Morgunblaðið - 21.12.1982, Qupperneq 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
Nytsamar
jolagjafir
STARTKAPLAR
HLEÐSLUTÆKI
SPEGLAR
SKÍÐABOGAR
BÍLARYKSUGUR
„AIR PRESS“
Vindhlífar fyrir hliðarglugga.
Litlir btlskúrstjakkar.
Luktir í úrvali.
Réttstædur
á vellinum
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Gunnar Gunnarsson: ALBERT. 216
bls. Setberg. Rvík, 1982.
Á titilblaði standa þessi orð:
»Hér segir Albert Guðmundsson
frá uppvaxtarárum sínum, ævi og
ferli.« Rétt er það. Og hann segir
frá ýmsu fleira, t.d. skoðunum sín-
um á mönnum og málefnum.
»Albert er fyrir löngu orðinn að
goðsögn.* — Þessi orð gefur að
líta í fyrsta kafla. Er þessi bók
Gunnars Gunnarssonar þá goð-
saga? Fjarri fer því. Höfundurinn
er blaðamaður og rithöfundur. Og
Albert er sem raunsær stjórn-
málamaður vanur að koma fyrir
sig orði. Þar að auki er hann oft
opinskár. Stundum meira að segja
barnslega upp með sér af frama
sínum. Sigrar hans á íþróttasvið-
inu, sem sagt er frá í bókinni, fóru
nú fyrir ofan garð og neðan hjá
undirrituðum — hef því miður
ekki vit á keppnisíþróttum. En
stöðugt og stundum allt að ótrúleg
velgengni Alberts í pólitíkinni
liggur að ýmsu leyti ljósar fyrir að
loknum lestri þessarar bókar.
Fróðlegt er t.d. að fá það upp-
lýst að áður en Albert hóf nokkur
afskipti af stjórnmálum reyndu
bæði kratar og framsókn að gera
hosur sínar grænar fyrir honum í
þeim vændum að hann fengist í
framboð. En þeir höfðu ekki erindi
sem erfiði. Ekki var ástæðan þó sú
að Albert teldi sig andstæðing Al-
þýðuflokksins og Framsóknar-
flokksins. Hann segir að félags-
störf sín áður hafi gert sig að fé-
lagshyggjumanni og »það var víst
nánast tilviljun hvar ég lenti í
flokki ... «
En Albert kunni áður »þá list að
staðsetja sig rétt á vellinum«. Og
þegar út í stjórnmálin kom hafði
hann líka »lag á því að staðsetja
sig rétt í stjórnmálabaráttunni*.
Albert hefur þó ýmislegt út á
flokk sinn að setja og mun það
ekki koma neinum á óvart sem
fylgst hefur með stjórnmálaferli
hans. Hann segist hafa fundið upp
orðið »flokkseigendafélag« og vin-
ur sinn, Guðmundur J. Guð-
mundsson, hafi smíðað orðið
»gáfumannafélagið« sem eigi með
svipuðum hætti við hans flokk.
Telur Albert skoðanir sínar fara
saman við upphaflega stefnu
Sjálfstæðisflokksins sem hann
gefur í skyn að flokksforystan víki
þó stundum frá ef henni þyki það
henta. Honum þykja lögfræðingar
hafa rutt sér mjög til rúms í
flokknum í seinni tíð: »Ég er nátt-
úrlega undantekning í mínum
flokki, vegna þess að ég er ekki
lögfræðingur.* Og á öðrum stað
segir Albert: »Yfirleitt les ég ekki
um stjórnmál annað en það sem
gerist á líðandi stundu. Ég treysti
brjóstvitinu.«
Orðið fyrirgreiðslupólitík hefur
á seinni árum fengið heldur nei-
kvæða merkingu. Albert lítur ekki
Albert Guðmundsson
þannig á málin. »Ég er fyrir-
greiðslumaður í pólitík,* segir
hann. »Það sem ég tek að mér
fyrir kjósendur er aðalatriði. í
þeim málum eru aukaatriði ekki
til.«
Mörgum þykir sá kækur stjórn-
málamanna að vera sitt á hvað
með eða móti eftir því hvort flokk-
ur þeirra styður ríkisstjórn eður
eigi heldur hvimleiður og barna-
legur. »Og því rniður,* segir Al-
bert, »hefur það orðið hlutskipti
stjórnmálamanna að standa i því
á víxl að verja og fegra allt sem
gert er á líðandi stund, eða þá að
sverta alla hluti og gera lítið úr
því sem gert er.«
Ekki veit ég nú hvort þessar til-
vitnanir nægja til að bregða ljósi
yfir pólitískar skoðanir Alberts
Guðmundssonar eins og þær koma
fyrir sjónir í þessari bók, en læt
staðar numið. Víða kemur fram að
Albert er óljúft, svo ekki sé dýpra
tekið i árinni, að beygja sig undir
flokksaga. Þetta stjórnmálalega
sjálfstæði hans skírskotar áreið-
anlega til margra, meðal annars
fyrir þá sök að kjarni stjórnmála-
flokkanna líkist oft lokuðum
klúbbum sem almenningur telur
sig eiga lítinn sem engan aðgang
að. En atorkan hefur líka enst
honum vel, að ógleymdu sjálfs-
traustinu sem ekki má bila á
úrslitastundum: »Ég hef enn ekki
hitt þá persónu, sem er svo sterk
að ég verði að víkja.«
í einum kaflanum minnist Al-
bert á fáeina samþingsmenn sína,
og lýsir þeim sumum nokkuð. Mér
sýnast þeir vera úr öllum flokkum
— jafnt!
Nei, þetta er engin goðsaga. Þó
stjórnmálamaðurinn Albert Guð-
mundsson kunni að vera hjúpaður
einhverri dul í augum einhverra
kjósenda, reynir hann ekki í þess-
ari bók að bregða yfir sig neinni
þvílíkri huliðsblæju. Hann er eins
og fyrr segir opinskár, talar hreint
út, og naumast verður séð að hann
leyni nokkru sem stjórnmálin
varðar.
Gunnar Gunnarsson hefur valið
sér dálítið erfitt form, og hans
hlutur í þessari bók fellur hreint
ekki í skuggann þegar á heildina
er litið, en kemst að mínum dómi
prýðilega frá því. Þetta er ein-
hvers staðar á milli blaða-
mennsku, ævisögu og viðtalsbók-
ar. Nafnaskrá fylgir sem er stór
kostur þar sem hér eru ekki aðeins
á dagskrá persónuleg málefni,
heldur líka stjórnmál, landsmál,
stórmál sem eiga eftir að verða
saga.
Tel ég að þeirri spurningu hvers
vegna Albert Guðmundsson sé
einatt efstur í prófkjörum sé að
ýmsu leyti svarað í þessari bók.
Vinsælu bremsuljósin
í afturglugga.
KL barnaöryggisstólar.
Hitamælar — Mint box —
Glitaugu — KM teljarar —
Kompásar — Öskubakkar —
Límrendur — Lyklahringir.
Ymsir aukamælar og m.m.
fleira.
(fflmnaust h.f
ygmmm SIOUMUlA 7_9 .sími 8272?
REYKJAVÍK
Heusen
herraskyrtur
og
silkislifsi
Van Heusen
herraskyrtur eru
heimsþekkt gæðavara.
Fáanlegar í miklu efnis- og litaúrvali í
tveim mismunandi ermalengdum (89 og
91 cm) og í tveim mismunandi bolvídd-
um (standard vídd og extra vídd).