Morgunblaðið - 19.11.1982, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
Opið á laugardögum
Bifreiöaeigendur athugiö, í vetur höfum viö einnig
opiö á laugardögum.
Bón og þvottastöðin hf. Sigtúni 3.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Prestskosning
Umsækjandi sr. Gunnar Björnsson
Kosning fer fram í Miðbæjarskólanum,
laugardag og sunnudag 20. og 21. nóv-
ember, kl. 10—18, báöa dagana.
Kosningarétt hafa þeir sem náö hafa 16
ára aldri 1981, eru í söfnuöinum, eöa
skrá sig í hann áöur en kjörfundi lýkur.
Frikirkjufólkl — Bjóöum sr. Gunnar
velkominn til starfa með því aö fjöl-
menna á kjörstaö.
Tíu ára afmæli
Hábæjarsafnaðar
Viötalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl.
10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö
notfæra sér viötalstíma þessa.
Albert
Margrót
lláhajarsofnurtur í þykkvabæ
minnist 10 ára afmælis kirkju sinnar
næsta sunnudag með hátiðarguðs-
þjónustu klukkan 14. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn organistans Sig-
urbjarts Guðjónssonar. Hrönn Krist-
insdóttir syngur einsöng.
Fólk úr söfnuðinum les úr ritning-
unni og sóknarprestur, séra Auður
Kir Vilhjálmsdóttir, prédikar. Grænn
hökull, sem Guðrún Vigfúsdóttir
listakona á ísafirði óf fyrir söfnuð-
inn, verður notaður í fyrsta sinn.
Ragnar Emilsson arkitekt
teiknaði kirkjuna. Formaður
sóknarnefndar var þá Arni Sæ-
mundsson í Bala og hvíldu fram-
kvæmdir mikið á hans herðum.
Formaður nú er Páll Hafliðason.
Þykkbæingar unnu mikið að bygg-
ingaframkvæmdum í sjálf-
boðavinnu og hafa sýnt mikinn
myndarskap í viðhaldi kirkju og
kirkjugarðs.
Margar gjafir hafa kirkjunni
borizt á undanförnum 10 árum.
Kvenfélagið Sigurvon gaf í vor
steinda glugga, sem Benedikt
Gunnarsson listmálari teiknaði,
og í sumar gaf Ingvar Vilhjálms-
son útgerðarmaður 50.000.00 krón-
ur til minningar um foreldra sína.
Brottfluttir Þykkbæingar eru
boðnir velkomnir til hátíðarhalda
og söfnuður býður til kirkjukaffis
eftir guðsþjónustu.
Þrjár nýjar „Rauð-
ar ástarsögur“
Laugardaginn 20. nóvember verða til viötals Albert
I^Guðmundsson og Margrét S. Einarsdóttir.
ÍIT KRII komnar hjá Skuggsjá þrjár
nýjar bækur í ritsafninu „Rauðu ást-
arsögurnar": Skógarvörðurinn eftir
Sigge Stark, llver er ég? eftir Else-
Marie Nohr og Hvítklædda brúðurin
cftlr Erik Nerlöe.
Skógarvörðurinn eftir Sigge Stark
er rómantísk ástarsaga Önnu frá
• •
LEIKALMANOK
v ■ ***
PONTUN: I POSTKROFU
....stk. BRUÐUHUS kr. 90
....stk. JARNBRAUT kr. 90
....stk. BILFERJA kr. 90
....stk. MYLLA kr. 90
....stk. JOLAPOSTKASSI kr. 90
....stk. JOLAPAKKAHUS kr. 90
....stk. JOLASVEINABILL kr. 90
....stk. HURÐASKELLIR kr. 130
Heildsölubirgðir sími: 79750.
Nafn:
Heimili:
Póststöð:
Sendið greióslu eða fáið sent i póstkröfu.
ÍSAFOLD
AUSTURSTRÆTI 10
101 REYKJAVÍK SÍMI 14527
Hlíð. Anna er sautján ára og mjög
þögul og fáskiptin. Hún tjáði eng-
um hug sinn, heldur hélt sig út af
fyrir sig, rölti ein um skóginn með
hundinn sinn. En einn sumardag
hitti hún skógarvörðinn. Þessi
sumardagur festist henni í minni
sem einn mesti hamingjudagurinn
í lífi hennar, enda þótt hann bæri í
senn með sér sorg, biturleika og
tár ...
Hver er ég? eftir Else-Marie
Nohr fjallar um unga hjúkrunark-
onu, sem fær þær óvæntu upplýs-
ingar þegar hún ætlar að fara að
ganga í hjónaband, að víglsan geti
ekki farið fram, þar sem hún sé
þegar gift. Hún hafði lent í bílslysi
ELSE-MARIE IMOHR
I1VER ER ÉQ?
RAUÐU ÁSTARSðCURNAR
og misst minnio um tima, og kemst
nú að því að hún er gift manni, sem
hún hvorki man eftir eða getur
fellt sig við, — og með þessum
manni á hún þriggja ára gamla
dóttur . ..
Hvítklædda brúðurin eftir Erik
Nerlöe er saga ungrar stúlku, Karl-
ottu, og Jespers, unnusta hennar.
Karlottu er rænt þegar hún er í
brúðarvagninum á leið til kirkj-
unnar, þar sem unnustinn og veizl-
ugestirnir bíða hennar. Og þar með
fékk Benedikta, fyrrum unnusta
Jespers, tækifæri til að vinna ást
hans á ný ...
Ný skáldsaga
eftir Hans Hansen
LYSTRÆNINGINN hefur sent frá
sér nýja bók eftir danska rithöfund-
inn Hans Hansen í þýðingu Vern-
harðs Linnet og heitir bókin „Einka-
mál“. Áður hafa þrjár af bókum
Hansens verið gefnar út hér á landi:
„Sjáðu sæta naflann minn“, „Vertu
góður við mig“ og „Klás, Lena, Nína
og ...“ Auk Einkamála er ný útgáfa
komin út af „Sjáðu sæta naflann
minn“:
Hans Hansen er einhver vinsæl-
asti unglingabókahöfundur á
Norðurlöndum og hafa bækur
hans náð miklum vinsældum með-
al ungs fólks á íslandi, en auk þess
hefur hann skrifað bækur fyrir
fullorðna og fyrir útvarp, sjónvarp
og leiksvið og einnig handrit að
átta kvikmyndum, nú síðast
„Gúmmí-Tarsan", sem farið hefur
sigurför um Evrópu. Hans Hansen
dvaldi hér á landi í október og
flutti þá m.a. fyrirlestra um
barna- og unglingabækur og
kvikmyndir fyrir unglinga og
börn.
Nýja skáldsagan hans, „Einka-
mál“, fjallar um piltinn Eirík, sem
svarar einkamálaauglýsingu í
dagblaði og fer að vera með stúlku
sem er eldri en hann sjálfur og
brátt taka dularfullir atburðir að
gerast. Bókin hlaut mjög góðar
viðtökur er hún kom út í Dan-
mörku og var meðal annars fjallað
um hana í BT þar sem umsögninni
var lokið með þessum orðum:
„Þetta er ævintýralega góð bók.“
„Með kveðju
frá Gregory“
FÁIR útvarpsþættir vöktu á sinum
tíma meiri spennu meðal hlustenda
en Gregory-þættirnir svonefndu. Nú
er bókin, sem þessir þættir voru gerð-
ir eftir, komin á islenzku i þýðingu
Sverris Haraldssonar. Og enn sem þá
munu menn spyrja: Hver er hann
þessi dularfulli glæpamaður, sem
festi orðsendingu á fórnarlömb sín,
ritaða með rauðu bleki, sem minnti á
blóð: „Með kveðju frá Gregory".
Lögreglan var ráðþrota í þessu
Gregory-máli og því leituðu þeir
Vosper umsjónarmaður og Sir Gra-
ham Forbes, yfirmaður morðdeild-
ar Scotland Yard, til Paul Temple
og óskuðu aðstoðar hans. Paul
Temple var frægur leynilögreglu-
sagnahöfundur og einkaspæjari,
athugull, hugkvæmur og snjall.
Med kveðju frá Gregory er sett
hjá Setningu í Garðabæ, prentuð í
Prenttækni og bundin i Bókfelli hf.
Hún er 200 bls. að stærð og gefin út
hjá Skuggsjá.