Morgunblaðið - 01.03.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 01.03.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983 Matthías í 1. sæti, Giinnar G. Schram í 2. og Salome í 3. sæti SAMTALS tóku 8.674 þátt í prófkjöri Sjálfstærtisflokksin.s í Reykjaneskjör- dæmi, sem fram fór um helgina. I fyrsta sæti varð Matthías Á. Mathiesen alþingismaður, í öðru sæti Gunnar G. Schram prófessor, í þriðja sæti Salome Þorkelsdóttir alþingismaður og í fjórða sæti Ólafur G. Einarsson alþingis- maður, en þau hlutu öll bindandi kosningu með yfir 50% greiddra atkvæða. Matthías Á. Mathiesen hlaut 2.894 atkvæði í 1. sæti og 5.986 atkvæði alls, eða 70,9%. I annað sætið fékk Matthías 1.141 atkvæði, 742 í þriðja, 625 í fjórða og 584 í fimmta sætið. Gunnar G. Schram hlaut 4.106 atkvæði í 1.-2., þar af 2.506 í 1. sæti, en 6.404 samtals, eða 75,8%. Hann fékk 1.600 atkvæði í annað sætið, 859 í þriðja, 808 í fjórða og 631 í fimmta sætið. í þriðja sæti varð Salome Þor- kelsdóttir með 3.922 atkvæði í 1.-3. sæti, þar af 625 í 1. sæti og 1.095 í 2. sæti, alls 5.882, eða 69,7%. Hún fékk 2.202 atkvæði í þriðja sæti, 1.094 i fjórða og 871 í fimmta. Ólafur G. Einarsson alþingis- maður hlaut 4. sætið með 4.075 at- kvæði í 1.-4. sæti og alls 4.707, eða 55,7%. Þar af hlaut hann 975 í 1. sæti, 1.769 í 2. sæti og 679 í þriðja, 652 í fjórða og 632 í fimmta. í fimmta sæti varð Kristjana Milla Thorsteinsson með 4.214 at- kvæði í 1.-5. sæti, eða 49,9%. Hún hlaut 200 atkvæði í fyrsta sætið, 862 í annað, 1.047 í þriðja, 1.104 í fjórða og 1.001 í fimmta. í sjötta sæti varð Sigurgeir Sig- urðsson bæjarstjóri með 4.059 at- kvæði alls, Bragi Michaelsson framkvæmdastjóri varð sjöundi með 3.164 atkvæði, Ellert Eiríks- son sveitarstjóri varð áttundi með 3.048 atkvæði, Rannveig Tryggva- dóttir kennari varð níunda með 2.471 atkvæði og tíundi varð Al- bert K. Sanders, sem fékk 2.280 atkvæði. í prófkjörinu tóku þátt, eins og fyrr segir, 8.674, auðir seðlar voru 12, ógildir 218. Sjálfstæðisfokkurinn í Austurlandskjördæmi: Nær 1.200 tóku þátt í prófkjöri — þrjú efstu Kgilsstöðum, 27. fehrúar. TALNINGU í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Austurlandskjördæmi, sem fram fór í gær og fyrradag, lauk nú um klukkan 18:00 í Vegaveiting- um við Lagarfljótsbrú í Fellabæ. Alls kusu 1191 — eða ríflega 4% fleiri en í prófkjöri flokksins fyrir síðustu al- þingiskosningar — en þá var þátt- taka 1145 og hlaut flokkurinn 1366 atkvæði í þeim aiþingiskosningum. Prófkjörið nú sem áður var opið öllum kosningabærum stuðnings- mönnum Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu og auk þess flokks- Útsýnarblað fylgir Morgunblaðinu í dag MORGUNBLAÐINU fylgir í dag 20 síðna Útsýnarblað með upplýsingum um ferðir á vegum ferðaskrifstof- unnar l'tsýnar og það sem hún hefur upp á að bjóða í þeim efnum. Á baksíðu blaðsins er getraun, sem lesendum gefst kostur á að taka þátt í. Ur réttum lausnum verða á L'tsýn- arkvöldi í Rroadway 22. apríl dregn- ir út 6 ferðavinningar að verðmæti 10.000 krónur hver og ókeypis ferð að verðmæti 12.0<K) krónur fyrir bestu svörin. sætin óbreytt bundnum mönnum frá 16 ára aldri Þátttakendum var gert að raða hvorki fleiri né færri en fimm frambjóðendum á lista. Af þeim sökum reyndust 22 seðlar ógildir en 2 seðlar voru auðir. Alls tóku tíu þátt í prófkjörinu og urðu úr- slit þessi: 1. Sverrir Hermannsson, alþing- ismaður, Reykjavík, 1057 at- kvæði (671 atkv. í 1. sæti), eða 90,57% gildra atkvæða. 2. Egill Jónsson, alþingismaður, Seljavöllum, 967 atkvæði (692 atkv. í 1.—2. sæti), eða 82,86%. 3. Tryggvi Gunnarsson, skip- stjóri, Vopnafirði, 721 atkvæði (451 atkv. í 1.-3. sæti), eða 61,78%. 4. Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir, skrifstofumaður, Seyðisfirði, 569 atkvæði (407 atkv. í 1.—4. sæti), eða 48,75%. 5. Þráinn Jónsson, fram- kvæmdastjóri, Fellabæ, 520 atkvæði samtals eða 44,55%. 6. Albert Kemp, vélvirki, Fá- skrúðsfirði, 450 atkvæði sam- tals, eða 38,56%. 7. Hrafnkell A. Jónsson, verk- stjóri, Eskifirði, 437 atkvæði samtals, eða 37,44%. 8. Sigríður Kristinsdóttir, hús- móðir, Eskifirði, 432 atkvæði samtals, eða 37,01%. 9. Hjörvar Ó. Jensson, banka- starfsmaður, Neskaupstað, 411 atkvæði samtals, eða 35,21%. 10. Júlíus Þórðarson, bóndi, Norð- firði, 271 atkvæði samtals, eða 23,22%. Kjördæmisráð sjálfstæðisfélag- anna í Austurlandskjördæmi sam- þykkti síðan á fundi sínum eftir tillögu sérstakrar kjörnefndar, að listi flokksins í komandi alþing- iskosningum skyldi skipaður sam- kvæmt niðurstöðum prófkjörsins að öðru leyti en því, að Júlíus Þórðarson óskaði eftir að taka ekki sæti á listanum — og því var stjórn kjördæmisráðsins, ásamt kjörnefndinni, falið að tilnefna mann í 10. sæti listans. — Ólafur. Fiskverð hækkar um 14,74% í dag YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávar- útvegs hefur ákveðið fiskverð frá og með deginum í dag, 1. mars og hækkar verðið um 14,74%. Þetta fiskverð gildir til 31. maí næstkom- andi. Er þessi samþykkt Verðlags- ráðs sjávarútvegsins gerð með tilvís- un til samkomulags nefndarinnar í tengslum við ákvörðun fiskverðs um síðastliðin áramót. Fiskverðið var ákveðið af oddamanni yfirnefndar, Hallgrími Snorrasyni og fulltrúum seljenda í nefndinni, þeim Kristjáni Ragn- arssyni og óskari Vigfússyni. Annar fulltrúi kaupenda, Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, greiddi atkvæði gegn hækkuninni, en hinn, Friðrik Pálsson, sat hjá. Fulltrúar kaupenda gerðu hvor um sig grein fyrir afstöðu sinni og er bókun Eyjólfs ísfeld Eyjólfs- sonar svohljóðandi: „Við hækkun launa og fiskverðs um 14,74% 1. mars hækkar kostn- aður vinnslunnar um 675 milljónir á ári. Fyrirsjáanlegt er að þessi gíf- urlega kostnaðarhækkun fæst ekki bætt með hækkuðu söluverði framleiðslunnar né framleiðslu- aukningu, nema síður sé. Þessi kostnaðarauki ásamt hækkun annarra kostnaðarliða fæst því ekki bættur nema með lækkun á gengi krónunnar. Ekki er vitað hvort þessi gengisbreyt- ing verði nægileg til að mæta kostnaðarhækkunum og því tapi sem var á frystingunni eftir síð- ustu gengisbreytingu. Nú þegar eru mörg fyrirtæki í greiðsluerfiðleikum. Augljóst er að við þessa hækkun munu mörg önnur bætast í þann hóp, enda verður lítil hækkun á afurðalán- um til að mæta þessum kostnaðar- auka, nema að genginu verði breytt verulega nú þegar. Þá er augljóst að mikil óvissa er framundan í markaðsmálum, sem getur skapað veruleg vandamál hjá framleiðendum. Af þessum ástæðum greiði ég atkvæði á móti þessari fiskverðs- ákvörðun." Friðrik Pálsson gerði eftirfar- andi grein fyrir hjásetu sinni: „Þessi ákvörðun er í beinu fram- haldi af fiskverðsákvörðun frá 1. janúar til 28. febrúar. Við þá ákvörðun lá fyrir yfirlýs- ing frá sjávarútvegsráðherra um að fiskvinnslunni verði að fullu bætt kostnaðaráhrif af fisk- verðshækkunum frá áramótum og af þeim ráðstöfunum, sem nefndar eru í 1. lið (um olíugjald og aukið útflutningsgjald) svo og af launa- og fiskverðshækkun 1. mars. Við þá yfirlýsingu hefur að mínu mati verið staðið hingað til og með tilliti til endurtekinna yf- irlýsinga í sömu átt á fundi með sjávarútvegsráðherra í gær vísa ég í bókun kaupenda frá 31. des- ember sl. og sit hjá við þessa at- kvæðagreiðslu." Air India-samning- unum sagt upp: íslenzkir flug- menn setja Flug- leiðum stólinn fyrir dyrnar — segir Björn Theódórsson Póstgjöldin hækka um 14% NÝ GJALDSKRÁ fyrir póstþjónustu tekur gildi í dag, en samkvæmt henni hækka gjöld að meðaltali um 14%, samkvæmt uppiýsingum Morg- unblaðsins. Gjaldskrá símþjónust- unnar hækkaði um sömu prósentu- tölu frá 1. febrúar sl. króna fyrir 5 kg, 64,00 krónur fyrir 10 kg, 92,00 krónur fyrir 15 kg og 103,00 krónur fyrir 20 kg. Ábyrgðargjald verður 9,50 krón- ur og hraðboðagjald verður 21,50 krónur. „Hið rétta í málinu er, að Félag ís- lenzkra atvinnuflugmanna hefur sett okkur stólinn fyrir dyrnar. Þeir kröfðust þess, að íslenzkir flugmenn fl.vgju vélunum yfir sumartímann," sagði Björn Theódórsson, i samtali við Mbl., en sú meinlega villa slædd- ist inn í frétt blaðsins um Air India- samninginn á sunnudag, að það væru Indverjar sem krefðust þess, að íslenzkir flugmenn yrðu þjálfaðir til flugsins í sumar, en Flugleiðir hugðust leigja til þess erlenda flugmenn, þar sem flugmenn félags- ins væru bundnir í áætlunarfluginu. 15% meðaltalshækkun á áfengi og tóbaki Samkvæmt hinni nýju gjaldskrá verður burðargjald bréfa í fyrsta þyngdarflokki, 20 grömm, innan- lands og til Norðurlanda 4,50 krónur, til annarra landa 5,00 krónur og flugburðargjald til landa utan Evrópu 9,00 krónur. Burðargjald fyrir póstgjöld og prent í fyrsta þyngdarflokki verð- ur 4,00 krónur nema flugburðar- gjald til landa utan Evrópu, sem verður 4,50 krónur. Gjald fyrir gíróþjónustu verður 6.50 krónur, fyrir almennar póst- ávísanir 11,00 , símapóstávísanir 48.50 krónur og póstkröfur 20,00 krónur, en 13,50 krónur ef um inn- borgun á póstgíróreikning er að ræða. Burðargjald böggla innanlands verður 23,00 krónur fyrir 1 kg, 26,00 krónur fyrir 3 kg, 41,00 ÁFENGI og tóbak hækkar í verði um 15% að meðaltali í dag, sam- kvæmt ákvörðun fjármálaráðuneyt- isins, en allar útsölur ÁTVR voru lokaðar í gærdag. Sem dæmi um hækkunina má nefna, að pakki af algengum sígarettum, eins og Camel og Winston hækkar úr 28,90 krón- um í 33,25 krónur, eða um liðlega 15%. Sem dæmi um hækkanir á vín- um má nefna, að St, Emilion rauð- vín hækkar úr 99 krónum í 115 krónur, eða um liðlega 16%. White Bordeux hvítvín hækkar úr 72 krónum í 85 krónur, eða um lið- lega 18%. Gordon Vert kampavín hækkar úr 207 krónum í 240 krón- ur, eða um 16%. Þá hækkar Brist- ol Cream sherry úr 143 krónum í 165 krónur, eða um liðlega 15%. Martini hækkar úr 145 krónum í 170 krónur, eða um liðlega 17%. Þá hækka algengar tegundir af Viskí, eins og White Horse úr 393 krónum í 455 krónur, eða um tæp- lega 16%. íslenzkt brennivín hækkar úr 282 krónum í 325 krón- ur, eða um liðlega 15%. Loks má geta þess, að Smirnoff vodki hækkar úr 405 krónum í 470 krón- ur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.