Morgunblaðið - 30.12.1982, Page 7

Morgunblaðið - 30.12.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982 7 Lokað gamlársdag, nýársdag og annan í nýári. Eigendur og starfsfólk óskar ykkur gleðilegs árs og þökkum viðskiptin á liðnu ári. Oskum vióskiptavinum okkar gleóilegra jóla og farsæls komandi árs <M Scantrans GmbH INTERNATIONALE SPEDITION Benco kynnir: Neyðarsenda fyrir gummíbáta Fyrirferöarlítill neyöarsendir meö inn- byggðu loftneti. Sjálfvirkt tónmerki á neyöartíöni 121.5 MHz og 243 MHz kemur á meö því einfald- lega aö losa um boröann framan á sendin- um. Full afköst eru meira en 48 stundir (allt aö 70 klukkustundir) viö hitastig á milli + 20°C og + 55° C. Rafhlaöan geymist óskemmd í allt aö sjö ár. Lampi sem er inni í sendinum gefur til kynna aö hann virki rétt. Má halda á eöa nota úr geymsluvasa á björgunarbát, hann flýtur einnig þannig, aö hann snýr rétt til notkunar. Ytra byröið er úr plasti, sem ekki tærist og er vatnshelt. Hannað til geymslu í gúmmíbjörgunarbát- um eöa í björgunarbátum, eöa til neyðar- notkunar í embættis- eða skemmtibátum. Viðurkennt af: Siglingamálastofnun ríkisins og Pósti og síma til notkunar í gúmmíbjörg- unarbátum i íslenskum skipum og bátum. VerÖ 4.915.- (gengi 7/12 ’82) BENCO Bolholti 4, Reykjavík. Símar 91-21945/84077. J VIÐTAUÐ: „Hef meiri trú á gæðum en magni” — segir Guðmunhr Árni Stefánsson, nýr ritstjóri i AlþýðublaðsinsíReykjavfk j Lokaorðin 1982: í þessum síðustu Staksteinum ársins 1982 er vitnaö til ritstjóra Tímans og Alþýðublaðsins, sem hafa hvor með sínum hætti miðlað lesendum Staksteina ýmsu efni á því ári sem er að kveðja — og þarf enginn að efa, að þeir verða einnig aufúsu- gestir á þessum staö á árinu 1983. Maðurinn á hinni síðunni Skrif IVirarin.s l>órar- inssonar um alþjóðamál bera þess oft merki, einkum í seinni tíð, að hann hefur tileinkað sér einkennilega afstöðu þegar hann skrifar um KremF verja, eins og til dæmis þegar hann sagði frá fundi Yuri Andropovs og George Bush, varaforseta Banda- ríkjanna, í tengslum við jarðarfor Brezhnevs. Þá lagði I>órarinn sovésku ör- yggislögregluna KGB, sem Andropov stjórnaði í 18 ár, og bandarisku leyniþjón- ustuna CIA, sem Bush veitti forstöðu í skamman tíma, að jöfnu, einnig þá Andropov og Bush og væntanlega stjórnkerfi Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna með því að segja, að þeir Andropov og Bush hefðu líklega ekki rætt lögreglumál þegar þeir hitt- ust! Hvað skyldi Þórarinn hafa sagt um umræðuefniö ef eini forsætisráðherra fs- lands, sem var lögreglu- stjóri, hefði haft tækifæri til að hitta Andropov? Með hliðsjón af þessum sérkennilegu skirskotun- um l>órarins vakti það at- hygli, að hann skyldi birta eftirfarandi kafla úr fyrra bindi ævisögu Steindórs Steindórssonar, fyrrum skólameistara á Akureyri, í ritstjórnargrein í Tíman- um: „En ef einhver vill minn- ast verka minna í framtíð- inni, þá gerði ég skólanum þetta tvennt til góða, stofn- aði náttúrufræðideild og hratt af stað og lét fram- kvæma byggingu Möðni- valla. Nafninu réð ég. Hugsaði ég það sem verð- uga minningu þeirra nátt- úrufræðinganna lmrvalds Thoroddsens og Stefáns Stefánssonar, sem báðir störfuðu á Möðruvöllum og urpu meiri Ijóma á skólann en nokkrir aðrir með vís- indastörfum sínum. Fékk ég menntamálaráðherra Gylfa Þ. Gíslason til að festa nafnið á húsið við af- hendingu þess. Lítt grunaöi mig þá, aö nafnið yrði tengt gapuxahreyfingu nokkurra framsóknar- komma. Hefði ég aldrei leyft fundarhald þeirra þar, ef ég hefði húsum ráðið. Sem betur fer koðnaði hreyfing sú fljótt niður við lítinn orðstír, en ekki er mér sársaukalaust að heyra nafn slíks manns sem Ólafs Kagnars bendl- að við Möðruvelli." Kaflinn sem Þórarinn valdi með velþóknun er sem sé fordæming Stein- dórs á Möðruvaliarhreyf- ingunni svonefndu, sem gerði framsóknarmönnum og mörgum fleirum gramt í geði á sínum tíma. En á hinni síðunni í Tímanum, sama dag og Isirarinn birt- ir þetta með mynd af sér, er birt mynd af meðrit- stjóra I*órarins á Timan- um, Elías Snæland Jóns- syni — hann var á kafi í Möðruvallahreyfingunni ekki síður en Olafur Ragn- ar. Ríkisrekna blaðið Alþýðuflokkurinn tók á sínum tíma þá ákvörðun þegar fokið var í öll önnur skjól fyrir Alþýðublaðinu að minnka það niöur í fjór- ar síður, svo að þar kæmlst fyrir forystugrein til upp- lestrar í útvarpi, auglýs- ingar frá opinberum aðil- um sem eru skyldaðir til að auglýsa í öllum dagblöðun- um og pólitiskt smælki frá Alþýðuflokknum. Með þessum hætti og fyrir bein- an stuðning úr ríkissjóði að auki hefur krötum tekist að halda Alþýðublaðinu á floti um nokkurra ára skeið og kannski má það kaliast gott. Fyrir nokkru urðu ritstjóraskipti á þessu ríkisrekna blaði. Þótt skattgreiðcndur beri kostnaðarbyrðina ræður Alþýðuflokkurinn því hver ritstýrir Alþýðublaðinu, enda er sú regla í góðu samræmi við þá megin- skoðun krata að betra sé fyrir almenning að ríkishít- in ráðstafi fé hans en fólk- ið sjálft og síöan sé það hlutverk stjórnmálamann- anna aö hafa vit fyrir fólk- inu i krafti hins opinbcra fjármagns. I)agblaðið-Vísir birti við- tal við hinn nýja ritstjóra Alþýðublaðsins, Guðmund Arna Stefánsson, nú í vik- unni. Eins og við var að búast hefur hann þau við- horf til blaðamennsku sem eru eins og sniðin fyrir Al- þýðublaðið. Kitstjórinn sagði: „Ég hef aldrei verið neitt feiminn við þá smæð Alþýðublaðsins sem talin er í blaðsíðum. Ég hef þá bjargfostu trú aö það séu gæði innihaldsins sem skipta máli en ekki magn- ið.“ Um stefnuna við val á efni sagði ritstjórinn: „Al- þýöublaðiö hefur fyrst og fremst verið hreint póli- tískt blað og verður það áfram. Að minnsta kosti fyrst um sinn. En við mun- um vissulega leggja mikla áherslu á aö gera það efni sem allra læsilegast." Og ritstjórinn nýi efast ekki um að litla blaðiö hans sé vel metið af les- endum. Hann segir: „En þar sem Alþýðublaðið kem- ur er það lesið spjaldanna á milli, ekki bara flett lauslega og litið á fyrir- sagnir eins og oft vill verða með stærri og viöameiri blöð. Og það finnst mér sá besti dómur sem við getum fengið um innihald blaðs- ins.“ Við lestur þessarar lýsingar kemur manni helst til hugar, að svo fá eintök komi út af Alþýðu- blaðinu, aö það fáist aðeins lesið undir umsjá ritstjór- ans. 3,6 stiga skjálfti við Kröflu JARÐSKJÁLFTI af stærðargráð- unni 3,6 stig á Richters-kvarða kom fram á mæla Kröflunefndar í Reyni- hlíð á jóladag, að sögn Ármanns Einarssonar í Reynihlíð. Ármann sagði að ýmsir smærri skjálftar hefðu fylgt aðalskjálft- anum. Upptök jarðskjálftans voru talin vera á Kröflusvæðinu, en þar hefur gangur mála verið með eðli- legum hætti og eins og búist hefði verið við. HHHltHlÍMllHHHllHIIHltH Vegna vörutalningar verða allar deildir okkar lokaðar mánudaginn 3. janúar og þriðjudaginn 4. janúar. IhIheklahf Laugavegi 170-172 Simi 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.