Morgunblaðið - 18.12.1982, Page 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
Islands-
kynning
leiðsla, en annars staðar eingöngu
ræktað grænmeti. Við komum á
kúabú og sáum mjólkurfram-
leiðslu, sem er tæknilega mjög
fullkomin. Við vorum spurðir í
þaula um landbúnað á íslandi og
veittum þau svör sem við gátum.
Öfugt við það sem er á Islandi, þá
kvartaði mjólkurbústjórinn yfir
að hann fengi ekki nægilegt magn
af mjólk. En þeir framleiða þarna
smjör, sem selt er fyrir ofan
markaðsverð vegna gæða. Þar er
ekkert allsherjar gæðasmjör. Allir
þeir sem við ræddum við þarna á
löngum fundi, voru ákaflega
áhugasamir um að skipuleggja
bændaferðir til íslands og einnig
bændaferðir frá íslandi til Nor-
mandí.
Síðasta daginn var farið til Bay-
eux, þar sem tekið var á móti gest-
unum í aðalsa! borgarstjórnarinn-
ar, þeim hinum sama sem Carter
forseti Bandaríkjanna var boðinn
í fyrir 2 árum. En í Bayeux er
þessi frægi refill, sem Björn Th.
Björnsson hefur skrifað um í einni
bóka sinna, og skoðuðu íslenzku
gestirnir hann að sjálfsögðu.
Sveinn sagði að refillinn væri 50
sm á breidd og 70 sm langur.
Hann lýsir innrás Normana í
England árið 1066 og er talið að
drottning Vilhjálms hertoga hafi
CO UM
Refíllinn á Bayeux, sem er 70 metra langur, lýsir innrás Normana í England 1066.
ofið hann og saumað sjálf með
hirðmeyjum sínum, aðeins um 10
árum eftir að þeir atburðir gerð-
ust, sem lýst er. Og að biskupinn í
Bayeux, sem var bróðir Vilhjálms,
hafi lagt á ráðin um efnisval. Á
reflinum er lýst í myndum umsvif-
um Haraldar Guðvinssonar. Hann
var í erindagjörðum Vilhjálms
hertoga af Normandí í innrásinni
í England, en lét svo krýna sjálfan
sig konung Englendinga. Er lýst
skipasmíðum og förinni yfir Erm-
arsund, og loks orustunni við
Hastings. Sagði Sveinn að fransk-
ur listamaður væri nú að skera
allt myndefni refilsins í lágmynd
úr tré og sáu gestirnir það verk.
Loks má geta þess að borgin Bay-
eux var ein af örfáum borgum í
norðurhluta Normandí, sem ekki
skemmdist í ínnrásinni á heims-
styrjaldarárunum, og er þar
gömul óskemmd dómkirkja.
— Þótt kannski sé ekki hægt að
gera mikið á 4 dögum, þá tókust í
þessari ferð kynni við margt ágæt-
is fólk, sagði Sveinn. Og áhugi
bankans Credit Agricole er lofs-
verður. Svo og áhugi og fyrirhöfn
félagsins Ásgarðs á þessari ís-
landskynningu, sem var sérstak-
lega vel undirbúin og framkvæmd-
in til fyrirmyndar.
— Það kom fram í ferðinni að
Normandí er ekki mikið ferða-
mannahérað og Normandíbúar
vilja gjarnan auka ferðamanna-
strauminn. Þeir hafa margt að
sýna frá fornu og nýju og telja að
ferðafólk í París, eigi að koma og
eyða 2—3 dögum í Normandí, til
að sjá franska sveit og smábæi,
eins og þeir gerast bestir.
Loks má geta þess að skrifað
var um íslandskynninguna og
birtar myndir af heimsókn íslend-
inganna í blöðum í Normandí.
Fyrirfram hafði fyrirhuguð sýn-
ing verið kynnt í mánaðarriti
Búnaðarbankans, sem er einn
stærsti banki Frakklands og skrif-
uð þar löng grein um ísland og
íslendinga og samskipti landanna.
En norrænu víkingarnir voru ein-
mitt að koma til Normandí og
setjast þar að um líkt leyti og ís-
land tók að byggjast af landnáms-
mönnum. Einnig eru þar rifjuð
upp samskipti frönsku fiskimann-
anna við Islendinga á 19. og fram
á 20. öld. Og sagt er frá nútíma-
fiskveiðum Islendinga og landbún-
aði. Eins farið fáeinum orðum um
íslenzka menningu. Hefur þessi
íslandskynning því náð í Frakk-
landi langt út fyrir héraðið Nor-
mandí.
— E.Pá.
Nokkrar góðar
tillöqur gð
OLYMPUS T-32 leiíturljós - hœíir öllum
myndavélum en er al-sjálfvirkt með
OLYMPUS OM2. Verðkr. 4,780-
OLYMPUS OM 10, rafeindastýiða mynda-
vélin sem gerir nánast allt fyrir þig nema
að smella af. Verð kr. 5,750 með 50 mm
linsu(l,8)ogtösku.
CULLMANN þrífœtur - léttir - stöðugir
meðfœriiegir. Verð kr. 660 - 2,403.-
POLAROID - ljósmyndavél sem skilar
myndunum strax -
kynnið ykkur jólatilboðið írá Polaroid.
OLYMPUS XA OG XA2 sannkallaðar vasa-
myndavélar - en nota samt 35 mm íilm-
ur.Verðkr. 3,160 og 4,190.-m/Al 1 flassi.
OLYMPUS OM2 ljósmyndavél sem á sér
enga hliðstœðu. Frábœr vél á frábœm
verði. Verð kr. 9,120 - með 50 mm
1.8 linsu og tösku.
KONICA FS1 ljósmyndavól með innbygð-
um sjálltrekkjara - vél framtíðarinnar.
Verð kr. 9.190 með 40 mm 1.8 linsu / tösku.
Auk þess AGVA myndavélar, leifturljós og
slidessýningarvélar. - Ljósmyndabœkur
— töskur — myndaalbúm — rammar -
filmur - og íleira. - Sendum í póstkröfu.
Gevafoto
AUSTURSTRÆTI6, SÍMI22955