Morgunblaðið - 30.12.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
Líbanon mesta
fréttaefnið —
segir AP-fréttastofan um árið 1982
Ncw \ «rk, 29. deMcmber. Al*.
HERNAÐARÁTÖKIN í Líbanon og mannaskiptin í forystu Sovctríkjanna
voru efst í flokki þeirra tíu frétta, sem áskrifendur að fréttum AP-fréttastof-
unnar töidu þær mikilvægustu á árinu, sem senn er liðið.
Mjótt var á munura milli
tveggja efstu fréttanna, en fréttin
um innrás ísraelsmanna í Líbanon
í júní sl. ásamt með morðinu á
forseta landsins og síðan fjölda-
morðum þeim, sem framin voru á
Palestínumönnum, var í efsta sæti
á undan fréttinni um dauða
Leonid Brezhnevs og valdatöku
Yuri Andropovs, fyrrum yfir-
manns KGB, sem eftirmanns
hans.
Falklandseyjastríðið milli Arg-
entínu og Bretlands og innan-
landsástandið í Póllandi voru í
þriðja og fjórða sæti sem mikil-
vægustu fréttaefni ársins.
Einn fréttastjóri, Kushhwant
Singh við blaðið Hindustan Times,
lét svo um mælt, að fjöldamorðin í
Beirút „leiddu í ljós þá svivirðu og
hatur, sem ríkti í heiminum og
getuleysið við að koma í veg fyrir
slíkan harmleik". Aðrir frétta-
stjórar brugðust öðru vísi við
gagnvart skoðanakönnuninni og
greiddu atkvæði eingöngu eftir
fréttamati. Sumir þeirra töldu
dauða Grace prinsessu og heims-
meistarakeppnina í knattspyrnu
sem mestu fréttaviðburði ársins.
í Lissabon var það mat frétta-
stofunnar Noticias de Portugal, að
mannaskiptin í Sovétríkjunum
væru mesti fréttaviðburðurinn,
sökum þess að valdataka Andro-
povs væri fyrirboði mikilvægra
breytinga þar.
Skoðanakönnunin fór fram hjá
blöðum, fréttastofum og út-
varpsstofnunum utan Bandaríkj-
anna, sem fá fréttir frá AP. I sams
konar skoðanakönnun í Banda-
ríkjunum kusu fréttamenn efna-
hagsástandið þar í landi sem
mesta fréttaefni ársins.
Sakleysinu haldið fram
Nvlega gekkst búlgarska stjórnin fyrir blaðamannafundi í höfuðborginni Sofiu í tilefni af því að ítalska lögreglan
telur sig hafa sannanir fyrir því að búlgarska leyniþjónustan sé viðriðin tilræðið við Pál páfa. Búlgarir hafa alfarið
neitað ásökunum ftala og kom það glöggt fram á fundinum að engan bilbug er að finna á þeim málflutningi Búlgara.
Fremst á meðfylgjandi símamynd AP eru frá vinstri, Theodor Ayvazov, fyrrum gjaldkeri búlgarska sendiráðsins í
Róm, en hann er sagður hafa verið grár fyrir járnum á Péturstorginu er tilræðið fór fram, Rosica Antonova, eiginkona
Sergei Ivanov Antonov, sem er í haldi í Róm og Vassilev Kolve, yfirmaður úr sendiráðinu í Róm.
Árlegt þing stjörnuspámanna:
Spá tveimur meirihátt-
ar stríðum árið 1983
Mílanó, 29. des. Al*.
STJÖRNUSPÁMENN víða að, einkum þó frá Vestur-Þýskalandi, Bret-
landi og Ítalíu, komu saman fimmta árið í röð í Campione D’Italía og
báru saman bækur sínar um hvað árið 1983 myndi bera í skauti sér.
Ekkert varð úr heimsendinum sem spáð var 13. nóvember á þessu ári, en
eftir því sem umræddur spámannaflokkur segir, verða jarðarbúar að búa
sig undir ýmsar þrengingar og fleira ógeðfellt á nýja árinu.
Flestir voru spámennirnir
sammála um að ekkert lát yrði á
efnahagslegu kreppunni sem
farið hefur vaxandi. Einkum
mun kreppan halda áfram í
iðnvæddu ríkjunum, svo og í
þróunarlöndunum. Þeir spá líka
furðu margir miklum jarð-
skjálftum í Mexíkó, á Ítalíu og í
Júgóslavíu. Jarðfræðingar geta
frætt fólk um það, að umrædd
lönd eru öll á virkum jarð-
skjálftabeltum.
Einn spámannanna, franska
konan Regine Ruet, spáir að
bjartir tímar séu framundan eft-
ir nokkur erfið ár, hún segir að
jarðarbúar verði að herða ólarn-
ar á næsta ári og færa ýmsar
fórnir til þess að ástandið megi
batna.
Þeir sem aðhyllast spámann-
inn nafntogaða Nostradamus,
sem uppi var í Frakklandi á 16.
öld eru uppfullir svartsýni, enda
þóttu spádómar Nostradamusar
yfirleitt hinir hvimleiðustu og
svartsýnustu. Jean Charles De
Fontbrune, franskur spámað-
ur/ rithöfundur, sem bjó til
prentunar hin illskiljanlegu rit-
verk Nostradamusar, „Aldirnar"
og gerði úr bók, spáir tveimur
meiriháttar stríðum. Annað
þeirra verður milli Egypta ann-
ars vegar og einhvers banda-
manns Rússa hins vegar. Hallast
De Fontbrune að því að það verði
Líbýa. Hitt stríðið verður milli
V-Þjóðverja annars vegar og
einhvers Austur-Evrópulands
hins vegar.
Þá voru spámennirnir allir
sammála um að nýja árið yrði
ekki gott frá sjónarhóli eldri
stjórnmálamanna og leikara.
Þetta þyrfti ekki endilega að
þýða að þeir myndu margir and-
ast á árinu, heldur frekar að völd
og vinsældir myndu þverra í
stórum stíl.
Einn spáði því að Bandaríkja-
dollar myndi falla gagnvart ít-
ölskum gjaldmiðli um 12 pró-
sent, en annar vék að páfa og
spáði því að hann myndi á árinu
heimsækja heimaland sitt, Pól-
land.
Loks má geta þess, að margir
spámannanna voru sammála um
að lyf gegn krabbameini og
hjartasjúkdómum myndu líta
dagsins ljós á nýja árinu. Þeir
vöruðu einnig flestir við því að
nýr þáttur í kjarnarannsóknum
myndi opna möguleika fyrir
framleiðslu á nýjum og hrylli-
legum kjarnorkuvopnum.
Ný tegund interferons
sem Japanir framleiða
Tókýó, 29. descmher Al*.
TORAY-lyfjafyrirtækið í Japan hefur
sótt um leyfi hjá heilbrigðismálaráðu-
neyti landsins til þess að fá að fram-
leiða sérstaka tegund af lyfinu inter-
feron, sem notað er gegn krabba-
meini, og nefnist þessi tegund lyfsins
interferonbeta. Er það í fyrsta sinni,
sem sótt er um heimild til stjórnvalda
í einu landi til framleiðslu á þessari
tegund lyfsins. Það interferon, sem
Toray framleiðir, er talið árangursríkt
gegn heilaæxlum, krabbameini í húð
og fleiri tegundum krabbameins. Er
lyfi þessu sprautað í líkamann og er
gert ráð fyrir því, að framleiðsla á
lyfinu til sölu á almennum markaði
hefjist innan tveggja ára.
í tilraunum, sem fram hafa farið
með þetta lyf, hafa heilaæxli
minnkað um meira en helming í 25
— 30% tilfella og illkynjuð æxli í
húð horfið algerlega í 75% tilfella
eftir notkun á lyfinu. Hins vegar
hafa tilraunir með þá tegund int-
erferons, sem Toray-fyrirtækið
framleiðir, ekki borið neinn árang-
ur enn gegn öðrum tegundum
krabbameins.
Interferon, sem verður til í litlu
magni í mannslíkamanum, dró að
sér athygli heimsins á síðasta ára-
tug, sem gagnverkandi lyf við
krabbameini. Með aukinni þekk-
ingu á starfsemi genanna í frumum
mannslíkamans hafa vísindamenn
gert sér vonir um að geta framleitt
interferon í miklu magni í því skyni
að nota það gegn krabbameini.
í Bandaríkjunum hefur interfer-
on verið árangursríkt í meðferð
krabbameinssjúkdóma í 7 af hverj-
um 16 tilfellum, þar sem sjúkdóm-
urinn var kominn á hátt stig. Til-
raunir með lyfið í Bretlandi benda
hins vegar til þess, að það komi ekki
að gagni gegn krabbameini í lung-
um. Eru og mjög skiptar skoðanir á
meðal vísindamanna margra þjóða
um gagnsemi lyfsins gegn lungna-
krabba.
Enn mannskaðaveð-
ur í Bandaríkjunum
New Vork, 29. de-s. AP.
Enn geisa mikil óveður í Bandaríkjunum og í gær var blindhríð og mann-
skaðaveður í miðvesturríkjunum og rosaleg vatnsveður sums staðar í suðurríkj-
unum.
Óveðurslotan hefur staðið yfir
frá jólum og í gær féll 46 senti-
metra jafnfallinn snjór í Iowa,
Michigan, Wisconsin, Illinois,
Kansas og Nebraska. Víða fór
rafmagn af húsum í ríkjum þessum
og þegar mest var, bjuggu 100.000
manns við rafmagnsleysi. Vitað er
um 25 dauðsföll í kjölfarið á óveð-
urshrinunni, flestir hafa dáið í um-
ferðarslysum, sem eiga rætur að
rekja til skilyrðanna. Vindhraðinn
hefur náð allt að 80 kílómetrum á
klukkustund.
Það var víðar óveður en í mið-
vesturríkjunum. I Minnesota var
afar vont veður vegna nýjustu
lægðarinnar, yfirvöld þar sögðu
óveðrið það fjórða versta í sögu
Minnesota. í Minneapolis og St.
Paul, stærstu borgum Minnesota,
var varla nokkur maður á ferli og
flugvellinum var lokað í fyrsta
skipti í 25 ár.
Flóðin i Missisippi og Louisiana
eru síður en svo í rénum og þúsund-
ir manna hafa verið fluttar af
heimilum sínum vegna vatnavaxt-
anna. í gær bættust 14 héruð við
hinn fyrri álitlega fjölda þar sem
neyðarástandi hefur verið lýst yfir.
Urkoman er að mestu hætt þar syð-
ra, en vatnavextirnir hafa engu að
síður víða haldið áfram.
Framleiða raforku
með kjarnasamruna
riainsboro. New Jerscy, 29. descmber. Al*.
VÍSINDAMENN við Princeton-háskólann í Bandaríkjunum hafa skýrt svo frá, að
þcir muni í apríl nk. hcfja reglubundnar tilraunir með framleiðslu á orku með
kjarnasamruna, en þeir hafa fyrir skemmstu lokið smíði fyrsta kjarnaofnsins fyrir
samruna á efniskjörnum. Teíja vísindamennirnir, að þcir muni að lokum geta
framleitt samkeppnishæfa raforku með kjarnasamruna, en það verði þó varla fyrr
en í kringum áriö 2020.
Kjarnasamruni á sér s - • með því
að fá léttar frumeindir til þess að
renna saman í aðrar þyngri og með
því móti fæst fram orka. Þessi að-
ferð er andstæðan við kjarnaklofn-
ingu, þar sem þungar úraníum-
frumeindir eru klofnar til þess að fá
þannig fram léttari frumeindir og
um leið aragrúa af minni orkueind-
um. Er þetta sú aðferð, sem nú er
notuð hjá kjarnorkuverum, er fram-
leiða raforku.
Samrunaofninn í Princeton var
látinn starfa í fyrsta sinn sl. föstu-
dag og þá aðeins í 50 millisekúndur,
sem er ekki nema augnablik. Engin
umtalsverð orka var framleidd í
þessari fyrstu tilraun, en Harold P.
Furth, yfirmaður þeirrar deildar
Princeton-háskóla, sem annast þess-
ar rannsóknir, lýsti henni samt sem
einstökum atburði í þessari vísinda-
grein. Bandaríska orkumálaráðu-
neytið hefur veitt 314 millj. dollara
fjárhæð til smíði á samrunaofninum
og er markmið þessara tilrauna að
skapa varanlegan kjarnasamruna,
sem myndi leysa úr læðingi gífurleg-
an hita. Þessi hiti yrði síðan notaður
til þess að framleiða gufu, er látin
yrði knýja hreyfla, sem svo aftur
framleiddu raforku.
Koo var hátíðargest-
ur 1 Buckinghamhöll
London, 29. des. Al*.
Enn eru þau Koo Stark og Andrew prins að draga sig saman og breska
blaðið Daily Mail gat þess í gær, að ungfrú Stark hafi verið i hópi jólagest-
anna í Buckingham-höllinni um hátiðirnar. Blaðið hafði fréttina frá bygg-
ingamönnum sem voru að vinna skammt frá höllinni og sáu Koo laumast
inn. Talsmenn krúnunnar hafa ekki tjáð sig um sannleiksgildi fréttarinnar.
Daily Mail getur þess einnig að að versla í sömu búð, bar kennsl á
Koo, og rabbaði við hana, að þau
ætluðu saman í frí. Fyrir þessari
ókunnu konu játaði Koo svo ást
sína á Andrew, jafnframt því sem
hún bætti við að prinsinn elskaði
sig afar heitt.
þau Andrew og Koo hafi í hyggju
að taka sér vetrarfrí saman á
næstunni. Til Koo sást í verslun-
arleiðangri í Kensington High
Street nýlega og þar keypti hún
m.a. skíðagalla einn fullkominn.
Blaðið hafði eftir konu, sem var
Koo Stark, hin umdeikla vinstúlka Andrew prina.