Morgunblaðið - 19.11.1982, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982
29
Föðurlandsvinir á flótta
eftir Asbjörn Öksendal
iaður
landsvtnlr
oðfttfla
Elte Wmi maOUMximm fEOAH SEVOtN E» ST*Rít
HÖRPUÍITGAFAN á Akranesi
sendir nú frí sér nýja bók eftir
norska rithöfundinn Asbjörn öks-
endal. Hann hefur skrifaö sex bæk-
ur um andspyrnuhreyfinguna í Nor-
egi. Allar hafa þær orðiö metsölu-
bækur þar í landi og verið þýddar á
fjölda tungumála. Föðurlandsvinir á
flótta er þriðja bók hans, sem
Hörpuútgáfan hefur gefið út. Hinar
eru: „I*egar neyðin er stærst“ og
„Gestapo í Þrándheimi".
M.a. í tilefni af útkomu bókar-
innar kom öksendal ásamt eigin-
konu sinni í heimsókn til íslands
nú i sumar. Hann heimsótti Akra-
nes og ferðaðist á vegum útgáf-
unnar um söguslóðir Borgarfjarð-
ar.
A bókarkápu segir m.a.:
Föstudaginn 20. apríl kom Siv-
ert Rognes heim til þess að hafa
fjarskiptasamband við London.
Hann hjálpaði norskum föður-
landsvinum á flótta þeirra undan
böðlum nasista. í miðri útsend-
ingu var húsið umkringt af
Gestapó-hermönnum og Sivert
staðinn að verki. Hann var tekinn
fastur, beittur hroðalegum pynt-
ingum í augsýn eiginkonu og
barna og síðan fluttur í „Glaepa-
klaustur Rinnans".
Bókin Föðurlandsvinir á flótta
er sönn frásögn af baráttu og
flótta norskra föðurlandsvina á
síðustu dögum stríðsins. Þeir eru
hundeltir af glæpaflokki Rinnans
um fjallabyggðir Noregs. Þar er
vetrarharkan miskunnarlaus, með
stormum og stórhríð. Aðeins þeir
hraustustu halda lífi. En ógnir
vetrarins eru barnaleikur hjá að-
ferðum þeim sem glæpaflokkur
Rinnans beitir fórnarlömb sín.
Bókin er 175 bls. Skúli Jensson
þýddi. Bjarni D. Jónsson teiknaði
kápu. Prentverk Akraness hf. ann-
aðist prentun og bókband.
Sjötta bindið af
Borgfirzkri blöndu
„Ástin blómstrar á öll-
um aldursskeiðum“
— ný bók eftir Barböru Cartland
KOMIN er út í íslenskri þýðingu
ný bók, „Ástin blómstrar“, eftir
Barböru ('artland, einn mest lesna
ástarsagnahöfund Breta. „Bækur
hennar fjalla gjarnan um hina
hreinu, sönnu ást, eru lausar við
klám og kynlífstal, sem svo mjög
er í tízku nú, og þrátt fyrir það, eða
kannski einmitt vegna þess, hefur
hún eignast stóran hóp lesenda vítt
tRartland
Ástin blómstrar á
öllum aldursskeióum
um lönd, einnig hér á landi,“ segir
í frétt frá útgefanda.
Ástin blómstrar segir frá Mal-
colm Worthington. Kona hans er
látin og hann hefur ákveðið að
draga sig í hlé, hætta í utanrík-
isþjónustunni, þar sem hann var
talinn eiga mikla framtíð, hverfa
frá glaum og gleði og veizluhöld-
um og lifa gjörbreyttu lífi í
kyrrð og ró. Hann fer til Mið-
jarðarhafsins til að hvílast og
hefja hið nyja og breytta líf. Þar
verða tvær konur á vegi hans.
Guðmundur Frímann
Tvær fyllibytt-
ur að norðan
— sannar skröksögur
eftir Guðmund Frímann
ÚT ER komin hjá bókaútgáfunni
Skjaldborg á Akureyri bókin Tvær
fyllibyttur að norðan, sannar skrök-
sögur eftir Guðmund Frímann. Guð-
mundur hefur gefið út mikið af bók-
um, mest Ijóðabækur, en fyrsta bók
hans, Náttsólir, æskuljóð, kom út
1922.
I niðurlagsorðum bókarinnar,
sem er smásagnasafn, segir svo:
„Eftilvill hefur mig verið að
dreyma.
En það hefur smámsaman
lækkað í flöskunni, sem eg geymi
undir grastoddanum, — þessari
fundnu flösku, nú eða stolnu
flösku. Vegna hennar verða þó
engin eftirmál. Hún hefur bjargað
þessum degi. Henni get eg þakkað
þennan sólnadans innan augna-
lokanna, þessa sýn inní fortíðina,
hún hefur leitt mig um villuvegu
ölvímunnar. Og eg bíð, endaþótt
eg hafi einskis að bíða framar. Og
eg drekk og drekk þangað til eg
hef lokið úr flöskunni góðu.
En unga konan i Almannadaln-
um kemur aldrei framar neðan
malarstíginn, og lófi minn fyllist
aldrei framar af mjúku brjósti
hennar, hversu lengi sem eg bíð,
hversu mikið sem eg drekk.“
NÝLEGA er komið út hjá Hörpuút-
gáfunni á Akranesi 6. bindið í safn-
ritinu Borgfirzk blanda. Eins og i
fyrri bókunum er efnið blanda af
þjóðlífsþáttum, persónuþáttum og
gamanmálum. Meðal þess má nefna
þættina:
Þegar „Jónarnir" versluðu í
Borgarnesi, Sjómannskona á
Akranesi, Þar munaði mjóu,
Hrakningar á Kaldasal, Eitt ár í
Borgarfirði, Sendur í sveit,
Rjómabúið við Geirsá, Flóðið
mikla í Hvítá 1918, Upphaf sund-
kennslu í Borgarfirði, Minningar-
þættir frá Melum og Innra-Hólmi,
Konan sem starfrækti fyrsta
„sjúkrahúsið" á Akranesi, Frá-
sagnir af Vigfúsi sterka á Grund,
Reimleikar í Reykholti, Ekki verð-
ur feigum forðað, Skyggnst í
gamlar skræður.
Bragi Þórðarson, bókaútgefandi
á Akranesi, hefur safnað efninu í
þessa bók, eins og hinar fyrri. Auk
hans eiga eftirtaldir höfundar efni
í bókinni: Sólmundur Sigurðsson,
Herdís Ólafsdóttir, Óskar Þórð-
arson, Jón Pálsson, Valbjörg
Kristmundsdóttir, Matthías Hall-
mannsson, Einar Kristleifsson,
Valgarður L. Jónsson, Sigurður
Guðmundsson, Þorgils Guð-
mundsson, Ólafur Pálsson, Þor-
steinn Guðmundsson, Jón Magn-
ússon, Ingibjörg Björnsson, Þor-
steinn Jónsson, Jóhann Jónatans-
son, Þórður Hjálmsson, Oddur
Sveinsson, Sigurður B. Guð-
brandsson, Guðbrandur Magnús-
son, Kristján Jónsson, og Björn
Jakobsson.
Borgfirzk blanda 6 er 252 bls.- í
stóru broti. Fjöldi mynda er í bók-
inni. Hún er prentuð og bundin í
Prentverki Akraness hf.
Borgfirzk
blanda
Basar Kvenfélags
Hallgrímskirkju
A morgun, laugardaginn 20. nóv-
ember heldur Kvenfélag Hallgríms-
kirkju sinn árlega basar í safnaðar-
heimili kirkjunnar. Verður þar að
vanda margt til muna á góðu verði,
þar á meðal margskonar jólagjafa-
vörur og mikil og vönduð handa-
vinna, sem félagskonurnar hafa sjálf-
ar unnið.
Starf Kvenfélags Hallgríms-
kirkju er borið upp af smáum en
samhentum hópi kvenna, sem með
starfi sínu vill hlúa að Hallgríms-
kirkju, styrkja byggingu hennar og
stuðla að prýði kirkju og safnað-
arheimilis. Allt er starf þeirra unn-
ið af einskærri fórnfýsi og ótrúleg-
um dugnaði, og á langri og löngum
strangri leið Hallgrímssafnaðar
hefur munað verulega um þeirra
hlut. Er óhætt að segja, að allir
vinir og velunnarar Hallgríms-
kirkju standa í þakkarskuld við
Kvenfélag Hallgrímskirkju.
Basarinn hefst að þessu sinni kl.
14.00 og vil ég hvetja alla til að
koma nú og gera góð kaup og
styrkja jafnframt starf og málefni
Hallgrímskirkju.
Karl Sigurbjörnsson.
resió af
meginþorra
þjóóarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er22480
Úrvalið er frá
Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbaróasölum um land allt Bridgestone
diagonal (ekki radial) vetrarhjólbaröar.
25 ára reynsla Bridgestone á íslandi sannar öryggi og endingu.
Gerió samanburó á verói og gæóum.