Morgunblaðið - 19.11.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1982 31
„Hlakka til að mæta hinum
frábæru íslensku áhorfendum
sem gera landsleiki hér erfiða"
— sagði v-þýski landsliðsþjálfarinn Simon Schobel
— Þrétt fyrir aö okkur vantar tjóra lykilmenn í landsliö okkar aó þessu
sinni, þé Manfred Freisler, Grosswallstadt, Erhard Wunderlich,
Gummersbach, sem er markahæstur um þessar mundir í1. deildinni
meó étta til 10 mörk í leik, Heiner Brand, höfuð liösins í vörn og sókn,
og Arno Ehret, þé lít ég björtum augum é landsleikina sem eru fram-
undan gegn íslandi, sagöi vestur-þýski landsliösþjélfarinn ( hand-
knattleik, Simon Schobel, ( spjalli vió Mbl. í gasrkvöldi. — Ég lít é
þessa leiki sem lokaprófraun fyrir þé leikmenn sem eru óvissir um
stööu s(na í liöinu og þv( er gott aö þeir féi aó spreyta sig ( þessum
leikjum og sanna getu aína.
— Ég þekki mjög vel til íslensks
handknattleiks. Ég lék hér á landi
árið 1971 með rúmenska landsliö-
inu og hef fylgst vel með íslenskum
handknattleik síöan. Ég hlakka til
aö mæta góöu íslensku landsliöi
sem ég áttr kost á aö sjá (
Júgóslavíu á síöasta sumri sem þá
lék mjög vel. Ekki síöur hlakka ég
til að mæta hinum frábæru ís-
lensku áhorfendum sem gera alla
landsleiki hér á landi mjög erfiöa.
Einn helsti kostur viö íslenskan
handknattleik aö mínum dómi og
þá á ég viö landsliöiö ykkar, er
hversu leikmenn eru sóknarglaöir
og sterkir í gegnumbrotum, maöur
á móti manni.
— Þaö er eitt sem undirstrikar
aö íslenskur handknattleikur er
góöur og þaö er aö þiö eigiö og
hafið átt mjög góöa leikmenn (
V-Þýskalandi (gegn um síöustu ár
og jafnframt eigiö þiö nú þjálfara
sem miölar mjög vel af þekkingu
sinni þar í landi og nær góöum
árangri.
— Hverjir eru raunhæfir
möguleikar (slenska landsliösins
( B-keppninni ( Hollandi (febrúar
é næsta éri aó þínum dómi?
— í riöli Islendinga eru þrjú
sterk liö. Spánn, ísland og Sviss.
Belgía er slakast og á ekki aö eiga
neina möguleika. Ef ég á aö meta
frá leikjunum sem ég sá í sumar (
Júgóslavíu, þá tel ég íslenska liöiö
heldur sterkara en þaö svissneska
og þeir eiga varla eftir aö bæta
mikiö viö sig fram aö B-keppninni.
En Spánverjar eru sterkari en
Svisslendingar. Þaö sem kemur tll
meö aö ráöa úrslitum í leik Islend-
inga og Spánverja í B-keppninni er
hvort liöiö hittir á betrl leik daginn
sem liöin mætast. Þaö veröur allt
aö ganga liöinu í haginn sem sigrar
í þeim leik.
Ég veit ekki annaö en aö undir-
búningur íslenska liöslns veröi
mjög góöur. Liöið lelkur fjöldan all-
an af landsleikjum og æfir mikiö
saman. Þaö ætti tvímælalaust aö
auka möguleika ykkar á góöri
frammistööu í Hollandi, sagöi
þessi geöþekki 32 ára gamli iands-
liösþjálfari V-Þjóöverja. _ þR
• Schobel fyrir miöju. Hoinor Brand til vinstri og Amo Ehrat til hægri.
Hvorugur þessara frébæru leikmanna kom meö v-þýska landslióínu til
íslands í gær. Og munar um minna. Þeir uröu béöir heimsmeistarar
með þýska landslióinu érið 1978 í Danmörku, og þykja (dag vera bestu
leikmenn landsiiösins.
• Simon Schobel, landsliösþjélf-
ari V-Þjóðverja í handknattleik,
lék hér é landi fyrst 1971 meö
Rúmenum.
Þrír þekktustu
leikmenn þýska
liðsins komu
ekki meö í gær
Þrjé af þekktuatu handknatt-
leiksmönnum vantaöi ( vestur-
þýska landsliöió ( handknattieik
sem kom hingaö til lands ( gær
og leikur viö ísland ( kvöld og é
sunnudaginn. Eru þaó Manfred
Freisler fé Grosswaldstadt, og
Erhard Wunderlich, Heiner Brand
og Markus Hutt, allir fré Gumm-
ersbach.
Þessir leikmenn áttu allir aö
koma meö liöinu og haföi Mbl.
sagt frá því en á siöustu stundu var
ákveðiö aö þeir yröu ekki meö í
förinni vegna smávægilegra
meiösla sem þeir hlutu í leikjum í
Bundesligunni (fyrrakvöld.
i staö 16 manna hóps eins og
venja er komu Þjóverjarnir aöeins
með 14 leikmenn hingaö til lands
og þar af eru þrír markmenn.
Stjörnu- gjofin:
KR:
Jón Sigurósson ★ ★* Stefén Jóhannsson *★
Fram:
Viöar Þorkelsson *★* Símon Ólafsson **
Jóhannes Magnússon ★*
KR:
Jón Sigurósson ** Ágúst Líndal *
Péll Kolbeinsson *
Valur:
Torfi Magnússon *** Jón Steingrímsson ★* Kristjén Ágústsson *
KR: Jón Sigurösson ★ ★★
Stefén Jóhannsson ★
Péll Kolbeinsson ★
UMFN: Vaiur Ingimundarson ★ ★★
Gunnar Þorvaröarson ★ ★
Kðrfuknattielkur
V.......—......... ✓
• Brad Miley leikur sinn fyrsta leik meö ÍBK ( kvöld. Hvor skildi né
fleiri fréköstum, hann eöa Pétur?
Pétur leikur gegn
Keflavík í kvöld
EINN leikur fer fram ( Úrvals-
deildinni ( körfuknattleik ( kvöld
og er hann mjög athyglisveröur.
Keflvíkingar fé ÍR ( heimsókn og
leikur Pétur Guömundsson sinn
fyrsta leik meö ÍR-ingum. Þeir eru
enn én stiga ( deildínni en gætu
reynst skeinuhættir eftir aö hafa
fengiö Pétur til liós viö sig.
Keflvíkingar sem unnu fjóra
fyrstu leiki s(na i mótinu, en hafa
nú tapaó tveimur ( röö eftir aö
Tim Higgins yfirgaf þé, hafa feng-
iö annan Kana til liös vió sig.
Er þaö Brad Miley sem lék meö
Val fyrir tveimur árum. Er hann
mjög sterkur leikmaöur, ekki síst í
vörninni, og veröur örugglega
gaman aö fylgjast meö viöureign
þeirra Péturs. Þeir léku einmitt
saman meö Val og þekkja þvi vel
til hvors annars. Miley kom til
Keflavíkur í gær og æföi meö liöinu
i gærkvöldi. Leikurinn í kvöld hefst
kl. 20.00.
Á sunnudaginn kl. 19.00 er svo
einn leikur í Úrvalsdeildlnni i Haga-
skólanum og mætast þá Valur og
Njarövík. Valsarar eru mjög sterkir
um þessar mundir og Njarövík-
ingar hafa einnig staöið sig vel.
Þeir hafa nú fengiö nýjan Banda-
ríkjamann í staö þess sem þeir los-
uöu sig viö á dögunum en ekki er
vitaö um styrkleika þess nýja. Viö-
ureignin ætti þó aö geta oröiö
spennandi.
Vélin verður
aftengd hjá Kim
Hnefaleikarinn Kim Duk Koo,
sem við sögöum fré ( fyrradag,
hefur veriö úrskuröaóur löglega
létinn. Heili hans hefur ekkert
starfaó siöan „Boom Boom“
Mancini rotaöi hann ( hringnum
um helgina, en hjartaö og fleiri
líffæri starfa eólilega. Móöir
Suður-Kóreubúans sagöi ( sam-
tali vió AP aó hún hefói ékveðió
aö vélin sem heldur ( honum l(f-
inu yröí aftengd og hin starfhæfu
líffæri yröu tekin úr honum svo
einhver sem þyrfti é þeim aö
halda gæti lifað. Þaö hefur komiö
fram hjé læknum aö Kim varói
allur aöeins örféum minútum eftir
aö vélin veröi tekin úr sambandi.
Kim komst aldrei til meövitundar
eftir viöureignina viö Mancinl á
laugardaginn, og fyrst ( stað vildi
móöir hans ekki sætta sig viö það
aö hann væri látinn, en hann var
strax úrskuröaöur „heiladauöur".
Ray Mancini, sá er rotaöi Kim í
hringnum, hefur tekiö þetta mál
mjög nærri sér og er hann alvar-
lega aö hugsa um aö keppa ekki
framar í hnefaleikum. „Mér finnst
þetta hiö hræöilegasta mál. Ég
verö aö hugsa mig alvarlega um
hvaö ég geri. Það gætl auðveld-
lega fariö svo aö þaö yröl ég sem
lenti svona í þessu næst,“ sagöi
„Boom Boom" Manclni á blaöa-
mannafundi á heimili sfnu í
Youngstown, Ohio, fyrr í vikunni.
„Undanfarna daga hef ég hugs-
aö mikiö um þaö sem geröist,"
sagöi hinn 24 ára Mancini. „Ég tek
þetta mjög nærri mér, og mér þyk-
ir leitt aö hafa veriö valdur aö
þessu. Þetta mun fylgja mér alla
ævi.“
Móöir Kim sá hann síöast (júní.
Þá lofaöi hann henni aö snúa til
baka sem heimsmeistari i léttvigt.
„Ég skal sýna þér meistarabeltiö,“
sagöi hann. Stjúpbróöir Kim, Kim
Kun-Young, sagöi viö hann áöur
en hann hélt til Bandaríkjanna: „Ég
bíö eftir nýjum meistara."
Swansea
úr leik
Swansea City gerir þaó
vægast sagt ekki gott um
þessar mundir og ( fyrra-
kvöld tapaöi lióió é heima-
velli fyrir 3. deildarliói
Brentford i Mjólkurbikarn-
um. Sigraöi 3. deildarliöiö
meö tveimur mörkum gegn
einu. Swansea er þar meö úr
leik (keppninni en Brentford
é aö leika gegn Nottingham
Forest.