Morgunblaðið - 18.12.1982, Qupperneq 6
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
MERCEDES
BENZ
Gerð: Mercedes Benz 190,
190E.
Framleiðandi:
Mercedes Benz.
Framleiðsluland: Vestur-
Þýskaland.
Innflytjandi: Ræsir hf.
Verð: 400.000-435.000.
Þyngd: 1.080-1.100 kg.
Lengd: 4.420 mm.
Breidd: 1.678 mm.
Hæð: 1.383 mm.
Hjólhaf: 2.665 mm.
Vél: 4 strokka, 1.997 m3,90 og
122 hestafla.
Skipting: 4ra gíra beinskipt-
ur (val 5 gíra og sjálfskipt-
ing).
Beygjuradíus: 10,6 metrar.
Bremsur: Vökvabremsur,
diska.
Fjöðrun: Sjálfstæð fjöðrun á
hverju hjóli.
Hjólbarðar: 175/ 70 R 14 82 S
og H.
Drif: Afturdrifinn.
„Litli Benz-inn“, sem er ekki svo lítill, kominn á markaðinn:
Sighvatur Blöndahl
Ekkert skortir
á hinn klassíska
Benz-íburð
HANN er þá loksinjj kominn á mark-
aft „litli Benz-inn", sem er alls ekki
svo lítill eftir allt saman. Mikil leynd
hefur hvílt yfir áformum Mercedes
Benz um framleiðslu á tiltölulega litl-
um fjölskyldubíl, en menn spáðu þvi
helzt, að þar væri á ferðinni bíll í
svipuðum stsrðarflokki og 3-línan frá
BMW og ætti að fara i beina sam-
keppni við hana. Á dögunum, þegar
bíllinn var fyrst kynntur í Þýzkalandi,
en hann nefnist Mercedes Benz 190,
kom í Ijós, að hann var nokkru stærri
en menn höfðu reiknað með auk þess
sem ekkert skorti á hinn klassíska
Benz-iburð.
ÍJTLIT
Hvað útlit snertir er bíllinn mjög
svipaður stóru Benz-unum úr
S-seríunni. í gríni hafa menn sagt,
„að Benz 190 sé eins og stór Benz,
sem hafi hlaupið í þvotti". Hann er
fjögurra dyra og eru þær frekar
stórar, þannig að haganlegt er að
ganga um þær. Línur bílsins eru
mjög góðar og samsvarar bíllinn
sér mjög vel. Hann er mjög
straumlínulaga og vindstuðullinn
er aðeins 0,33 Cw, sem er mjög gott.
Aðalljós Benz 190 eru stór, sömu-
leiðis stefnuljós, sem eru utan til á
brettunum. Benz 190 er frekar upp-
hár að aftan og er hann með hin
hefðbundnu Benz-ljós, sem eru til-
tölulega stór og sjást vel að.
INNRÉTTING
Innréttingin í Benz 190 er í svip-
uðum dúr og í stærri Benz-unum og
skortir þar hvergi á íburðinn. Sætin
eru klædd vönduðu tauáklæði, auk
þess sem hægt verður að fá bílinn
bæði með plussáklæði og leður-
áklæði. Bíllinn er frekar mikið
bólstraður og armpúðum innan á
Nýi Mercedes Benz 190-bilii*a.
Tíknrænt, klassískt mælaborð.
íburðarmikil innrétting.
Billinn er straumlínulaga, niðurbyggður að framan og upphár að aftan.
Sportlegur að aftan.
Bílar
Mjög
hefur
straumlínulaga og
skemmtilegar línur
Audi 100 sigraði í kjöri
um „bíl ársinsu í Evrópu
Ford Sierra lenti í 2. sæti og Volvo 760 í 3. sæti
þAÐ kom fáum á óvart, þeg-
ar tilkynnt var í vikunni, að
hinn nýi Audi 100 hefði verið
valinn „bíll ársins“ í Evrópu,
en það eru 58 blaðamenn
víðs vegar að úr Evrópu, sem
greiða atkvæði. Á síðasta ári
var Renault 9 fyrir valinu.
I umsögn um „bíl ársins“ segir,
að hans aðalsmerki séu „þægindi,
góðir aksturseiginleikar, tækni-
framfarir, samkeppnishæfni og
hagstætt verð miðað við gæði“.
1 atkvæðagreiðslunni fékk Audi
100 410 atkvæði, en í öðru sæti
koma hinn nýi Ford Sierra með
386 stig og í þriðja sæti nýi
Volvo-inn, Volvo 760 með 156 stig.
Volvo 760 í 3. sæti.