Morgunblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 19. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hér sést glögglega hvllíkur ógnarkraftur bjó í snjóflóðinu. Það hefur rifið upp ytri enda hússins að Hjöllum 2, ruðzt niður yfir húsin fyrir neðan og ýmist stórskemmt þau eða hreinlega sópað þeim burt. Björgunarmenn eru að störfum í farvegi flóðsins og varpskip lónar úti á friðinum. Morsunblaðið/Rax. „Sá flóðið vaða niður úr gilinu og húsin tætast upp“ Fjórir létust og 33 heimilislausir eftir snjóflóðin á Patreksfirði „ÉG SÁ flóðið vaða niður úr gilinu og húsin tætast upp. Eftir það hugs- aði ég aðeins um að komast inn í húsið til unnustu minnar,“ sagði Helgi Páll Pálmason, í samtali við Morgunblaðið, en tvö snjóflóð féllu með stuttu millibili á kauptúnið á Patreksfirði á laugardag. Urðu þau fjórum mönnum að bana, eyðilögðu og skemmdu að minnsta kosti 20 hús og fjölda bifreiða. Fjárhagslegt tjón vegna þessa hefur enn ekki ver- ið metið. Björgunarstörf hófust þegar, en síðustu líkin fundust aðfaranótt sunnudagsins og á sunnudags- morgun. Nöfn þeirra, sem létust eru: Marteinn ólafur Pétursson, Aðalstræti 79, fæddur 9. desember 1941, 42 ára; Sigrún Guðbrands- dóttir, fædd 3. desember 1976, 6 ára, dóttir hjónanna Vigdísar Helgadóttur og Guðbrands Har- aldssonar, Hjöllum 2; Sigurbjörg Sigurðardóttir, Brunnum 13, fædd 13. ágúst 1924, 58 ára, og Valgerð- ur Jónsdóttir, Aðalstræti 79, fædd 23. janúar 1906, 77 ára. Alls misstu 33 manns heimili sín. Fyrra flóðið féll klukkan 15.40 úr gili í fjallinu Brellum ofan miðrar Geirseyrar og gjöreyði- lagði þrjú hús og stórskemmdi eða eyðilagði alls um 13 hús þar auk fjölda bifreiða. Þar létust þrír. Síðara flóðið féll um tveimur stundum síðar úr Litladal, hljóp niður farveg Litladalsár og hreif með sér eitt hús og stórskemmdi annað. Ekkert fólk var í húsum þessum, en flóðið hreif með sér tvær konur er voru á gangi við sláturhúsið og lézt önnur þeirra þegar. Björgunarstörf hófust þegar er fyrra flóðið féll og var að mestu lokið á mánudagskvöld. Alls unnu um 300 manns að þeim og komu þeir víða að. I gær var verið að vinna að lausn húsnæðisvandans, en heimilislausa fólkið hafðist þá við hjá vinum og kunningjum. Ekki er kunnugt um að jafnmik- il flóð hafi fallið á þessum slóðum áður, en að sögn heimamanna er algengt að „smáspýjur" hafi kom- ið úr gilinu ofan Geirseyrar. Orsök flóðsins er talin sú að mikil úr- koma hafi grafið undan miklum snjóalögum í gilinu og flóðið þá hlaupið fram. Sjá nánari frásögn og myndir af snjóflóðunum á Patreksflrði á blað- síðum 18, 19, 20, 21, 22, 27, 28, 29 og baksiðu. Ennfremur eru flóðafréttir á blaðsíðum 2, 32, 33, 46 og 47. Fólkið sem lézt í snjóflóðunum Marteinn Ólafur Pétursson Valgerður Jónsdóttir Sigurbjörg Sigurðardóttir Sigrún Guðbrandsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.