Morgunblaðið - 18.12.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
67
Fræðsluþættir frá Geðhjálp:
Lífsleiði
Ég er einn af þeim sem fylgj-
ast með og lesa fræðsluþætti
Geðhjálpar í Morgunblaðinu,
ekki vegna þess að ég hafi per-
sónulega reynslu af geðsjúkling-
um, en ég þekki nokkra sem eiga
við vandamál að stríða sem
koma fram á ýmsan máta. Því
les ég þættina af áhuga. Mér
hefur skilist að þeim sé ekki ein-
ungis ætlað að vekja athygli á
geðsjúklingum, heldur að vekja
fólk til umhugsunar um það sem
að gerast í kringum okkur og
getur jafnvel haft áhrif á geð-
heilsu manna, og er það vel. Ég
vinn á fjölmennum vinnustað.
Þar tel ég mig verða varan við
mikinn leiða meðal vinnufélaga,
lífsleiða, tjáskipti eru mjög litil,
og stundum hef ég það á tilfinn-
ingunni að lítið þurfi út af að
bera til að allt springi í loft upp.
Sjaldan er hlegið, og lítið gert af
því að grínast; ef einhverjum
dettur í hug að grínast, telur sá
sem fyrir gríninu verður að verið
sé að gera lítið úr sér og verður
öskuillur. Getur það verið, að
lífsgæðakapphlaupið valdi
þessu? Menn vinni, sofi en
gleymi að lifa. Eigum við íslend-
ingar erfiðara með að láta í ljós
tilfinningar okkar bæði í gleði og
sorg en aðrar þjóðir? Gott væri
ef Geðhjálp gæti fengið einhvern
til að skrifa um þetta. Jafnvel
væri gott ef til væru góð ráð
varðandi samskipti manna á
vinnustöðum. Ég þekki fólk sem
bókstaflega þyrstir í kjaftasög-
ur, svo eru aðrir sem nærast á
því að segja slíkar sögur, helst
eru sögurnar um, hver sé að
skilja og hver heldur við hvern,
og auðvitað er þetta allt frá
fyrstu hendi, sumar sögurnar
eru eins og hrollvekjur. Þegar
þeir sem segja þessar sögur
segja frá, lyftast þeir upp, líta í
kringum sig með dularfullan
svip, eins og til að athuga hvort
allir séu nú ekki að hlusta. Flest-
ar eru þessar sögur meiðandi
fyrir aðila, og sjaldan er verið að
tala vel um fólk. Ég man eftir
því þegar ég var lítill drengur, að
ef amma mín heyrði illa talað
um fólk, tíndi hún alltaf fram
það góða hjá þeim sem talað var
um, og ef hún þekkti ekki við-
komanda, sagði hún alltaf, hann
eða hún getur ekki verið svona
slæmur. Eg held að við gerum
alltof lítið af því að sýna öðrum
að okkur sé ekki sama um hvort
fólk hafi það slæmt og líði illa.
Ei^t lítið bros getur gert svo
mikið, en við hlæjum alltof
sjaldan. Mér er sagt að AA-sam-
tökin eigi bækling sem þeir fara
eftir, og heitir að ég held „10
sporin" eða eitthvað svoleiðis, og
hefur hann breytt hugarfari
margra. Er hægt að fá hann
birtan í þessum þáttum? Mér
hefur oft dottið í hug hverskonar
tvískinnungur er í uppeldisað-
ferðum hjá mörgum foreldrum,
þeir kenna börnum sínum að
vera þolinmóð, góð og segja satt,
jafnframt að vera tillitssöm við
aðrar manneskjur, þar á meðal
gamalt fólk. Hjá mörgúm virðist
siðan gleymast að rækta þessa
sömu eiginleika hjá sjálfum sér,
og virðast börnin vera farin að
taka eftir þessum tvískinnungi
foreldranna. Er ekki vert fyrir
okkur að reyna svolítið að breyta
þessu, lifa sjálf og hegða okkur í
samræmi við það besta sem við
kennum börnunum okkar? Nú
líður senn að jólum, hátíð friðar
og kærleika, þá efast ég ekki um
að allar kirkjur verði yfirfullar
af fólki, sumir komi til að hlýða
á boðskap jólanna, en aðrir til að
sýnast. Gæti það verið til að
friða samvizkuna? því nú snýst
allt um að kaupa og kaupa sem
mest og dýrast, þó verð ég var
við að margir eru þeir sem vilja
breyta þessu, finnst þetta inn-
antómt, og kvíða frekar fyrir jól-
unum en hlakka til. Þetta fólk er
hrætt við að breyta.
Þessar hugsanir mínar, sem ég
hef sett á blað, eiga ef til vill
ekki heima i . fræðsluþætti
Geðhjálpar, finnst ef til vill ein-
hverjum, en ég læt mér það í
léttu rúmi liggja. Ég hafði þörf
fyrir að koma þessu frá mér, ef
það á einhvern hátt gæti stuðlað
að því að fólk færi að hugsa um
þessa ókosti sem ég hef gert að
umtalsefni. Ég óska enn eftir að
Geðhjálp gæti fengið einhvern
til þess að koma með skýringar á
þeim ókostum manna sem ég hef
nefnt. Ég er ekki gamall maður,
rúmlega þrítugur, en þó verður
sú hugsun æ sterkari hjá mér að
eitthvað sé að í þessu þjóðfélagi,
og það meira en lítið. Það getur
verið að þetta sé svona hjá öðr-
um þjóðum, en ég er íslendingur
og mér er ekki sama hvernig fer
fyrir okkur.
Gallerí
Langbrók með
jólasýningu
GALLERÍ Langbrók hefur opnað
jólasýningu sína á Bernhöftstorfu,
Amtmannsstíg 1.
í frétt frá Gallerí Langbrók seg-
ir að á jólasýningunni sé boðið upp
á ýmsar tegundir listiðnaðar og
myndlistar svo sem keramik, vefn-
að, tauþrykk í metravöru, úrval af
handþrykktum púðum, ýmiskonar
fatnað úr leðri, handunnið gler og
aðra sérunna muni, m.a. grafík
eftir marga myndlistarmenn.
Jólaéiafimar frá
Heimilistækjiim
ílásaranett
G-7000 sjónvarps-
leiktækið.
Skemmtilegt leiktæki sem
gefur fjölskyldunni óteijandi
möguleika til dægrastyttingar.
Golf, kappakstur.
Samlokuríst fró Philips.
Þú þarft ekki út f sjoppu
til þess að fá samloku með
skinku, osti og aspas. Sam-
lokuristin á heima í öllum
eldhúsum.
Tunturi - þrek-
þjálfunartæki.
Róðrabátur, prekhjól,
hlaupabrautir og lyftingatæki.
Allt sem þarf til þrekþjálfunar
í heimahúsum.
(Jtvarpsklukkur frá Philips
Morgunhanann frá Philips þekkja
flestir. Hann er bædi útvarp og
vekjaraklukka í einu tœki
Hann getur bœ&i vakiÖ þig á
morgnana meÖ léttri hringingu og
músik og sídan svœft þig med
útvarpinuá kvöldin.
Morgunhaninn er fallegt tœki og
gengur auk þess alveg hJjódlaust
Brauðristir frá Philips
eru mef) 8 mismunandi stillingum,
efiir því hvort þú vilt hafa
brauöid mikiö eöa lítiö ristad.
Ómissandi viö morgunverdar-
boröiö.
Rafmagnsrakvélar
frá Philips
Þessi rafmagnsrakvél
er tilvalinn fuUtrúi
fyrir hinar velþekktu
Philips rakvélar.
Hún er þriggja kamba meðW
bartskera og stillanlegum
kömbum. Hún er nett og fer vel
í hendi. KynniÖ ykkur aörar
geröir Philips rafmagnsrakvéla.
Hárblásarasett
frá Philips
er 700 W, meö fjórum fylgihlutum.
Fáanlegt f þremur geröum.
Philips kassettutæki.
Hafa lengi verið vinsælar
gjafir handa unglingum. Þau
eru ekki síður áhugaverð
fyrir afa og ömmu!
Kaffivélar frá Philips
hella upp á 2-12 bolla
í einu og halda kaffinu
heitu. Pœr fást
í nokkrum gerðum,
sem allar eiga það
sameiginlegt að lagt,
úrvals kafji.
Teinagrill frá
Philips býtmr
upp á skemmtilega
nýjvng í matargerö.
Átta teinar
snúast
um element,
sem grillar
matinn Jljótt og
vel Grilliö er auövelt í hreinsun
ogfer ve[ á matboröi.
fyrir rafhlödur, 220 volt eda
hvort tveggja. Úrvalid
er mikid, allt frá einföldum
vasatœkjum til fullkomnustu
stofutœkja.
Ryksuga frá Philips.
Lipur, þróttmikil Philips gaða-
ryksuga með 850W mótor,
sjdifvirkri snúruvindu og 36(P
snúningshaus.
**
Philips IVIaxim.
Fullkomin og ótrúlega ódýr
hrærivél með hnoðara, bland-
ara, þeytara, grænmetiskvöm,
hakkavél og skálum.
r*
fPhilips
solariuntlampinn
til heimilisnota.
Fyrirferðalítill og þægilegur
í notkun.
Hárblásarar
frá Philips
fyrir alla fjölskylduna.
Jólagjöf sem alltaf er í gildi
l Handþeytarar
k frá Philips
j med og án stands.
Priggja og fimm hraóa.
Afar handhœgt og
fyrirferðarlitið eldhústæki
Þeytir, hrærir og hnoðar.
Veggfestingar fylgja.
Hljóðmeistarinn frá
Philips.
Geysilega kraftmikið ferða-
tækt með útvarpi og kassettu-
tæki, 2x2 DW magnara,
tveimur 7 tommu hátölurum
og tveeterum. Sannkallað
tryllitæki!
Gríllofnar frá Philips gera
hversdagsmatimi að veislumat
1 þeim er einnig hægt að baka.
Þeir eru sjálfhreinsandi
og fyrirferðarlitlir.
Sinclair pínutölvan.
Frábær tölva með ótrúlegum
möguleikum. Tilvalin leið inn
í tölvuheiminn.
-VA'dlili-
Straujárn frá Philips
eru afar létt og meöfœrileg.
Þau eru meö opnu haldx, hitastilli
og langri gormasnúru.
Heymatólin frá Philips.
Tilvalin jólagjöf handa
unga fólkinu f fjölskyldunni.
Heymartólin stýra tónlistinni
á réttan stað!
Vasadiskó frá Philips.
Þeir hjá Philips em sér-
fræðingar í framleiðslu hljóm-
tækja sem ganga fyrir raf-
hlöðum. Vasadiskóið er eitt
þeirra. Fæst með eða án
útvarps.
Djúpsteikingapottur
frá Philips.
Tilvalinn fyrir frönsku
kartöflurnar, fiskinn, klein-
umar, laufabrauðið, kjúkling-
ana, laukhringina, camenbert-
inn, rækurnar, hörpufiskinn
og allt hitt.
heimilistæki hf
Hafnarstraeti 3 — 20455 Sætúni 8 — 15655