Morgunblaðið - 30.12.1982, Page 27

Morgunblaðið - 30.12.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982 27 Afmæliskveðja: Guðni Agústsson bóndi Sæbóli III „í september fer songfugl og sumardýrAin þver" segir í vísunni. September er mán- uður fölnandi grasa og söngfuglar hópast og undirbúa suðurför. Oft getur hann átt sólheita daga og lognkyrr kvöld, með lóukvaki úti í túnfæti alstirndan næturhimin og skyggðan mána yfir suðurfjöllum. Þetta á ekki við þann september sem nú er rúmlega hálfnaður á því herrans ári 1982. Svartir skýja- flókar sigla hraðbyri um loftið. Daglega él til fjalla og stundum í byggð, veðurgnýr í fjöllum og dig- ur úthafsaldan byltist við útnes og bláan sand. Tregaþrungin eftirsjá sækir á hugann er við lítum til baka til Ijósra vordaga og langra sólnátta en finnum nú haustið fara að með „dökkvara vængja sýn“. Það liggur við að að manni læðist sá grunur að veðurguðirnir hafi einhvern tíman í sumar rifið of mikið af dagatalinu hjá sér. En eitt er það sem aldrei bregst í september hvernig sem viðrar, það eru göngur og réttir, þær eru allt- af á sínum stað með vissan ljóma frá löngu liðnum dögum frá því að við vorum börn. Og ennþá er ótrúleg birta í minningunni sem fylgt hefur okkur alla leið í gegn- um árin. Og það er jafn árvisst að hann Guðni á afmæli í september og oft á gangnadaginn eða öðru hvoru meginn við hann. Og á þessu hreggbarða hausti er hann búinn að dóla með okkur í göngum og fleiru í sextíu ár. Guðni Agústsson bóndi og skipasmiður með fleiru er fæddur að Sæbóli 20. september 1922 og þar hefur hann átt heima æ síðan. Búa þau nú systkinin þrjú félags- búi á föðurleifð sinni. Gjörða hönd hefur Guðni lagt á margt um dag- ana. Ýtustjóri hefur hann verið í áratugi og gerir nú út ýtu í vega- gerð með granna sínum. Járn- smíði hvers konar hefur hann stundað, vélaviðgerðir, húsasmíði, þúsund þjalasmiður í orðsins fyllstu merkingu. Síðast en ekki síst hefur hann stundað skipa- smíðar í ígripum um árabil. Nokkra smærri báta hefur hann smíðað frá fyrstu gerð og allir reynst með miklum ágætum. Auk þess hefur hann teiknað þá og fengið þær teikningar samþykktar á viðkomandi stöðum. Einn slíkan bát sendi hann frá sér í sumar, fagurt fley sem ber meistara sín- um fagurt vitni um mikið hugvit og frábært handbragð. Ekki hefur Guðni slitið skólabekkjunum til að læra þessa hluti, sjálfsnámið hef- Pennavinur Frá Bandaríkjunum skrifar 16 ára piltur sem vill komast í bréfa- samband við íslenzka stúlku. Meðal áhugamála eru sund, tónlist, bréfa- skriftir og frímerkjasöfnun. Með- fylgjandi er mynd af pilti. Leif M. Hagen, 404 Virginia Drive, Stevens l’oint, WI 54481, l!SA. ur honum dugað ásamt ágætum meðfæddum hæfileikum. Við sveitungar hans og margir margir fleiri, höfum oft notið góðs af hans högu höndum og fádæma hjálp- fýsi. Bóngreiðari mann er ekki hægt að hugsa sér og ég held að enginn hafi gengið af hans fundi án þess að fá fyrir greiðslu. Annað mál er það að reikningar fyrir veitta hjálp og unnin störf berast oft seint og í flestum tilfellum sjá aldrei dagsins ljós. Guðni er vina- margur, glaður og hlýr á góðri stund í hópi vina og kunningja, félagsmálamaður ágætur og lætur ekkert það mál sem til heilla horf- ir framhjá sér fara án þess að leggja því lið. Með slíkum mönnum er gott að vera og þess minnast nú vinir og kunningjar með því að senda honum hlýjar óskir og kveðjur á merkum tíma- mótum í ævi hans. Eins og fyrr er getið búa þau systkinin þrjú félagsbúi á Sæbóli, Guðmundur og Steinunn ásamt Guðna ágætu búi. Þar er um- gengni öll eins og best sést á bændabýlum á íslandi í dag, enda eitt af verðlaunabýlum Búnaðar- sambands Vestfjarða. Þó segja megi að Guðmundur og Steinunn séu máttarstólpar búsins í dagsins önn, vegna margvíslegra starfa sem hlaðist hafa á Guðna óskyld búskapnum er hann liðtækur í besta lagi, þegar heim er komið og fer þá gjarnan hamförum með hamar og sög, að sinna kvabbi nágrannans. Systkinin eru sam- hent í besta lagi um allan hag heimilisins utan stokks og innan. Þegar talað er um Sæbólsheimilið í dag, verður ekki hjá því komist að minnast á fjórða systkinið, Jónínu á Flateyri, og mann henn- ar Pétur Þorkelsson ættaðan úr Reykjavík. Svo margan sólargeisl- ann hefur hún sent að Sæbóli til systkina sinna með börnum sín- um. Jónína á sex börn. Fallegt ungt fólk sem hlaut manndóminn í vöKKUKjöf og skyldur við lífið og starfið greypt í hug og hjarta og tryKRÖ til þeirra sem alið hafa þau og annast og unna þeim nú heitast af fölskvalausum hug. Þrjú þau elstu hafa að mestu leyti alist upp á Sæbóli, stór er hlutur Jónínu í lífsfyllingu systkina sinna. Þessi börn eru alin upp í svo miklu ást- ríki hjá þessu ágæta frændfólki sínu, að ekki verður á betra kosið, enda ætla þau að gjalda fóstur- launin fagurlega með tryggð sinni við heimilið og allri hjálp, með fórnfúsum vilja hvenær sem á þarf að halda. Guðrún sem elst og ber nafn ömmunnar sem var á heimilinu meðan árin entust, er búsett á Flateyri, gift Einari Guð- bjartssyni og eiga þau tvo sonu sem eru aufúsu gestir á Sæbóli og Elisabet og Ágúst sem bera nöfn foreldra þeirra systkinanna og eru nú viðloðandi foreldrahús síðan þau fullorðnuðust. Ekki má gleyma henni Kristínu litlu, sex ára bjarthærðri mey dóttur Elísa- betar, sem verið hefur hjá frænd- fólki sínu frá fæðingu, augasteinn allra og yndi á heimilinu. Foreldrar þeirra Sæbólssystk- ina eru þau Ágúst Guðmundsson og Elísabet Guðnadóttir. Þau bjuggu allan sinn búskap á Sæ- bóli, þeim búnaðist vel enda dugn- aðar og eljufólk, sem aldrei féll verk úr hendi, sómi sinnar stéttar og áttu virðingu allra sem til þekktu. Dugnaður og áræði Ág- ústs var mjög á orði haft, hvort sem hann þreytti fangbrögð við lítt kleif fjöll eða reiðan sjó. Hann sá marga ölduna rísa í brimlend- ingu við Sæbólssjó. Hann háði marga hidli við Barðann í smala- mennsku á hausti og vetri. í Nes- dal átti hann marga ferð. Fáum stöðum unni hann meir. Var það táknrænt og vel til fundið er þau systkinin gáfu slysavarnaskýli sem þeir bræður smíðuðu og stendur á Bökkunum í Nesdal og heitir Gústabúð. Þar sat hann margt vorkvöldið og sá hnígandi sól leggja gullþiljur yfir gjöful fiskimiðin undir Barða. Einnig var hann þar staddur þreyttur, blaut- ur og svangur leiksoppur trylltra náttúruafla í grimmúðugri skammdegishríð, ógleymanlegur maður Ágúst. Allra manna glað- astur á góðri stund. Hugrakkur, hjálpfús, dagfarsprúður og dreng- ur hinn besti. Hann er látinn fyrir 19 árum. Elísabet hefur búið á Sæbóli með börnum sínum síðan Ágúst dó en hefur nú dvalið á sjúkrahúsi á annað ár, farin að heilsu og kröftum 88 ára gömul. Hún missti föður sinn barn að aldri og stóð þá móðirin uppi með fimm börn á bernskuskeiði. Bak við þá atburði er harmsaga þeirra tíma sem ekki verður sögð hér. Ung að árum fluttist hún að Miðjanesi í Reykjólasveit og ólst þar upp til manndómsára. Fáum stöðum unni hún heitar en sinni fóstursveit og mætti segja að kvæðið „Barmahlíð" væri hennar þjóðsöngur. Kaupakona kom hún að Sæbóli til Ágústs og var þar ekki tjaldað til einnar nætur. Þegar Elísabet kom að Sæbóli átti hún hryssu sem hún nefndi Freyju, með henni var hestfolald sem Víkingur hét. Þessi hross voru gersemi að allri gerð. Elísabet var frábær hesta- kona, dugleg og áræðin. Minnist ég þess ungur drengur er ég sá hana sitjandi í söðli og leggja þessa gæðinga á fleygivökru skeiði á vegaleysum þeirra tíma og í sumar er ég kom á sjúkrahúsið á ísafirði til hennar, taldi hún sig vel geta farið ríðandi heim, ef hún Freyja sín og hann Víkingur væru bundin hér við hestasteininn úti. Með hestelskum huga minntist hún þessara horfnu vina sinna þótt margt annað nýrra væri orðið fölskvað í minningunni. Á þessum heiðursdegi Guðna og fjölskyldunnar á Sæbóli þakka ég bjartar minningar og skuggalausa samfylgd í gegnum árin, frá því við vorum börn. Kristján Guðmundsson, Brekku. Cö PIOMEER x-noo HI-FI SYSTEM 3ia ára ábvrcið Eins og þú sérð hana.. ÁlfhóH, Sigluflrði — Eyjabær. Vestmannaeyjum — Ennco, Neskaup- stað — Fataval, Keflavík — Hornabær, Hornaflröi — KF Rangæinga, Hvolsvelli — KF Borgfiröinga. Borgarnesi — MM, Selfossi — Portiö, Akranesi — Patróna. Patreksfiröi — Paloma. Vopnaflröl — Rögg' Akureyri — Radióver, Húsavik — Skogar, Egilsstööum — Sig. Pálma- son, Hvammstanga — Stálbúðin, Seyöisfiröl — Seria, Isafiröl _ CÍPHNvrtn HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 17244

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.