Morgunblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 19 Pétur Sveinsson, ylírlögregluþjónn, og Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður, en þeir stjórnuöu björgunarstarfinu á Patreksfirði. (Ljósm. R.\X). það slapp allt að mestu ómeitt og af sjálfsdáðum. Ungt par var meðal annars statt í kjallara húss síns að Aðalstræti 80 og slapp það þó hús þeirra eyðilegðist alveg. Þá var áströlsk stúlka stödd í einu húsanna. Skriðán fyllti það nán- ast með öllu og barst stúlkan að glugga á neðri hlið hússins og var henni bjargað þaðan mjög fljót- lega. Hún slapp við alvarleg meiðsli. Börnin, sem voru í húsinu á Hjöllum 2 fundust nær þegar. Lík mannsins, sem var í húsinu við Aðalstræti, fannst um klukkan 4 aðfaranótt sunnudagsins og lík móður hans um klukkan 11 á sunnudagsmorgun. Síðara flóðið féll um tveimur tímum seinna úr Litladal og rann niður eftir farvegi Litladalsár. Það olli skemmdum á húsum ofarlega við farveginn, eyðilagði húsið Bræðraborg og hreif húsið Árbæ með sér og bar niður á fjörukambinn innan við slátur- húsið. í húsunum á þessum slóð- um var ekkert fólk, þar sem öll hús þar höfðu verið rýmd, en tvær konur voru á gangi við sláturhús- ið og er flóðið féll á það hreif það þær báðar með sér. Önnur konan lézt þegar, en lík hennar fannst ekki fyrr en á sunnudagsmorgun. Hin konan skall á hurð á slátur- húsinu og inn um hana. Mun það hafa orðið henni til lífs og slapp hún lítið meidd. Ekki er vitað til þess að jafn- mikil snjóflóð hafi fallið á þessum slóðum, enda hafa húsin, sem eyðilögðust, staðið á þessum slóð- um frá því um aldamót. Er fyrra flóðsins varð vart voru allir verkfærir menn í bænum kallaðir til björgunarstarfa og öll hús í bænum rýmd nema byggðin á Björgum og hluti byggðar á Vatnseyri og hafðist fólkið við í Hraðfrystihúsinu og Félagsheim- ilinu. Skipverjar af varðskipinu Tý komu þegar til aðstoðar og lýstu upp slysstaðinn. Síðar um daginn og kvöldið komu björgun- arsveit frá Tálknafirði og sér- þjálfaðir menn frá Flugbjörgun- arsveitinni í Reykjavík og menn með hunda til leitar. Komu sunn- an menn með þyrlu Landhelgis- gæzlunnar og leiguflugi Sverris Þóroddssonar. Á sunnudagsmorg- un kom varðskipið Ægir með 33 björgunarsveitarmenn að sunnan og togarinn Sölvi Bjarnason kom með björgunarmenn frá Bíldudal. Alls voru um 300 björgunarmenn að störfum. Eftir að þeir, sem saknað var, höfðu fundizt var unnið að því að hreinsa hús og bjarga húsmunum og kanna skemmdir. Var því starfi að mestu lokið á sunnudagskvöld og héldu þá aðkomnir björgunar- menn heimleiðis og flutti vél Landhelgisgæzlunnar sunnan menn til Reykjavíkur. Fólk var síðan farið að flytja í yfirgefin hús sín á sunnudag og mánudag, en enn var óleystur vandi þeirra 33, sem misstu heimili sín í snjó- flóðunum. Fjárhagslegt tjón hafði ekki verið metið í gærkvöldi en um 20 hús voru talin stórskemmd eða ónýt. I gær viðraði þokkalega á Patreksfirði og ekki talin hætta á frekari snjóflóðum. Stefán Skarphéðinsson, sýslu- maður, óskaði þess að koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra, sem að björgunar- störfum unnu og taldi, að án utan að komandi manna hefði björgun- arstarfið ekki gengið eins vel og raun bar vitni. HG SNJÓFLÓÐIN Á PATREKSFIRÐI Hér má sjá feril flóðsins, sem féll niður Litladal. Vatnsskaði varð í húsunum sem standa efst. Bræðraborg, sem merkt er númer 2, skemmdist mikið og Árbæ, sem merktur er númer 1, tók flóðið með sér og bar niður á fjörukambinn eins og örin vísar. x Hljómplötu UTSALA Hljódfærahús Reykjavíkur Laugavegi 96 - Sími 13656

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.