Morgunblaðið - 02.12.1982, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DBSEMBER 1982
Ahugalitlir Víkingar sigruðu
VÍKINGAR sigruðu lið ÍR með 28
mörkum gegn 23 í 1. deildinni í
handknattleik í Laugardalshöll-
inni í gærkvöldi. Leikur liðanna
var mjög daufur og langt frá því
að vera vel leikinn. Sér í lagi kom
það á óvart hversu áhugalitlir
Víkingar voru þegar þaö er haft í
huga að liðið á tvo erfiða Evrópu-
leiki framundan og veitti ekki af
því að reyna að stilla saman
strengi sína áður en í þá leiki er
komiö. Lið Víkings vantaði í
Fairclough er
farinn að
skora aftur
NOKKRIR leikir fóru fram í enska
mjólkurbikarnum á þriðjudaginn.
Úrslit uröu þessi:
Arsenal — Huddersfield 1—0
Burnley — Birmingh. 3—2
Liverpool — Norwich 2—0
Steff. Wedn. — Barnsley 1—0
Mark Lawrenson skoraöi fyrir
Liverpool gegn Norwich í fyrri hálf-
leik og varamaðurinn David Fair-
clough skoraöi síðan eftir hlé.
Andy McCulloch skoraöi fyrir
Sheffield Wednesday, Alan Sund-
erland fyrir Arsenal (víti) og fyrir
Burnley skoruöu Paul McGee,
Steve Taylor og Colin Brazier
(sjálfsmark). Fyrir Birmingham
skoruöu Tony Evans og Kevin
Handysides.
gærkvöldi þá Sigurö Gunnarsson
og Pál Björgvinsson.
Staöan í hálfleik í gær var 14—9
fyrir Víkinga. Eins og sjá má á
markatöflunni var vörn og mark-
varsla liðanna ekki uppá marga
fiska.
Leikurinn var nokkuö sveiflu-
kenndur í síðari hálfleiknum. Vík-
ingar komust til dæmis í 20—11,
en ÍR minnkaði muninn niöur í
20—15. Þá var staöan um tíma
25—17, en ÍR minnkaöi muninn í
25—20.
í liöi Víkinga voru þeir Steinar,
Árni og Ólafur bestir. En hjá ÍR
voru þeir Guöjón, Einar og Björn
skástir.
i stuttu máli: íslandsmótiö 1.
deild. ÍR—Víkingur 23—28
(9-14).
Knattspyrnusamband Evrópu
ákvaö í gær hvar úrslitaleikir Evr-
ópumótanna í knattspyrnu færu
fram I vor. Úrslitaleikur keppni
meistaraliða verður á Ólympíu-
leíkvanginum í Aþenu 25. ma( og
úrslitaleikur í keppni bikarhafa á
Mörk ÍR: Björn 6, Guöjón 5, 1 v.,
Einar 3, Atli 4, Ólafur, Tryggvi og
Gunnar 1 mark hver.
Mörk Víkings: Steinar 7, 1 v.,
Ólafur 6, Árni 5, Guðmundur 5,
Þorbergur 3, Viggó 1 og Höröur 1.
Brottrekstur af leikvelli: Árni
Indriðason í 2 mín. og Andrés
Gunnlaugsson ÍR í 2 mín.
Misheppnuð víti: Guöjón Mar-
teinsson ÍR skaut í stöng á 52. mín.
og Ellert varöi hjá honum víti á 55.
mín. Þorbergur skaut í stöng á 20.
mínútu og lét verja hjá sér á 21.
mínútu.
— ÞR
HanflKnaitielKur [
Ullevi-leikvanginum í Stokkhólmi
11. maí. Úrslitaleikir í UEFA-
keppninni verða aö sjálfsögöu
eins og áður á völlum liðanna
sem komast í úrslit — leikið er
heima og að heiman.
Evrópukeppni meistaraliða:
Úrslitaleikurinn
verður í Aþenu
maszaa eigendur
SPARID
BENSIN
LÁTID STILLA OG YFIR-
FARA BÍLINN
FYRIR VETURINN
1. Vélarþvottur.
2. Ath. bensín, vatns- og olíuleka.
3. Ath. hleðslu, rafgeymi
og geymissambönd.
4. Stilla ventla.
5. Mæla loft í hjólbörðum.
6. Stilla rúðusprautur.
7. Frostþol mælt.
8. Ath. þurrkublöð og vökva
á rúðusprautu.
9. Ath. loft og bensínsíur.
Skipta um kerti og platínur.
Tímastilla kveikju.
Stilla blöndung.
Ath. viftureim.
Ath. slag í kúplingu og bremsupedala.
Smyrja hurðalamir.
Setja silikon á þéttikanta.
Ljósastilling.
Vélarstilling með nákvæmum
stillitækjum.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
Verð með söluskatti kr. 994,00. innifalið í verði: Platínur, kerti, ventlaloks-
pakkning og frostvari á rúöusprautu.
Þér fáiö vandaða og örugga þjónustu
hjá sérþjálfuðum fagmönnum
MAZDA verkstæðisins.
Pantiö tíma í símum: 81225 og
81299.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23.
• Guðmundur í Mði Víkinge reynir gegnum
brot úr horninu.
Friðrik Guðmundsson:
Lokað á blaðamenn
VEGNA skrifa í Morgunblaðinu
og DV þann 25. nóvember þar
sem blaðamenn skilja ekki
hvers vegna þeim var meinaður
aðgangur að búningsklefa ís-
lenska liðsins aö loknum leik
viö Frakkland, þá óska ég eftir
aö koma á framfæri eftirfarandi:
Að ieik loknum vill þjálfari fá
frið til þess aö tala við lið sitt og
einnig teljum við æskilegt að
leikmenn fái aö fara í bað og
slaka á í friöi í nokkrar mínútur.
Eftir þaö er blaðamönnum
frjálst að ræða við þá.
Þá skal minnt á blaöamanna-
fund sem haldinn var á skrifstofu
HSÍ nú í haust og þessi mál
rædd.
Bauðst stjórn HSÍ þá til aö
halda blaöamannafund eftir
hvern landsleik þar sem þjálfarar
beggja liöa, svo og tveir ísJenskir
leikmenn myndu mæta.
Þessu höfnuöu blaðamenn á
þeirri forsendu, aö öll blööin
gætu þá verið með sömu svörin
og viötöl viö sömu menn. Sam-
þykktu blaöamenn þá aö bíöa
meö viötöl viö leikmenn þar til
þeir heföu fariö í baö.
Aö lokum vil ég minna á orö
Sigmundar O. Steinarssonar
(SOS), blaöamanns DV viö þess-
ar umræöur, þar sem hann sagöi
aö ísland væri sennilega eini
staðurinn í heiminum þar sem
blaðamenn gætu fariö inn í bún-
ingsklefa strax að leik loknum og
sagöist hann vera hissa á aö
þetta skuli ekki hafa verið stööv-
að fyrr.
25. nóvember 1982.
Friðrik Guðmundsson
Athugasemd við
skrif Friðriks
Vegna skrifa Friðriks Guö-
mundssonar hér að ofan, vill und-
irritaður gera eftirfarandi athuga-
semdir:
í fyrsta lagi er það ekki rétt með
fariö, aö blaöamenn hafi samþykkt
aö bíöa meö aö fara inn í bún-
ingsklefa leikmanna þar til þeir hafi
farið í baö. Þetta mun hafa verið
rætt á fundi hjá HSÍ meö blaöa-
mönnum sem undirritaöur sat
reyndar ekki, en allir þeir blaöa-
menn sem fundinn sátu, segja, aö
Friðrik fari meö rangt mál.
Þá er rétt aö þaö komi fram, aö
undirritaður blaöamaöur var búinn
aö bíöa í rúmar 12 mínútur eftir aö
ieik lauk frammi á gangi eftir
aö leikmenn fóru inn í búningsklef-
ana með þjálfara sínum, enda er
þaö meira en sjálfsagt aö hinkra
viö meöan þjálfari ræöir viö leik-
menn strax eftir landsleiki.
En blaðamenn morgunblaöanna
þola varla mikiö lengri biö, þar
sem þeir vinna undir mjög mikilli
tímapressu á kvöldin. Fréttum þarf
aö skila af sér fyrir vissan tíma og
þar sem leikir eru oft ekki búnir
fyrr en undir klukkan 21.30, setur
þaö blaðamenn í vanda að bíöa of
lengi í Höllinni.
Það er rétt aö taka fram og þaö
veit Friörik sjálfur, aö leikmenn
flýta sér mjög misjafnlega í baö
eftir leiki. Sumir kjósa aö slaka aö-
eins á, en aftur aðrir koma sér
strax í baöiö. Sú var einmitt raunin
þegar blaöamaöur Morgunblaös-
ins kom inn i búningsklefann eftir
landsleikinn gegn Frökkum. Sumir
voru á leiöinni úr baöi, aörir aö
fara í baö og sumir enn í keppnis-
búningum sínum, samanber fyrir-
liöa landsliösins, Þorberg
Aöalsteinsson, sem undirritaöur
var farinn aö,ræöa viö, þegar Friö-
rik vatt sér aö honum, tók meö
þjósti undir handlegg hans og vís-
aöi á dyr.
Það var meira en sjálfsagt aö
víkja út úr búningsklefanum, Friö-
rik. En þér aö segja kosta manna-
siðir ekki neitt. Þú gast einfaldlega
beðiö mig kurteislega aö fara út úr
kiefanum í staö þess aö rífa í
handlegg minn og hálfdraga mig
fram á gang.
I þau ár sem undirritaöur hefur
starfað sem íþróttafréttamaöur,
hefur hann staðiö í þeirri trú, aö
góö samvinna hinna ýmsu sérsam-
banda innan íþróttahreyfingarinn-
ar og blaðanna sé báöum aðilum
ávinningur og til góös.
í bréfi sínu vitnar Friörik í orö
Sigmundar Steinarssonar, blaöa-
manns á DV. Sigmundur hefur
þegar svarað bréfi Friöriks í blaöi
sínu og segir þar meðal annars:
„Friörik segir ósatt. Þegar hann í
bréfi sínu segir aö ég hafi sagt: —
„Verið hissa á því aö þetta skuli
ekki hafa verið stöðvaö fyrr.“
Aö lokum þetta: Ef stjórn HSÍ
óskar ekki eftir blaöamönnum í
búningsklefa aö leik loknum, er þá
ekki rétt aö tilkynna blaöamönnum
þaö, svo aö þeir eigi þaö ekki á
hættu aö veröa kastaö út úr klef-
unum ef þeir skyldu nú gerast svo
djarfir aö reyna aö ná viötölum viö
leikmenn eftir landsleiki?
Þórarinn Ragnarsson