Morgunblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 40
44 i,1 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 » 'Wt UolYiral rrw tiiatw. j,H\/)Likb sJcöt) For f?vert yfir "t2. broufcir 09 i* gegnum sí^arettasjHlfsci/Qnn-,n Zo»e is... //• // ... að vita að hann getur ekki haft augun af þér. TM Rag U.S. Pat Oft-lH rlghts reserved •1982 Loe Angatau Time* Synd'^ile Því er ekki að leyna. — Ég hef í hyggju að fara heim til pabba og mömmu. HÖGNI HREKKVÍSI Virðist sem Ingólfur sé eina björgunarsveitin Félagi í lljálparsveit skáta, Garða- bæ, skrifar: „Kæri Velvakandi, viltu vera svo vænn að birta eftirfarandi: Undanfarnar vikur hefur verið mikið vetrarríki hér á landi og umferð teppst nokkrum sinnum svo gersamlega að þurft hefur að kalla út hjálpar- og björgunar- sveitir víðs vegar um landið til að aðstoða ökumenn í ófærðinni 'fíg selOytja fólk heim til sín. Ég skrifa þessar línur til að gagnrýna fréttaflutning blaðanna af hjálparstarfinu hér á suðvest- urhorninu. Þau hafa að mestu lát- ið nægja að segja frá starfi einnar björgunarsveitarinnar, þ.e. Slysa- varnarfélagsins, Ingólfs í Reykja- vík. Virðist sem Ingólfur sé eina björgunarsveitin á Stór-Reykja- víkursvæðinu, ef marka má það sem komið hefur í blöðunum um það efni. Dæmi um þetta er hálfsíðu frétt, sem slegið er upp í DV, ásamt mynd. Þar segir frá því, að Ingólfur hafi farið á snjóbíl með viðgerðarmenn frá Pósti og síma upp á Skálafell. En þess er að engu :. getið, hver voru tildrög þess að Póstur og sími fengu sveitiná til að fara með mennina. Þarna er sleppt spennandi kafla úr sögunni, því að nokkrum dögum áður höfðu tveir menn frá Pósti og síma farið á jeppa áleiðis að Skálafelli, en fest bílinn, er þeir áttu um hundrað metra ófarna upp á fjallið. Ekki treystu þeir sér til að ganga upp vegna óveðursins og svo drap bíllinn á sér. Þá var Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík fengin til að bjarga mönnunum og bílnum niður. A þetta var ekki minnst frekar en þátt Hjálparsveita skáta í Garðabæ, Kópavogi eða Reykja- vík, eða annarra sveita í björgun- arstörfum, og er það miður. Með þökk fyrir birtinguna." Aldrei heyrt þetta lag áður 2144-0566 skrifar: „Velvakandi. Síðastliðinn sunnudag, þann 9. janúar, hlýddi ég á guðsþjónustu sem útvarpað var frá Neskirkju. Við guðsþjónustuna söng Elísabet Erlingsdóttir „Faðir vor“ við lag eftir Kristinn Magn- ússon. Ég hef aldrei heyrt lag þetta áður en bæði þótti mér það afar fallegt og flutningur þess mjög góður. Færi ég flytjanda og höfundi lagsins innilegar þakkir fyrir. Elísabet Kristinn Erlingsdóttir Magnússon Veit ég að fleiri en ég hafa hrifist af þessu og vonandi verð- ur þess ekki langt að bíða að fá tækifæri til þess að heyra lag þetta aftur sungið." Til hagræðingar og gjaldeyrissparnaðar Jóhannes Kristján Guðlaugsson skrifar: „Velvakandi. Smáinnskot í til- efni af fargjaldaþrasi vegna SVR: í Noregi eru notuð svokölluð mánaðarskírteini, eitthvað lík því sem ég sendi hér teikningu af og gilda innan afmarkaðs svæðis Oslóborgar og nágrennis. Skírt- einin eru í mismunandi litum. Tökum staðfært dæmi: Þannig kaupir t.d. sá sem búsettur er í Kópavogi og vinnur í Reykjavík grænt skírteini, sem eingöngu gildir í SVK og SVR. Á skírteinið er ritað nafn viðkomandi, heimil- isfang, nafnnúmer o.fl., auk þess sem mynd er af skírteinishafan- um, svo að enginn nema hann geti notað það. Áður en mánuðurinn er liðinn Mosfellssveit Reykjavík Kópavogur Garóabær Hafnarfjörður snýr viðkomandi sér til afgreiðslu vagnanna og kaupir nýjan miða í skírteinið. Er hann límdur til hlið- ar við síðasta miða og stimplað í bak og fyrir, svo að sýnt sé, að búið sé að greiða fyrir ferðir næsta mánaðar. Með þessu sparast allt stúss í kringum skiptimiða, svo og prent- un farmiða, auk þess sem öll af- greiðsla gengur mun greiðar — aðeins þarf að sýna bílstjóra að mánaðarskírteinið sé í gildi. J6n Arason Grýlugötu 15 Keykjavík Nnr. 0000-000 Ef nágrannasveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hefðu sam- starf um þetta við Reykjavíkur- borg, yki það á hagkvæmni fyrir alla aðila, fyrirtæki og farþega, þó einkum þá sem nota vagnana mik- ið. Þróunin í Osló varð sú, að fólk ferðaðist meira en áður með vögn- um og lestum. Þannig myndi og sparast gjaldeyrir fyrir þjóðar- búið vegna minni bensíneyðslu einkabila. Ekki veitti af.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.