Morgunblaðið - 02.12.1982, Page 5

Morgunblaðið - 02.12.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982 5 Dauðamenn Söguleg skáldsaga eftir Njörð P. Njarðvík Út er komin hjá IÐUNNI sögu- leg skáldsaga eftir Njörð P. Njarð- vík. Sagan nefnist Dauðamenn. Saga þessi er byggð á atburð- um sem urðu í Skutulsfirði 1656, er tveir feðgar voru brenndir á báli. Var þeim gefið að sök að hafa ofsótt sóknarprest sinn með göldrum og valdið honum sárum þjáningum, andlegum og Hkam- legum. Um þessa atburði ritaði presturinn, séra Jón Magnússon, Píslarsögu sína, frægt rit, þar sem hann leitaðist við að rétt- læta gerðir sínar. Sú bók er varn- arrit og birtir einungis sjónar- mið prestsins. I þessari skáld- sögu hefur Njörður P. Njarðvík endurskapað sögu feðganna, sem brenndir voru, í dramatískri og spennandi frásögn," segir í kynn- ingu forlagsins á kápubaki. Dauðamenn er ellefta frum- samda bók Njarðar P. Njarðvík, en auk þess hefur hann þýtt all- margar bækur. Eina skáldsögu Njörður P. Njarðvík hefur hann áður sent frá sér, Niðjamálaráðuneytið, 1967. Skáldsagan Dauðamenn er í tutt- ugu og sex köflum, 150 blaðsíður að stærð. Innan á bókarspjöldum er kort af söguslóðum. Prent- tækni prentaði bókina. Töfraflautan: Nýr hljómsveitarstjóri SÚ breyting verður á sýningum fs- lensku óperunnar á Töfraflautunni eftir Mozart, að frá og með föstu- deginum 3. desember mun Gilbert Levine taka við stjórninni af Mark Tardue. Gilbert Levine stjórnaði fyrstu þremur sýningum Töfraflaut- unnar nú fyrr í haust. Gilbert Levine mun stjórna fram til jóla, en sýningar fram til jóla verða sem hér segir: 3. 4. 5. og 11. og 12. desember. Bókakynning í kvöld Á bókakynningu í Nýja kökuhús- inu í kvöld kl. 20.30 verður lcsið úr nýútkominni bók Kristjáns P. Magnússonar, „Við í vesturbæn- um“. Þetta er fyrsta bók höfundar og segir í henni frá uppvexti stráka í vesturbænum í Reykja- vík. Úr bókinni lesa: Leó E. Löve, Vilmundur Gylfason og Páll Arnór Pálsson. Inngangur í Nýja kökuhúsið er frá Austurvelli, en einnig er Bókaverslun Isafoldar opin að Austurstræti. Útgefandi bókarinnar er ísa- foldarprentsm iðj a. System 11H [aIETAL HUOM6ÆR HUOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999-17244 FISCHER hafa sklöi vió hæfi hvers og eins. Göngusklði og svig- sklði handa byrjendum og kunn- áttufðlki, börnum unglingum og fullorðnum. A ▲ ▲ TYROLIA TOTAL DIOGONAL sklðablndingar eru einkaleyfis- vernduð nýjung sem veitir sklðafólki meira öryggi en áður hefur þekkst. DACHSTEIN sklðaskórnir austur- rlsku eru þekktir um vlða veröld fyrir öryggi, þægindi, smekklega hönnun og frábæra einangrun gegn kulda REINALTER og AIR BALANCE er sklðafatn- aður sem stenst ströngustu kröfur um útlit og gæöi Einkaumboö á fslandi FALKINN SUÐURLANDSBRAUT8 AORIR ÚTSÖLUSTAOIR: Pipulagnlngar- þjónustan Akranesi Versl. Bjarg (Fatnaöur) Akranesi Kaupfelag Borgflrdlnga Borgarnesi Kaupfélag Borgfiróinga Ólafsvlk Versl. Húslö Stykkishólmi Sporthlaóan Isafirói Verslun Elnars Guöflnssonar hf Bolungarvlk Kaupfélag Húnvetnlnga Blönduósi Kaupfélag Skagflrólnga Sauðárkróki Kaupfélag Eyflrólnga Ólafsfirói Verslunln Ýllr Dalvlk Jón Halldórsson Dalvlk Vióar Garóarsson Akureyri Kaupfélag Eyflrðinga Akureyri Bókaverslun Þórarins Stefanssonar Húsavfk Steingrimur Sæmundsson Vopnafirói Verslunln Skógar Egilsstöðum Ingþór Sveinsson Neskaupsstað Verslunin Mosfell Hellu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.