Morgunblaðið - 01.03.1983, Side 23

Morgunblaðið - 01.03.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983 31 talið að 10% endurheimt svör gefi marktæka mynd af skoðunum hópsins í heild. Reyndin varð sú í þetta sinn að 16,3% allra kjósenda í Reykjavík svöruðu og 15,7% allra kjósenda í Reykjaneskjördæmi. Vegna þess- arar miklu þátttöku verður að líta svo á, að niðurstöðurnar lýsi ekki aðeins skoðunum þeirra sem vildu tjá sig í könnuninni, heldur gefi þær allgóða mynd af skoðunum alls þorra kjósenda í þessum kjör- dæmum. Ljóst er, að einhverjir af þeim seðlum sem berast í skoðanakönn- un sem þessari gætu verið falsað- ir, fleiri en einn seðill getur borist frá hverjum einstaklingi og seðlar kunna að vera undirritaðir af ein- staklingum sem hafa ekki náð til- skildum aldri. Aðstandendur könnunarinnar hafa lagt sig mjög fram um að vinsa úr alla slíka seð- la. Til frekara öryggis var tekið úr- tak úr endanlegu seðlasafni og nöfn, heimilisföng og aldur við- komandi einstaklinga könnuð til hlítar til þess að ganga úr skugga um áreiðanleik svara. Niöurstöður: Samtals bárust svör á 15.270 seðlum. Þar af töldust 14.968 gild- ir, en 302 voru dæmdir ógildir. Af þessum 302 ógildu seðlum voru 24 alveg auðir, 76 tvíritaðir og 202 voru nafnlausir, útfylltir af börn- um, falsaðir eða ólæsilegir. Við at- hugun á fyrrgreindu úrtaki seðla tókst að sannreyna nöfn og aldur í 99% tilvika og má draga af því þá álýktun að könnunin sé áreiðanleg að þessu leyti. Enda þótt könnuninni væri ein- ungis ætlað að ná til íbúa Reykja- víkur- og Reykjaneskjördæmis, bárust 458 svör frá íbúum annarra kjördæma og var unnið úr þeim með sama hætti og öðrum svörum. Heildarniðurstöður könnunar- innar byggðar á svörum af 14.968 seðlum eru sýndar í töflu 1. Haldið var saman niðurstöðum þeirra seðla sem bárust í hverri viku söfnunarinnar og eru þær sýndar í töflu 2. Töflurnar sýna, að yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda vill að kosningarétturinn verði jafnaður að fullu. Mikill meirihluti kýs að þingmönnum verði fækkað, og flestir vilja að landið verði gert að einu kjördæmi. Töflurnar sýna ekki, hve margir kjósa þetta þrennt saman, en sé það athugað, kemur í ljós, að þeir menn mynda langfjölmennasta hópinn, samtals 5836 manns eða 39% þátttakenda. Næst stærsta hópinn mynda þeir sem vilja hafa þingmannatölu óbreytta, vilja jafna að fullu at- kvæðavægi og gera landið að einu kjördæmi. í síðarnefnda hópnum eru 2.437 manns eða 16% þátttak- enda. Þetta þýðir að 8.273 eða 55% þátttakenda vilja jafna atkvæða- vægi milli landshluta að fullu og gera landið að einu kjördæmi, án þess að fjölga þingmönnum. Þriðji stærsti hópurinn 1.092 manns eða 7% þátttakenda vill óbreyttan fjölda þingmanna, jafna að fullu og halda óbreyttri kjör- dæmaskipan. Fjórði stærsti hópurinn, 1.036 manns vilja fækka þingmönnum, Sr. Kristján Bjarnason. í CJÆR fór fram frá Dómkirkjunni útför sr. Kristjáns Bjarnasonar, fyrrverandi sóknarprests á Reyni- völlum í Kjós. Kveðjuorð um sr. Kristján birtast hér í blaðinu á morgun, miðvikudag. jafna atkvæðavægi að fullu og taka upp einmenningskjördæmi. Athyglisvert er að aðeins 87 ein- staklingar, eða 0,6% þátttakenda vilja fjölga alþingismönnum, jafna atkvæðavægi að hluta og halda núverandi kjördæmum, en þetta er einmitt sú leið sem farin er í frumvarpi því sem formenn stjórnmálflokkanna hafa nú lagt fram á alþingi. Áskorun til stjórnvalda Þann 15. febrúar létu Samtök áhugamanna um jafnan kosn- ingarétt frá sér fara áskorun til stjórnmálaflokkanna þess efnis að ekki yrði frekar aðhafst um frum- varp að nýjum kosningalögum fyrr en endanlegar niðurstöður yf- irstandandi skoðanakönnunar lægju fyrir. Forystumenn stjórn- málaflokkanna urðu ekki við þess- ari ósk. Niðurstöður víðtækrar skoðana- könnunar liggja nú fyrir, þar sem fram kemur með afdráttarlausum og óyggjandi hætti, að kjósendur Reykjavíkur- og Reykjaneskjör- dæmis vilja ekki að alþingis- mönnum verði fjölgað. Ennfremur er ótvírætt ljóst að kjósendur þessara kjördæma gefa ekki kosn- ingarétt sinn eftir af fúsum og frjálsum vilja, heldur verður hann einungis af þeim tekinn með valdboði. Samtök áhugamanna um jafnán kosningarétt skora á alþingis- menn að jafna kosningarétt lands- manna allra að fullu og falla frá þeirri fyrirætlan sinni að fjölga þingmönnum. Jafnframt hvetja samtökin ein- dregið til þess að sá möguleiki að gera landið að einu kjördæmi verði athugaður gaumgæfilega. Ástæða er til að ítreka þá niður- stöðu, að aðeins 87 manns eða 0,6% þátttakenda lýsti sig fylgj- andi þeirri leið sem farin er í frumvarpi formanna stjórnmála- flokkanna og nú liggur fyrir Al- þingi. Þá niðurstöðu verður að túlka sem alvarlega aðvörun til al- þingismanna og forystumanna stjórnmálaflokkanna. Það getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér að samþykkja laga- frumvarp, sem svo lítils fylgis nýtur meðal kjósenda, um svo mikiivægt mál sem sjálfur kosn- ingarétturinn er. Samtök áhugamanna um jafnan kosningarétt. u geturðu fengið litaskerm á System/34 tölvuna hjá IBM IBM vinnur jafnt og þétt að því að gera tölvustörfin skemmtilegri og þægilegri. Enn sem fyrr er System/34 ein vinsælasta og hagkvæmasta tölvan fyrir íslenskt atvinnulíf. IBM býður nú nýjan litaskerm á System/34. IBM 5292 litaskermurinn skilar 7 litum sem opna þér nýja möguleika á framsetningu upplýsinga, meðal annars á myndrænan hátt. Borðið er létt og meðfærilegt. Enn fremur má stilla hallann á lyklaborðinu á einfaldan hátt til hagræðis fyrir starfsfólk. Það er staðreynd, að kaupverð System/34 hefur nýverið lækkað um 40% hérlendis vegna hagstæðrar framleiðsluþróunar. Pú gerir því góð kaup í IBM System/34. 8 System/34 hefur nýtt og fallegt lyklaborð, hannað með allar helstu kröfur um vinnuaðstöðu og þægindi í huga. Lyklarnir eru 83 í sömu uppsetningu og á vélritunarborði, með talnaröð og skipunarlyklum. " Skaftahlíð 24 • 105 Reykjavík • Simi 27700 JsLENSK ÞEKKING-ALPJÓÐLEG TÆKN/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.