Morgunblaðið - 18.12.1982, Side 8
56
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
Islenzka hljómsveitin og söngsveitin Fílharmonía:
Hátíðarsöngvar í Háskólabíói
Frá efingu söngsveiUrinnar Fílharmoníu og íslenzku hljómsveitarinnar i kirkju Óháða safnaðarins á fimmtudagskvöld.
Uten. GnAjin.
segir stjórnandinn, Gudmundur Emilsson
íslenzka hljómsveitin og Söng-
sveitin Fílharmonía munu halda
tónleika í Háskólabíói kl. 21.15 á
morgun, sunnudag. Á tónleikun-
um, sem bera yfirskriftina hátíð-
arsöngvar, munu hljómsveitin og
söngsveitin flytja kantötu Bachs
Nr. 140, „Wachet auf ruft uns die
Stimme". Einsöngvarar verða þau
Signý Sæmundsdóttir, John
Speight og Sigurður Björnsson.
Þá mun Snorri Örn Snorrason,
lútuleikari, flytja hátíðartónlist
frá endurreisnartímabilinu, þar á
meðal verk eftir Francisco da Mil-
ano en hann var talinn einn bezti
Iútuleikari síns tíma. Lútan er að
uppruna ævaforn, komin frá Aust-
urlöndum um Spán. Hljóðfærið
náði mestri hylli á endurreisnar-
tímanum og er til fjöldi tónverka
fyrir lútu frá þeim tíma. Er
hljóðfæri Snorra nákvæm endur-
smíð eftir lútu frá fyrri hluta 17.
aldar.
Því næst mun íslenzka hljóm-
sveitin flytja verk eftir Askel
Másson, sem höfundur nefndir
„Okto November" samið að til-
hlutan íslenzku hljómsveitarinar,
og er hér um frumflutning að
ræða.
Að lokum mun verða flutt há-
tíðarmótettan „In Ecclesiis" eftir
Stjórnandinn: Guðmundnr Emllamn.
„Stöndum eða föllum
með þessum tónleikum,“
íslenzka hljómsveitin:
Grafíkverk prýðir for-
síðu hverrar efnisskrár
ÍSLENZKA hljómsveitin hefur tekið upp þá nýbrettni að fá fé-
laga úr íslensk grafík til þess að gera forsíðu hverrar efnisskrár.
Eru þessar myndir tileink-
aðar íslenzku hljómsveitinni
og tengjast yfirskrift hverra
tónleika. Þessar grafíkmynd-
ir eru gefnar út í takmörk-
uðu upplagi, en þær er hægt
að kaupa á tónleikum
hljómsveitarinnar. Nú þegar
hafa listamennirnir Ingiberg
Magnússon og Jón Reykdal
gert grafíkmyndir af þessu
tilefni og fyrir tónleika sveit-
arinnar núna á sunnudaginn
hefur Jóhanna Bogadóttir
gert grafíkmynd á forsíðu
efnisskrár.
Seinna í vetur er von á
myndum frá Valgerðí
Bergsdóttur, Ríkharði Valt-
ingojer, Sigrid Valtingojer
og Jenný Guðmundsdóttur.
Grfíkverk Jóhönnu Bogadóttur, sem prýða mun forsíðu efnisskrár tón-
leika íslenzku hljómsveitarinnar um helgina.
Giovanni Gabrieli. Verkið er sam-
ið fyrir átta radda tvöfaldan kór,
málmblásturshljóðfæri og orgel.
Orgelleikari verður Jón Stefáns-
son. — íslenzku hljómsveitinni
þykir við hæfi að ljúka þessum
tónleikum með nokkrum jólalög-
um með þátttöku tónleikagesta.
Stjórnandi Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu og íslenzku hljómsveit-
arinnar er Guðmundur Emilsson.
Blm. og ljósm. Morgunblaðsins
litu in >, á æfingu hjá íslenzku
hljóms eitinni og Söngsveitinni
Fílharmoníu sl. fimmtudagskvöld.
Stóð þá yfir æfing á hinu sérstæða
tónverki „In Ecclesiis" eftir
Gabrieli. Þegar örstutt hlé varð á
notaði ég tækifærið til að spyrja
stjórnandann, Guðmund Emils-
son, hvernig honum fyndist æf-
ingarnar ganga.
„Þetta gengur allt eftir áætlun
— kórinn er að ná saman og við
vonum að þessir hljómleikar
heppnist vel,“ sagði Guðmundur.
„Það er líka áríðandi að okkur
takist vel upp núna. Þetta eru
þriðju tónleikar Islenzku hljóm-
sveitarinnar og verða eins konar
vendipunktur í sögu hennar — við
stöndum eða föllum með þessum
tónleikum, og megum til með að
fylla húsið. Það er búið að leggja
mikið undir, bæði peningalega og
með miklu undirbúningsstarfi. En
ef við komumst frá þessu með full-
ri sæmd, höfum við líka ástæðu tij
þess að vera bjartsýn á framhald-
ið.
Nú eru þetta óvenjulega fjöl-
breyttir tónleikar sem þið verðið
með í Háskólabiói á sunnudaginn.
„Já, það má segja að það sé mik-
il vídd í þessari dagskrá, allt frá
einleiksverkum til kór- og hljóm-
sveitarverka sem eru bæði mjög
sérstæð og fáheyrð, eins og „In
Ecclesiis" eftir Gabrieli. Dagskrá
sem þessi kostar auðvitað mikla
vinnu en fyrir bragðið eru tónleik-
arnir sterkari og höfða til fleiri
áheyrenda."
Nú eru þetta fyrstu tónleikarnir
sem þú stjórnar með þessum kór
— er ætlunin að þú verðir með
hann áfram?
„Já, það er meiningin að ég
verði að minnsta kosti með hann
út veturinn — nema skattarnir
taki mig upp í skuld," segir Guð-
mundur og hlær, „ég er að korna
úr níu ára tónlistarnámi og fjár-
hagurinn anzi þröngur, eins og þú
skilur. Það var mikið átak í byrjun
að taka við stjórn Söngsveitarinn-
ar Fílharmoníu. Ég þurfti að stilla
mig inn á ákveðna bylgjulengd.
Þessi kór, sem var svo lengi undir
meistaralegri stjórn Dr. Róberts
A. Ottóssonar, hefur undanfarin
ár verið undir stjórn ólíkra kór-
stjóra. En nú finnst mér eins og
við séum að ná saman — kórinn að
læra á mig og ég á hann.“
Egilsstaðir:
ME útskrif-
ar stúdenta
KgilsNtöóum, 15. de.sember.
Menntaskólinn á Egilsstöðum
útskrifar 14 stúdenta á sunnudag-
inn kemur. Er það í fyrsta skipti
sem skólinn útskrifar stúdenta að
lokinni haustönn og hafa þá út-
skrifast samtals 60 til 70 stúdant-
ar frá skólanum frá upphafi.
Athöfnin á sunnudaginn fer
fram í Egilsstaðakirkju og hefst
klukkan 14. Að lokinni útskrift
verður kveikt á jólatré sem er gjöf
til Egilsstaða frá bænum Eiðsvöll-
um í Noregi.
- Ólafur
TJöfóar til
Xlfólks í öllum
starfsgreinum!