Morgunblaðið - 19.11.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 .
23
Staðurinn ekki
hentugur lengur
— segir bankastjóri BúnaÖarbankans, en bankinn
hefur skilað lóÖ sinni undir útibú í Garðabæ
„VIÐ teljum þetta ekki hentugan
staö lengur meö tilliti til þess hvern-
ig byggðin hefur þróast í bænum.
Við erum ekki á neinu undanhaldi
og ég hygg að við reynum að kaupa
hús annars staðar, nálægt iðngörð-
unum, sem eru að rísa ofarlega I
bænum. Þetta eru hyggilegri vinnu-
brögð en að eyða peningum í að
reisa stórhýsi á stað þar sem útibú
mundi líklega ekki þjóna sinu hlut-
verki,“ sagði Magnús Jónsson,
bankastjóri Búnaðarbankans, í sam-
tali við Mbl. i gær, en bankinn hefur
skiiað aftur lóð, sem hann hafði
fengið úthlutað í miðbæ Garðabæj-
ar.
„Byggðin þarna hefur þróast
öðruvísi en upphaflega var ætlað,
þannig að hinn raunverulegi mið-
bær, sem bankinn átti að vera í, er
alls ekki raunverulegur miðbær.
Það er ástæðan fyrir því að við
skilum lóðinni,“ sagði Magnús.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur
harmað þessa ákvörðun bankans,
en lóðinni var úthlutað í apríl sl.
Segir í bókun, sem samþykkt var
samhljóða á fundi bæjarstjórnar-
innar, að ákvörðun bankans muni
raska öllum skipulagsáætlunum
og byggingaráformum á miðbæj-
arsvæðinu.
Hélublóm — Endur-
útgáfa á ljóðum Erlu
HÉLUBLÓM nefnist nvútkomin
bók eftir skáldkonuna Erlu, sem
hét réttu nafni Guðfinna Þor-
steinsdóttir. Hélublóm kemur nú
út í annarri útgáfu, hafa verið
ófáanleg á almennum markaði
um fjörtíu ára skeið. Bókin er nú
gefin út í aðeins 250 eintökum.
Krlusjóður gefur út.
Upphaflega var það hinn
kunni bókbindari og bókasafn-
ari, Helgi Tryggvason, sem gaf
bókina út í kreppunni 1937.
Ekki þótti það af öllum bú-
mannleg ákvörðun, en bókin
náði talsverðri útbreiðslu og
vinsældum.
Árið 1945 kom út önnur bók
Erla (Guðfinna Þorsteinsdóttir).
Erlu, Fífulogar. Þar var meðal
annars að finna svofelldar upp-
lýsingar um skáldkonuna:
Frá 8 ára aldri ólzt Erla upp í
Krossavík í Vopnafirði og
dvaldi þar til tvítugs. Á því
heimili mun hún hafa notið
góðra þroskaskilyrða. Árið 1917
giftist hún Pétri Valdimar Jó-
hannessyni frá Syðrivík í
Vopnafirði. Byrjuðu þau búskap
inni í heiði, efnalaus. Ofan á
bágan efnahag þessara hjóna
bættust svo langvarandi veik-
indi Erlu. En þrátt fyrir margs
konar erfiðleika og umfangs-
mikil heimilisstörf, því að hún
hefur eignast 9 börn, sem öll
hafa alizt upp heima, hefur hún
stöðugt fengist mikið við
skáldskap. Ýmis kvæði hennar
höfðu birzt í tímaritum og blöð-
um og vakið athygli ljóðelskra
manna, einkum þulurnar henn-
ar og ferskeytlurnar, en ljóða-
bók gaf hún þó ekki út fyrr en
árið 1937. Bókin hlaut nafnið
„Hélublóm" og vakti mjög
mikla athygli og urðu vinsældir
hennar meðal alþýðumanna svo
miklar, að hún seldist upp á
skömmum tíma. Margir bók-
fróðir menn fóru einnig lofsam-
legum orðum um ljóð Erlu, t.d.
fórust Guðmundi Finnbogasyni
þannig orð í Mbl. um tvö kvæði
í bókinni „Steinunn í Vík“ og
„Við hliðið": „betri kvæði en
þessi tvö efast ég um, að nokkur
íslenzk kona hafi gert“.
„Elisabeth Taylor,
ástir, líf og Ieikur“
ÚT ER komin á vegum Iðunnar bók-
in Elizabeth Taylor, ástir, líf og leik-
ur. Þetta er ævisaga hinnar heims-
frægu kvikmyndastjörnu, sem Kitty
Kelley hefur skráð.
Ingibjörg Jónsdóttir þýddi. í
bókinni er rakinn litríkur feriil
Elizabethar, jafnt í einkalífi sem á
kvikmyndatjaldi um áratugaskeið.
Sem kunnugt er hefur þar gengið
á ýmsu og um þau mál segir svo á
kápubaki m.a.: „Sjö sinnum hefur
hún gengið í hjónaband, hvert
öðru stormasamara. Hemjulaus
ólifnaður hennar og fimmta eigin-
mannsins, Richards Burton, olli
þvílíku hneyksli að heimssögulegir
atburðir á stjórnmálasviðinu féllu
í skugga hans. Jafnvel Vatíkanið
gat ekki látið hann ótalinn. Með
kenjum sínum og heimtufrekju
gerði hún einn stærsta kvik-
myndaframleiðanda heims nær
gjaldþrota."
Elizabeth Taylor, ástir, líf og leik-
ur er stór bók, skiptist í 28 kafla,
rúmar 300 blaðsíður, auk þrjátíu
og tveggja mynda úr lífi leikkon-
unnar og af henni í ýmsum fræg-
um hlutverkum. Prentrún prent-
aði.
Message
rafmaqns-
ritvélar
Litla Message 860 ST rafmagnsritvélin er alvöru ritvél. Letur-
borðið er fullkomið með dálkastilli. Vélin er stöðug og traust,
en tekur þó sáralítið pláss.
Message 990 CR er eins byggð og 860 ST vélin en hefur leið-
réttingarborða að auki.
Message 860 ST eða 990CR er tilvalin ritvél fyrir minni fyrir-
tæki, í skólann eða á heimilið.
Verðið er ótrúlega hagstætt.
vH'fíí
| SKRIFST OFUVELAR H.F. |
Hverfisgötu 33 — Slmi 20560 — Pósthólf 377
Reykjavík