Morgunblaðið - 01.03.1983, Page 16

Morgunblaðið - 01.03.1983, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983 Svar við fyrirspurn í grein er birtist í Mbl. 25. febrú- ar sl. ber Þórarinn Eldjárn fram fyrirspurn til Almenna bókafélags- ins vegna nýútkominnar Sænsk- íslenskrar orðabókar. í upphafi skal upplýst að AB sem útgefandi hér á landi ber enga ábyrgð né hefur forlagið skyldur gagnvart tilboðum hins erlenda út- gefanda og var ókunnugt um að einhver áskrift hafi átt sér stað. Ef til vill er þetta ekki kjarni málsins, en þó skal á það bent að fái Þórar- inn bókina senda í pósti frá Svíþjóð má búast við að hann komist hjá því að greiða söluskattinn f hinn íslenska rfkiskassa. Við það sleppa bóksalar hér á landi að sjálfsögðu ekki. Mér virðist kjarninn í fyrirspurn Þórarins vera sá, hvort AB sé ekki óþarfa miililiður og í hverju út- gáfuaðild þess sé fólgin. Skal nú leitast við að svara því. Hvort milliliður sé „óþarfur" er að sjálfsögðu einstaklingsbundið mat, en þó mætti ætla að fyrir- spyrjandi hefði nokkra þekkingu á útgáfu og sölu bóka. Aðdragandi þessa máls er orðinn nokkuð langur eins og fram kemur í fréttatilkynningu AB. Er sam- skipti hófust milli AB og hins sænska útgefanda lagði hann ríka áherslu á að vegna hins gífurlega fjármagnskostnaðar er hann hefði orðið að bera, vildi hann selja ekki færri en 1500 eintök til íslands og fá þau greidd út í hönd. Samningar tókust í nóvember 1982 og hefur AB lagt út um 600 þús. krónur vegna innkaupa á þessum bókum og tók sérstakt bankalán til að geta reitt þetta fé af hendi. Fyrir utan fjármögnun þessara bóka sér AB um að kynna og geyma bókina og dreifa henni til bóksala þar sem hún er til sölu án þess að einstaklingar eða viðkomandi bókabúð hafi pantað hana sérstak- lega frá Svíþjóð. Útsöluverð bókar- innar er 988 kr. Fjármálaráðherra fær af hverri bók 188 kr. væntan- lega til sameiginlegra þarfa okkar allra. Bóksalar fá 30% afslátt í þóknun eða 240 kr. Eftir heldur forlagið 560 kr. Hlutur AB er því að hirða „óþarfa" milliliðatekjur eftir að seld hafa verið 1070 eintök og notar þær til að greiða laun því starfsfólki sem staðið hefur að út- breiðslu bókarinnar af hálfu for- lagsins svo og annan kostnað og skatta. Brynjólfur Bjarnason. Líkamsræktin Kjörgarði I I Sími 16400 Hvers virði er áratuga reynsla afreksmanna í íþróttum? Árangur í líkamsrækt byggist á því að þjálfað sé á réttan hátt. í Líkams- ræktinni, Kjörgarði, sem Gústaf Agnarsson og Guðmundur Sigurðsson reka og vinna sem þjálfarar, getið þér hagnýtt yöur áratuga reynslu þeirra. Gústaf og Guðmundur hafa um langt árabil verið í fremstu röð í íþrótt sinni, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi. Guömundur er núverandi íslands- meistari karla í vaxtarrækt. Ennfremur starfar Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, núverandi íslandsmeistari kvenna í vaxtarrækt, sem þjálfari hjá Líkams- ræktinni. Enginn nær slíkum árangri nema hann kunni góð skil á því hvernig þjálfa skal líkamann. Reynsla þessara þriggja þjálfara stendur yður til boða allan daginn. Þau vita af eigin reynslu hve átaksþjálfun er árangursrík til alhliða upþbyggingar líkamans. Fullkomin æfingaaðstaða með nuddpottum, gufuböðum og sól- arlömpum. Ath.: sólarlamparnir okkar eru yður til frjálsra afnota án AUKAGJALDS. Mánaðargjald er aðeins kr. 600. LÍKAMSRÆKT AÐ LÍFSVENJU. Stjórn Kvenfélags Keflavíkur ásamt Finnboga Björnssyni við afhendingu gjafarinnar á Garðvangi sl. laugardag. Garður: Kvenfélag Keflavíkur gef- ur Garðvangi 25 þúsund kr Garði, 28. fehrúar. ELLIHEIMILINU Gardvangi, sem er sameign sex sveitarfélaga á Suðurnesj- um, voru afhentar 25 þús. kr. að gjöf frá kvenfélaginu í Keflavík sl. laugar- dag. Höfðu þær safnað fénu með vinnuvöku sem fram fór sl. haust og basar sem þær héldu fyrir nokkru. f upphafi afhendingarinnar flutti formaður kvenfélagsins, Soffía Karlsdóttir, ávarp en síðan afhenti Vilborg Ámundadóttir gjaldkerfi Finnboga Björnssyni oddvita Gerða- hrepps peningana en hann hefir séð um bókhald Garðvangs undanfarin ár. Vistmenn á Garðvangi nú eru um 20 en verið er að byggja viðbyggingu sem er 520 fermetrar og er vonast til að hún komi í gagnið síðar á þessu ári. Með tilkomu nýbyggingarinnar verður hægt að tvöfalda vistmanna- fjöldann. Það kom fram í máli Soffíu Karlsdóttur að kvenfélagskonur teldu að það væri mjög brýnt að viðbyggingin kæmist í gagnið hið allra fyrsta og vonaði hún að önnur félög á Suðurnesjum fylgdu í kjöl- farið. Með Soffíu eru í stjórn Kvenfélags Keflavíkur: Guðrún Árnadóttir varaformaður, Sigurbjörg Pálsdóttir ritari, Vilborg Ámundadóttir gjald- keri, Rut Lárusdóttir fjármálaritari, Þorbjörg Pálsdóttir vararitari og Valgerður Halldórsdóttir meðstjórn- andi. Forstöðukona á Garðvangi er Sól- veig Óskarsdóttir. Arnór. ARMAPLAST Brennanlegt og tregbrennaniegt. Sama verö. Steinull — glerull — hólkar. 'Armúla 16 sími 38640 MORGRÍMSSON & CO 9 volta Reykskynjararafhlöður sem endast Búöarverö kr. 75.00 Rafborg sf. Rauðarárstíg 1, s. 11141. Bladburöarfólk óskast! Úthverfi Hjallavegur Vesturbær Granaskjól

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.