Morgunblaðið - 30.12.1982, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 30.12.1982, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982 Verzlunarráð spáir 59% verðbólgu 1983 VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS hcfur gert spá um þróun verðlags, launa og gengis Bandaríkjadollars á árinu 1983. Samkvæmt henni verdur verdbólgan á næsta ári um 59%, mióað við hækkun framfærsluvísitölu frá upphafi til loka ársins. Meðaltalshækkun verðlags á milli ára verður á hinn bóginn um 62%. I spánni er einnig gert ráð fyrir að laun hækki um 58% á árinu 1983, en gengi Bandaríkjadollars um 65% . Helztu forsendur spárinnar eru þær, að engar grunnkaupshækk- anir verði á árinu umfram gild- andi samninga, viðskiptakjör rýrni óverulega, eða um 1—2%, dollarinn haldi styrkleika sínum á alþjóða peningamarkaði og sam- dráttur verði í eftirspurn vegna vaxtabreytinga og breytinga á kaupgjaldsvísitölu. Spáin gerir ráð fyrir að gengi Bandaríkjadollars verði 16,70 krónur 1. janúar nk., en verði komið í 26,50 krónur 1. desember nk. Þá er gert ráð fyrir því, að laun hækki að meðaltali um 2,2% 1. janúar nk., 10,3% 1. marz, 12,3% 1. júní, 10,8% 1. september og um 12,4% 1. desember nk. Hækkun frá upphafi til loka árs verði því 57,7%, en meðaltals- hækkunin milli ára verði um 51,0%. Tillagna stjórnarskrárnefndar aó vænta á þriójudag: Þrenging á þingrofs- rétti og útgáfu bráðabirgðalaga Kosningaréttur í 18 ár meðal tillagna Stjórnarskrárnefnd kom saman til fundar í gær og var þar ákveðið að stefna að því að ganga frá skýrslu til þingflokka og fjölmiðla varðandi breytingar á öðrum greinum stjórn- arskrárinnar en kjördæmamálsins á fundi sem boðaður hefur verið nk. þriðjudag. í skýrslu þessari verður sam- kvæmt hemildum Mbl. m.a. lagt til að aldursmörk þeirra er njóta kosningaréttar verði lækkuð niður í 18 ár, veruleg þrenging verði á þingrofsrétti og heimildum til út- gáfu bráðabirgðalaga. Nefndum Alþingis verði veitt meiri völd og mannréttindaákvæði aukin. Þá er að vænta aukinna ákvæða varð- andi dómstóla til að tryggja rétt- indi almennings. Gamla myntin: Síðustu forvöð að skipta henni á gamlársdag FRESTUR til að skipta gömlu mynt- inni i Seðlabankanum, eða í bönkum og sparisjóðum, rennur út á gaml- ársdag, að sögn Stefáns Stefánsson- ar, aðalféhirðis Seðlabankans. Stefán sagði menn reikna með 56—57% heimtum í myntpening- unum, en hins vegar væri gert ráð fyrir, að um 98,5% af seðlum myndu skila sér. AI }>v óu bandalagió á Vestfjöröum: Kjartan efstur í fyrra forvali Kjartan Ólafsson ritstjóri í Reykjavík varð efstur í fyrri umferð forvals Alþýðubandalagsins á Vest- fjörðum, þar sem valdir voru þátt- takendur til siðari umferðar vegna vals á framboðslista við næstu kosn- ingar til Alþingis. Samtals kusu 163 af þeim 200 sem á kjörskrá voru. I öðru sæti varð Þuríður Pét- ursdóttir kennari á ísafirði, næst- ir og jafnir voru þeir Gestur Kristinsson skipstjóri Súganda- firði og Guðvarður Kjartansson skrifstofumaður á Flateyri, þá Pétur Pétursson læknir í Bolung- arvík, og síðan jafnir Finnbogi Hermannsson kennari á ísafirði og Kristinn H. Gunnarsson skrif- stofustjóri í Bolungarvík. Síðari umferð forvalsins verður í janúar. Mynd Mbl. Júlíus. Að sögn Gunnars G. Schram ráðunauts nefndarinnar verður í framhaldi af afgreiðslu þessarar skýrslu fjallað um hvernig tryggja megi kjósendum meiri áhrif á hvaða frambjóðendur ná kjöri, einnig er henni ætlað að fjalla um starfshætti Alþingis, það er breyt- ingar á þingsköpum Alþingis. Ölvaður ók á 4 bíla LAl'ST eftir klukkan eitt í fyrrinótt ók ölvaður ökumaður 330 hestafla Ford Mustang bifreið sinni á fjórar bifreiðir á Þórsgötu og olli miklu tjóni. Maðurinn ók austur Þórsgötu á mikilli ferð og missti stjórn á tryllitæki sínu með fyrrgreindum afleiðingum. Draga þurfti tvær bifreiðir í burtu, gereyðilagðar. Ökumaðurinn var fluttur í slysadeild en meiðsli hans reyndust ekki alvarleg. Olafur G. Einarsson: „Þetta er kák eitt“ „ÞESSAR láglaunabætur eru ein endemisvitlcysa," sagði Ólafur G. Einarsson, alþingismaður, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann og spurði hann álits á út- hlutun láglaunabótanna. „Þær eru ákveðnar af ríkisstjórninni til þess að réttlæta að nokkru kjaraskerð- inguna 1. desember síðastliöinn. Þær eru ákveönar án þess að menn hafi haft hina minnstu hugmynd um hvernig þeim yrði úthlutað og við því fengust heldur engin svör, þegar bráðabirgðalögin voru afgreidd úr nefnd í efri deild fyrir jólin. Nú er líka komið á daginn að ríkisstjórnin hefur ekki hitt á út- hlutunarreglu sem réttlát getur talist, enda sjálfsagt ekki hægt. Það er hins vegar nokkuð seint að verða þess fyrst var, þegar greidd- ar hafa verið 50 milljónir króna nánast út í loftið, en svo mikið lá við að ljúka þessum peningasend- ingum af fyrir jól, að ríkisstjórnin Ottó Pálsson á Akureyri látinn sást ekki fyrir. Það hefði út af fyrir sig verið nokkur sárabót fyrir skattpínda láglaunamenn, sem þar að auki hafa verið sviptir umsömdum launahækkunum, að fá nokkra peningagjöf í jólagjöf frá iðrandi ríkisstjórn, en sú er bara ekki raunin, þetta er kák eitt sem bætist við fyrri misgjörðir þessarar lánlausu ríkisstjórnar," sagði Ólafur G. Einarsson. Þá kom fram hjá Ólafi, að farið verður ofan í kjölinn á þessu máli innan Sjálfstæðisflokksins og það tekið fyrir þegar þing kemur sam- an að nýju eftir jólaleyfi. OTTÓ 1'áls.son, fyrrum kaupmaöur á Akureyri, er látinn, 67 ára að aldri. Hann andaðist á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 27. desember. Ottó var fæddur í Einarsnesi í Mýrarsýslu 17. september 1915. Hann var sonur Páls Jónssonar, búfræðikennara á Hvanneyri og bónda í Einarsnesi, og konu hans, Þóru Baldvinsdóttur. Ottó missti foreldra sína ungur Ú tf lu tningsg jaldsleiðin yæntanlega fyrir valinu Losuöu sig við þýfið á flótta í FYRRINÓTT var brotist inn í flugeldasölu hjálparsveitar skáta í Kópavogi og þaðan var stolið flug- eldum. Lögreglan í Kópavogi varð áskynja um þjófnaðinn og elti piltana, sem voru að verki, upp í Breiðholt, en þeim tókst að kom- ast undan í skjóli myrkurs. Þeir losuðu sig hins vegar við þýfið — sjö poka af flugeldum. YFIRNEFND verðlagsráðs sjávarútvegsins fundaði í gær um nýtt fiskverð, einnig átti sjávarútvegsráðherra fundi með hagsmunaaðilum fiskvinnslu og fleirum. Þá funduðu þingflokkar Framsóknarflokks og Aiþýðubandalags í gær um málið og mun Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra gera grein fyrir hugmyndum sínum á ríkisstjórnarfundi árdegis. Eins og Mbl. skýrði frá í gær er 10—14% gengisfelling, framleng- ing olíugjalds og auknar niður- greiðslur á olíu sú hugmynd sem helst hefur verið til umræðu. Hækkun fiskverðs mun vera nær 14% eftir umfjöllun málsins í gær. Ekki hefur verið ljost hvernig afla á fjár til aukinna niðurgreiðslna, en í gær virtist sú leið að leggja sérstakt útflutningsgjald á sjávar- afurðir vera efst á baugi. Þá hefur ríkisstjórnin leitað hófanna hjá stjqrnarandstöðunni uln að hún veiti samþykki sitt fyrir því að Al- þingi gangi frá lagasetingu til framlengingar olíugjalds og aukn- um niðurgreiðslum á olíu á fyrstu dögum Alþingis eftir jólahlé, sem verður um miðjan janúar. Með því móti telur ríkisstjórnin sig kom- ast hjá bráðabi rgðalagasetni ngu um áramótin. Nýtt fiskverð kallar á breytingu gengisskráningar en á þing- flokksfundi Framsóknarflokksins í gær kom fram, skv. heimildum Mbl., að gengið yrði látið síga fyrstu vikur ársins til samræm- ingar við fiskverðsákvörðun. Steingrímur Hermannsson hefur enda lýst því yfir opinberlega að gengisfelling komi ekki til greina við lausn þessa máls. Ef fiskverð hækkar um 14% kallar það á hækkun gjaldeyris um 7%, en ef sú leið verður valin að gengismun- ur verði látin fjármagna auknar niðurgreiðslur olíu, eins og einnig hefur komið til tals, verður geng- isfelling - eða gengissig - að verða mun meira. Til umræðu hefur einnig komið, eins og Mbl. skýrði frá í gær, að auknar niðurgreiðsl- ur olíu yrðu fjármagnaðar með hækkun söluskatts. Sú hugmynd mun ekki hafa fallið í góðan far- veg í umræðunum í gær. og ólst upp í Reykhúsum í Eyja- firði hjá hjónunum Maríu Jóns- dóttur og Hallgrími Kristinssyni forstjóra SÍS, og dvaldi einnig hjá frændfólki sínu að Kroppi í Eyja- firði. Á tímabili stundaði Ottó akstur einkabifreiðar á Akureyri og var hann einnig um tíma hjá Kristjáni Kristjánssyni, eiganda Bifreiða- stöðvar Akureyrar. Ottó var kvæntur Sigfríð Ein- arsdóttur Metúsalemsdóttur. Kjördóttir þeirra hjóna er Þóra, gift Erni Haukssyni í Mývatns- sveit. Þau hjón, Ottó og Sigfríð, ráku Prjónastofuna Drífu og síðan lengi verzlunina Drífu á Akureyri, eða þar til Sigfríð varð að hætta vegna sjúkleika. Ottó var í fjölda- mörg ár forstöðumaður kosninga- skrifstofu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og síðar í Norðurlands- kjördæmi eystra. „Ríkið“ búið að fá húsnæði á Akranesi Nú styttist óðum í að Akurnes- ingar þurfi ekki að sækja brjósbirt- una yfir Faxaflóann til höfuðborgar- innar. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur tekið á leigu húsnæði við Þjóðbraut á Akranesi undir úti- bú frá versluninni. Er húsnæðið leigt til þriggja ára af Jóni Björgvinssyni, eiganda þess. Gert er ráð fyrir að útibúið opni í febrúar. Kosið var um áfengisútsölu samhliða bæjar- og sveitarstjórn- arkosningunum þann 22. maí sl. vor. í þeim kosningum samþykktu kjósendur á Akranesi með um 200 atkvæða meirihluta að fara fram á stofnun útibús. Allt fram til dagsins í dag hefur verið svipast um eftir heppilegu húsnæði til kaupa eða leigu, en það ekki fyrirfundist í kaupstaðn- um þar til nú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.