ur Kunze af æskulífi og skólakerfi
fyrir austan múrinn.
Þýðandinn Björn Bjarnason
(blaðamaður) ritar nokkur aðfara-
orð um höfundinn.
Árin dásamlegu er 126 bls. að
stærð, pappírskilja, og unnin í
Prentsmiðjunni Hólum.
(FrúttaCilkynning)
Stolinn bíll ófundinn
FORD Cortina-bifreið, árgerð
1972, sem stolið var af lóðinni
Borgartúni 1 í júnímánuði síðast-
liðnum hefur enn ekki fundist.
Bifreiðin var blá að lit og bar ein-
kennisstafina 0-7249. Ekkert hef-
ur til bifreiðarinnar spurst frá því
er hún hvarf í sumar.
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
„Erindi bréfs þessa er að kæra
fyrir yður frétt, er birtist í Sandkorn-
um Dagblaðsins og Vísis 16. þessa
mánaðar, þar sem greindi frá at-
burðum á flokksþingi Framsóknar-
flokksins í sömu viku. Þar var að
vísu ruglað nöfnum okkar bræðra,
en það er ekki meginatriði þessa
máls, heldur hitt, hvernig um málið
var fjallar, sbr. meðfylgjandi Ijósrit
af klausunni. Þar segir, að Gísli
blindi Helgason hafi greint frá því,
að honum hafi ekki verið veitt starf
blaðamanns við Tímann og síðan var
greint frá ummælum Jónasar Guð-
mundssonar blaðamanns í þessu
sambandi.
Nú eru það hvorki ummæli Jónas-
ar né nafnaruglingurinn, sem við
kærum, heldur það, að menn skuli
kenndir við fötlun sína á opinberum
vettvangi á þann hátt sem Dagblaðið
og Vísir gerir. Á þennan hátt er ýtt
undir alls kyns fordóma, sem fötlun
fylgja og grafið undan þeim árangri
sem stefnt er að i réttindabaráttu
fatlaðra. Segir það sig sjálft, að slík
notkun lýsingarorða í skrifum um
einstaklinga gæti leitt til hinnar
mestu skrílmennsku í blaðaskrifum
en notkun uppnefna færðist þá í vöxt
og rakalaus áburður, sem í notkun
»»»■..»— fyt* MM. á|
Npr Mmm Catmwiil
MM itt að ■ i myndbndi
StfMi M |||- ‘
Endursýnum
enn einu sinni
vegna mikillar aðsóknar
OKKAR Á MILLI
þessari felst, yrði aðaluppistaðan í
málflutningi íslenskra blaða. Frétta-
klausa þessi kemur eins og köld
vatnsgusa framan í okkur, sem höf-
um staðið í því að leiðrétta ýmiss
konar misskilning og fáfræði um
málefni fatlaðra og hlýtur maður að
velta því fyrir sér, hvort ekkert hafi
grynnkað á fordómum og illgirni
þeirri í garð fatlaðra, sem ríkjandi
var hér á árum áður. Illt er, að
blaðamenn fari þar fremstir í fiokki.
Við leyfum okkur að krefjast þess,
að blaðamaður Dagblaðsins og Vísis,
sem skrifaði þessa grein, verði víttur
og við beðnir opinberlega afsökunar
á þeirri lítilsvirðingu, sem í áður-
nefndri klau.su felst.
Arnþór Helgason,
Gísli Helgason.“
í HÁSKÓLABÍÓ KL. 7.15.
sími84445
AUSTURVERI & 86035
Kynnir í dag frá kl. 4—6
örbylgjuofna
í dag kynnir Ólöf Guönadóttir
hússtjórnarkennari Sharp ör-
bylgjuofna í versluninni. Geriö
svo vel aö líta inn — kynnist
möguleikum örbylgjuofna og
hve sáraeinfaldir þeir eru í allri
notkun.
\
Glæsilegt og fjölbreytt
úrval heimilistækja, stórra
sem smárra.
Austurveri c/ Háaleitisbraut