Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983 37 hafði upp á að bjóða og honum var tíðrætt um hina miklu náttúrufeg- urð, sem þar var að finna. Óli var einstakur fjölskyldufaðir, um- hyggjusamur og nærgætinn. Um langt árabil sat óli í stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur. Hann helgaði félaginu stóran hluta af sínum frítíma og vildi veg þess sem mestan. Einn minnis- stæðasti atburður í lífi Óla á seinni árum gerðist er hann var valinn til að sigla íslensku vík- ingaskipi um Hudson-fljót á 200 ára afmæli Bandaríkjanna. Þar kom kunnátta hans og hæfni bet- ur í ljós en nokkru sinni áður. Fáir kunnu betri skil á rá og reiða en Óli og ekki voru seglin honum framandi. Það voru stoltir menn, sem sigldu upp Hudson-fljótið umræddan dag með arfleifð vík- inganna ólgandi í blóðinu. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég eftirlifandi eiginkonu, börnum og öðrum skyld- og vensla- mönnum. Garðar Pálsson Kvedja frá Sjómanna- félagi Reykjavíkur Um margt er öðruvísi farið hvað áhrærir brjóstvörn og kjarna í stéttarfélögum sjómanna en ann- arra stéttarfélaga launþega í landi. Menn ráðast oft ungir til sjós, ganga þá í sjómannafélag og það verður félagið þeirra þó sjó- pokanum sé brugðið á öxl og hald- ið til starfa í landi eftir langan starfsdag á sjó. Óli S. Barðdal var einn í þeirra hópi. Hann varð fé- lagi í Sjómannafélagi Reykjavíkur árið 1943 og gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið, var m.a. um tíma í stjórn félagsins og var fulltrúi þess í sjómannadags- ráði. Um leið og góður félagi Sjó- mannafélags Reykjavíkur er hér kvaddur með þökk fyrir óeigin- gjarnt starf í þágu sjómannastétt- arinnar vottum við eiginkonu, börnum og öðrum ættingjum okk- ar dýpstu samúð. Guðmundur Hailvarðsson Óli er dáinn, lést 22. febrúar. „Ljárinn" gerir ekki boð á undan sér eða gerir mannamun, þetta er það eina er við vitum, en oft er sárt að heyra lát góðs vinar. Óli S. Barðdal forstjóri fæddist 5. júní 1917 svo við vorum alveg jafn gamlir. Ég kynntist óla fyrir 12 árum síðan er ég fékk inngöngu í Oddfellowregluna. Ekki ætla ég að rekja ættir vinar míns óla, heldur þakka fyrir það lán að hafa kynnst jafn heilsteyptum og góð- um manni. Síðustu þrjú árin höfum við ver- ið nágrannar hér í Breiðholtinu, svo ég hefi haft tækifæri til að kynnast Óla töluvert náið. Óli vann mjög mikið í reglu vorri og vildi gera allt fyrir alla og gerði það á þann veg að manni fannst maður vera að gera honum greiða með því að þiggja hjálp hans og góðar ráðleggingar. Óli var mjög mikið prúðmenni og orðvar, ekki hávaðasamur en mjög glaður og kátur í vinahóp. Óli og Sesselja, eiginkona hans, áttu mjög fallegt heimili og var gott að koma í heimsókn til þeirra hjóna, og var því oft mjög gest- kvæmt hjá þeim. Það er að vonum að sár sé sökn- uður öllum hans félögum og vin- um, en sárstur er þó söknuður eig- inkonu óla, börnum og öllu skyld- fólki þeirra, en góðar minningar lifa lengi. Við hjónin sendum eiginkonu, börnum og öllu tengdafólki hans okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. „Guð“ styrki þau öll á þessum sáru og erfiðu tímum. Blessuð sé minning hans. Paul V. Michelsen óli Sigurjón Barðdal forstjóri andaðist í Borgarspítalanum 22. febrúar síðastliðinn eftir nokkra sjúkrahúsdvöl. Hann fæddist á Patreksfirði 5. júní 1917. Ungur hóf hann störf við sjómennsku og stundaði þau framan af ævi. Á öndverðum þrí- t Móðir mín, tengdamóöir og amma, ELSA M. JÓHANNESOÓTTIR, Fífuseli 26, óður Ásvallagötu 15, sem lést í Landakotsspítala 22. febrúar sl. verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 3. mars nk. kl. 13.30. Pétur Guðlaugsson, Salbjörg Bjarnadóttir, Bjarni Þór Pétursson. t STEFANA BJÖRNSDÓTTIR, fyrrverandi saumakona, Bergstaöastræti 4, verður jarösungin frá Sauðárkrókskirkju miövikudaginn 2. mars kl. 2. Ættingjar og vinir hinnar látnu. Lokað í dag frá kl. 13 til 15 vegna jaröarfarar Óla Barödal for- stjóra. Andvari hf. Lokað í dag e.h. vegna jaröarfarar Óla Sigurjóns Barödal. Skipaljós hf., Eyjagötu 7, Reykjavík. tugsaldri veiktist hann af berklum og lá um skeið á Vífilsstaðaspít- ala. Hann náði þó fullum bata og naut eftir það góðrar heilsu uns hann fyrirvaralaust kenndi sér þess meins er á skömmum tíma dró hann til dauða. Að fengnum bata af berklaveikinni var á ný hafist handa við sjómennsku. Var hann í millilandasiglingum á stríðsárunum og nokkur ár eftir það. Er sjómennsku lauk, keypti hann Seglagerðina Ægi, sem hann rak með aðstoð fjölskyldu sinnar til æviloka. Fyrirtækinu stjórnaði hann með miklum ágætum, enda er Seglagerðin Ægir löngu lands- þekkt fyrir vandaðar vörur og áreiðanleika í viðskiptum. Óli Barðdal var gæfumaður í einkalífi sínu. Eftirlifandi eigin- kona hans, Sesselja Guðnadóttir, er hin mætasta kona og var hon- um stoð og stytta í lífinu. Á hún ósmáan hlut í velgengni fyrirtæk- is þeirra. Fagurt heimili þeirra að Depluhólum 7 ber vitni um höfð- ingsskap þeirra og smekkvísi. Þau áttu barnaláni að fagna. Börn þeirra eru myndarlegt mann- kostafólk. Óli var meðalmaður á hæð. Útlit hans og fas bar með sér þrótt og atgervi. I öllum viðskiptum og samskiptum við aðra menn var hann heill, traustur og áreiðanleg- ur svo fátítt má teljast. Hann var manna glaðastur með glöðum en hófsamur í lifnaðarháttum. Vin- sæll var hann og vinafastur. Ekki eru mörg ár liðin frá því fundum okkar Óla Barðdal bar fyrst saman. Tókst fljótt með okkur góður kunningsskapur, síð- ar vinátta. Það sem mér þykir einkum hafa einkennt vin minn óla Barðdal var annars vegar óbilandi dugnaður hans og áhugi á þeim viðfangsefnum sem hann tókst á hendur, og hins vegar hjálpsemi hans og samúð með þeim sem minni máttar voru eða um sárt áttu að binda. Dæmi um hugulsemi hans og góðan hug eru mörg, en þeim flíkaði hann ekki. Hann var mikill fjölskyidumaður og umhyggjusamur heimilisfaðir. Er leiðir skilur að sinni, er mér efst í huga tregi og eftirsjá eftir góðum vini og mætum manni, en þakklæti fyrir góðar samveru- stundir. Fjölmörg atvik koma upp í hugann sem ylja um hjartaræt- ur. Ekki verða þau rakin hér. Margir munu sakna Óla Barð- dal, og hann mun ekki gleymast þeim er honum kynntust. Þung er sorg frú Sesselju og ástvina þeirra, en þeim má þó vera nokkur huggun í því að allur lífsferill óla Barðdal má vera þeim til fyrir- myndar sem vilja hefjast upp til manndóms af sjálfum sér, lifa líf- inu lifandi, afla lífsins gæða án þess að ganga á hlut annarra manna og hafa hjartarúm til að láta aðra njóta með sér. Við hjónin sendum frú Sesselju og ástvinum þeirra öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ragnar Gunnarsson Við andlát Óla S. Barðdal er góður drengur genginn, sem marg- ir munu minnast með söknuði og eftirsjá. Ég og kona mín erum ein þeirra, sem misst höfum góðan vin við andlát hans. Það eru nú 35 ár síðan við Óli heitinn kynntumst fyrst. Hann var þá á Tröllafossi en ég að hefja starf hjá Sjómannafélagi Reykja- víkur. Állar götur síðan lágu leiðir okkar saman í félagsmálum sjó- manna og einnig í einkalífi með vináttu heimila okkar. Óli S. Barðdal vann mikið starf og gott um dagana í þágu Sjó- mannafélagsins. Hann átti sæti í ýmsum nefndum félagsins, sat mörg alþýðusambandsþing og í Sjómannadagsráði var hann á vegum félagsins. Marga hildi háðum við Óli hlið við hlið hér áður fyrr í hagsmuna- málum sjómanna og mér lærðist fljótt að treysta þessum félaga mínum á hverju sem gekk. Sjó- mannafélag Reykjavíkur hefur átt marga nýta baráttumenn og Óli var einn í hópi þeirra beztu. Framan af vorum við ekki ævinlega sammála í pólitíkinni, en þá er bezt vin að reyna, þegar skoðanir eru skiptar og þetta breytti engu um vináttu okkar. Óli heitinn var of skynsamur og góður drengur til að setja vináttu sína undir mæliker ólíkra skoðana í dægurþrasinu. Margra gleðistunda eigum við hjónin að minnast með Óla og hans ágætu konu, Sesselju Guðna- dóttur. Það var venja okkar, þess- ara tveggja hjóna, að halda sjó- mannadaginn hátíðlegan saman. Sá dagur var sameiginlegur merkisdagur í lífi okkar allra. Næsta sjómannadag höldum við hjónin hátíðlegan að venju, en hefur verið. Oft finnur maður mest fyrir missi vina sinna, þegar þeir dagar eru, sem maður hefur verið vanur að gleðjast með þeim. Þá sækir að tómleikinn, ekki sízt þegar ellin færist yfir. Það munu aðrir en ég verða til að rekja ættir og æviferil þessa mæta manns. Þessi orð mín áttu aldrei annað að verða en nokkur saknaðarorð. Ég og kona mín biðjum guð að styrkja ekkju hans og aðra vanda- menn í sorgum þeirra. Sigfús Bjarnason Smellin mynd í smelluramma ■ * STORM smellurammar hentugir fyrir alls kyns myndverk: Bamamyndir- teikningar - grafík - Ijósmyndir - plaköt - eftirprentanir. STORM smellurammar: Ótrúlegt úrval stærða og gerða. STORM smellurammar: Einföld ísetning - auðvelt að skipta. Lundin léttist í laglegu umhverfi: Heimilið - biðstofan - teikni- stofan - skrifstofan - veitingastað- urinn - verslunin................ Ef þú átt myndina eigum við allt utan um hana. Hafnarslræti 18 - Laugavegi 84 - Hallarmúla 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.