Morgunblaðið - 24.12.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982
3
Sendir jólagjafir
til pólskra barna
„ÞAD VÖRU tæp 300 kíló sem ég sendi að þessu sinni, en ég er búinn að
senda þeim böggla sex til sjö sinnum áður, sennilega er þetta orðið um ein
sniáU st," sagði Ingþór Sigurbjörnsson málarameistari í samtali við Morgun-
blaðið, en hann hefur frá því í sumar sent vmiss konar gjafir til bágstaddra í
l’ollandi, mest fatnað og hreinlætisvörur.
Mikið var um dýrðir er litlu jólin voru haldin hátíðleg í Skálatúni í Mosfellssveit sl.
miðvikudagskvöld. Á myndinni má sjá nokkra flytjendur helgileiks og hluta áhorf-
enda, sem fylgdust með af áhuga. MorKunbia8iív rax.
Seðlabankinn tekur um
823 milljóna króna lán
Ingvar sagðist hafa borið upp
tillögu á fundi í góðtemplararegl-
unni um sendingar af þessu tagi
og hefði verið einróma samþykkt
að reglan stæði að þessum gjafa-
sendingum.
Ingþór Sigurbjörnsson við stafla af
pökkum, sem hann sendi nýverið til
bágstaddra í Póllandi.
Morgunhlaðið KÖK
„Þessi sending fer með flugvél-
um beint í hlað, Flugleiðir flytja
þetta endurgjaldslaust til Kaup-
mannahafnar og þar taka önnur
félög við, og verð ég að greiða
þann flutning. Þetta var sent með
flugi svo börnin fengju glaðning
fyrir jólin.
Eg hef sent þetta allt á barna-
heimili í Lodz, sem kona að nafni
Renata Rimler hefur rekið í 25 ár.
Ég frétti um vandræði heimilisins
frá Svíþjóð gegnum Friðrik Sigur-
björnsson lögfræðing. Síðan hef
ég notið stuðnings Arnórs Hanni-
balssonar varðandi allar bréfa-
skriftir.
Ég fæ alltaf kort og kvittun frá
Renötu eftir hverja sendingu. Það
eru mjög elskuleg bréf, og hún
segist ekki eiga nógu sterk orð til
að láta í ljós þakklæti sitt.
Hins vegar hafa biskuparnir
aldrei svarað neinu, en ég sendi
pólsku kirkjunni eina sendingu,
reyndar þá stærstu sem ég hef
sent til Póllands. Ég sendi þeim
hana með Hafskipum og veit að
þeir fengu hana 21. ágúst. Mér
finnst það lélegt af þeim að senda
enga kvittun eða viðurkenningu
fyrir móttöku.
Það hefur fylgt þessu talsverð
vinna en ég sé ekkert eftir þeim
tíma sem í þetta hefur farið, þótt
hann sé orðinn drjúgur," sagði
Ingþór. Ingþór sagði að í fyrstu
hefði verið vissum erfiðleikum háð
að fá leyfi fyrir sendingunum, en
svo væri ekki lengur.
SEÐLABANKI íslands tók nýverið
svokallað „Eurodollara“-skulda-
bréfalán hjá nokkrum fjárfestingar-
bönkum í London að upphæð 50
milljónir dollara, sem svarar til
823,6 milljóna íslenzkra króna,
miðað við núverandi gengi. Stærsti
bankinn er „Credit Suisse-First
Boston“.
Þetta er í fyrsta sinn í tæplega
6 ár, sem svona lán með föstum
vöxtum er tekið af íslendingum,
en fastir vextir af þessu láni, sem
er til 10 ára, eru 123/»%.
Lánið er afborgunarlaust
fyrstu fimm árin, en síðan er
greitt af því einu sinni á ári fram
til ársins 1992. Að sögn Jóhann-
esar Nordal, seðlabankastjóra,
sem undirritaði lánið, var það
tekið í samræmi við lánsfjár-
áætlun ársins 1982 og er ætlað að
greiða niður bráðabirgðalán, sem
tekin hafa verið.
Eggert, Jón
og Óli Már
fyrir Rangár-
vallasýslu
ÞRÍR menn voru valdir á fundi Full-
trúaráðs Sjálfstæðisflokksins i
Rangárvallasýslu, til framboðs i
prófkjöri flokksins i Suðurlands-
kjördæmi, sem fram fer í janúar.
Á fundinn mættu 38, eða allir
þeir sem atkvæðisrétt hafa. At-
kvæði féllu þannig að Eggert
Haukdal varð í fyrsta sæti með 37
atkvæði, annar varð Jón Þorgils-
son með 33 atkvæði, í þriðja sæti
varð Óli Már Aronssón með 26 at-
kvæði, í fjórða sæti varð sr. Hall-
dór Gunnarsson með 10 atkvæði
og í fimmta sæti varð Sigurður
Óskarsson með 8 atkvæði.
Þeir þrír efstu, Eggert, Jón og
Óli Már, verða því frambjóðendur
sýslunnar í prófkjörinu á Suður-
landi. Stefnt er að því að halda
prófkjörið 22.-23. janúar sam-
kvæmt upplýsingum Mbl.
Dregid í happdrætti
Styrktarfélags lam-
aöra og fatlaðra
í GÆR var dregid hjá borgarfóg-
eta í Reykjavik í símnúmerahapp-
drætti Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra. Eftirtalin símanúmer hlutu
vinning:
91-53110 Suzuki jeppi. 91-29931
Suzuki jeppi. 93-2253 Suzuki jeppi.
91-72750 Suzuki jeppi. 91-66790
Suzuki jeppi. 91-34961 Suzuki
jeppi. 91-20499 Suzuki jeppi.
Sólarlandaferðir til Benidorm
komu á þessi númer: 97-7537, 93-
2014, 92-7626, 91-17015, 93-2016,
96-21015, 91-72138, 93-2003, 91-
25076, 91-71037.
Styrkarfélag lamaðra og fatl-
aðra þakkar öllum þátttakendum í
happdrættinu velvilja og veittan
stuðing. (Itirt án áhyrgAar.)
Ferðaskrifstofan Útsýn
býður yður velkomin,
sendim beztu óskin um gleðileg jól, þakk
árum féig n f i’ n r fn\%yldar og fararheilla^ l
á liðnum
'SSON