Morgunblaðið - 30.12.1982, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
Málaferlum lokið 15 árum eftir Máiið kom_
bruna í Borgarskála Eimskips ir Hæstarétt
FYRIR skömmu féll dómur í Hæstarétti í máli, sem á rætur sínar að rekja allt
til ársins 1967. Tvívegis kom það fyrir Hæstarétt, en úrlausnaratriði voru ekki
hin sömu. Annars vegar úrlausn um bótaskyldu og hins vegar um upphæð
skaðabóta. Mun þetta eitt lengsta mál í dómsmálasögunni á íslandi. Um er að
ræða mál Gylfa Guðmundssonar gegn Eimskipafélagi íslands.
Málavextir eru þeir, að árið 1967 flutti Gylfi búferlum til íslands frá
Svíþjóð þar sem hann hafði verið búsettur um nokkurra ára skeið. Dettifoss,
skip Eimskipafélags íslands flutti búslóð hans frá Gautaborg til Reykjavíkur
og kom skipið til hafnar þann 30. ágúst 1967. Búslóð Gylfa var skipað upp
samdægurs. Hann vildi taka við búslóðinni við skipshiið og bauð fram trygg-
ingar til greiðslu á gjöldum en var synjað um það af tollayfirvöldum, þar sem
tollskoðun hafði ekki farið fram. Búslóðin var flutt í vörugeymslu Eimskips
við Borgartún, svonefndan Borgarskála.
Að kvöldi sama dags kom upp
eldur í Borgarskála og brann skál-
inn til kaldra kola. Gífurlegt tjón
varð og meðal muna sem eyðilögð-
ust í eldinum var búslóð Gylfa.
Hann mat tjón sitt þá á 578 þús-
und gkrónur og höfðaði mál fyrir
Bæjarþingi Reykjavíkur til
greiðslu á þeirri fjárhæð og fékk
hann gjafsókn í málinu. Raunar
komu upp mikil málaferli í kjölfar
brunans í Borgarskála og höfðuðu
ýmis fyrirtæki mál á hendur Eim-
skip, sem taldi sig ekki bótaskylt.
Stefnandi taldi Eimskip bóta-
skylt, félagið hefði tekið að sér
flutning varanna frá Gautaborg til
Reykjavíkur, án þess að nokkuð
henti vörurnar. Hann hefði verið
reiðbúinn til þess að fullnægja öll-
um skilmálum, bæði um greiðslu
farmgjalds og tolls, ef það mætti
verða til þess að taka við búslóð-
inni við skipshlið. Þá reisti hann
kröfur sínar á því, að orsakir brun-
ans í Borgarskála mætti rekja til
vangæzlu starfsmanna Eimskips
og félagið bæri ábyrgð samkvæmt
reglum skaðabótaréttar um hús-
bóndaábyrgð.
Sýknu byggði Eimskip á því, að
félagið hefði ekki bakað sér skaða-
bótaskyldu. Það sé meginregla, að
réttarsambandi farmflytjanda og
farmeiganda ljúki er vörurnar séu
komnar á áfangastað. Skipafélag
beri ábyrgð á meðan á flutningi
stendur — geymsluskylda hvíli
ekki á félaginu. Það þyki eðlilegt
að skipafélög taki að sér þá þjón-
ustu að hafa geymslurúm en þá
aðeins í skamman tíma. Raunar
kosti þessi þjónusta félagið stórfé.
Því beri félagið ekki ríkari skyldur
sem geymslumaður en leiði af
Jónsbók, þjófabálki 15, sem segi að
geymanda beri að hirða og varð-
veita geymsluhiuti á sama hátt og
eigin hluti, þá er hann vill vel
varðveita. Félagið fullyrti að þessu
ákvæði hefði á allan hátt verið
fullnægt.
Málsaðilar voru sammála um að
skipta málinu, þannig að fyrst yrði
úrskurðað um bótaskylduna sér-
staklega og var það samþykkt.
Þann 19. janúar 1973 féll dómur í
Bæjarþingi Reykjavíkur. Niður-
,
'VDI
seuvt , ,, 'nnheímt
<veB*ja slzz:™:- y """7
' * *ölarhrine. E„„ að s'6kllvi-
“ ■« -- ftv-kj" 17 Um v|d!“PPiok,
',0mt « l,k|ve« hi, mr, J'í ‘ <l V'rií ■* Bruna.
!r K,lk*« A .9 Þ.9 ,é vfir 7 M"r hir * landi „a I
ovist um tolla
I unbi.sa *«, w vi5
I *"'"«"»ar hí
i am .8 „ I Vm aldnjpptöhi
**ra- Hann Saæ«i I lað ennW,
[t**»pn..n„«,öfn. «»r,_ “m
- **etta ,
MnníéWr er 1 “«d-1
"TX1 .Í7f;;’lur‘>'í‘;»,,,| r""Tue ^*ft
Bréf frá Sviss
17. desembcr 1982.
Jólaundirbúningur stendur nú
sem hæst i hinum kristna heimi.
Gjafir, góður matur og grenitré eru
keypt og borin inn á heimilin svo
hægt verði aö njóta hátíðarinnar
með sem bestu móti. Götur og
búðagluggar eru skreytt fagurlega
og í Bern, höfuðborg Sviss, hefur
fyrsti snjórinn fallið og þekur nú
fjöllin og húsþökin og eykur á jóla-
stemmninguna. Allt er þetta gott
og blessað en þó vantar auðfínn-
anlega eitthvað á. Jólasveinar láta
vart sjá sig. Á meginlandi Evrópu
stinga þeir rétt inn nefínu á degi
Nikulásar helga, 6. desember, og
eru svo á bak og burt. Eftir sitja
silfurlitaðir englar og litla Jesú-
barnið. Góðmennskan, ró og friður
geislar af þeim en mikið væri
hressandi að sjá smettið á Glugga-
gægi eða heyra til ferða Hurða-
skellis og Grýla hefur aldrei gert
neitt verra af sér en hræða blessuð
börnin.
Kvikmyndin um geimálfinn
E.T. var frumsýnd í Sviss nokkr-
um dögum eftir að hún var fyrst
sýnd í París, London og Reykja-
vík. E.T. hlýtur að vinna hugi og
Hún seldi lauk um morguninn á
laukmarkaðnum en ætli hún hafí
ekki hent pappírssneplum framan
í fólk um eftirmiðdaginn?
Bráðum
koma blessuð
jólin...
hjörtu Svisslendinga eins og
annarra og verður væntanlega
jólamyndin í ár sem lengst situr
í fólki þó ekki væri nema vegna
þess að í miðjum jólamánuðin-
um kaus sameinað þing þjóðar-
innar tvo nýja ráðherra og ekki
er laust við að annar minni eilít-
ið á E.T. Hann heitir Eggli og er
sköllóttur, með stór eyru og gler-
augu sem flokksbræður hans
hafa þegar beðið hann að leggja
á hilluna í stað annarra smærri
af því að nú mun meiri athygli
beinast að honum en hingað til.
Hinn nýi ráðherrann heitir
Friedrich og minnir meira á
stork en E.T. Hann hefur starfað
mikið innan skátahreyfingarinn-
ar og samskátar hans kalla hann
reyndar Storkinn. Hann hefur
haft góðan tíma til að sinna
störfum innan hreyfingarinnar
þar sem hann er ekki fjölskyldu-
maður og er fyrsti piparsveinn
svissnesku ríkisstjórnarinnar í
100 ár.
Eggli og Friedrich þykja báðir
afar íhaldssamir og voru margir
þungir á brún morguninn sem
þingið kaus þá. Lýðræði er mikið
í Sviss og kosningar haldnar um
hverskyns hluti en kjósendur
hafa takmörkuð áhrif á hverjir
sitja í ríkisstjórn. Fjórir stærstu
flokkarnir skipta með sér ráð-
herraembættunum þannig að
Frjálslyndi flokkurinn hefur tvo
ráðherra, kristilegir demókratar
tvo, Jafnaðarmannaflokkurinn
tvo og Bændaflokkurinn einn.
Þingflokkarnir tilnefna menn í
embættin og þingheimur kýs þá
en það heyrir til undantekningar
ef tilnefndir menn eru ekki
kjörnir í fyrstu kosningu. Ríkis-
stjórnin vinnur saman og talar
einum rómi. Ráðherrarnir skipta
með sér embættum og skiptast á
um að gegna embætti forseta
eitt ár í senn. Sagt er að allir
ráðherrar vilji sitja svo lengi í
ríkisstjórninni að þeir fái að
gegna embætti forseta að
minnsta kosti einu sinni.
Skoðanir og stjórnmálaflokk-
ar skipta ekki einvörðungu máli
við val í ríkisstjórnina heldur
skiptir meginmáli hvaðan ráð-
herraefnin koma og hvaða
tungumál þau tala. Eggli og
Friedrich breyta ekki þessu
mynstri ríkisstjórnarinnar og
koma í stað flokksbræðra sinna
frá sömu fylkjum. Þeir eru báðir
þýskumælandi en Eggli er
kristilegur demókrati frá Luzern
og Friedrich er úr flokki frjáls-
lyndra í Zurich. Hann lét nokkuð
til sín taka þar þegar mikill
fjöldi ungmenna greip til mót-
mælaaðgerða í borginni fyrir
nokkrum árum og það kom til
átaka við lögregluna. Líklegt
þykir að Friedrich fái dóms-
málaráðuneytið til umráða í rík-
isstjórninni en þá verður víst
best að halda sér á mottunni og
hafa allt á hreinu.
Mikið vonleysi og óánægja
með lífið og tilveruna ríkir í hug-
um fjölda svissneskra ung-
menna. Kerfið þykir ómögulegt
og ekki nóg gert fyrir ungt fólk.
Veruleg uppþot hafa þó ekki orð-
ið í lengri tíma. Ungmennin ná
sér í staðinn niðri á borgara-
stéttinni með því að sprauta
málningu þar sem þeim dettur í
hug og skrifa kröfur sínar stór-
um stöfum á hvítmálaða veggi.
Ábyrgir borgarar hrista höfuðið
alvarlegir í bragði yfir þessu og
velta fyrir sér hvað hægt sé að
gera fyrir unga fólkið nú til
dags.
Svisslendingar yirðast yfir-
leitt mjög alvarlegir og þeir
ganga þungbúnir um göturnar,
jafnvel í jólamánuðinum sjálf-
um. Þeir eiga það þó til að sleppa
fram af sér beislinu. íbúar Bern
halda til dæmis svokallaðan
laukmarkað síðasta mánudaginn
í nóvember og skemmta sér kon-
unglega. Bændurnir frá héruð-
unum í kring selja lauk í kílóavís
á torginu fyrir framan þinghúsið
um morguninn en um eftirmið-
daginn gengur fólk á öllum aldri
um götur borgarinnar og hendir
litlum pappírssneplum hvert
framan í annað. Aðalsportið er
að hitta upp í einhvern hlæjandi
eða láta marglitum pappír rigna
yfir höfuð lögreglunnar. Daginn
eftir ríkir alvaran aftur í bænum
en þá er jólaskraut komið í
flesta glugga og lýsir upp svart-
asta skammdegið.
ab
Eggli og Friedrich skála eflir að þingið kaus þá ráðherra.