Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983 Sjötugur í dag: Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra í dag er ólafur Jóhannesson sjötugur, fæddur 1. mars 1913 að Stórholti í Fljótum. Þótt óþarfi sé að kynna þennan mann, einn af máttarstólpum íslenzku þjóðar- innar, langar mig til á þessum tímamótum í ævi hans að rifja upp eitt og annað um uppruna hans og það úr lífsferli hans, sem mér er persónulega kunnugt. Foreldrar Ólafs Jóhannessonar voru þau Jóhannes Friðbjörnsson bóndi og oddviti í Stórholti og Kristrún Jónsdóttir frá Illuga- stöðum í Fljótum. Jóhannes var fæddur að Finnastöðum í Sölva- dal, sonur Friðbjörns Benedikts- sonar bónda að Hvassafelli og konu hans Sigríðar Sveinsdóttur frá Bessastöðum í Öxnadal. Jó- hannes missti ungur föður sinn og eftir lát hans fluttist hann til móðurfrænda sinna í Öxnadal. Sagt er að þar hafi hann náð mikl- um þroska til sálar og líkama, hann gekk í Möðruvallaskóla og útskrifaðist þaðan árið 1900. Það ár flytur hann í Fljótin, gerist kennari og varð ástsæll meðal nemenda sinna og foreldra þeirra og naut sonur hans þess síðar meir. Það sem einkenndi Jóhannes að mati þeirra er þekktu hann best var glæsileg framkoma hans, vit og viljafesta. Hann var kosinn til margvíslegra trúnaðarstarfa í sveit sinni og bjó lengst af á Lambanesreykjum í Fljótum. Jó- hannes gegndi kennarastörfum í 22 ár, síðustu 7 árin sem smábarnakennari. Eftir 2ja ára dvöl í Fljótum kvænist Jóhannes Kristrúnu Jónsdóttur bóndadóttur frá Illugastöðum í Fljótum Sigurðs- sonar. Móðir Kristrúnar var Guð- finna Gunnlaugsdóttir, Magnús- sonar bónda á Hofdölum. Kristrún var glæsilegur kvenkostur, mikil skapfestukona, umhyggjusöm eig- inkona og móðir, vitur og stjórn- söm. Fátt er betra en að eiga góða foreldra og það átti Ólafur Jó- hannesson vissulega, hann naut góðs uppeldis og fræðslu í for- eldrahúsum og að erfðum tók hann vitsmuni og viljafestu sem reyndust honum síðar meir gott veganesti á vandrataðri leið valda- og mannaforráða. Bónda- og kennarasonurinn ungi frá Lambanesreykjum vand- ist á að taka til hendinni og ganga að hverri þeirri vinnu sem til féll heima fyrir, og norður í Siglufjörð hélt hann þegar aldurinn leyfði í atvinnuleit sem og fjöldi annarra ungra manna til þess að afla sér fjár til framhaldsnáms. Ólafur hélt í Menntaskólann á Akureyri og stundaði þar nám með ágætum, lengst af skóladúx, og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1935. Um haustið hóf hann lög- fræðinám og lauk því vorið 1939 með umtalsverðum glæsibrag. Hann hóf störf hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga síðar á því ári, sem lögfræðingur og endurskoðandi. Arið 1945—46 stundaði ólafur framhaldsnám í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Prófessor í lögum varð hann árið 1947 við Háskóla íslands. Á kenn- araárum sínum í Háskólanum, rit- aði hann bækur lögfræðilegs efnis, sem eru talin grundvallarrit við kennslu í lögfræði og til úrlausnar á flóknum lögfræðilegum efnum. Þegar í menntaskóla tók Ólafur Jóhannesson þátt í umræðum um þjóðfélagsmál og hann var ekki í neinum vafa hvert hugur hans stefndi í þeim efnum. Hann gerði málstað Framsóknarflokksins að sínum og æ síðan hefur hann unn- ið fyrir þann flokk. Hann var formaður Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík 1941, formaður Fram- sóknarfélags Reykjavíkur 1944—45, tók sæti í miðstjórn flokksins 1946 og hefur setið þar síðan. Ólafur varð varaformaður Framsóknarflokksins 1960, og formaður frá því í febrúar 1968 til 1979, að Steingrímur Hermanns- son tók við formennsku í flokkn- um. Árið 1957 tók Ólafur sæti á Alþingi, fyrst sem varaþingmaður Skagfirðinga, en varð fyrsti þing- maður þeirra 1959 (sumarþing). Eftir að einmenningskjördæmin voru lögð niður varð hann fyrsti þingmaður Norðurlandskjördæm- is vestra. Það var á þessum árum, 1957—59 sem samstarf okkar hófst verulega, þó við hefðum haft kynni hvor af öðrum löngu áður, allt frá Siglufjarðarárum hans. Minningar frá kosningafundum og ferðalögum okkar í því sambandi allar götur frá 1958—1971 eru mér einkar ljúfar og eftirminnilegar, þrátt fyrir að hinn pólitíski sjór er við sigldum saman hafi ekki alltaf verið rjómasléttur. Það gat skyndilega brimað eins og algengt er við norðurströndina. Að vera með Ólafi og Skúla Guðmundssyni á framboðsfundum og ferðalögum þeim tilheyrandi var í senn lær- dómsríkt og skemmtilegt. Ólafur var í öllum umræðum á fram- boðsfundum í Norðurlands- kjördæmi vestra, rökfastur og öfgalaus, benti jafnan á nauðsyn þess að styrkja Framsóknarflokk- inn og auka áhrif hans á Alþingi til hagsbóta öllum landslýð. Auk þess að vera rökfastur var hann jafnan sama prúðmennið. Þó minnist ég þess, að væri á hann ráðist og stríðshanskanum kastað að honum, greip hann hann á lofti og sendi til baka. Tók hann á móti með slíkum tilþrifum, að andmælendur hans gerðu sér ekki leik að því að gera slíkt í annað sinn, til þess var ofanígjöfin of minnisstæð. Já, það er margs að minnast frá þessum árum þegar litið er til baka, glöggt kom í ljós á þessum ferðalögum í Skagafirði, Siglufirði og Húnavatnssýslu hversu vin- margur Ólafur var, og virtist sú vinátta ekki flokksbundin, og þeg- ar á þing var komið átti hver Sigl- firðingur, Húnvetningur og Skag- firðingur hauk í horni þar sem Ólafur var, hvaða flokki sem hann annars tilheyrði. Frá mörgu væri að segja frá þeim rúma áratug er við unnum saman að framboðsmálum og al- þingiskosningum þó eigi sé hér gert. Ég man fjölmargar eftir- minnilegar setningar, ánægjulega samferðamenn, dásamlegt veður, sólsetur við Skagafjörð og kvöld- vökurnar, eða réttara sagt nætur- vökurnar heima hjá Jósefínu og Skúla á Laugarbakka, eftir oft erf- iða og langdregna fundi. And- rúmsloftið á því heimili var ein- stakt og ógleymanlegt og þaðan vildum við helst ekki fara, en Jós- efína hvatti til frekari starfa. „Óðum styttist til kjördags," sagði hún og ýtti okkur á ný út í barátt- una, „eitt atkvæði getur skipt sköpum," bætti hún við, og þar með vorum við roknir af stað. Síðan lágu leiðir okkar ólafs saman í flokksstörfum í Reykjavík og blaðstjórn Tímans. Fjárhags- örðugleikarnir ár eftir ár virtust oft óyfirstíganlegir, en undir sterkri hönd hans á stýri tókst siglingin í gegnum þá brotsjói svo afstýrt var áföllum. Ekki gat hjá því farið að for- ustuhæfileikar Ólafs Jóhannes- sonar, réttsýni hans og sanngirni, yrðu mönnum ljósir. Forsætis- ráðherra, dóms- og kirkjumála- ráðherra varð Ólafur Jóhannesson 14. júlí 1971 og hann hefur nú set- ið í ríkisstjórn svo til óslitið síðan, eða í 4 ríkisstjórnum. Á þeim ár- um sem Ólafur Jóhannesson sat í ríkisstjórn hefur verið unnið að framkvæmd fjölda góðra mála, án efa rís þó hæst löggjöfin og fram- kvæmd á útfærslu landhelginnar, fyrst í 50 mílur og síðan í 200 míl- ur. Ólafur Jóhannesson sem var forsætis- og dómsmálaráðherra þegar landhelgin var færð út í 50 mílur var dómsmálaráðherra þeg- ar síðari útfærslan átti sér stað. Ljóst er að lífsstefna, viljafesta og baráttuþrek Ólafs Jóhannes- sonar áttu sinn stóra þátt í að á endanum tókst að sigra í land- helgismálinu. Ólafur Jóhannesson var einn skeleggasti talsmaður þess að Al- þingi tæki til endurskoðunar löggjöf um uppbyggingu atvinnu- rekstrar á landsbyggðinni. Þetta var á þeim árum er fólk var að missa trúna á lífsafkomu á hinum ýmsu stöðum norðanlands, vest- anlands og austan. Ríkisstjórn sú sem ólafur veitti fyrst forstöðu beitti sér fyrir því að útveguð voru atvinnutæki til ýmissa staða út um land, sem gjörbylti högum og háttum fólks á þessum stöðum og gerði lífvænt að búa þar. Á framangreindar stað- reyndir má svo sannarlega minn- ast nú, 1. mars, á afmælisdegi Ólafs Jóhannessonar. Ólafur Jóhannesson hefur verið gæfumaður. í foreldrahúsum naut hann hins besta uppeldis gáfaðra og víðsýnna foreldra, sem veittu syninum í arf ýmsa þá eiginleika sem traustastir hafa reynzt ís- lenzkri þjóð til langlífis í landinu. Hann var námgjarn og allt nám reyndist honum létt og niðurstaða á prófum í skóla var samspil elju hans og góðra gáfna. Árið 1941, hinn 21. júní, kvæntist ólafur, Dóru Guðbjartsdóttur cand. phil. Foreldrar hennar voru Guðbjart- ur skipstjóri Ólafsson, síðar for- seti Slysavarnafélags Islands, og kona hans, Ástbjörg Jónsdóttir, þau bjuggu í Reykjavík. Dóra og Ólafur hafa verið gift í 41 ár og sambúð þeirra og heimilishættir eru til fyrirmyndar. Heimili þeirra er sannkallaður friðar- og griðastaður í stormum og stórviðrum hins pólitíska lífs hús- bóndans. Á þetta heimili er gott og gaman að koma og opið hefur það verið mörgum norðanmannin- um, oft á tíðum verið honum ann- að heimili meðan dvalið var í höf- uðstaðnum. Dóra og Ólafur eignuðust þrjú börn, tvær dætur og einn son, Guðbjart. Hann lést 19 ára gam- all, árið 1967. Hann var mikill efn- ismaður og var andlát hans ha- rmsefni, mikið og þungbært. Ekki aðeins foreldrum og systrum held- ur og námsfélögum og vinum fjöl- skyldunnar. Dæturnar tvær eru Dóra í heimahúsum og Kristín sem gift er Einari G. Péturssyni cand. mag. Þau eiga tvo syni, Guð- bjart og Ólaf. Fátt þurfa stjórnmálaforingjar frekar en gott heimili og góðan styrk maka. Dóra hefur eins og fyrr segir með smekkvísi búið manni sínum og börnum þeirra fallegt heimili á Aragötu 13 og styrk stoð hefur hún reynzt lífs- förunaut sínum í blíðu og stríðu. Iðulega var hún með okkur á þeim framboðsferðalögum norðanlands sem ég minntist á fyrr í grein þessari. Jók það á ánægju ferðar- innar og mörg holl ráð gaf hún okkur áður en orrahríðir hófust. Þótt Ólafur Jóhannesson sé nú sjötugur er hann ekki á því að taka sér hvíld frá stjórnmálunum. Hann varð við óskum flokkssystk- ina sinna að gefa kost á sér á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í næstu kosningum. Hann hlaut mikið traust í prófkosningu. Við vitum það og treystum því, að enn sæki hann fram sem fyrr og verj- ist af sömu víðsýni og réttlætis- kennd í næstu vorkosningum og komi heill í höfn a.m.k. við annan mann. Nú við greinarlok sendi ég ólafi Jóhannessyni og Dóru innilegustu árnaðaróskir mínar og fjölskyldu minnar í tilefni þessara tímamóta. Ég þakka vináttu alla um áratugi og þá ánægju sem ég hefi notið á Aragötu 13 og á ferðalögum með þeim hjónum um Norðurland. Ég veit að í dag senda fram- sóknarmenn og aðrir vinir Ólafs í Norðurlandskjördæmi vestra hon- um sérstakar þakkir og bestu óskir um bjarta framtíð. Undir þær óskir veit ég, að framsókn- armenn taka og aðrir vinir hans um allt land, og þá ekki síst vænt- anlegir kjósendur hans hér í Reykjavík. Til hamingju með daginn, Ólaf- ur. Lifðu heill um langan aldur samferðamönnum til gagns og blessunar. Jón Kjartansson f dag, hinn 1. mars 1983, er Ólafur Jóhannesson utanríkis- ráðherra sjötugur. Á þessum merkisdegi hans langar mig per- sónulega og einnig fyrir hönd framsóknarmanna í Reykjavík að senda honum afmæliskveðjur. Ég mun ekki rekja hér æviferil Ólafs svo kunnur er hann öllum. Er ég var ungur maður gekk ég í Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík. Var ég þá kunnugur Steingrími Steinþórssyni fyrrver- andi forsætisráðherra. Vegna vin- áttu hans við frænda minn og vin- áttu minnar við dóttur hans og tengdason, þá spurði ég hver tæki við af Steingrími er hann ætlaði að láta af þingmennsku. Fyrir hartnær 24 árum var gerð stjórn- arskrárbreyting á íslandi, er fól í sér breytingar á kjördæmaskipan og þá um leið fjölgun þingmanna. Vitað var að Steingrímur ætlaði að láta af þingstörfum, og því var spurt hver tæki hans sæti. Var mér þá svarað að það gerði Ólafur Jóhannesson prófessor. Þá fór ég að íhuga hver þessi ólafur Jó- hannesson prófessor væri. Rifjað- ist þá upp að skömmu áður hafði ég verið að skoða bókina „Öldina okkar 1930—1950“. Þar var mynd af fyrstu sendinefnd Islands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna og þar sat meðal fulltrúa Is- lands Ólafur Jóhannesson. Var það í fyrsta skipti er ég sá hvernig maðurinn lítur út, en óraði þá ekki fyrir, að síðar á æviskeiði mínu myndi ég hitta hann og aka hon- um daglega á kosninganefndar- fund seinni hluta árs 1979. Mér er ávallt minnisstætt er fundum okkar Ólafs bar fyrst saman, en það var í nóvember 1966 þegar Framsóknarflokkurinn átti fimmtíu ára afmæli. Var þá Ólaf- ur varaformaður flokksins, og var þá haldin móttaka vegna þessara tímamóta í Framsóknarhúsinu við Fríkirkjuveg. Nokkru seinna tók Ólafur við formennsku af Eysteini Jónssyni. Var ég oftsinnis staddur á fundum og samkomum þar sem hann kom fram. Vakti hann þá athygli mína með sínu skynsam- legu ræðum og góðvild, og hrifn- ing mín og traust til hans, hefur frá þeirri stundu vaxið allt til þessa dags. Eftir alþingiskosningarnar 1971 stóð Ólafur frammi fyrir því að mynda ríkisstjórn, sem og hann gjörði. Sat hann samfellt í ríkis- stjórn til ársins 1978, tæpt hálft tímabilið sem forsætisráðherra, en hið seinna sem dóms- og við- skiptaráðherra. Árið 1978 er Ólafur var ráð- herra og formaður Framsóknar- flokksins var gengið til alþingis- kosninga. Úrslit þeirra kosninga voru Ólafi erfið. Eftir þær gátu sigurvegararnir ekki staðið að stjórnarmyndun, og öll mál virt- ust óleysanleg. Myndaði Ólafur ríkisstjórn, og þá um leið sá þjóðin hvaða stjórnmálamanni hún gæti treyst. Ólafur hefur oft sýnt með heiðarleika sínum og gáfum að hann er traustsins verður. Mér er ávallt minnisstætt er Ólafur myndaði ríkisstjórn í september 1978. Þá átti fréttamaður útvarps- ins viðtal við hann. Að hætti fjöl- miðlamanna er höfðu fengið góðan hljómgrunn hjá þjóðinni, spurði hann Ólaf hvort það væri ekki óeðlilegt að hann sem hefði tapað kosningabaráttunni myndaði rík- isstjórn. Ólafur svaraði: „Hinir síðustu verða stundum fyrstir." Næsta spurning var: Er ekki óeðli- legt að af níu ráðherrum eru allir nýliðar nema þú, þar sem þú ert eini maðurinn í ríkisstjórninni er slíkt sæti hefur skipað áður. ólaf- ur svaraði samstundis: „Sagt er að nýir vendir sópi best.“ Allt sem hér er haft eftir Ólafi er sagt til að sýna hversu vel hann kann að koma fyrir sig orði. Það sem sagt er um ríkisstjórn þá er rakið var hér að framan gilti ekki lengi, Alþýðuflokkurinn hætti þátttöku. Var svo komið seinni- hluta árs 1979 að rjúfa skyldi Al- þingi. Þá hafði Ólafur þegar ákveðið að láta af þingmennsku fyrir sitt gamla kjördæmi, Norð- urland vestra. leituðu þá fram- sóknarrnenn í Reykjavík til ólafs og óskuðu eftir að hann færi í framboð í höfuðstað landsins. Ólafur varð við þeirri ósk, en það var ekki þó í fyrsta skipti að hann skipaði sæti á lista Framsóknar- flokksins þar, því hann hafði verið í framboði í Reykjavík árið 1942. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um úrslit kosninganna 1979, en þær voru sigurganga fyrir fram- sóknarmenn. Nú líður að kosning- um, og enn ætlar Ólafur að leiða kosningabaráttu fyrir okkur framsóknarmenn í Reykjavík. Ég vil á þessari stundu færa Ólafi kærar þakkir fyrir þann dreng- skap er hann sýndi með því að gefa kost á sér að nýju. Fyrir hönd framsóknarmanna í Reykjavík sendi ég honum og fjölskyldu hans bestu óskir á þessum tímamótum í lífi hans. Þó hann sé nokkuð kom- inn til ára lætur hann engan bil- bug á sér finna. Lifðu heill Ólafur Jóhannesson. Hrólfur Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.