Morgunblaðið - 02.12.1982, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
22
Njósnamál rædd
á Kanadaþingi
Ottawa, I. desmeber. Al*.
TIL NOKKURRA orðaskipta kom í
dag á kanadíska þingingu um rétt-
arhöldin yfír kanadíska prófcssorn-
um Hambleton, sem standa yfir
þessa dagana í Bretlandi, en hann
hefur verið sakaður um njósnir fyrir
Sovétmenn. Vildu þingmenn fá við
því skýr svör hvers vegna maðurinn
hefði ekki verið dreginn fyrir rétt í
i sínu eigin landi.
I
„Hefur Kanadastjórn lagt það
af að lögsækja njósnara?" spurði
einn þingmanna Ihaldsflokksins
og fékk þau svör hjá ríkissaksókn-
aranum, að dómsmálaráðuneytið
hefði ekki talið sig hafa jafn mikl-
ar sannanir gegn Hambleton og
krafist væri í lagagreinum, sem að
njósnum lytu. Hann bætti því við,
að þessi lög væru ónýt og þyrftu
allsherjarendurskoðunar við.
Kanadíska riddaralögreglan yf-
irheyrði Hambleton árið 1979 eftir
að ýmis grunsamleg gögn höfðu
fundist í fórum hans, eins og t.d.
móttökutæki og kort. Hann viður-
kenndi þá að hafa veitt upplýs-
ingar fólki, sem hann sagði, að
hefði hugsanlega verið sovéskir
njósnarar, en hins vegar hefðu
upplýsingarnar ekki verið neitt
leyndarmál.
Hambleton, sem er sérfræðing-
ur í efnahagsmálum Spánar og
Suður-Ameríku, var handtekinn í
júni sl., þegar hann kom til Bret-
BRIDG ESTON E
1200 R20 Radial snjódekk
Eigum til á lager 1200 R20 snjódekk.
Mjög góðir greiðsluskilmálar.
BlLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99.
Mexikó:
De la Madrid tekur
við forsetaembætti
Hugh George Hambelton
lands til fræðirannsókna. Hann
hefur einnig breskan ríkis-
borgararétt. Hambleton heldur
enn fram sakleysi sínu, en þó er
hann sagður hafa játað að hafa
látið Sovétmenn fá 80 leynileg
skjöl um málefni NATO á árunum
1956—61, þegar hann vann sem
hagfræðingur fyrir Atlantshafs-
bandalagið.
Mexikóborg, 1. desember. Al*.
MIGUEL de la Madrid sór í dag emb-
ættiseið sinn sem forseti Mexikó og
skýröi um leið frá nokkrum atriAum í
áætlunum sínum um endureisn efna-
hagslífsins. Hann eggjaði þjóA sína lög-
eggjan vegna þeirra erfíðleika, sem
framundan væru, hvatti til „siðferði-
legrar endurnýjunar" og hét því að
binda á spillinguna í ríkiskerfínu.
De la Madrid tók við embætti af
Jose Lopez Portillo og við athöfnina
hét hann því að vinna að „velsæld og
velferð þjóðarinnar. Ef ég bregst
henni hefur hún ekki við annan að
sakast." Seinna í dag mun de la
Madrid flytja sjónvarpsávarp til
þjóðarinnar og greina frá neyðar-
ráðstöfunum stjórnarinnar í efna-
hagsmálum, en þær hafa farið mjög
leynt til þessa. Víst er talið, að hann
muni ekki hvað síst segja spilling-
unni stríð á hendur. Margir halda
því fram, að spillingin í Mexikó, í
öllum þrepum þjóðfélagsins og einna
helst meðal embættismanna, sé svo
gífurleg, að hún ein beri megin-
ábyrgðina á því hvernig komið sé
fyrir þjóðinni.
Skuldir Mexikana nema nú 81
milljarði dollara og er Portillo fyrr-
um forseta kennt um og þeim gífur-
legu framkvæmdum, sem hann réðst
í af lítilli fyrirhyggju. Stórminnkað-
ar tekjur af olíunni bættu heldur
ekki ástandið og er nú talið, að um
40% vinnufærra manna séu atvinnu-
lausir. Verðbólgan í landinu er talin
komast yfir 100% fyrir árslok.
Veður
víða um heim
Akureyri 0 snjóól
Amslerdam 3 bjart
Aþena 18 skýjað
Barcelona 12 þokumóða
Berlin 5 skýjað
BrUssel 7 skýjað
Chicago 14 rigning
Dublin 10 heiðskírt
Feneyjar 11 skýjað
Franklurl 5 vantar
Færeyjar 8 skýjað
Genl 7 skýjað
Helsinki 0 skýjað
Hong Kong 21 heiðskfrt
Jerúsalem 14 heiðskírt
Jðhannesarborg 21 heiðskírt
Kaupmannahöln 4 þoka
Las Palmas 20 skýjað
Lissabon 17 heiðskfrt
London 7 skýjað
Los Angeles 17 heiöskírt
Madnd 9 skýjað
Malaga 14 heiðskírt
Mallorca 15 skýjað
Mexíkóborg 22 heiðskírt
Miami 27 heiðskfrt
Moskva 3 heiðskirt
Nýja Delhí 28 heiöskfrt
New York 14 skýjað
Ósló -2 skýjað
París 6 skýjað
Peking 12 heiðskírt
Perth 27 heiðskirt
Reykjavik -1 snjókoma
Rio de Janeiro 35 bjart
Róm 14 rigning
San Francisco 13 skýjað
Slokkhólmur 1 heiðskírt
Sydney 31 heiðskfrt
Tel Aviv 19 heiðskfrt
Tókýó 18 heiðskfrt
Vancouver 10 rigning
Vín 9 skýjað
Undarleg uppákoma
hjá Familie Journal
Kaupmannahofn, 1. deaembur. Al*.
DANSKA vikuritið Familie Journal er nú í klípu sem segir sex. Fyrir
nokkru efndi það til mikils happdrættis þar sem verðlaunin voru aðeins
ein, en lika vel úti látin, tæplega 1,2 milljónir ísl. kr. í reiðufé, skattfrítt
eða ef sá lukkulegi kaus það heldur, einbýlishús að andvirði nær 1,6
millj. ísl. kr. Vandinn er hins vegar sá, að tvær manneskjur hafa
framvísað vinningsseðlinum.
Forráðamönnum Familie
Journal var náttúrulega mikill
vandi á höndum, en eftir að hafa
grandskoðað seðlana ákváðu
þeir að vísa málinu til lögregl-
unnar og hafa sakað annan
„vinningshafann" um svik.
Dráttur í happdrættinu hjá
Familie Journal fór fram þriðju-
daginn 23. nóvember sl. og degi
síðar gaf sig fram með réttan
seðil rúmlega sjötug kona að
nafni Anna Christiansen. Hún
kaus heldur reiðuféð og fékk
ávísunina á mánudegi eftir.
Þann sama dag kom maður með
seðil með réttu númeri og krafð-
ist vinningsins. Heitir hann Ole
Berg, 21 árs gamall og fatlaður
eftir umferðarslys, sem hann
varð fyrir átta ára að aldri en þá
missti hann báða foreldra sína.
Forráðamenn Familie Journal
segja að það sé útilokað að ein-
hver mistök hafi átt sér stað í
prentsmiðjunni, sem prentaði
seðlana, og halda því fram, að
síðasta tölustafnum á seðli Ole
hafi verið breytt. Þess vegna
hafi þeir afhent málið lögregl-
unni. Ole Berg sver hins vegar af
sér allar sakir og segist hafa
ráðið sér lögfræðing enda eigi
hann of fjár í vændum.