Morgunblaðið - 07.01.1983, Side 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakiö.
Vörum okkur
á veðurguðunum
Veðurguðirnir hafa ekki
verið okkur mildir fyrstu
daga nýja ársins, að minnsta
kosti ekki hér á höfuðborg-
arsvæðinu, en óveðursfréttir
héðan hafa svo sannarlega
sett svip sinn á þjóðlífið allt
undanfarna sólarhringa. Frá
alda öðli hafa íslendingar orð-
ið að laga sig að náttúrunni í
blíðu og stríðu. Vegna þéttbýl-
is, ofurtrúar á véltæknin'a og
trausts á að aðrir komi manni
til hjálpar bregðast margir nú
þannig við ofsa veðurguðanna,
að þeir sýnast gera í því að
ögra þeim með því að leggja í
hann án nægiiegs búnaðar. Og
svo sannarlega hafa lögregl-
umenn og félagar í björgun-
arsveitum haft nóg að gera
undanfarna sólarhringa við að
bjarga fólki og aðstoða þá sem
stöðvast hafa í ófærðinni.
Ekki síður skal þeirra getið
sem í starfi fyrir borg og bæj-
arfélög etja kapps við snjó-
komu og skafrenning — hin
kviku gulu leifturljós snjó-
moksturstækja hafa sést um
borgina þvera og endilanga
nótt sem nýtan dag og eiga
stjórnendur þeirra svo sann-
arlega þakkir skildar. Öku-
menn strætisvagna og leigu-
bifreiða leggja metnað sinn í
að gefast ekki upp fyrr en í
fulla hnefana án þess þó að
stofna öryggi nokkurs í hættu.
Þeir sem mestum vandræðum
valda og trufla samgöngur eru
þeir sem halda af stað van-
búnir og án aðgæslu.
Á sínum tíma var talað um
fjölmiðlagos í Heklu vegna
þess hve fyrirgangurinn varð
mikill á öldum ljósvakans,
þegar eldfjallið fræga lét í sér
heyra. Rétt er að fjölmiðla-
menn gæti sín á því, að það
eru veðurgurðirnir en ekki
þeir hafa sem veðurvaldið, fáir
gera sér betri grein fyrir þessu
en veðurfræðingarnir, eins og
kunnugt er. Ástæðulaust er að
óveður þróist yfir í eitthvert
fjölmiðlaæði, og þar sé tekið
til við að setja ofan í við menn
fyrir aðgæsluleysi, þótt þeir
haldi af stað frá Keflavík til
Reykjavíkur og séu tvo tíma á
leiðinni.(!) Eða menn mikli
fyrir sér erfiðleikana eins og
þegar strætisvagn hélt af stað
frá Lækjartorgi klukkan 17 á
miðvikudaginn þéttskipaður
fólki, vagnstjórinn tilkynnti
stjórnstöð um ferðir sínar og
fékk þá spurningu til baka,
hver hefði leyft honum að fara
af stað. Þegar síðast fréttist
gekk ferð þessa vagns vel og
sem betur fer hafa enn ekki
orðið nein stórslys í þessari
óveðurshrinu.
I Þjóðviljanum í gær var
þetta haft eftir Jónasi Egils-
syni á Húsavík: „Við getum
ekki stillt okkur um að brosa
svolítið af Reykvíkingum
hérna fyrir norðan. Ekki
vegna þess að við trúum því
ekki að það hafi snjóað dálítið
hjá þeim síðustu daga, aldrei
þessu vant, heldur kannski
fremur af því að hér erum við
tilbúin að taka á móti veðrum
og vindum.“ Þótt þeim sé ekki
hlátur í huga sem hafa orðið
að hírast í ökutækjum tímun-
um saman, komast ekki ferða
sinna, lent hafa í hrakningum
jafnvel á leið milli húsa eða
vakað sólarhringum saman
við að aðstoða samborgara
sína, er sem betur fer óhætt að
brosa að minnsta kosti út í
annað þegar því er velt fyrir
sér, hvernig óveðursæði getur
magnast upp meðal okkar eins
og hvert annað tískufyrir-
brigði. Þó skulum við ávallt
vera þess minnug, að hvorki
vinsæl tónlist né falleg föt eru
lífshættuleg — en það er veð-
urhamur ef viðbúnaður er ekki
nægur.
Ógeðfelld sprengjuiðja
Hjá því var að sjálfsögðu
ekki komist að skýra frá
því í fjölmiðlum, að á þriðju-
dagkvöldið hafi verið hringt á
Hótel Borg og tilkynnt, að þar
myndi springa sprengja innan
hálftíma. Lögregla og slökkvi-
lið brást við af þeirri ábyrgð
sem þessir aðilar sýna jafnan
þegar hætta er talin á ferðum.
Sem betur fer reyndist um
gabb að ræða. Glöggskyggnir
menn og næmir fyrir þeim
vitleysum sem þykja „sniðug-
ar“ í okkar litla og oft ábyrgð-
arlausa samfélagi höfðu við
orð, að nú myndi ýmsum þykja
sér sæma að hafa í sprengju-
hótunum við forráðamenn
fleiri bygginga en Hótel Borg-
ar. Þessir menn hafa reynst
sannspáir, því að í gær var
símleiðis hótað að sprengja
hús Útvegsbankans í Kópa-
vogi. Þessa ógeðfelldu
sprengjuiðju brenglaðra
manna verður að stöðva með
öllum tiltækum ráðum. Það er
svo sannarlega ekki einleikið
hvaða „dellur" menn geta
fengið.
Óveðrið og afleiðingar þess
Bíldudalur:
Mesti snjór
í 40 ár
Bíldudal, 6. janúar.
HÉR hefur nú snjóað nær uppstyttu-
laust þaö sem af er nýju ári og er nú
kominn sá mesti snjór, sem hér hefur
verið í tæp 40 ár. Ekkert hefur þýtt að
ryðja veginn til okkar og höfum við til
dæmis enga mjólk fengið á þessu ári.
Atvinnuástand var gott á síðasta
ári. Rækjubátarnir hættu vegna
verkfalls 1. desember, en afli þeirra
í nóvember var um 100 tonn og 30
tonn í október. Þrír bátar fóru á
hörpudisk í desember og fengu tæp
100 tonn fram að 15. þess mánaðar.
Nú er beðið eftir rækjuverðinu.
Togarinn Sölvi Bjarnason landaði
hér 3.368 tonnum á síðasta ári og
fór út á nýjársdagskvöld.
Páll
ísafjörður:
Samgöngu-
örðugleikar
ísafirði, 6. janúar.
MJÖG umhleypingasamt hefur verið á
Ísafirði það sem af er árinu, þó munu
ekki önnur vandræði hafa hlotist af en
samgönguörðugleikar. Eina flugum-
ferðin á árinu um ísafjarðarflugvöll
var í gær, miðvikudag, þá kom 20 sæta
flugvél frá Akureyri og flugvél frá
flugfélaginu Erni tókst að sækja ann-
an tveggja sjúklinga sem þurftu að
komast á sjúkrahúsið á ísafirði til
Suðureyrar. Hinn komst ekki og bíður
enn. Önnur flugvél flugfélagsins Ernis
lagði upp í flug til Þingeyrar, en varð
frá að hverfa þar sem flugvöllurinn á
Þingeyri lokaðist. Þetta var um hádeg-
isbilið í gær. Þá byrjaði að ganga upp
stórviðri og hefur það staðið síðan.
Línubátarnir náðu heilir í höfn
um áttaleytið í gærkvöldi, en Fagra-
nes, sem var í mjólkurflutningum
vestur á firði náði aðeins til Flat-
eyrar og Suðureyrar, en kom þó ekki
til hafnar á ísafirði fyrr en um mið-
nætti í nótt.
Óshlíð var opin skamman tíma í
gær og komust þá nokkrir ferða-
langar héðan í borð í ms. Stuðlafoss
sem var að taka fisk í Bolungarvík,
og komust með honum til Reykja-
víkur. Tvö stór snjóflóð féllu á Eyr-
arhlíð, utanvert við kaupstaðinn, og
er vegurinn út í Hnífsdal nú ófær.
Ágætlega er fært milli kaupstaðar-
ins og Holtahverfis, en í Holta-
hverfinu, svo og í hlíðinni upp af
kaupstaðnum, er mikil ófærð og eru
hús víða að hverfa í fönnina.
Strandferðaskipið Vela kom til
hafnar um hádegisbilið í dag, en lít-
ið hefur verið hægt að vinna við það
vegna ófærðar á hafnarsvæðinu og
snjókomu. Vegna illviðrisins í gær
varð Vela að hverfa frá Flateyri án
þess að komast að, auk þess sem
hún sleppti viðkomu á Suðureyri og
í Bolungarvík.
Þegar fréttaritari átti leið um
miðbæ ísafjarðar um miðdegið í
dag, var þó nokkur umferð um bæ-
inn, bæði bíla og gangandi vegfar-
enda. Allar verzlanir virtust opnar,
svo og bankarnir og aðrar opinberar
stofnanir, og var ekki að sjá að ís-
firðingar létu verðurhaminn mikið
á sig fá.
En til marks um snjókomuna má
að lokum geta þess, að á heimleið
þurfti fréttaritari að ganga um
hálfs kílómetra leið frá bíl sínum á
Djúpvegi að heimili sínu í Holta-
hverfi, og skeði það í fyrsta sinn á
yfir 40 ára veru á ísafirði að hann
þurfti að brjótast í gegnum snjó-
skafla sem náðu honum upp á miðj-
an bol stóran hluta leiðarinnar.
- Úlfar
Húsavík:
Veðrið að
breytast til
hins verra
Húsavík, 6. janúar.
VEÐRAHAMUR sá sem yfir landið
hefur gengið siðastliðin dægur, hefur
ekki náð til Húsavíkur. Hér hefur
verið hið þokkalegasta veður, þar til
nú um nónbilið að veðrið virðist vera
að breytast og komin norðvestan hríð-
arhraglandi.
Autt og akfært hefur verið um
allt héraðið, en vegir loftsins hafa
verið erfiðir og bíður hér fjöldi far-
þega eftir færi til Reykajvíkur. Ein
vél kom norður og lenti rétt fyrir
veðrabrigðin og er enn óvíst hvort
hún kemst suður í dag aftur.
Fréttaritari
Flatey á Breióafiröi:
Hita og
rafmagns-
laust
Dísilrafstöðin í Flatey á Breiða-
fírði bilaði seint í fyrrakvöld. Sér
hún eynni fyrir rafmagni og hita.
Vonir stóðu til að hún kæmist í
lag í gærkvöldi, því sá varahlut-
ur, sem til þurfti að gera við bil-
unina, var til í eynni, en það er i
spennustillir sem bilaði. Var ætl-
unin að leiðbeina mönnum í Flat-
ey við skiptingu spennustillisins í
gegnum talstöð frá Patreksfirði,
en Flatey er á orkusvæði Orkubús
Vestfjarða og símasambands-
laust var við eyna vegna raf-
magnsbilunarinnar. Svo vill til að
vararafstöðin, sem annars er í
Flatey, er í viðgerð á Patreksfirði
og var því ekki hægt að notast við
hana.
Reykhólar:
Mjólkurbíllinn
3 sólarhringa
frá Búðardal
Miðhúsum, 6. janúar.
HÉR eins og annars staðar vestan
lands hefur tíðarfar verið mjög stirt
síðan fyrir jól og hefur til dæmis ekki
komið hingað læknir á þessu ári. Á
okkur sannast, að fáir geta treyst lof-
orðum kerfisins, því einu sinni var
okkur lofað því, að læknir skyldi hafa
vetursetu á Reykhólum.
Grunnskólinn á Reykhólum hefur
ekki getað hafið starfsemi sína
vegna ófærðar og litlar líkur eru á
því að hann byrji fyrr en eftir helgi.
Mjólkurbill frá Búðardal er nú
búinn að vera þrjá sólarhringa á
leiðinni hingað að Reykhólum og er
enn ekki kominn á áfangastað.
— Sveinn.
Blönduós:
Rúður brotna í
þremur húsum
Blónduósi, 6. janúar.
Upp úr hádegi í gær fór að hvessa
á Blönduósi og síðdegis var skollið
á hið versta veður, norðanstormur
með skafrenningi og ofanhríð.
Verst varð veðrið milli klukkan 6
og 9, en þá var skollið á ofsaveður
og meðalvindhraði á þessu tímabili
um 10 vindstig. Þá brotnuðu rúður í
þrem húsum, 6 rúður í félagsheimil-
inu, 2 í læknabústaðnum sem
stendur við sjúkrahúsið og ein í
öðru íbúðarhúsi. Ekki urðu að því
er best er vitað miklar skemmdir á
innanstokksmunum í húsum þess-
um og fljótlega tókst að negla fyrir
gluggana.
Um kvöldið kallaði lögreglan út
björgunarsveitina Blöndu og
hjálparsveit skáta til að aðstoða
fólk sem átti í erfiðleikum við að
komast leiðar sinnar, en færð var
þá orðin mjög eífið, sérstaklega
vegna bylsins, og sáu menn vart
handa sinna skil. Fólk úr ná-
grannasveitunum, statt á
Blönduósi þegar veðrið skall á,
átti í miklum erfiðleikum með að
kontast til síns heima. Við Núp í
Langadal fauk kerra aftan í
dráttarvél út af veginum og
skömmu síðar fór traktorinn
sömu leið. Ökumanninum tókst
að komast til næsta bæjar eftir
talsverða hrakninga. Um kvöldið
þegar mesti veðurofsinn var
genginn niður fóru björgunar-
sveitarmenn út í sveitirnar, til að
huga að fólki sem sat fast í bílum
sínum á heimleið.
í dag hefur verið norðaustan
hvassviðri hér á Blönduósi og líkt
og í gær gengið á með ofanbyl og
skafrenningi, en ekki er vitað um
nein teljandi óhöpp vegna óveð-
ursins síðan í gærkvöldi, þó að
margir bíleigendur hafi átt í
mestu brösum við að halda gæð-
ingunum gangandi vegna og
bleytu. Oft hafa lögreglan og
björgunarsveitarmenn gripið í
taumana og dregið menn og bíla í
hús.
—Björn.
Borgarnes:
Mjólkurbíl-
stjórar og
skólabörn 1
hrakningum
Borgarnesi, 6. janúar.
f ÓVEÐRINU sem skall á fyrir hádegi
í gær lentu mjólkurbílar Mjólkursam-
lags Borgfíröinga og rútubílar sem
voru í skólaakstri fyrir Varmalands-
skóla í erfíðleikum. Skólabíllinn sem
fór í Norðurárdal stöðvaðist við
Glitsstaði og var farið með börnin sem
í honum voru á snjóbíl björgunarsveit-
arinnar heim að Hvassafelli þar sem
þau gistu ásamt bilstjóra sínum og
kennara í nótt. Skólabíllinn sem fór í
Þverárhlíð komst heim að Högnastöð-
um þar sem börnin dvöldu þar til for-
eldrum þeirra tókst að ná í þau. Skóla-
bíllinn sem fór vestur á Mýrar komst í
Borgarnes þar sem börnin fóru til vina
og skyldfólks og var ætlunin að aka
þeim heim aftur strax og fært yrði, þar
sem ófært er upp í Varmaland.
Mjólkurbílstjórar hjá Mjólkur-
samlaginu hafa átt í miklum erfið-
leikum vegna ófærðarinnar alla
þessa viku, bæði að komast eftir
þjóðvegum og heim á bæi. Þrír bíl-
stjórar komust ekki heim í gær og
gistu á bæjum þar sem þeir voru
staddir. Á suma bæi hefur ekki
verið hægt að ná í mjólk síðan fyrir
áramót og er hún farin að skemm-
ast, auk þess sem farið er að hella
niður mjólk á einstaka bæjum,
vegna þess að öll ílát eru orðin full.
Vonast er til að hægt verði að ryðja
fyrir mjólkurbílana á morgun, ef
veðrið verður skaplegt.
í dag hafa vegagerðarmenn lagt
áherslu á að opna leiðina Hreða-
vatnsskáli/Borgarnes, Akranes/-
Reykjavík. Ekki eru aðstæður til að
opna meira á milli héraða í dag, en
það verður athugað í fyrramálið.
Mikið álag var á vegagerðar-
mönnum í gær á meðan verið var að
bjarga fólki og tækjum í hús og
lögðu þeir sig alla fram í brjáluðu
veðri, ásamt björgunarsveitar-
mönnum og fleirum til að bjarga
fólki sem sat ósjálfbjarga í bílum
stórum sem smáum um alla vegi.
í dag hefur veðrið haldist gott hér
í Borgarnesi en strax og komið er út
úr bænum hefur það versnað. Hefur
veðrið tafið mjög fyrir vinnu við
snjómokstur í dag. Þungfært er hér
innanbæjar sérstaklega í hliðargöt-
um, en unnið hefur verið að því að
moka snjónum burtu.
HBj.
Flateyri:
Tvísýnt um
mokstur vegna
tækjaleysis
Flateyri, 6. janúar.
Hér hefur verið rafmagnslaust
síðan tvö í nótt. Líklega er ekki um
alvarlega bilun að ræða, en það hef-
ur reynst erfítt að komast inn í
sveit, til að gera við bilunina, þar
sem það eru engin tæki á staðnum
fær um að komast inn í sveit. Að
síðustu var það ráð tekið að fara á
bát inn eftir og standa vonir til að
takist að laga bilunina fyrir kvöld-
ið. Hefíll, sem hér er á vegum vega-
gerðarinnar, er það veigalítill, að
hann ræður sennilega ekki við þau
snjóalög sem komin eru. Verið er
að reyna að útvega jarðýtu frá Ingj-
aldssandi og er ekki vitað enn um
lyktir þess máls, en það mun lík-
lega vera eina leiðin til að moka inn
á fíugvöllinn hér, því komnir eru
það miklir ruðningar, og því er
mjög óvíst um hvenær hægt verður
að opna inn á flugvöllinn.
Hér eru óvenju mikil snjóalög
og muna margir ekki eftir jafn-
miklum snjóalögum lengi, alla
vega í byggð. Eftir nóttina eru
hér komnir 4 metra háir skaflar
og hefur mjög mikið skafið og
snjóað. Það hefur verið mjög
hvasst, en ekkert tjón orðið á
mannvirkjum. Ekki er vitað um
nein snjóflóð enn sem komið er.
Ástandið í rafmagnsmálum hefur
verið mjög gott hér, fram til
þessa.
— EFG
Fólk flýr
vetrarhörkuna
ÍSLENDINGAR flytja vetrar-
hörkuna — í morgun var áætlað
að Flugleiðavél færi með 164
manna hóp í sól og sumaryl til
Kanaríeyja. Það væri í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi, nema að á
síðustu dögum kom mikill kippur í
farmiðasölu og seldust allir miðar
upp um áramótin. Munu vetrar-
hörkur undanfarið vera helsta
ástæða þess að fólk fer suður á
bóginn. Dræm þátttaka hefur iðu-
lega verið í fyrsta flug í janúar og
mun þetta í fyrsta sinn sem upp-
selt er í þessa fyrstu janúarferð.
Fauk tvívegis
breidd sína
Nóg að gera hjá björgunarsveit Ingólfs
„ÞAÐ VAR óhemjuhvasst og þegar
við vorum í efstu brekkunni fauk
snjókötturinn tvívegis breidd sína til
hliöar. Þá þurftum við aö halda viö
hliöarrúöurnar í snjókettinum þeim
megin sera veðriö stóð á hann í
verstu hryöjunum," sagði Þorbjörn
Gíslason, en hann ásamt Þorvaldi
Þorvaldssyni, báöir frá björgunar-
sveit Ingólfs í Reykjavík fóru með
Eirík Árnason símvirkjaverkstjóra
hjá tæknideild Pósts og síma upp á
Skálafell á sjöunda tímanum í morg-
un á snjóbíl að gera við bilun sem
þar varð og olli því að símasam-
bandslaust var meira og minna við
allt Suðurland.
„Á hlutum leiðarinnar varð ég
að ganga á undan bílnum, skyggn-
ið var svo slæmt, annars að vera í
lúgunni og segja Þorvaldi til. Sem
dæmi um hvassviðrið má nefna að
klakastykki úr rafmagnsstaurun-
um á Skálafelli fuku á snjóköttinn
þegar við vorum um það bil að
komast í áfangastað. Annars gekk
þetta átakalaust. Við vorum
komnir upp eftir um klukkan 9.20,
höfum staldrað við í um það bil
klukkutíma. Ferðin niður eftir
gekk betur, enda þá orðið bjart og
veðrið heldur farið að lægja og
niður í Mosfellssveit vorum við
komnir um hálf eitt,“ sagði Þor-
björn Gíslason ennfremur.
Það var nóg við að vera fyrir
snjóköttinn, því strax og hann
kom til byggða í Mosfellssveit fór
hann þar í sjúkraflutninga, en bíll
frá björgunarsveitinni Kyndli í
Mosfelssveit, sem sér þar um
sjúkraflutninga komst, ekki um
hluta þorpsins vegna mikilla
skafla sem voru í veginum.
Bílar björgunarsveitar Ingólfs
hafa farið í yfir 20 brunaútköll og
Ljósmynd Arni Arnason.
Á Akranesi muna menn ekki eftir annarri eina ófærð og var I gær. Þessi mynd er tekin á Bjarkagrund seint í
gærkvöldi og eins og sjá má grillir rétt í efsta hluta bílanna undir fannferginu.
Akranes:
Á myndinni er verið að færa sjúklinginn (eftir að komið var ofan af Skála-
felli) úr snjókettinum yfír i bfl sem átti að fara með hann til Reykjavikur.
Ljósmyndir Þorkell Þorkelsson.
hlaðinn slökkvibúnaði. Snjóbíll er frá björgunarsveit Ingólfs unnið
einnig hafður á slökkvistöðinni við við það að aðstoða fólk sem var í
Öskjuhlíðina. Alls hafa sjö bílar vandræðum í ófærðinni.
Eldri menn muna ekki aðra
eins snjókomu og ófærð
Akranesi, 6. janúar.
DAGLEGT líf á Akranesi er nú að
færast í eðlilegt horf eftir nánast
tveggja sólarhringa óveður. í gær
myndaðist strax mikil ófærð og
stóðu bílar fastir viðast hvar í bæn-
um.
Lögregla, björgunvarsveit-
armenn og bæjarstarfsmenn
stóðu í ströngu við að aðstoða
fólk, sem varð að yfirgefa bíla
sína og eins aðstoðaði björgun-
arsveit fólk, sem var í langferða-
bílum í nágrenni Akraness svo
og starfsmenn Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga,
sem komast þurftu til og frá
vinnustað sínum. Engin alvarleg
óhöpp hafa hér orðið, og nú í
kvöld eru götur bæjarins orðnar
sæmilega greiðfærar.
Að sögn eldri manna muna
þeir ekki svona mikla snjókomu
og ófærð í bænum. J.G.
Ljósmynd Arni Arnaaon
Stund milli stríða. Félagsmenn I björgunarsveitinni Hjálpinni á Akranesi safna þreki fyrir átök næturinnar, en
þeir aðstoðuðu meðal annars fólk I langferðabllum f nágrenni Akraness.
Þeir sem lögðu leið sfna upp á Skálafell f gærmorgun. Farkosturinn í baksýn.
Taldir frá vinstri: Þorbjörn Gfslason, Eiríkur Arnason og Þorvaldur Þor-
valdsson.
með sjúkt fólk á meðan á óveðrinu slökkvistöðinni við Oskjuhlíð og
hefur staðið. í fyrrinótt voru alls þrír í slökkvistöðinni í Árbæ, en
12 menn á vakt, 6 í Gróubúð, þrír á þar er til taks snjóbíll með sleða,