Morgunblaðið - 30.12.1982, Side 10

Morgunblaðið - 30.12.1982, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982 Nokkrir aðstandenda sýningarinnar á Súkkulaði handa Silju. Talin frá vinstri: Messíana Tómasdóttir, sem gerir leikmynd, María Kristjánsdóttir, leikstjóri, Egill Ólafsson, sem semur tónlistina við verkið, og Nína Björk Arnadótt- ir, höfundur verksins. Ljósmyndari ÞjMleikhússins. Súkkulaði handa Silju sýnt á Litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu: „Bara að nóttin kæmi“ DRAUMUR ÖNNU Bara að nóltin ka*mi oj» þú værir kominn allir vindar sva*fu aðeins regnið drypi heitt t»n þunjjt á Kluggann og við myndum móta líkami hvors annars að þeir yrðu að einum líkama sem hnígur heitt og milt sem regnið Bara að nóttin ka*mi ojí þú Milli jóla og nýárs, nánar tiltek- ið fimmtudaginn 30. desember, verða hafnar sýningar á litla svið- inu í Þjóðleikhúsinu, á leikverkinu SÚKKULAÐI HANDA SIUU eft- ir Nínu Björk Árnadóttur. Þetta er frumflutningur verksins og það er María Kristjánsdóttir sem leikstýrir því. Ofangreint ljóð er úr verkinu, en Anna er aðalper- sóna leikritsins. Átök milli mæðgna Morgunblaðið tók Nínu Björk, höfund leikritsins, tali og spurði hana um verkið. „Verkið er um mæðgur, 15 ára dóttur og 35 ára gamla einstæða móður, og átök sem eiga sér stað milli þeirra. Ég hef unnið að þessu verki á undanförnum þremur ár- um, en þetta efni hefur verið mér hugleikið mjög lengi. Verkið hefur tekið leikrænum breytingum á þessu tímabili, ég hef umskrifað það oft, en þráðurinn hefur haldið sér.“ — Er það eitthvað eitt öðru fremur sem þú ert að reyna að koma á framfæri í leikritinu? „Verkið skýrir sig sjálft. Það fjallar um það hvernig aðstæður við búum þessari konu og þeim mæðgum." — Nú ert þú fyrst og fremst ljóðahöfundur, þótt þú hafir skrif- að nokkur leikrit áður. Er það eitthvað ákveðið sem veldur því að þú velur þér þessi form fremur en önnur? „Bæði formin eru intím, náin. Minn stíll er sennilega knappur og ég held þess vegna að hann henti fremur við leikritagerð. Annars Iærði ég leiklist hjá Leiklistar- skóla Leikfélagsins á sínum tíma og þannig hefjast skrif mín fyrir leikhúsið. Mitt fyrsta leikrit skrif- aði ég árið eftir að ég lauk námi og það var leikið af Litla leikfélaginu, sem var stofnað af skólasystkin- um mínum hjá LR með aðstoð Sveins Einarssonar sem var leik- hússtjóri þar þá og skólastjóri. Þetta verk hét I SÚPUNNI og Pét- ur Einarsson setti það upp. Þetta Inga Bjarnason í hlutverki Hinnar konunnar. Ljósmynd Krístjin Einaraaon. Unga fólkió í leikritinu í hlutverkum sinum. Ljóamjndir Kristján Einnraaon. Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Bára Magnúsdóttir í hlutverkum msðgn- anna. Ljósmynd Kristján Einarsson. „Hún á svolítið erfítt í þessum harða heimi okkar“ Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikur aðalhlutverkið i SÚKKIJLAÐI HANDA SIIJU, leikur hlutverk móðurinnar Önnu í leikritinu. Morg- unblaðið hafði tal af Þórunni skömmu áður en ein af æfingum verksins hófst og var hún fyrst spurð um hvað henni fyndist um leikritið. Oskop vidkvæm og góð kona „Þetta er yndislegt leikrit og það er mjög gaman að leika í því.“ — Hvað geturðu sagt um þessa persónu sem þú leikur í leikritinu? „Nú seturðu mig í bobba, ég á svolítið erfitt með að lýsa þessari persónu, því að í rauninni er kannski persóna hennar aðalplott- ið í leikritinu. Þetta er ósköp við- kvæm og góð kona í sjálfu sér. Hún á svolítið erfitt í þessum Rætt við Þórunni Magneu Magnúsdóttur harða heimi okkar. Ég veit ekki hvort það borgar sig að útlista það neitt nánar, því sjón er sögu rík- ari. Ég held að fólk verði bara að sjá hana til að dæma hvernig persóna hún er.“ — Er þetta hlutverk svipað þeim hlutverkum sem þú hefur áð- ur leikið eða er það öðruvísi? „Það er að sumu leyti öðru vísi, en það sem ég hef fengist við áður. Ég er núna að leika í TVÍLEIK í Kjallaranum og þetta hlutverk er gjörólíkt því. Þetta er náttúrlega bara mannleg og eðlileg mann- eskja, en fólk er líka mjög mis- jafnt." — Hefur verið erfitt að ná tök- um á þessu hlutverki? „Nei, ég hef fengið mjög góða hjálp, þar sem eru bæði höfundur- inn og leikstjórinn, svo að þetta hefur gengið mjög vel og verið mjög ánægjulegt samstarf hjá okkur þarna í Kjallaranum, skemmtilegur leikhópur og allir verið mjög samhentir." Fjallar fyrst og fremst um manneskju — Nú er leikritið um mæðgur, höfundurinn er kona, leikstjóri og leikmyndateiknari eru konur og aðalhíutverkið er leikið af konu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.