Morgunblaðið - 21.12.1982, Síða 8
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
Saga úr helförinni
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Max og Helena, sönn saga úr helför-
inni rniklu: Simon Wiesenthal. Út-
gefandi Fjölnir 1982.
Simon Wiesenthal hefur verið
kallaður nazistaveiðarinn mikli,
og víst er að hann hefur unnið
mikil þrekvirki í því að hafa upp á
stríðsglæpamönnum frá nazista-
tímabilinu og er dæmið um Adolf
Eichmann einna frægast. í þessari
bók, Max og Helena, segir frá því,
að Wiesenthal kemst fyrir ein-
skæra tilviljun á snoðir um að lík-
lega sé einn merkur máttarstólpi
stríðsglæpamaður, sem eigi ekki
betra skilið en vera dreginn fyrir
dómstól og látinn svara til saka
fyrir ódæðisverk sín. Wiesenthal
fer á stúfana og eftir mikla leit
hefur hann upp á Max nokkrum,
sem á ljótar minningar og reynslu
í búðum þeim sem maður þessi
Schulze stjórnaði. Max segir Wies-
enthal sögu sína, með nokkurri
tregðu þó, og af einhverjum und-
arlegum ástæðum sem hann getur
ekki sagt frá, getur hann ekki
hugsað sér að Schulze verði hand-
samaður og mál hans kannað. í
þeirri frásögn tekst Wiesenthal að
magna upp spennu, hver gæti
hugsanlega verið ástæðan fyrir
því að Max vill hlífa þeim manni
sem hann hefur hatað mest allra á
lífsleiðinni? Að vísu fer nú svo að
lesanda fer að gruna ýmislegt, svo
að kannski kemur það ekki alls
kostar á óvart þegar málið upplýs-
Simon Wiesenthal
ist. Og er þó ekki þar með sagan
öll.
Óþarft er að rekja hér sögu-
þráðinn, þetta er hvort tveggja í
senn spennandi afþreyingarbók,
en einnig harmsaga einstaklinga
og þjóðar, þar sem eru Gyðinga-
ofsóknir nazista í heimsstyrjöld-
inni síðari. Um þær hafa verið
skrifaðar ótal bækur, gerðar um
efnið, kvikmyndir og ég veit ekki
hvað. Það gleymist vonandi aldrei
hvað gerðist þessi dimmu ár hjá
siðmenntaðri þjóð Þýzkalands.
Þeir af eldri kynslóðinni sem lifðu
af hafa borið þessa helför í brjósti
sér síðan og séð til þess að um-
heimur fengi alla vitneskju um
hvað gerðist. Það er nauðsynlegt.
En samt mætti nú hafa í huga að
með nýjum kynslóðum breytast
viðhorf og tíminn á að mýkja og
slétta yfir — ekki að láta neinn
gleyma — en kannski kæmi að því
einhvern tíma, að það þyrfti að
íhuga hvort ekki ætti að fyrirgefa.
Þessi bók er afskaplega skýrt
dæmi um hversu torvelt það hefur
verið, en tilfinningahitinn höfðar
kannski ekki eins sterkt til nú-
tímafólks og hann gerði fyrir
nokkrum áratugum. Það er skilj-
anlegt og engin ástæða tii að álíta
það merki um sinnuleysi.
Fööurland vort
hálft er haflö
Út er komið annað bindi hins mikla
ritverks Lúðvíks Kristjánssonar um íslenska
sjávarhætti, en fyrsta bindi þess kom út
1980 og hlaut mikla athygli og viðurkenn-
ingu. Meginkaflar þessa bindis eru:
Verstöðvatal, íslenski árabáturinn, Vertíðir,
Verleiðir og verferðir, Verbúðir og Mata og
§ mötulag.
í bátakaflanum eru 363 myndir, smíða-
teikningar og yfirlitsteikningar báta,
skýringamyndir og Ijósmyndir. Ókunnugt er,
að fyrr eða annars staðar hafi því efni verið
gerð viðlíka skil. Alls eru í bókinni 482
myndir, þar af milli 50 og 60 litmyndir.
Magnús Eiríksson
Fimm nýir
titlar frá
Fálkanum
á 4 vikum
UNDANFARNAR fjórar vikur hefur
Fálkinn gefið út fímm nýjar hljóm-
plötur, sem þýðir að útkomnar plötur
Fálkans á þessu ári eru orðnar 23.
Aðalútgáfan er sólóplata Magn-
úsar Eiríkssonar, „Smámyndir",
en Magnús hefur áður gefið út 3
plötur undir samheitinu Manna-
korn. Eins og á Mannakornsplöt-
unum er Baldur Már Arngrímsson
Magnúsi til trausts og halds og
fengu þeir söngvarana Ragnhildi
Gísladóttur, Magnús Þór Sig-
mundsson og Pálma Gunnarsson
til að syngja átta af tíu lögum
plötunnar, en Magnús syngur
sjálfur lagið „Reykjavíkurblús“ og
eitt lagið „Vals númer eitt“ er ein-
ungis leikið.
„Við suðumark" er safnplata
með sextán þekktum erlendum og
innlendum listamönnum. Á plöt-
unni eru vinsæl lög eins og „Come
On Eileen" með Dexys Midnight
Runners, „Draumaprinsinn" með
Ragnhildi Gísladóttur, „Abraca-
dabra" með Steve Miller Band og
„The Look Of Love“ með ABC svo
eitthvað sé nefnt. Hefur Fálkinn í
hyggju að gefa slíkar safnplötur
út reglulega á næsta ári.
Grace Jones heitir blökkukona
sem hefur heillað marga með söng
og flutningi sínum á tónlist sem er
líklega blanda að reggae, diskó,
poppi og rokki.
Nýja platan hennar „Living My
Life“ er nú komin út og á henni
eru lög sem hún hefur að mestu
samið sjálf eða með aðstoð Barry
Reynolds, sem einnig hefur komið
drjúgt við sögu á plötum Mari-
anne Faithfull.
Ríó Tríóinu muna eflaust eftir.
Þessi hópur gerði átta breiðskífur
á ferli sínum. Nú hefur verið ráð-
ist í að velja það sem best er talið
af þessum plötum á eina safn-
plötu. Lögin eru 25 talsins.
Kizz heitir amerísk hljómsveit
sem hefur verið vinsæl meðal
unglinga víðsvegar um heim. Kizz
er rokkband, en nýja platan þeirra
„Creatures Of The Night" er
þeirra átjánda breiðskífa.