Morgunblaðið - 19.11.1982, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Keflavík
Blaðberar óskast.
Upplýsingar í síma 1164.
Viðskiptafræðingur
og/eða
kerfisfræðingur
Viljum ráða víðsýnan kerfisfræðing eða
viðskiptafræðing.
Starfið verður fólgið í að byggja upp forritun-
ardeild og tölvusölu, og sjá um starfsemi
hennar.
Viökomandi þarf að vera framkvæmdamað-
ur, hafa hagnýta reynslu úr viðskiptalífinu,
geta gert sér grein fyrir þörfum íslenzkra
fyrirtækja í tölvuvæðingu, skipuleggja verk-
efni, hafa með höndum verkstjórn í forritun,
og geta umgengist og stjórnað öðru fólki
áreynslulaust.
Maður með góða bókhaldsþekkingu, áhuga
fyrir tölvum, reynslu í stjórnun, og sem getur
starfað sjálfstætt, kemur vel til greina.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og starfsreynslu sendist okkur fyrir
1. desember nk., merktar: „Kerfisfræöi —
Trúnaðarmár.
Farið verður með allar umsóknir sem algjört
trúnaðarmál. Nánari upplýsingar gefur Sig-
uröur Gunnarsson.
Skrifstofuvélar hf.
Hverfisgötu 33.
Sími 20560.
Afgreiðslumaður
Viljum ráða vanan og reglusaman mann til
afgreiðslustarfa í byggingavörudeild vöru-
húss okkar á Selfossi.
Umsækjandi þarf aö geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknarfrestur er til 30. þ.m.
Upplýsingar í síma 99-1208, eða 99-1207.
Kaupfélag Árnesinga,
Selfossi.
Sjúkraþjálfari
óskast
St. Franciskusspítali í Stykkishólmi óskar að
ráða sjúkraþjálfara til starfa frá 3. janúar
1983.
Dagheimili er til staðar og einnig herbergi.
Upplýsingar hjá príorinnunni í Stykkishólmi,
annað hvort bréflega eða í síma 93-8128.
St. Franciskusspítalinn Stykkishólmi.
■ *1 Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar
Skrifstofumaður
óskast
við iðnfyrirtæki í Garöabæ.
Tilboð óskast sent augld. Mbl. fyrir miðviku-
daginn 24. nóvember merkt: „Þ — 3504“.
Opinber stofnun
óskar eftir starfsmanni til símavörslu, vélrit-
unar og alm. skrifstofustarfa. Viðkomandi
þarf að geta hafið starf sem fyrst. Umsóknir
ásamt upþlýsingum sendist Mbl. fyrir 25.
þ.m. merktar: „Góð framkoma — 264“.
Fjórðungssjúkrahúsiö á Akureyri
Fóstrur
Fóstru vantar frá næstu áramótum á Barna-
heimilið Stekk, sem rekið er á vegum Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Allar nánari uþþlýsingar gefur yfirfóstran
Þórlaug Baldursdóttir í síma 96-24477.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Vonarstræti 4 — Sími 25500
Laus staða
Staða fulltrúa í rekstrardeild er laus til um-
sóknar. Reynsla í skrifstofustörfum nauð-
synleg.
Umsóknarfrestur er til 27. nóvember nk. Um-
sóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof-
unni.
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri.
Járniðnaðarmaður
Járniðnaðarmaður vanur viðgerðum óskast í
viðhald og nýsmíði.
Upplýsingar í síma 54312.
Sæplast hf.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
óskast keypt
Beðnir að útvega
til kaups
gott 600—1000 fm iðnaðarhúsnæði á góðum
stað á Reykjavíkursvæðinu. Tilboö leggist
inn á augl.deild Mbl. merkt: „U — 265“ eða í
síma 35360“
Söluturn óskast
Óska eftir að kaupa góðan söluturn meö
kvöldsöluleyfi.
Góðar og öruggar greiðslur í boði.
Tilboð sendist augldeild. Mbl. merkt: „H —
261“ fyrir 23/11 nk.
Gufuketill
7—10m2 gufuketill óskast.
Byggingariöjan hf.
Sími 36660.
landbúnaður
Jörðin Víðivellir í Fljóts-
dal Norður-Múlasýslu
er til leigu nú þegar. Sauðfjárbúskaþur getur
ekki orðiö á jörðinni vegna staðfestrar riðu-
veiki næstu 3—5 árin.
Aðrir möguleikar eru til dæmis refa- eða
minkarækt, mjólkurframleiðsla og svína-
rækt. Húsakostur er allgóður, tún 40 ha.
Upþlýsingar í síma 97-4322, eftir kl. 19.
[ fundir
mannfagnaðir
Stofnfundur félags
tónlistarskólakennara
verður haldinn að Grettisgötu 89, sunnudag-
inn 21. nóv. kl. 15.00.
Kennarasamband íslands.
Byggingarfélag
verkamanna
Reykjavík
Aðalfundur
félagsins verður haldinn á Hotel Heklu,
Rauðarárstíg 18, þriðjudaginn 23. nóvember
1982, kl. 20.30.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Félagsstjórnin.
Tölvuráðstefna
Ráðstefna Nemendasambands félagsmála-
skóla alþýðu um tölvumál sem fyrirhuguð
var 20. nóvember er frestað.
Nánar auglýst síðar.
Nemendasamband félagsmála-
skóla alþýöu.
ColourrArt ‘Fhoto
Kæru viöskiptavinir!
Vegna mikils annríkis biðjum við ykkur um að
leggja inn eftirpantanir á stofumyndum okkar
sem afgreiöast eiga fyrir jól sem fyrst.
Meö því er hægt aö foröast tafir og veita bestu mögulega þjónustu.
lUOSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEG1178
REYKJAVIK
SIMI 85811