Morgunblaðið - 30.12.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
27
Afmæliskveðja:
Guðni Agústsson
bóndi Sæbóli III
„í september fer songfugl
og sumardýrAin þver"
segir í vísunni. September er mán-
uður fölnandi grasa og söngfuglar
hópast og undirbúa suðurför. Oft
getur hann átt sólheita daga og
lognkyrr kvöld, með lóukvaki úti í
túnfæti alstirndan næturhimin og
skyggðan mána yfir suðurfjöllum.
Þetta á ekki við þann september
sem nú er rúmlega hálfnaður á því
herrans ári 1982. Svartir skýja-
flókar sigla hraðbyri um loftið.
Daglega él til fjalla og stundum í
byggð, veðurgnýr í fjöllum og dig-
ur úthafsaldan byltist við útnes og
bláan sand. Tregaþrungin eftirsjá
sækir á hugann er við lítum til
baka til Ijósra vordaga og langra
sólnátta en finnum nú haustið
fara að með „dökkvara vængja
sýn“. Það liggur við að að manni
læðist sá grunur að veðurguðirnir
hafi einhvern tíman í sumar rifið
of mikið af dagatalinu hjá sér. En
eitt er það sem aldrei bregst í
september hvernig sem viðrar, það
eru göngur og réttir, þær eru allt-
af á sínum stað með vissan ljóma
frá löngu liðnum dögum frá því að
við vorum börn. Og ennþá er
ótrúleg birta í minningunni sem
fylgt hefur okkur alla leið í gegn-
um árin. Og það er jafn árvisst að
hann Guðni á afmæli í september
og oft á gangnadaginn eða öðru
hvoru meginn við hann. Og á
þessu hreggbarða hausti er hann
búinn að dóla með okkur í göngum
og fleiru í sextíu ár.
Guðni Agústsson bóndi og
skipasmiður með fleiru er fæddur
að Sæbóli 20. september 1922 og
þar hefur hann átt heima æ síðan.
Búa þau nú systkinin þrjú félags-
búi á föðurleifð sinni. Gjörða hönd
hefur Guðni lagt á margt um dag-
ana. Ýtustjóri hefur hann verið í
áratugi og gerir nú út ýtu í vega-
gerð með granna sínum. Járn-
smíði hvers konar hefur hann
stundað, vélaviðgerðir, húsasmíði,
þúsund þjalasmiður í orðsins
fyllstu merkingu. Síðast en ekki
síst hefur hann stundað skipa-
smíðar í ígripum um árabil.
Nokkra smærri báta hefur hann
smíðað frá fyrstu gerð og allir
reynst með miklum ágætum. Auk
þess hefur hann teiknað þá og
fengið þær teikningar samþykktar
á viðkomandi stöðum. Einn slíkan
bát sendi hann frá sér í sumar,
fagurt fley sem ber meistara sín-
um fagurt vitni um mikið hugvit
og frábært handbragð. Ekki hefur
Guðni slitið skólabekkjunum til að
læra þessa hluti, sjálfsnámið hef-
Pennavinur
Frá Bandaríkjunum skrifar 16 ára
piltur sem vill komast í bréfa-
samband við íslenzka stúlku. Meðal
áhugamála eru sund, tónlist, bréfa-
skriftir og frímerkjasöfnun. Með-
fylgjandi er mynd af pilti.
Leif M. Hagen,
404 Virginia Drive,
Stevens l’oint,
WI 54481,
l!SA.
ur honum dugað ásamt ágætum
meðfæddum hæfileikum. Við
sveitungar hans og margir margir
fleiri, höfum oft notið góðs af hans
högu höndum og fádæma hjálp-
fýsi. Bóngreiðari mann er ekki
hægt að hugsa sér og ég held að
enginn hafi gengið af hans fundi
án þess að fá fyrir greiðslu. Annað
mál er það að reikningar fyrir
veitta hjálp og unnin störf berast
oft seint og í flestum tilfellum sjá
aldrei dagsins ljós. Guðni er vina-
margur, glaður og hlýr á góðri
stund í hópi vina og kunningja,
félagsmálamaður ágætur og lætur
ekkert það mál sem til heilla horf-
ir framhjá sér fara án þess að
leggja því lið. Með slíkum
mönnum er gott að vera og þess
minnast nú vinir og kunningjar
með því að senda honum hlýjar
óskir og kveðjur á merkum tíma-
mótum í ævi hans.
Eins og fyrr er getið búa þau
systkinin þrjú félagsbúi á Sæbóli,
Guðmundur og Steinunn ásamt
Guðna ágætu búi. Þar er um-
gengni öll eins og best sést á
bændabýlum á íslandi í dag, enda
eitt af verðlaunabýlum Búnaðar-
sambands Vestfjarða. Þó segja
megi að Guðmundur og Steinunn
séu máttarstólpar búsins í dagsins
önn, vegna margvíslegra starfa
sem hlaðist hafa á Guðna óskyld
búskapnum er hann liðtækur í
besta lagi, þegar heim er komið og
fer þá gjarnan hamförum með
hamar og sög, að sinna kvabbi
nágrannans. Systkinin eru sam-
hent í besta lagi um allan hag
heimilisins utan stokks og innan.
Þegar talað er um Sæbólsheimilið
í dag, verður ekki hjá því komist
að minnast á fjórða systkinið,
Jónínu á Flateyri, og mann henn-
ar Pétur Þorkelsson ættaðan úr
Reykjavík. Svo margan sólargeisl-
ann hefur hún sent að Sæbóli til
systkina sinna með börnum sín-
um. Jónína á sex börn. Fallegt
ungt fólk sem hlaut manndóminn í
vöKKUKjöf og skyldur við lífið og
starfið greypt í hug og hjarta og
tryKRÖ til þeirra sem alið hafa þau
og annast og unna þeim nú heitast
af fölskvalausum hug. Þrjú þau
elstu hafa að mestu leyti alist upp
á Sæbóli, stór er hlutur Jónínu í
lífsfyllingu systkina sinna. Þessi
börn eru alin upp í svo miklu ást-
ríki hjá þessu ágæta frændfólki
sínu, að ekki verður á betra kosið,
enda ætla þau að gjalda fóstur-
launin fagurlega með tryggð sinni
við heimilið og allri hjálp, með
fórnfúsum vilja hvenær sem á
þarf að halda. Guðrún sem elst og
ber nafn ömmunnar sem var á
heimilinu meðan árin entust, er
búsett á Flateyri, gift Einari Guð-
bjartssyni og eiga þau tvo sonu
sem eru aufúsu gestir á Sæbóli og
Elisabet og Ágúst sem bera nöfn
foreldra þeirra systkinanna og eru
nú viðloðandi foreldrahús síðan
þau fullorðnuðust. Ekki má
gleyma henni Kristínu litlu, sex
ára bjarthærðri mey dóttur Elísa-
betar, sem verið hefur hjá frænd-
fólki sínu frá fæðingu, augasteinn
allra og yndi á heimilinu.
Foreldrar þeirra Sæbólssystk-
ina eru þau Ágúst Guðmundsson
og Elísabet Guðnadóttir. Þau
bjuggu allan sinn búskap á Sæ-
bóli, þeim búnaðist vel enda dugn-
aðar og eljufólk, sem aldrei féll
verk úr hendi, sómi sinnar stéttar
og áttu virðingu allra sem til
þekktu. Dugnaður og áræði Ág-
ústs var mjög á orði haft, hvort
sem hann þreytti fangbrögð við
lítt kleif fjöll eða reiðan sjó. Hann
sá marga ölduna rísa í brimlend-
ingu við Sæbólssjó. Hann háði
marga hidli við Barðann í smala-
mennsku á hausti og vetri. í Nes-
dal átti hann marga ferð. Fáum
stöðum unni hann meir. Var það
táknrænt og vel til fundið er þau
systkinin gáfu slysavarnaskýli
sem þeir bræður smíðuðu og
stendur á Bökkunum í Nesdal og
heitir Gústabúð. Þar sat hann
margt vorkvöldið og sá hnígandi
sól leggja gullþiljur yfir gjöful
fiskimiðin undir Barða. Einnig var
hann þar staddur þreyttur, blaut-
ur og svangur leiksoppur trylltra
náttúruafla í grimmúðugri
skammdegishríð, ógleymanlegur
maður Ágúst. Allra manna glað-
astur á góðri stund. Hugrakkur,
hjálpfús, dagfarsprúður og dreng-
ur hinn besti. Hann er látinn fyrir
19 árum. Elísabet hefur búið á
Sæbóli með börnum sínum síðan
Ágúst dó en hefur nú dvalið á
sjúkrahúsi á annað ár, farin að
heilsu og kröftum 88 ára gömul.
Hún missti föður sinn barn að
aldri og stóð þá móðirin uppi með
fimm börn á bernskuskeiði. Bak
við þá atburði er harmsaga þeirra
tíma sem ekki verður sögð hér.
Ung að árum fluttist hún að
Miðjanesi í Reykjólasveit og ólst
þar upp til manndómsára. Fáum
stöðum unni hún heitar en sinni
fóstursveit og mætti segja að
kvæðið „Barmahlíð" væri hennar
þjóðsöngur.
Kaupakona kom hún að Sæbóli
til Ágústs og var þar ekki tjaldað
til einnar nætur. Þegar Elísabet
kom að Sæbóli átti hún hryssu
sem hún nefndi Freyju, með henni
var hestfolald sem Víkingur hét.
Þessi hross voru gersemi að allri
gerð. Elísabet var frábær hesta-
kona, dugleg og áræðin. Minnist
ég þess ungur drengur er ég sá
hana sitjandi í söðli og leggja
þessa gæðinga á fleygivökru skeiði
á vegaleysum þeirra tíma og í
sumar er ég kom á sjúkrahúsið á
ísafirði til hennar, taldi hún sig
vel geta farið ríðandi heim, ef hún
Freyja sín og hann Víkingur væru
bundin hér við hestasteininn úti.
Með hestelskum huga minntist
hún þessara horfnu vina sinna
þótt margt annað nýrra væri orðið
fölskvað í minningunni.
Á þessum heiðursdegi Guðna og
fjölskyldunnar á Sæbóli þakka ég
bjartar minningar og skuggalausa
samfylgd í gegnum árin, frá því
við vorum börn.
Kristján Guðmundsson,
Brekku.
Cö PIOMEER
x-noo
HI-FI SYSTEM
3ia ára ábvrcið
Eins og þú
sérð hana..
ÁlfhóH, Sigluflrði — Eyjabær. Vestmannaeyjum — Ennco, Neskaup-
stað — Fataval, Keflavík — Hornabær, Hornaflröi — KF Rangæinga,
Hvolsvelli — KF Borgfiröinga. Borgarnesi — MM, Selfossi — Portiö,
Akranesi — Patróna. Patreksfiröi — Paloma. Vopnaflröl — Rögg'
Akureyri — Radióver, Húsavik — Skogar, Egilsstööum — Sig. Pálma-
son, Hvammstanga — Stálbúðin, Seyöisfiröl — Seria, Isafiröl
_ CÍPHNvrtn
HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999
17244